Morgunblaðið - 05.07.2016, Side 2

Morgunblaðið - 05.07.2016, Side 2
Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Tugþúsundir manna komu saman í miðborg Reykjavíkur til þess að taka á móti íslenska karlalandslið- inu þegar það kom heim eftir frægðarför á Evrópumótið í Frakk- landi. Allt ætlaði um koll að keyra þegar landsliðið kom að Arnarhóli og hápunkturinn var svo þegar allir sem þarna voru saman komnir tóku það sem sumir kalla víkingafagnið sem flestir þekkja einfaldlega sem húh! Landsliðið kom akandi í opinni tveggja hæða rútu og á framhlið hennar mátti sjá ritað „Ég er kominn heim“, en lagið er í flutningi Óðins Valdimarssonar orðið eins konar einkennislag landsliðsins. Landsliðinu var vel fagnað eftir allri Reykjanesbrautinni áður en komið var að Skólavörðustíg, þar sem fjöldi fólks fagnaði liðinu í blíð- viðri. Þaðan var haldið niður Banka- stræti og loks að Arnarhóli, þar sem samkoman hafði staðið yfir í tæpar tvær klukkustundir. Meðal annarra hélt landsliðsþjálfarinn Lars Lager- bäck stutta tölu og sjá mátti á hon- um að hann var hrærður yfir mót- tökunum. „En það sem ég hef séð hér í dag er tilkomumeira en það sem ég sá í París. Stuðningurinn er ótrúlegur,“ sagði Lars. Morgunblaðið/Eggert Stjórnandinn Lars Lagerbäck var kampakátur á Arnarhóli og sagði stuðninginn sem liðið hefði fengið ótrúlegan. Var honum vel fagnað af viðstöddum eftir stutta tölu hans. Tugþúsundir hylltu íslenska landsliðið Gleði Hvarvetna mátti sjá bláklædda glaðlynda stuðningsmenn Íslands. Ungviðið Sannkölluð fjölskyldustemming var í miðbænum í gærkvöldi og stutt var í brosið hjá flestum. Mikill mannfjöldi kom saman við Reykjanesbraut í gær í þeim tilgangi að hylla íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu þar sem því var ekið til Reykjavíkur. Þar fór fram heiðursathöfn þar sem landsliðið var boðið velkomið heim. Stuðningsmennirnir veifuðu fánum í takt við dynjandi lófatak þegar liðið keyrði framhjá. Að sögn Hilmars Braga Bárðarsonar, fréttastjóra Víkurfrétta, voru hundruð manna saman komin, en á myndinni að ofan má sjá stuðnings- menn landsliðsins úr Innri-Njarðvík. Hilmar segir að við Keflavíkur- flugvöll hafi einnig verið mikill mannfjöldi og í raun langleiðina að flug- vellinum. Ljósmynd/Víkurfréttir Fögnuðu við Reykjanesbraut 2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2016 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. EM Í FÓTBOLTA KARLA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.