Morgunblaðið - 17.06.2016, Síða 37

Morgunblaðið - 17.06.2016, Síða 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það getur oft hjálpað að koma að verkefnunum úr nýrri átt svo ekki sé nú tal- að um að þiggja ráð hjá sér reyndari mönn- um. Láttu innsæið ráða; þú veist hvað er rétt. 20. apríl - 20. maí  Naut Stundum er best að mætast á miðri leið til að sættast – nema núna. Einhver reynir að ráðskast með þig fyrir vikið. En veistu alla málavöxtu? Láttu krókódílatár ekki villa um fyrir þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert í kátu skapi og hefur góð áhrif á þá sem þú umgengst, enda dagurinn vel til þess fallinn að gleðjast. Vertu öðruvísi og byrjaðu að tala um daginn og veginn. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Tekjur maka þíns munu aukast á næstunni. Nú ríður á miklu um framhaldið og þá máttu láta tillitssemina ráða ferðinni. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Stattu með sjálfum þér og láttu í þér heyra þegar þörf krefur. Leitaðu til þeirra nú og þú munt fá aðra og betri sýn á lífið og tilveruna. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þig langar til að brjótast út úr viðjum vanans. Láttu fortíðina lifa í minningunni en ekki vera þér fjötur um fót. 23. sept. - 22. okt.  Vog Upplagt að stíga á stokk og strengja þess heit að taka sig á til að geta öðlast traustari vináttu annarra. Hrintu einhverjum þeirra í framkvæmd í dag. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er allt í lagi með þau atriði sem þú leggur mesta áherslu á. Kannski er ráðlegast að hinkra eilítið. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Treystu eigin hugmyndum. Not- aðu tækifærið og efldu tengslin við ástvini þína, bæði tilfinningaleg og líkamleg. Fall er fararheill! 22. des. - 19. janúar Steingeit Nýir möguleikar opnast og þú ert vel í stakk búinn til að greina í milli og velja þá leið sem farsælust er. Dagurinn í dag færir þig skrefi nær markmiði þínu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú mátt alveg búast við stormi, þegar þú ert í samstarfi við geðríkt fólk. Hugsanleg vandamál má forðast með því að hafa þinn eigin ferða- og talsmáta sem lúta tilgangi. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er eitthvert slen í þér og þú ætt- ir að geyma erfiðustu verkefnin til betri tíma. Gakktu hægt um gleðinnar dyr. Taktu þér tíma til þess að kanna alvarlegu málin áður en rokið er af stað. Ég fletti upp í Skáldu, afmæl-isdagabók Jóhannesar úr Kötlum, og þar stendur við 17. júní að þann dag hafi fæðst Pétur Hann- esson árið 1893 og orti: Ræ ég og ræ ég ferju fram á sjóinn, fjarandi sólarblik í vestri skína. Hafdjúpið andar rótt – ég finn að fróin fer eins og mjúkur þeyr um drauma mína. Sonur Péturs er Hannes skáld. Hann sendi mér fyrir ári eða svo limru sem ég hef geymt fyrir mig og hann orti „á jólaföstu fyrir löngu“: Skúlína heitin í Skarði tók Skyrgám á leggjarbragði: Hún var afrend sú drós, því að áburð og ljós enginn til hennar sparði. „Úr ökuferð. Horft til Saurbæjar á Hvalfjarðarströnd“ er yfirskrift þessarar bögu Hannesar í bókinni „Um jarðgöng tímans“: Hallgrímur var Hólasveinn, já hrösull ærslakálfur, en hann varð lind og hann varð steinn og himinblærinn sjálfur. Síðan segir: „Hér skal þess getið að á Saurbæ er lind í túni, kennd við séra Hallgrím, Hallgrímslind, og hafa margir trú á lækninga- mætti vatnsins í henni. Skammt frá bænum er allmikill steinn, stakur, Hallgrímssteinn; í munnmælum segir að undir honum hafi skáldið oft setið á tali við guð sinn og ort sálma.“ Hagyrðingar eru ekki síður áhugasamir um fótbolta en aðrir Ís- lendingar. Helgi Zimsen getur þess á Leirnum að sér finnist nú Portú- galar bara standa sig vel – þannig séð … Buðu fram sitt besta val, í betra lið ei safna. Íslands peyja Portúgal prísa má að jafna. Páll Imsland heilsaði leirliði „á nóttu sigurs og stolts“: Það er stórfínt að standa í Portúgal og stappið það einkenndi hanagal, í stúlkunum glumdi og strákunum rumdi og þjóðin er spólandi spinnegal. Ingólfur Ómar hefur orð á því að nú styttist óðum í forsetakosning- arnar. Sér finnist tilvalið að lauma hér að vísu: – „Það er einhvern veg- inn svona sem ég sé góðan forseta fyrir mér og vil ég óska öllum fram- bjóðendum góðs gengis. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Skúlínu í Skarði, Hallgrími og fótbolta Í klípu „SJÁLFBÆRI SJÁVARRÉTTURINN OKKAR VAR GRIPINN OG SLEPPT AFTUR Í DAG.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „PANTAÐIR ÞÚ STEFNUMÓT YFIR TÖLVUNA MEÐ EINHVERRI IÐUNNI?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að dást að nýju klippingunni hennar þegar þú sérð ekkert nýtt við hana. SVO, SPYRJIÐ YKKUR… SIGURVEGARI ÖSKRAR EKKI Í ÖRYGGISTEPPIÐ SITT HVER ER MUNURINN Á SIGURVEGARA OG LÚSER? ÚPS LÚSER ER ÞETTA ÞAÐ SEM ÉG Á SKILIÐ?! NEI… ÉG FÓR MJÚKUM HÖNDUM UM ÞIG VÁ! Íslenski þjóðhátíðardagurinn erhaldinn hátíðlegur um allt land 17. júní ár hvert. Á árum áður klæddi fólk sig upp á þessum merka degi, en sú hefð virðist vera fokin út í veður og vind. Og þó. Kannski hefur hefðin bara breyst. Nú ganga allir í bláu og það fer þeim vel. x x x Þrátt fyrir skipulagða dagskrá víttog breitt um landið má ætla að landsmenn séu með hugann við allt annað í allt öðru landi, nánar tiltekið Evrópumótið í fótbolta í Frakklandi. Frammistaða Íslands í fyrsta leik var framar vonum flestra og ís- lenska landsliðið er á allra vörum fyrir vikið. Þegar svo er komið þýðir ekki að bjóða upp á fólk í svörtu halda þjóðhátíðarræður eigi að ná til fjöldans nema þær fjalli um íslenska landsliðið. Jafnvel forsetaframbjóð- endur verða að passa sig á því að boða ekki til funda á leiktíma og helst ekki á leikdegi nema til standi að bjóða upp á leikgreiningu fyrir leik og annað sem viðkemur íslenska landsliðinu. x x x Þegar dregið var í riðla í und-ankeppni EM lenti Ísland í svo- nefndum „dauðariðli“, en landsliðs- hópurinn lét það ekki á sig fá, komst yfir hverja hindrunina á fætur ann- arri og náði markmiðinu, sæti í úr- slitakeppninni í Frakklandi. Hver heimaleikur var sem þjóðhátíð, alltaf uppselt og stemningin ólýsanleg. x x x Frá því í fyrrahaust og þar til fyrirskömmu voru leiknir nokkrir æf- ingaleikir og úrslitin yfirleitt ekki góð fyrir okkar menn. Landsliðs- þjálfararnir bentu ítrekað á að leik- irnir væru æfingaleikir og nauðsyn- legir sem slíkir. Alvaran tæki svo við á ný í Frakklandi. x x x Ævintýrið hófst með jafntefli ámóti Portúgal í Saint- Éti- enne. Þó íslensku stuðningsmenn- irnir hafi verið í minnihluta „áttu“ þeir stúkuna á stundum. Víkverji er sannfærður um að sama verði uppi á teningnum á móti Ungverjum í Mar- seille á morgun. víkverji@mbl.is Víkverji Reynið yður sjálfa fyrir trúnni, prófið yður sjálfa. Gjörið þér yður ekki grein fyrir að Kristur er í yður (2. Kor. 13:5). • Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru margverðlaunuð fyrir hönnun, myndgæði, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika. • Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga og alhliða prentumsjón. • Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt að gera kröfur um gæði og góða þjónustu. • Kjaran er viðurkenndur söluaðili á prentlausnum af Ríkiskaupum. Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is BLI A3 MFP Line of the Year: 2011, 2012, 2013, 2014 bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki BLI Pro Award: 2013, 2014

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.