Morgunblaðið - 05.07.2016, Page 13
Stolt Omry og Ólöf eru stolt af verslun sinni enda full ástæða til, þar er lagt upp úr gæðum og hreinleika.
að sjálfsögðu líka brauð sem hún
bakaði sjálf,“ segir Omry og brosir
að minningunni.
Matur tengir fólk saman
Ólöf segir að í Ísrael sé matar-
menningin afar fjölbreytt, af því að
þar mætist margir menningar-
heimar, sá arabíski og sá evrópski
blandist vel saman. Og í framhaldinu
dregur Omry fram matarbókina
Jerúsalem, sem fæst í verslun
þeirra, en höfundar hennar eru tveir
menn, annar ísraelskur en hinn pal-
estínskur.
„Þetta er gott dæmi um það
hvernig matur tengir fólk saman.
Þarna mætast þessir menn saman í
friði, fulltrúar afla sem takast á. Í
þessari bók blandast saman hebr-
eska matarhefðin og sú arabíska,
sem er afar áhugavert,“ segir Omry.
Kaupa beint frá býli
Þegar Omry fluttist til Íslands
fannst honum kryddmenningin hér
ekki mjög spennandi.
„Þess vegna datt okkur í hug að
stofna þessa verslun, til að auka úr-
valið og bæta við matarmenninguna.
Fólk hefur tekið þessu fagnandi og
finnst þetta mjög spennandi. Þeir
sem koma hingað inn hafa látið
hrifningu sína í ljós, svo
það er sannarlega þörf
fyrir þessa vöru. Við
bjóðum fólki bæði að
lykta af og smakka það
sem við seljum og það
hefur mælst vel fyrir.
Við erum að reyna að mynda
svolitla markaðsstemningu hér hjá
okkur með því að bjóða líka upp á
krydd í lausavigt og
án umbúða, fólk get-
ur þá komið með sín
eigin ílát eða poka,
sem er mjög um-
hverfisvænt, en það
skiptir okkur líka
máli. Við leggjum áherslu á að versla
við litla aðila á markaði og mikið af
því sem hér fæst kemur beint af býli,
enda flytjum við sjálf inn níutíu og
átta prósent af vörunum sem hér
fást,“ segir Ólöf og bætir við að eng-
in aukaefni séu í því sem þau bjóði
upp á.
Súpa og hummus slá í gegn
Í verslun þeirra fást ekki aðeins
krydd, heldur líka morgunkorn, fræ,
hnetur, þurrkaðir ávextir, grillsósur
og fleira. Og þar er líka heilsusam-
legur nammibar. Síðast en ekki síst
fást þar um þrjátíu tegundir af te og
teblöndum, sem og tejurtum.
„Temenning í heimalandi mínu
er gamalgróin og fjölbreytt. Ég hef
drukkið ferskt myntute frá því ég
man eftir mér, þar sem myntulauf
voru sett í pott með heitu vatni og
bætt við hunangi. Teið sem við selj-
um hér er úr hundrað prósent
náttúrulegu hráefni,“ segir Omry,
en á virkum dögum eldar hann góm-
sæta súpu frá grunni í versluninni,
og hana er hægt að kaupa til að taka
með. Að sjálfsögðu notar hann
kryddin þeirra góðu í súpuna og súr-
deigsbrauðið sem fylgir með gerir
hann að sjálfsögðu líka á staðnum.
Hann býr líka til hummus á fimmtu-
dögum sem hefur hingað til alltaf
selst upp.
Omry hefur boðið upp á kynn-
ingarkvöld fyrir hópa undir heitinu
Framandi krydd. „Þá kynni ég
kryddið okkar fyrir fólki og ég kenni
því einfalda hluti, til dæmis að búa til
hrísgrjón með kryddblöndu, kjúk-
lingabringu og salat og fleira. Það er
til dæmis munur á hvaða krydd mað-
ur notar þegar maturinn fer í ofn,
eða þegar hann er soðinn. Ég leyfi
fólki að finna muninn og kenni því
hvernig þetta allt saman virkar.
Þetta eru mjög skemmtileg kvöld og
fólk fær að smakka,“ segir Omry og
bætir við að kynningarkvöldin fari
aftur af stað í haust. Honum finnst
íslenskur fiskur, íslenskt lamb og ís-
lenskur kjúklingur afbragðs gott
hráefni til matreiðslu.
„Ég vona að fólk geti fengið hér
það sem það vantar til að auðga sína
kryddveröld. Við ætlum að bæta við
okkur fleiri sælkeravörum sem
tengjast mat, til dæmis ólífuolíum,
hunangi og sultum. Eigendur kaffi-
húsa og veitingastaða koma hingað
og versla, sem við teljum nokkuð góð
meðmæli,“ segja þau Omry og Ólöf
að lokum og bæta við að hægt sé að
leggja inn pantanir hjá þeim.
Morgunblaðið/Ófeigur
Framandi Kryddin og sælkeravörurnar eru spennandi og gaman að prófa.
„Ég hef drukk-
ið ferskt myntu-
te frá því ég man
eftir mér.“
Girnilegt og hollt Hægt er að kaupa í lausavigt, sem er umhverfisvænt.
www.kryddogtehusid.is
Facebook/Krydd og Tehúsið
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2016
ið gagn nema pokinn sé þeim mun
lélegri. Skítug föt og sokkar ein-
angra minna svo gott er að vera
með til skiptana.
Í fimmta lagi skaltu þétta pokann
við hálsmálið og andlitið til að
minnka hitatap úr pokanum. Það
skiptir miklu máli þegar líður á
nóttina. Passaðu að bera ekki bleytu
inn í tjaldið eða pokann og taktu
með góðan kodda til að tryggja góð-
an og hressandi nætursvefn.
Vonandi duga þessi einföldu ráð
til að bæta nætursvefninn í næstu
útilegunni þinni!
Höfundur er útivistarskáti, björgunar-
sveitarkona og starfsmaður Úlfljótsvatns.
Engin geimvísindi Allir eiga að geta fengið góðan nætursvefn í tjaldi, hvort
sem þeir eru heitfengir eða ekki – og notið útilegunnar betur fyrir vikið.
Í fyrsta lagi er lykilatriði
að einangra sig frá jörð-
inni, því annars streymir
mikill hiti frá líkamanum.
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR VW
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem
uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest
allt um ástand bílsins og gæði.
• Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk
starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -