Morgunblaðið - 17.06.2016, Qupperneq 41
og ákváðum að slá til. Við vorum svo
heppnir að þekkja margt gott fólk
sem leyfði okkur að nota aðstöðu
sína, stúdíó og fleira þannig að við
tókum plötuna upp í apríl, maí og
júní í fyrra. Við skelltum svo lagi
sem heitir „Harrison“ í útvarpið, á
Rás 2, í júlí og það hlaut svo góðar
viðtökur að við enduðum í þriðja
sæti á vinsældalistanum þar.“
Aðdáendur Bítlanna
Lagið heitir í höfuðið á George
Harrison heitnum enda þeir félagar
miklir aðdáendur Bítlanna. Hljóm-
sveitin er undir áhrifum frá klass-
ískri „feel good“ popptónlist sjöunda
áratugarins en þó ekki föst á þeim
tíma þar sem útsetningar og heild-
arhljómur eru í takt við tímann. Ar-
on lýsir tónlist sveitarinnar sem ind-
írokki með Bítla-ívafi með
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hljómsveitin Puffin Island, eða
Lundaeyja, gaf fyrir skömmu út
sína fyrstu breiðskífu, Another Day,
og segja liðsmenn hljómsveitarinnar
að hún falli lipurlega í flokk sum-
arplatna. Puffin Island skipa bræð-
urnir Skúli og Egill Jónssynir og
Aron Steinþórsson og sömdu þeir í
sameiningu lög og texta plötunnar,
að und-
anskildum
texta við lagið
„Sólarvín“
sem saminn
var af ljóð-
skáldinu
Kristni Árna-
syni. Egill sá
um upptökustjórn og hljóðvinnslu
og hljóðblöndun og hljómjöfnun var
í höndum Alberts Finnbogasonar,
að undanskildu einu lagi sem hinn
ný-danski Jón Ólafsson hljóðbland-
aði en hann lék einnig á hljómborð í
meirihluta laga plötunnar. Þá blæs
Kjartan Jón Bjarnason í saxófón í
þremur lögum, Einar Lövdahl syng-
ur bakraddir í einu og Sigyn Jóns-
dóttir í öðru.
Eins og sakir standa er platan að-
eins aðgengileg á netinu en hljóm-
sveitin stefnir að því að gefa hana út
á föstu formi, diski og vínyl.
Ákváðu að skella í plötu
„Við Skúli erum búnir að þekkjast
lengi og vorum alltaf að tala um að
við þyrftum að fara að gera eitthvað,
tónlistarlega séð. Upphaflega pæl-
ingin var að við tveir myndum vera
með kassagítara og glamra einhver
lög saman. Skúli var með fullt af
efni og sýndi það bróður sínum,
Agli, og honum leist svo vel á að
hann vildi bara að við stofnuðum
hljómsveit og skelltum í plötu, “ seg-
ir Aron, söngvari og gítarleikari
hljómsveitarinnar, spurður að því
hvernig hljómsveitin hefði orðið til.
„Skúli flutti til Bandaríkjanna í
ágúst í fyrra og við höfðum u.þ.b.
þrjá mánuði til að taka upp plötuna
röddunum í anda sjöunda áratug-
arins.
„Þegar við vorum að byrja var
Skúli mikið að hlusta á fyrstu Bítla-
plöturnar þar sem eru pínu kjána-
legar textasmíðar og skemmtilegar
raddanir. Hann var undir áhrifum
frá því þegar hann var að semja,“
segir Aron. Lögin á plötunni eru á
níu og ýmist með enskum og ís-
lenskum textum. Aron segir hljóm-
sveitina alla skráða fyrir lagasmíð-
unum, Skúli hafi samið lögin í
grunninn og þeir allir svo unnið út
frá því í upptökum.
Aron segir hljómsveitina stefna
að því að halda marga tónleika í
haust en hún er bókuð á tónlistarhá-
tíðina Iceland Airwaves sem fram
fer 2.-6. nóvember. „Við spilum eitt-
hvað í sumar en ætlum að byrja á
fullu í ágúst,“ segir hann. Ekki veiti
af því að æfa fyrir Airwaves.
– Þetta nafn, Puffin Island, er það
eitthvert grín? Annað heiti yfir Ís-
land, Lundaeyjan?
„Já, það var pínu pælingin. Okkur
fannst þetta skemmtileg pæling því
Ísland er orðið einhver lundaeyja,
allar þessar lundabúðir búnar að
taka yfir. Í fyrra, þegar við vorum
að ákveða nafn, var einhverjum tón-
leikastað lokað af því það átti að
koma lundabúð þar í staðinn. Við
reyndar hentum nokkrum tillögum
á netið og létum vini og vandamenn
kjósa um nafn á hljómsveitina. Þetta
varð fyrir valinu og við erum nokk-
uð sáttir við þetta nafn,“ segir Aron.
„Það er smá kaldhæðnislegt af því
Ísland er orðið hálfgerð lundaeyja.“
Hægt er að hlusta á plötuna á
Bandcamp: puffinisland.band-
camp.com, Spotify og iTunes.
Ljósmynd/Sigyn Jónsdóttir
Lundaeyjarmenn Skúli og Aron á blíðviðrisdegi í New York. Þeir skipa Puffin Island ásamt Agli, bróður Skúla.
Ísland „hálfgerð lundaeyja“
Puffin Island gefur út fyrstu breiðskífuna, Another Day Indírokk með
Bítla-áhrifum Hljómsveitin kemur fram á Iceland Airwaves í nóvember
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2016
Hátíðartónleikar Alþjóðlegu tónlist-
arakademíunnar í Hörpu fara fram í
dag kl. 17 í Norðurljósum og bera yf-
irskriftina „Beethoven og Paganini“
„Undanfarna 10 daga hafa nem-
endur akademíunnar fengið einka-
tíma og masterklassa, leikið kamm-
ertónlist, spilað á tónleikum og setið
hljómsveitaræfingar. Nú er komið
að lokapunkti námskeiðsins þar sem
þátttakendur leggja saman krafta
sína og flytja eitt af stórvirkjum tón-
listarsögunnar, 7. sinfóníu Beetho-
vens,“ segir í tilkynningu. Finnski
sellóleikarinn og hljómsveitarstjór-
inn Tomas Djupsjöbacka verður
stjórnandi tónleikanna og hinn 15
ára gamli Kevin Zhu mun leika fiðlu-
konsert nr. 1 eftir Niccolo Paganini,
sem gerir gríðarlegar tæknilegar
kröfur til einleikarans. Zhu fór með
sigur af hólmi í Menuhin-keppninni
árið 2012 og er rísandi stjarna í
klassískum tónlistarheimi. Hann er
nemandi í forskóla Juilliard undir
leiðsögn Itzhak Perlman og Li Lin.
Tónleikunum lýkur með flutningi
á þjóðsöng Íslands.
15 ára Kevin Zhu leikur fiðlukonsert nr. 1 eftir Paganini í dag.
15 ára fiðluleikari
leikur verk Paganinis
Hljómsveitin Gus
Gus hljóp í skarð-
ið fyrir St.
Germain á Sec-
ret Solstice tón-
listarhátíðinni í
gær. Í tilkynn-
ingu sem send
var síðdegis í
gær er haft eftir
Þorsteini Steph-
ensen, einum
skipuleggjenda hátíðarinnar, að
ástæðan væri sú að St. Germain
hefði ekki mætt á svæðið. Hún hefði
átt að vera komin kl. 10 í gærmorg-
un en ekkert hefði heyrst frá henni.
St. Germain mætti
ekki á hátíðina
Þorsteinn
Stephensen
LEITIN AÐ DÓRU ÍSL.TAL 2, 5
LEITIN AÐ DÓRU 3D ÍSL.TAL 1:30, 3:40, 5:50
CENTRAL INTELLIGENCE 7:30, 10
THE NICE GUYS 10:30
WARCRAFT 8, 10:30
FLORENCE FOSTER JENKINS 8
ANGRY BIRDS ÍSL.TAL 1:50, 3:50, 5:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 1:30 TILBOÐ KL 2
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
SVEFNSÓFAR