Morgunblaðið - 05.07.2016, Síða 1

Morgunblaðið - 05.07.2016, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 5. J Ú L Í 2 0 1 6 Stofnað 1913  155. tölublað  104. árgangur  Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Gríðarmikið mannhaf tók á móti íslenska karla- landsliðinu á Arnarhóli þegar það kom heim eft- ir frábæran árangur á Evrópumótinu í Frakk- landi. Samkvæmt upplýsingum frá Gunnari Lár Gunnarssyni, verkefnastjóra móttökuhátíðar- innar, voru á bilinu 30-40 þúsund manns saman- komin í miðborginni við heimkomuna. „Á leikn- um í gær var talað um að 20-30 þúsund manns hefðu verið í bænum. Það var miklu fleira fólk á fleiri stöðum í bænum í kvöld,“ segir Gunnar. Þó að sjálf móttakan hafi farið fram á Arnar- hóli sýndi fólk stuðning sinn í verki allt frá Keflavík meðfram Reykjanesveginum og hyllti liðið þegar það ók til Reykjavíkur. Fjöldi manns stóð við Skólavörðustíg og hrópaði hvatningar- orð til liðsins, sem veifaði fólki á toppi rútunnar. Á Arnarhóli mátti hvarvetna sjá stolta brosandi Íslendinga á öllum aldri syngjandi stuðnings- mannasöngva og Ég er kominn heim, einkenn- islag íslenskra landsliða, að ógleymdu víkinga- fagni sem tugþúsundir tóku þátt í. „Þið eruð þjóðargersemi“ ,,Hver einasti Íslendingur telur sig eiga hvert bein í ykkur, þið eruð þjóðargersemi, á sama hátt eigið þið hug og hjörtu hvers Íslendings. Til hamingju með stórkostlegan árangur, takk fyrir stórkostlega skemmtun, velkomnir heim,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráð- herra í ávarpi til landsliðshópsins og mannfjöld- ans í miðborginni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Arnarhóll Bláleitt mannhaf tók á móti íslenska landsliðinu þegar það kom heim frá frægðarför á Evrópumótið í Frakklandi. Áætlað er að á fjórða tug þúsunda hafi verið í miðbænum. HETJURNAR SNÚA HEIM  Á fjórða tug þúsunda komu saman í miðborginni til að hylla íslenska landsliðið eftir frægðarför til Frakklands  Komu í miðborgina í opinni rútu  Landsliðinu fagnað allt frá Keflavík að Arnarhóli Morgunblaðið/Eggert Heimkoma Mikill mannfjöldi var einnig meðfram Skólavörðustíg og Bankastræti til þess að taka á móti karlalandsliðinu. MHeimkoman »2, 4, 6 og íþróttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.