Morgunblaðið - 17.06.2016, Síða 13
Morgunblaðið/Þórður
Heimsbókmenntir og hanastél Hluti klúbbsins hittist í góða veðrinu í vikunni. F.v.: Aðalheiður Halldórsdóttir,
Guðrún Nanný Vilbergsdóttir, Hildur María Friðriksdóttir, Hildur Friðriksdóttir og Gréta Sigríður Einarsdóttir.
sem við höfum til viðmiðunar,
bækurnar mega til dæmis helst
ekki vera lengri en 400 blaðsíður.
Þetta þarf að vera gerlegt.“
Hanastélshluti klúbbsins er
mjög mikilvægur að sögn Tinnu.
„Það var einhvern tíma hugmynd
að velja áfengan drykk sem er í
takt við það sem við erum að lesa.
Ein af fyrstu bókunum sem við
lásum var „Konan í lestinni“ eftir
Paulu Hawkins og aðalsögupersón-
an drekkur mikið af gini og þá
drukkum við gin, en það var ekki
jafn subbulegt og hjá henni, þar
sem hún drakk gin og tónik í dós,
þetta var aðeins meira elegant,“
segir Tinna. Það getur að vísu
verið vandasamt verk að finna bar
við hæfi þar sem hægt er að funda
á föstudegi. „Við höfum líka haft
fundi í heimahúsum, það fer eig-
inlega eftir því hvað eru margar
að mæta. Ef við erum fáar er eig-
inlega bara huggulegt að vera í
stofunni hjá einhverjum,“ segir
Tinna. Þá nýta þær tækifærið og
prófa sig áfram í hanastélsgerð-
inni, sérstaklega yfir sumartím-
ann.
Tinna segir nafn klúbbsins
raunar hljóma mun virðulegra en
raun ber vitni. „Þetta er mjög
virðulegt nafn á klúbbi. Við virkum
miklu dannaðri en við erum í raun-
veruleikanum held ég,“ segir hún
og hlær, og verður þá hugsað til
fyrsta formlega fundarins sem fór
fram á bar. „Þetta hefur gengið
misvel. Fyrsti fundurinn var hald-
inn á „happy hour“-bar og hann
endaði með ósköpum, sem tengist
kannski því að við vorum allar
svangar þegar við mættum. Við
drukkum of mörg hanastél og töl-
uðum lítið um bókina. Ég held að
mesta sem bókin var notuð í þetta
kvöld var þegar ég var að lesa upp
úr henni fyrir túrista. Við höfum
a.m.k. ekki rætt þessa bók ennþá.“
Hinn gullni meðalvegur
Bókin sem um ræðir heitir
„Maður og elgur“ og er eftir
norska rithöfundinn Erlend Loe
og var valin af Tinnu sjálfri.
„Þetta er gjörsamlega frábær bók
og mig langaði mjög mikið að tala
um hana. En við höfum alveg líka
hist við virðulega kakódrykkju,
þannig að maður lærir af reynsl-
unni og þarf að finna þennan
gullna meðalveg.“
Næsta bók á dagskrá klúbbs-
ins er „Dalalíf“ eftir
Guðrúnu frá Lundi.
„Þetta er svona ekta íslenskur
sveitarómans og tilvalinn fyrir
sumarið,“ segir Tinna, en klúbb-
meðlimir taka ákvörðun um eina
bók í einu, til að fara ekki of langt
fram úr sér. Þær sjá þó fyrir sér
að klúbburinn verði til um aldur
og ævi. „Við vorum með alls konar
hugmyndir um að eldast virðulega
í kokteilabókaklúbbnum okkar og
fara í söguferðir, á Jane Austen-
slóðir í Englandi og á Wallander-
slóðir í Svíþjóð. Ég vona því að
klúbburinn lifi sem lengst.“
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2016
Hanastél spila jafn stórt hlutverk og bækur í klúbbnum og hér má finna
uppskrift að sumarlegum vatnsmelónukokteil frá Tonga í Kyrrahafi.
Harpa Stefánsdóttir, einn meðlimur Heimsbókmennta og hanastéls,
heldur úti bloggsíðunni Eldhúsatlasinn (www.eldhusatlasinn.is) þar sem
finna má girnilegar uppskriftir frá 196 löndum.
Otai nefnist drykkurinn og er frískandi og sumarlegur vatnsmelónu-
drykkur með kókosmjólk, ananas og límónusafa. Otai er óáfengur svala-
drykkur en það er auðvelt að breyta honum í rommkokteil með
því að setja 1-2 cl. af ljósu rommi í glas og leysa u.þ.b.. teskeið
af sykri eða hunangi upp í áfenginu. Það er
líka gott að nota sykursíróp ef þið nennið
að búa það til.
Innihald:
Hálf vatnsmelóna
(1.300 g með hýði/1.000 g
án hýðis)
2 ferskir ananashringir
(u.þ.b. 200 g)
1½ dl af feitri kókosmjólk eða
kókosrjóma
Safi úr hálfri límónu
Örlítið hunang
Svolítið vatn
Klakar
Þessi uppskrift gefur 1,2 lítra.
Hanastél frá Tonga
OTAI: FRÍSKANDI VATNSMELÓNUDRYKKUR
Laugavegi 99 – Sími 777 2281
(gengið inn frá Snorrabraut)
aff.is
Concept store
Olsson & Jensen lampi
79.900 kr
Picnic teppi
19.900 kr
Mood Board 14.900 kr
Sky –Circles
100x100 cm
38.500 kr
Vintage black Jar
27.900 kr
Sky Glass
Consoletable
139.900 kr
Sky Glass Table 79.900kr
Vefverslun okkar er opin
allan sólahringinn aff.is