Morgunblaðið - 17.06.2016, Side 44

Morgunblaðið - 17.06.2016, Side 44
FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 169. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Líkið fannst í heilu lagi 2. Dagsgamalt barn lánaði … 3. Ísland fer á HM í Frakklandi 4. Ógnvekjandi íslenskir … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Wift á Íslandi, félag kvenna í kvik- myndum og sjónvarpi, vinnur nú að undirbúningi nýs vefmiðils á vefsíðu sinni, Wift.is. Vefmiðillinn mun inni- halda ítarlega skráningu yfir konur sem starfa í kvikmynda- og sjón- varpsbransanum á Íslandi og verk þeirra og að auki mun heimasíðan innihalda vefmiðil. Þar munu birtast þættir og greinar um og eftir konur. Markmið vefmiðilsins er að auka sýnileika kvenna og vægi í kvik- mynda- og sjónvarpsgeiranum. Félagið óskar eftir efni eftir konur, bæði skriflegu og í formi myndbanda, til að birta á vefnum. Óskað er eftir vikulegum örþáttum, gagnrýnendum, pistlahöfundum, vídeóbloggurum svo dæmi séu nefnd, að því er fram kem- ur í tilkynningu frá Dögg Móses- dóttur, formanni Wift. Þær sem vilja taka þátt eru beðnar um að senda tölvupóst á doggmo- @yahoo.com. Kvikmyndaefni eftir konur óskast  Tónleikarnir Rock the Boat verða haldnir í gamla bátnum í hjarta Breiðdalsvíkur í kvöld kl. 20. Teitur Magnússon og Prins Póló ásamt hljómsveit munu leika lög sín í bátn- um og verður aðgangur ókeypis. Teitur sló í gegn með fyrstu sóló- plötu sinni 27 og mun austfirsk hljómsveit leika með honum. Prins Póló hefur, líkt og Teitur, notið mikilla vinsælda hér á landi og þá m.a. fyrir plötu sína Sorrí og tónlist sem hann samdi við kvikmyndina París norðursins. Rokkað í gamla bátn- um á Breiðdalsvík Á laugardag Suðaustan 8-15 m/s og rigning, en hægari vindur og þurrt á Norður- og Austurlandi. Hiti 10 til 19 stig. Á sunnudag Suðaustlæg átt 3-10 m/s og skúrir. Hiti breytist lítið. Á mánudag Stíf austanátt með rigningu, einkum suðaustanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Úrkomuminna um landið vestanvert og léttir víða til í kvöld. Hiti 9 til 15 stig yfir daginn. VEÐUR Íslandsmeistarar FH tylltu sér á topp Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í gær- kvöldi þegar þeir lögðu Valsmenn, 1:0, á Valsvelli í við Hlíðarenda. Emil Páls- son skoraði eina mark leiks- ins. Hann hefur nú skoraði þrjú mörk í deildinni í sum- ar. Valsmenn sitja í sjöunda sæti, tíu stigum á eftir FH- ingum. Fjölnismenn koma næstu á eftir FH-ingum með 16 stig. »2 FH-ingar efstir á nýjan leik „Menn eru einbeittir að næsta verk- efni sem verður erfiður leikur á móti Ungverjunum. Það verður öðruvísi leikur en leikurinn við Portúgalana. Þeir eru þéttir fyrir, skipulagðir og við reikn- um með að vera meira með boltann en andstæðing- arnir,“ sagði Heimir Hall- grímsson, annar landsliðsþjálfara Íslands í knattspyrnu karla, um næsta and- stæðing íslenska lands- liðsins á EM í knatt- spyrnu. »4 Allt öðruvísi leikur gegn Ungverjalandi Norður-Írar sungu og trölluðu Lyon í gær eftir að landslið þeirra vann í fyrsta sinn kappleik á Evrópumeist- aramótinu í knattspyrnu karla. N-Írar unnu Úkraínumenn, 2:0. Þar með eru þeir síðarnefndu úr leik þótt þeir eigi einn leik eftir á mótinu. Þjóðverjar og Pólverjar gerðu markalaust jafntefli en Englendingar kreistu út sigur á Walesbúum á síðustu mínútu. »3 Norður-Írar sungu og trölluðu í Lyon ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is Lára fagnar aldarafmælinu á þjóðhá- tíðardaginn, en það hefur aðeins gerst einu sinni áður að Íslendingur fæddur sautjánda júní hafi náð hundrað ára aldri. „Ég er fædd norður í Húnavatns- sýslu í Bólstaðarhlíð og þar ólst ég upp til 16 ára aldurs,“ segir Lára, sem er búsett í Seljahlíð í Breiðholti. 17 ára fór hún norður í Skagafjörð á prests- setur, að Mælifelli, og var þar í tvo vet- ur þar til hún fékk brjósthimnubólgu, undanfara berkla. „Í stað þess að fara í menntaskóla eins og stóð til þá fór ég á Kristneshæli og þar dúsaði ég í tvö ár, en það voru ágætis ár.“ Lára flutti síðar til Reykjavíkur og árið 1940 giftist hún Pálma Péturssyni skrifstofustjóra. Þau skildu. Síðar gift- ist hún Ægi Ólafssyni stórkaupmanni en þau skildu. Börn Láru og Ægis eru Guðrún Unnur Ægisdóttir og Gunnar Ingi Ægisson. Lára gegndi meðal ann- ars starfi gjaldkera hjá atvinnudeild Háskólans og starfaði einnig við skúr- ingar í Kennaraháskólanum. Af hverju í andskotanum er ég að skúra hér? „Það vildi svo þannig til að ég var að skúra eitt kvöldið og sá pappíra frá Fóstruskóla Íslands á borðinu og lít á þá og sagði við kunningja minn sem var að skúra þarna með mér: Af hverju í andskotanum er ég að skúra hér? Af hverju fer ég ekki í þennan skóla?“ Lára sótti um lauk námi tveimur árum seinna og fékk strax starf sem forstöðukona. Lára starfaði lengst í Hamraborg, leikskóla í Hlíð- unum, sem hún tók þátt í að byggja upp. „Það var yndislegt starf, fóstru- starfið.“ Árið 1953 var Lára formaður Fóstru, félags barnagæslustúlkna á uppeldis- og barnaheimilum og árið 1988 var hún kosin heiðursfélagi Fóstrufélagsins. Þegar Lára var 90 ára sagði í Morgunblaðinu að hún væri elsti núlifandi leikskólakennari á landinu. „Og ég er það enn.“ Lára segir að það hafi alltaf fylgt því svolítil reisn að eiga afmæli 17. júní. „Það þykir svolítið flott að eiga afmæli á þessum degi.“ Lára man vel eftir 17. júní árið 1944. Þó svo að rignt hafi eldi og brennisteini á lýðveldishá- tíðinni á Þingvöllum minnist Lára þess að sólríkt hafi verið í borginni. „Þetta var yndislegur dagur og hátíð- legur.“ Lára hefur alltaf verið félagslynd og tengir langlífið við það. „Ég var alltaf dugleg, glaðlynd og vinsæl, það var mikið guðs gjöf að eiga marga vini.“ Lára á von á vinum og ætt- ingjum í kaffi í Seljahlíð í dag, en hún hefur enga hugmynd um hvort von er á margmenni. „En ég veit að börnin mín eru búin að kaupa afmælistertur.“ Dugleg, glaðlynd og vinsæl  Lára Helga Gunnarsdóttir er 100 ára í dag Morgunblaðið/Þórður Perluvinir Lára Helga Gunnarsdóttir er 100 ára í dag, 17. júní. Hér er hún ásamt Stefáni Hilmarssyni, fyrsta barna- barni sínu. Þau eru sex talsins og barnabarnabörnin níu. „Hann hefur alltaf verið eftirlætið mitt, hann Stebbi.“ Lára á tvö börn, sex barnabörn og 9 barnabarnabörn. Lára er einnig langalangamma en eitt barnabarnabarnabarn bættist ný- verið í hópinn. „Ég er heppin með börnin mín og hef verið af- skaplega heppin með barnabörn- in,“ segir Lára. Stefán Hilm- arsson söngvari er fyrsta barnabarn Láru og ólst að hluta til upp hjá henni, frá 8 ára aldri. „Hann er mitt líf og yndi. Við er- um afskaplega samrýnd og hann hefur alltaf verið mitt eftirlæti.“ Stefán er fæddur 26. júní árið 1966 og fagnar því fimmtugs- afmæli um næstu helgi. „Það var allt reynt svo að ég myndi fæð- ast á afmælisdegi ömmu. Mamma gekk um gólf og upp og niður stiga en ekkert gekk,“ segir Stef- án. Þeir tíu dagar sem eru á milli Stefáns og Láru, auk hálfu ald- arinnar, hafa þó ekki komið að sök, þau hafa ávallt verið perlu- vinir og eru enn. „Stebbi er mitt eftirlæti“ LÁRA OG AFKOMENDURNIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.