Morgunblaðið - 05.07.2016, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 05.07.2016, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2016 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Við kynntumst þegar ég vará flakki um Ísrael eftir aðhafa verið þar í brúðkaupihjá vinkonu minni. Omry flutti svo hingað til Íslands árið 2008, en hann er alinn upp í krydd- menningu sem er allt önnur en sú sem við þekkjum hér í norðrinu,“ segir Ólöf Einarsdóttir, en hún og maður hennar Omry Avraham eiga og reka saman Krydd & Tehúsið sem stendur við Þverholt í Reykja- vík. „Ég er alinn upp í Ísrael en mamma mín er frá Marokkó og faðir minn er frá Írak. Matarmenningin heima hjá mér á uppeldisárum mín- um var því bland af ýmsu. Mamma notaði meðal annars í sinni elda- mennsku kúmen, túrmerik, kórían- der, marokkóska papriku og fleira í þeim dúr. Móðir mín lærði elda- mennsku af mömmu sinni, sem lærði af sinni móður og áfram þannig aftur í aldir. Þetta er eldforn hefð sem hefur skilað sér kynslóð fram af kyn- slóð. Í menningu Mið-Austurlanda sér konan alfarið um að elda og maturinn er alltaf búinn til frá grunni í eldhúsinu heima, þar þekk- ist ekki að kaupa tilbúinn mat úti í bæ og taka hann með heim. Hjá okk- ur fjölskyldunni í Ísrael var hádeg- ismaturinn alltaf aðalmáltíðin en kvöldmaturinn var léttari. Bernsku- minningar mínar úr eldhúsinu heima eru um mömmu standandi yfir stórum pottum sem ilmuðu af góm- sætum mat. Hún matreiddi úr kjúk- lingi, kjöti eða fiski og svo var með- lætið kartöflur og grjón og hellingur af fjölbreyttu fersku grænmeti. Og Man vel eftir ilminum úr eldhúsi mömmu Þau langaði til að auka kryddúrvalið á Íslandi og opnuðu því sælkeraverslun með áherslu á krydd og te. Ólöf og Omry bjóða fólki að koma og lykta af og smakka á, áður en það verslar. Omry eldar súpu frá grunni og bakar súrdeigsbrauð fyrir viðskiptavinina á hverjum virkum degi. Á fimmtudögum býr hann til hummus. Notalegt Aðkoman að versluninni er hugguleg og heimilisleg. Krydd Hægt er að kaupa krydd í staukum, fyrir þá sem ekki vilja í lausu. Listhópurinn Bermúda býður til götuhátíðar í kvöld kl. 20-22, þriðju- dagskvöldið 5. júlí, í Grárri götu 3 (neðri hæð) á Smiðjuvegi. Meðal ann- arra koma fram Mixed Feels, Harpa Dís 3 vs. Jóa (Mashup (feat. Guetta)) og Berglaug. Hópurinn starfar á vegum Skap- andi sumarstarfa í Kópavogi sumarið 2016. Á vef Kópavogsbæjar lýsa for- sprakkar hans hugmyndinni með þessum orðum: „Handan stórvirk- isins Kjarrhólma austast í Kópavogi rís Smiðjuhverfi – Bermúdaþríhyrn- ingur höfuðborgarsvæðisins. Flestir landsmenn hafa einhvern tíma á lífs- leiðinni keyrt í gegnum Smiðjuhverfi en enginn hefur skilgreiningu á því hvað það er í raun og veru. Hvað hef- ur það að geyma? Er Smiðjuvegur yf- ir höfuð til? Eða er hann aðeins hug- arfóstur þeirra sem dveljast þar? Við þessum spurningum fundum við eng- in svör svo við ákváðum að taka mál- in í okkar hendur og stofnuðum fjöl- listahópinn Bermúda. Við höfum leitað ýmissa leiða, til dæmis notast við ljósmyndun og grafíska útlistun, en við erum engu nær. Nú grípum við á það ráð að efna til allsherjar listahátíðar til þess að reyna á stað- inn og sjá hvað gerist.“ Vefsíðan www kopavogur.is Bermúda Fjöllistahópurinn Bermúda starfar á vegum Skapandi sumar- starfa í Kópavogi sumarið 2016 Leyndardómar Smiðjuhverfisins Í kvöld kl. 21, þriðjudag 5. júlí, heldur hljómsveitin Andakt upphitunar- tónleika á Café Rósenberg en síðan liggur leið sveitarinnar á Þjóðlagahá- tíðina á Siglufirði þar sem hún kemur fram í Siglufjarðarkirkju 8. júlí. And- akt er ný hljómsveit sem spratt að mestu úr samvinnu í kringum geisla- diskinn Stjörnubjart sem kom út fyrir jólin 2015. Hljómsveitin leikur sér með þjóðlagaskotinn stíl og sýnir „crossover“-tilburði. Við sögu koma lög af Stjörnubjart, eitthvað frum- samið og líka eitthvað óvænt. Andakt skipa: Ágústa Sigrún Ágústsdóttir, söngur, Haraldur V. Sveinbjörnsson, söngur, gítar, píanó o.fl., Kjartan Guðnason, trommur, ásláttur o.fl., Sváfnir Sigurðarson, söngur, gítar o.fl, og Þorgrímur Jónsson, bassi. Endilega ... ... hlýðið tónana hjá Andakt Andakt Hljómsveitin Andakt leikur sér með þjóðlagaskotinn stíl. Ísland er ekki hlýjasta land íheimi. Sumir vilja meira aðsegja ganga svo langt að segja að hér sé of kalt til að stunda tjald- útilegur. Ég er ekki viss um að Vil- borg Arna eða Haraldur Örn séu sammála. Þau sváfu örugglega ágætlega á pólgöngum sínum, í litlum tjöldum á þykkum íshellum hvort á sínum enda jarðarinnar. Í samanburði er íslenska sumarið eins og sánaklefi á Ibiza. Hvort sem það er norður- eða suðurpóllinn, eða bara tjaldsvæði á Íslandi, eru það í grunninn sömu að- ferðir sem við getum notað til að halda á okkur hita yfir nóttina. Í fyrsta lagi er lykilatriði að ein- angra sig frá jörðinni, því annars streymir mikill hiti frá líkamanum. Í stað svampdýnu eða vindsængur skaltu nota sérstaka einangrunar- dýnu, annað hvort úr frauðplasti eða uppblásanlega. Þó að meginreglan sé sú að þú fáir það sem þú borgar fyrir þarf góð dýna ekki að vera dýr. Hægt er að fá þunnar og léttar dýnur, eða mýkri og aðeins þyngri sem henta betur okkur sem eru komin af unglingsaldri. Ef það er eitthvað eitt sem þú ættir að kaupa í sérhæfðri útivistarbúð, þá er það dýnan. Í öðru lagi er gott að vera með þokkalegan svefnpoka. Taktu mið af uppgefnu hitastigi sem hentar svefnpokanum (miðaðu við þæg- indamörk, ekki jaðarmörk) og veldu poka sem passar þinni líkamsstærð og hægt er að þétta utan um háls og höfuð. Einangrun er yfirleitt trefjar (ódýrari en endast styttra) eða dúnn (dýrari en endast í mörg ár ef hugs- að er um hann). Í þriðja lagi er mun einfaldara að halda á sér hita en að hitna. Því skaltu passa að hita þig upp áður en þú skríður í pokann. Borðaðu eða drekktu heitan drykk, gakktu rösk- lega um tjaldsvæðið eða hvað annað sem til þarf. Sá sem skríður kaldur ofan í pokann er miklu lengur að ná upp hita, ef það tekst þá á annað borð. Í fjórða lagi er góð regla að vera í síðum ullarnærfötum og hreinum ullarsokkum þegar þú ferð í svefn- pokann. Fleiri flíkur gera ekki mik- Útivist fyrir alla Starfsfólk á fjölskyldutjaldsvæðinu við Úlfljótsvatn gefur góð ráð fyrir útileguna Fimm ráð til að líða vel í svefnpoka Skátahornið Elín Esther Magnúsdóttir Skannaðu kóðann til að lesa MOSFELLSBAKARÍ Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík s. 566 6145 | mosfellsbakari.is Ert þú búin að prófa súrdeigsbrauðin okkar? Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.