Morgunblaðið - 17.06.2016, Síða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2016
✝ Birgir GrímurJónasson
fæddist 6. apríl
1954. Hann lést á
Eisenhower-
sjúkrahúsinu í
Palm Desert í Kali-
forníu 30. apríl
2016.
Foreldrar Birgis
eru Halldóra Guð-
mundsdóttir, f. 8.
mars 1933, og Jón-
as Guðvarðsson, f. 17. október
1932, d. 29. nóvember 1997.
Systkini hans eru Björg Jón-
asdóttir, maki Halldór Þ. Sig-
urðsson, og Jónas Bragi Jón-
asson, maki Catherine Dodd.
Æskuheimili Birgis var að
Stekkjarkinn 17 í Hafnarfirði.
Hann sótti framhaldsskóla í
Barcelona og Palma á Mallorca
meðan foreldrar hans voru þar
við nám og störf. Birgir starf-
aði um hríð sem fararstjóri á
Mallorca, starfaði við fisk-
verkun og aðra verkamanna-
vinnu og var í þjóðlagatríóinu
Tríóla. Árið 1976
hlaut hann styrk til
að stunda nám við
University of Ore-
gon í Eugene og
útskrifaðist þaðan
sem innanhúss-
arkitekt 1981.
Á námsárunum
kynntist Birgir
eiginkonu sinni,
Janet Lynn Spry
frá Yreka í Kali-
forníu, og gengu þau í hjóna-
band í Eugene í Oregon 8. sept-
ember 1981. Þau settust að í
Palm Desert í Kaliforníu og
vann Birgir þar að verkefnum í
fagi sínu og að húsagerð, en
breytti um kúrs síðustu árin og
annaðist forfallakennslu á
unglingastigi, þar á meðal í
spænsku.
Synir Birgis og Janet eru Jo-
nas Leo Jonasson, f. 30. júní
1987, og Thor Jonasson, f. 24.
apríl 1989.
Bálför Birgis hefur farið
fram.
Birgir Grímur Jónasson, bróð-
ir minn, er nú fallinn frá. Hann
mun ætíð lifa í hugum okkar vina
og vandamanna.
Birgir var ævintýramaður
sem elti drauma sína. Hann ólst
upp í fallegu húsi sem foreldrar
okkar, Halldóra Guðmundsdóttir
og Jónas Guðvarðsson, reistu í
Hafnarfirði. Á unglingsárum
Birgis bjuggum við í Barcelona
og Palma á Mallorca er faðir okk-
ar stundaði þar myndlistarnám á
árunum 1968-72.
Þar gekk Birgir í enskumæl-
andi menntaskóla og Björg, syst-
ir okkar, fór sem au-pair til
Frakklands á þeim árum. Síðar
vann Birgir sem fararstjóri ís-
lenskra ferðamanna á Mallorca.
Áhugi Birgis á allri góðri
hönnun, tónlist, myndlist og
byggingalist fór ekki framhjá
neinum. Varð svo úr að hann nam
innanhússarkitektúr við Uni-
versity of Oregon á vesturströnd
Bandaríkjanna og útskrifaðist
1981. Að námi loknu var Birgir
ráðinn til starfa hjá hinni virtu
hönnunar- og arkitektastofu Ste-
ves Chase í Kaliforníu þar sem
hann starfaði um árabil.
Eftir að Birgir hóf að starfa
sjálfstætt hannaði hann nokkurn
fjölda bygginga. Mest teiknaði
hann þó innréttingar í glæsihýsi,
skrifstofubyggingar, söfn og
verslanir í Kaliforníu. Þar á með-
al má nefna fornbílasafn og
heilsustofnun.
Birgir og Janet, eiginkona
hans, bjuggu sér fallegt heimili í
Palm Desert í Kaliforníu og eign-
uðust synina Jonas Leo og Thor.
Stærstan hluta hússins hannaði
Birgir sjálfur og annaðist mest-
alla smíði og frágang með eigin
höndum.
Mér er sérstaklega eftirminni-
legt eitt árið sem Birgir kom
heim í sumarleyfi frá náminu. Þá
kynnti hann föður okkar, sem var
þá starfandi myndlistarmaður,
fegurð glers og glerlistar sem
hann hafði upplifað í námi sínu í
Oregon. Þessi kynni höfðu tölu-
verð áhrif á listsköpun föður okk-
ar, sem innleiddi litað gler í verk
sín um tíma.
En ekki síður hafði það áhrif á
mig að fá þessa innsýn í töfra
glersins. Alla tíð síðan hef ég
helgað mitt starf myndlist og
haft gler sem þann miðil sem ég
nota helst.
Það var mér mikil gæfa að
eiga Birgi sem stóra bróður og
áhrifavald á þeirri braut sem ég
hef fetað.
Birgir lést langt um aldur
fram og missir Janet og sona
þeirra er mikill og sár. Við Cat-
herine og börnin vottum þeim
innilega samúð okkar.
Jónas Bragi Jónasson.
Í ágúst verða 40 ár liðin frá því
að Birgir bankaði upp á hjá mér
til að heilsa tilvonandi skóla-
félaga við University of Oregon.
Við höfðum báðir fengið styrk
fyrir skólagjöldunum, ég í blaða-
mennsku og hann í arkitektúr.
Saman flugum við til Oregon um
haustið og næstu þrjú ár vorum
við sem bræður, leigðum saman,
skemmtum okkur, ferðuðumst
og eignuðumst sameiginlega vini.
Með okkur tókst vinátta sem
hélst óslitið þó Birgir hafi sest að
í Bandaríkjunum að námi loknu.
Þau voru ófá klukkutíma löngu
símtölin sem við áttum gegnum
árin.
Birgir var kappsamur dugnað-
arforkur, talaði hraðar og meira
en nokkur sem ég hafði kynnst,
sýndi alltaf góða skapið, var
hæfilega stríðinn og lagði sig
fram um að miðla af ótrúlegri
þekkingu sinni á tónlist, gömlum
bílum, arkitektúr og listum. Sér-
staklega var tónlistaráhugi hans
bráðsmitandi, vínilplötusafnið
stækkaði hratt og honum tókst
að sannfæra mig um að það væri
peninganna virði að skella sér á
tónleika með Elvis.
Það var ekki í boði að fljúga
heim í jólafríum og þá var ekki
annað en leita uppi aðra náms-
menn í sömu stöðu til að eiga
hálfíslensk jól. Sérstaklega
minnisstætt er jólahaldið í sund-
laugarhúsinu hjá Ellu Þóru Frið-
finnsdóttur, Halla Thorsteins og
Evu litlu Bergþóru. I‘m an Ice-
landic cowboy var sungið í tætlur
við undirleik Birgis og geðþekka
skátans Tryggva Jónssonar og
jólatónleikunum lauk ekki fyrr
en síðasti gesturinn var sofnað-
ur.
Listrænu hæfileikarnir sem
Birgir erfði frá foreldrum sínum
fengu vel að njóta sín í þeim
verkefnum sem hann tók sér fyr-
ir hendur sem innanhússarki-
tekt. Húsgögnin sem hann teikn-
aði hjá Steve
Chase-hönnunarstofunni voru
einstök listaverk.
Birgir var ósérhlífinn og sá
eiginleiki kom sterklega í ljós eft-
ir að hann veiktist. Hann greind-
ist með krabbamein í kjálka fyrir
fjórum árum og gekkst undir
uppskurði og erfiðar meðferðir
sem gengu afar nærri honum.
Samt kvartaði hann aldrei, talaði
bara um viðfangsefnin sem hann
ætlaði að halda áfram með þegar
hann væri búinn að ná sér. Sú
von rættist því miður ekki og það
er sárt að sjá á eftir góðum vini á
besta aldri.
Fyrsta árið í Oregon kynntist
Birgir tilvonandi eiginkonu sinni,
Janet Lynn Spry, sem stundaði
nám í listasögu. Áhuginn á fal-
legri hönnun sameinaði þau og
milli þeirra ríkti mikill kærleik-
ur. Að námi loknu fluttu þau til
Palm Desert í Kaliforníu og
keyptu sér hús. Það leið þó ekki á
löngu þar til athafna- og sköp-
unarþrá Birgis hreinlega varð að
fá útrás. Hann réðst í viðbygg-
ingu við húsið og sinnti því öllum
stundum að innrétta og fegra.
Húsið var stóra áhugamálið og
hann þreyttist ekki á því að tala
um hvernig gengi og hvað væri
næst á dagskrá. Birgir hafði
einnig mikinn áhuga á gömlum
amerískum bílum. Nash-fólksbíll
frá fjórða áratugnum átti sinn
stað í innkeyrslunni við heimilið,
óhultur fyrir ryði í eyðimerkur-
loftslaginu og því hægt að grípa í
endurbætur eftir hendinni.
Þau Birgir og Janet voru alla
tíð einstaklega samheldin og
samstiga. Missir hennar og sona
þeirra er mikill en minningin um
góðan dreng lifir áfram.
Ólafur Hauksson.
Birgir Grímur
Jónasson
✝ Björn VíkingurÞórðarson
fæddist í Vest-
mannaeyjum 10.
júní 1931. Hann lést
á Líknardeild Land-
spítalans 8. júní
2016.
Foreldrar hans
voru Þórður Bene-
diktsson, f. á Grenj-
aðarstað í Suður-
Þingeyjarsýslu
þann 10. mars 1898, d. 14. apríl
1982, og Anna Kamilla Sylvia
Benediktsson, f. í Danmörku 3.
júlí 1900, d. 4. desember 1997.
Björn Víkingur var næstyngstur
fjögurra systkina; 1) Sveinn Áki,
f. 1. ágúst 1922, d. 16. ágúst 2011.
ber 1973. Maki er Lísbet Alex-
andersdóttir, f. 24. apríl 1975.
Börn þeirra eru; a) Björn Vík-
ingur Þórðarson, f. 18. nóvember
1995, b) Alexander Þórðarson, f.
10. febrúar 1999, c) Benedikt
Þórðarson, f. 27. nóvember 2007.
Björn Víkingur ólst upp í Vest-
mannaeyjum til 11 ára aldurs en
flutti þá til Reykjavíkur með fjöl-
skyldu sinni. Alla sína starfsævi
starfaði Björn Víkingur hjá
ÁTVR, fyrst sem sendisveinn en
vann sig upp í starf aðalgjald-
kera og starfaði sem aðal-
gjaldkeri ÁTVR til starfsloka 1.
janúar 1999.
Björn Víkingur var einn af
kunnari skákmönnum landsins,
sterkur meistaraflokksmaður úr
TR um áratugaskeið, og síðar
með Riddurunum – skákfélagi
eldri borgara í Hafnarfirði. Þar
var hann sleginn til heiðursridd-
ara fyrir fimm árum.
Útför Björns Víkings hefur
farið fram í kyrrþey.
2) Ásta Benedikta, f.
16. júní 1924, d. 12.
júlí 2001, og 3) Bald-
ur, f. 20. september
1932.
Eftirlifandi eig-
inkona Björns Vík-
ings er Guðmunda
Inga
Guðmundsdóttir, f.
1. júlí 1940. Guð-
munda og Björn
Víkingur gengu í
hjónaband 31. desember 1967.
Börn þeirra hjóna eru; 1) Anna
Regína Björnsdóttir Nielsen, f.
21. febrúar 1968. Sonur hennar
er Vikingur Nielsen, f. 14. nóv-
ember 1997.
2) Þórður Björnsson, f. 9. októ-
Ég kynntist Birni Víkingi
fyrst haustið 1994 þegar ég fór að
vera með Þórði, syni hans. Ég sá
strax að þar fór góður maður, al-
gert gæðablóð. Fyrsta barna-
barn Björns Víkings og Guð-
mundu fæddist í nóvember 1995
og fékk sá eðaldrengur nafnið
Björn Víkingur Þórðarson. Mikið
var sá gamli stoltur af alnafna
sínum. Barnabarn númer tvö
fæddist svo árið 1997 í Svíþjóð og
þar var annar Víkingur á ferð og
ekki var sá gamli minna stoltur
þá. Barnabörnin urðu í heildina
fjögur, allt drengir og voru þau
hjónin einstaklega stolt af þeim
öllum. Fallegustu og klárustu
drengir sem uppi hafa verið og
ekki ætla ég að mótmæla því.
Björn var einstaklega ljúfur og
góður maður og skipti aldrei
skapi. Hann hafði góðan húmor
og líka húmor fyrir sjálfum sér.
Hann var óspar á hrósið og þegar
hann kom í mat til okkar Þórðar
var það alltaf besti matur sem
hann hafði smakkað og bestu
kökurnar sem hann hafði fengið.
Hann náði meira að segja að
hrósa mér fyrir jafninginn sem
ég bauð honum uppá forðum
daga, jafninginn sem var svo
þykkur að hann þurfti að nota
hníf og gaffal en samt var hann
einstaklega bragðgóður. Já,
Björn Víkingur var einstakur
maður.
Björn gekk í gegnum ýmis
veikindi á sínum efri árum en
náði sér alltaf á strik aftur. Ótrú-
legur lífsvilji og kraftur í honum.
Það var dýrmætur tími sem við
fengum með honum síðustu sjö
vikurnar þar sem ýmis mál voru
rædd. Það var líka dýrmæt stund
að fá að halda í hönd hans þegar
hann kvaddi þennan heim.
Ég er lánsöm að hafa átt Björn
Víking sem tengdaföður.
Hvíl í friði, elsku Björn Vík-
ingur, þín tengdadóttir,
Lísbet (Lísa).
Við Björn Víkingur gengum í
Taflfélag Reykjavíkur sama dag-
inn, fyrir rúmum 60 árum. Þá réð
þar ríkjum Guðmundur S. Guð-
mundsson, formaður félagsins.
„Þið skuluð tefla saman“ voru
orð formannsins, og þetta átti svo
sannarlega eftir að rætast. Við
áttum eftir að heyja ótal orrustur
á reitunum 64, en í stað grimmi-
legra átaka myndaðist þarna
djúp og einlæg vinátta sem aldrei
bar skugga á.
Björn var ljúflingurog skipti
aldrei skapi, hvort sem hann
hreppti vinninginn eða missti af
honum. Björn varð fljótt öflugur
skákmaður, og það merkilega var
að hann færðist allur í aukana
eftir að hann komst á eftirlaun,
tæplega sjötugur, og mér fannst
hann alltaf vera að bæta sig.
Árið 2001 tókum við félagar
þátt í Norðurlandamóti skák-
manna 60 ára og eldri, en mótið
var haldið í Noregi. Þar tefldi
Björn af miklum krafti og var að-
eins ½ vinningi frá verðlauna-
sæti. Síðustu árin tefldi Björn
vikulega á skákmótum eldri
borgara, sem fram fóru í Hafn-
arfjarðarkirkju hvern miðviku-
dag. Þar setti hann jafnan svip
sinn á mótin, og ef hann var ekki
mættur tímanlega á staðinn fóru
menn að ókyrrast og spurðu:
„Hvar er Björn Víkingur? Er
Björn ekki kominn?“
Björn var gæfumaður. Eigin-
kona hans, hún Guðmunda, var
hans trausti bakhjarl, allt þar til
yfir lauk. Þau eignuðust tvö
mannvænleg börn, óskabörnin,
eins og oft er sagt, Önnu Regínu
og Þórð.
Ég tel það mikið lán í mínu lífi
að hafa átt Björn að vini og bið
honum og fjölskyldu hans Guðs
blessunar.
Jóhann Örn Sigurjónsson.
Björn Víkingur
Þórðarson
Nú er hún
elsku amma mín
og nafna látin. En
það er í raun ein-
kennilegt að vera
að kveðja þig núna því í raun-
inni er nokkuð síðan þú hvarfst
úr þessum heimi. Það hefur
verið erfitt að horfa upp á þig
síðustu ár en núna færðu hvíld-
ina sem þú átt svo skilið.
Minningarnar sem ég á um
þig eru margar og góðar.
Heimsóknirnar í litla, sæta,
hvíta húsið þitt á Hvamms-
tanga þar sem maður mátti
borða endalausan kandís og ís
úr frystikistunni þinni.
Þá mátti maður skoða allt
merkilega dótið þitt.
Það var svo ótrúlega huggu-
legt að sitja og horfa á Línu
eða Emil á meðan þú sast og
heklaðir í horninu þínu. Þú
hafðir endalausa þolinmæði við
okkur og við barnabörnin vor-
um alltaf svo velkomin.
Við Beta frænka nýttum
okkur það mikið og lékum okk-
ur mikið í fjörunni fyrir neðan
húsið.
Elsku amma, þú varst ótrú-
leg kona og magnaður einstak-
lingur. Ég ber nafn þitt með
stolti og mun passa upp á
hringinn þinn að eilífu.
Guðrún Ingadóttir
yngri.
Elsku amma Gunna. Auðvit-
að hlaut að koma að þessu,
maður hefur vonað í nokkur ár
að þú fengir hvíldina lang-
þráðu, fyrir lifandi löngu orðin
södd lífdaga og líkami þinn bú-
inn að gefast upp fyrir löngu,
allt nema hjartað sem ekki átti
að þola mikið en jú það sló.
Og það kannski lýsir þér
best, að þrátt fyrir að hafa
fengið fyrir mörgum árum dóm
lækna um að hjartað stæði
tæpt og að það yrði þér að falli
varst þú á annarri skoðun,
hjartað var ekki að gefa sig
fyrr en í fulla hnefana.
Þú hefur alltaf verið svo mik-
ill dugnaðarforkur sterk og svo
blíð og góð, undanfarna daga
hef ég sagt strákunum mínum
sögur af ömmu Gunnu og
margar ljúfar minningar rifjast
upp og sögurnar verða fleiri og
fleiri.
Ég er svo þakklát fyrir
stundirnar sem ég átti með þér
við handavinnu, sundferðirnar
og göngutúrana. Það eru á viss-
an hátt forréttindi að geta rifj-
að upp góðar minningar og þá
Guðrún Ingadóttir
✝ Guðrún Inga-dóttir fæddist
15. janúar 1925.
Hún lést 7. júní
2016.
Útför Guðrúnar
fór fram 16. júní
2016.
að eiga eingöngu
góðar minningar
með þér og um þig.
Í hjarta mínu er
gleði yfir því að
hafa getað setið hjá
þér og strokið
vanga þinn síðustu
dagana og fylgt þér
svo síðasta sprett-
inn vitandi að nú
ertu komin á góðan
stað með fólkinu
okkar, afa Tryggva
og Kalla frænda, sem hafa beð-
ið komu þinnar um stund.
Elsku amma, takk fyrir allt.
Takk fyrir allt sem þú kenndir
mér, og takk fyrir tímann sem
við áttum saman tvær.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Elska þig, amma mín.
Þín
Þórdís Erla.
Elsku amma Guðrún.
Ég vil með þessum orðum fá
að þakka þér og afa fyrir að
hafa verið hluti af lífi mínu og
um leið fært mér og mínu fólki
hlýju og minningar sem aldrei
gleymast.
Sakna þess enn að keyra inn
á Strandgötuna og labba inn í
yndislega litla húsið með sjáv-
arútsýninu. Eitthvað alveg sér-
stakt og veitir mér yl í hverri
hugsun.
Að sitja, spjalla og fara yfir
sveitamálin, borða góðan mat
og fylgjast með afa lesa bók og
þér að prjóna eða hekla kallaði
mikið á mig og er ég þakklátur
fyrir hversu oft ég lagði leið
mína til ykkar á mínum yngri
árum og eins lengi og heilsa
ykkar leyfði.
Ég veit að þú ert nú komin á
góðan stað og afi tekur vel á
móti þér ásamt öðrum sveit-
ungum og vinum.
Mér þykir miður að geta
ekki verið við útförina, elsku
amma en ég kem norður í sum-
ar og kíki við hjá þér og afa.
Við sendum öllum ættingjum
og öðrum aðstandendum okkar
dýpstu samúðarkveðjur.
Arnaldur Birgir
Konráðsson og fjölskylda
í Kaupmannahöfn.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar
eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið
sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta
umsjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar