Morgunblaðið - 17.06.2016, Page 18

Morgunblaðið - 17.06.2016, Page 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2016 talinn hentugur mælikvarði til að bera saman velferð á milli ríkja. Sé samanburður við helstu ná- grannaríki skoðaður kemur í ljós að Ísland blandar sér í toppbaráttuna. Af heildarlistanum er Ísland í sjö- unda sæti með 15% umfram með- altal ríkjanna. Efst á listanum er Lúxemborg með 37%. Af Norður- löndum er Noregur efst með 33%, Ísland í öðru sæti, með 15% eins fyrr segir. Þriðja Norðurlandaríkið er Danmörk með 14%. Næst kemur Finnland með 13% og lestina rekur Svíþjóð með 11%. Af öðrum ríkjum ná nefna Þýskaland með 24%, Bret- land með 16%, Belgíu með12%. Holland og Frakkland með 11%, Ítalíu sem vantar 3 prósentustig í meðaltalið og Spán sem vantar 12 prósentustig. Verg landsframleiðsla á mann á Íslandi var 24% yfir meðaltali Evr- ópusambandsríkjanna árið 2015, samkvæmt bráðabirgðaniðurstöð- um að því er fram kemur í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Er nið- urstaðan sú að Ísland er í 9. sæti í röð 37 Evrópuríkja. Í samanburð- inum tóku Evrópusambandsríkin þátt, auk Íslands, Noregs, Sviss, Tyrklands, Svartfjallalands, Serb- íu, Bosníu-Herzegovínu, Albaníu og Makedóníu. Einstaklingsbundin neysla yfir meðaltali  Nýjar tölur frá Hagstofunni sýna Ísland í sjöunda sæti Hlutfall einkaneyslu af meðaltali ESB ríkja Noregur Þýskaland Bretland Ísland Danmörk Svíþjóð Spánn 150 120 90 60 30 0 133% 124% 116% 115% 114% 111% 88% BAKSVIÐ Jón Þórisson jonth@mbl.is Magn einstaklingsbundinnar neyslu á mann var 15% yfir með- altali ESB ríkja samkvæmt bráða- birgðaniðurstöðum fyrir árið 2015 að því er kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands. Þar var Ísland í 7. í röð landanna 37. Lúxemborg var í fyrsta sæti, 37% yfir meðaltali ESB ríkjanna. Einstaklingsbundin neysla er neysla einstaklinga og heimila, hvaða nöfnum sem nefnist, óháð því hver greiðir fyrir hana. Á vef Hag- stofunnar segir að einstaklings- bundin neysla samanstandi af öll- um vörum og þjónustu sem heimilin neyta án tillits til þess hver greiðir. Þannig teljist til einstaklings- bundinnar neyslu öll neysla sem greidd er af heimilum og einnig neysla sem greidd er af öðrum að- ilum, svo sem hinu opinbera. Dæmi þess er þáttur hins opinbera í rekstri skóla og heilbrigðisþjón- ustu. Samanburður við nágrannalönd Segir á vef Hagstofunnar að ein- staklingsbundin neysla sé gjarna Verðlag brauðs, kornvöru, osts, mjólkur og eggja var 39% yfir með- altalinu. Verðlag tóbaks var 47% hærra en meðaltal Evrópusam- bandsríkja og reynist fjórða hæsta af ríkjunum 38. „Í fljótu bragði er óhætt að segja að við komum verr út úr þessum samanburði en undanfarið og höfum þokast upp listann,“ segir Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur og að- stoðarframkvæmdastjóri Bænda- samtakanna um að verðlag kjöts sé þriðja hæst og mjólkur, osts og eggja fjórða hæst í samanburðinum. „Verð til bænda hefur ekki verið að hækka almennt og ef litið er til svínakjötsbænda sérstaklega þá hef- ur verð til þeirra verið að lækka.“ Hún segir þó að í tilfelli mjólkur hafi verð til bænda hækkað lítillega. „Ég held að ekki sé hægt að fullyrða að ástæða þess að við höfum þokast upp listann í þessum samanburði sé sú að verslunin hafi aukið sína álagningu. Það eru fleiri milliliðir í virðiskeðjunni og ekki hægt að slá neinu föstu svona að óathuguðu máli. Ennfremur er ljóst að geng- isþróun evru gagnvart krónu er lík- lega einn megináhrifavaldur þess að samanburðurinn kemur verr út en verið hefur.“ jonth@mbl.is Verð matar og óáfengra drykkja á Íslandi er 30% hærra en meðaltal í Evrópusambandsríkjum, samkvæmt nýjum tölum frá Eurostat, Hagstofu Evrópusambandsins og OECD og Hagstofa Íslands birtir. Jafnframt kemur fram að verðlag á kjötvöru á Íslandi sé 39% yfir sama meðaltali og hafi reynst þriðja hæst af þeim ríkjum sem tóku þátt í samanburð- inum. Þau eru Evrópusambands- ríkin 28, auk Íslands, Noregs, Sviss, Tyrklands, Svartfjallalands, Serbíu, Bosníu-Hersegóvínu, Albaníu, Makedóníu og Kósóvó. Þegar kemur að verðlagi á áfengum drykkjum var það 126% hærra á Íslandi en að meðaltali í Evrópusambandsríkj- unum. Verðlag 30% hærra hér en í ESB  Ísland fjórða dýrast í mat og drykk Morgunblaðið/Kristinn Egg Verðlag eggja, mjólkur og osta var 39% yfir meðaltali í ESB. ● Hagar verða teknir inn í úrvals- vísitölu Kauphallar Íslands, OMXI8, frá 1. júlí næstkom- andi. Á móti fellur Vátryggingafélag Íslands, VÍS, úr vísitölunni. Endurskoðun vísitölunnar fer fram tvisvar á ári. Þau átta fyrirtæki sem mestan selj- anleiki hafa í Kauphölllinni eru í vísitöl- unni. Ræðst vægi þeirra af flotleiðréttu markaðsvirði, sem þýðir að einungis það hlutafé sem ætla má að myndi grunn að virkum viðskiptum í Kauphöll er hluti af vísitölunni. Eftir breytinguna eru þessi fyrirtæki í vísitölunni: Eimskip, HB Grandi, Ice- landair, Marel, N1, Reitir og Síminn auk Haga. Breyting á úrvals- vísitölu Kauphallarinnar Kauphöllin Hagar inn í úrvalsvísitölu Arion banki hefur sent Kauphöll til- kynningu sem varðar söluferli á bankanum. Þar segir meðal annars: „Í ljósi áframhaldandi jákvæðrar þróunar íslensks efnahagslífs meta nú Arion banki og Kaupþing, sem er meirihlutaeigandi Arion banka, þá möguleika sem fyrir hendi eru varð- andi eignarhlut Kaupþings í bank- anum.“ Stefán Pétursson, framkvæmda- stjóri fjármálasviðs Arion, segir að tilkynningin hafi verið send til að upplýsa markaðinn um stöðuna á söluferlinu. „Bankinn er með skráð bréf á markaði og því var talið rétt að upplýsa markaðinn um þetta. Salan er nú komin í formlegra ferli en áður var og meirihlutaeigandi bankans er að kanna ýmsa möguleika varðandi söluna. Þar kemur meðal annars til greina að selja hlut í bankanum í al- mennu útboði. “ Stefán staðfestir í samtali við Morgunblaðið að nú sé unnið að því að koma upp gagnaherbergi fyrir mögulega kaupendur en að það hafi ekki verið opnað. Hann segir mikla áherslu lagða á að taka eitt skref í einu. „Það skiptir miklu máli að vinna þetta faglega og rétt, meðal annars til að koma í veg fyrir að ein- hverjir sem mögulega munu bjóða í hlutinn eða taka þátt í útboði verði innherjar í ferlinu.“ Þá staðfestir hann einnig að stjórn og stjórnendur bankans hafi ráðið Citibank sér til ráðgjafar við sölu- ferlið en að eigandinn, Kaupþing, hafi ráðið Morgan Stanley sér til ráðgjafar af sama tilefni. ses@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Söluferli Kaupþing á 87% í Arion banka á móti 13% hlut íslenska ríkisins. Söluferli Arion formlega hafið  Möguleiki á almennu hlutafjárútboði Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is BMW 520D XDRIVE F10 nýskr. 01/2015, ekinn 25 Þ.km, diesel, sjálfskiptur (8 gíra). Sóllúga, leður, rafmagnskrókur ofl. Stórglæsilegur! Verð 8.690.000 kr. Raðnr. 254961 BMW 535D XDRIVE F10 nýskr. 04/2015, ekinn 25 Þ.km, diesel, sjálfskiptur. Gríðarlega vel búinn og öflugur bíll! Verð 11.990.000. Raðnr. 255003 Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is Fjórhjóladrifnir lúxusbílar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.