Morgunblaðið - 05.07.2016, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2016
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
Eðalfiskur ehf • Sólbakka 4 • 310 Borgarnesi • S. 437 1680 • sala@edalfiskur.is • www.edalfiskur.is
Eðallax
fyrir ljúfar stundir
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Það hefur gengið rosalega vel.
Sala á hjólhýsum hefur aukist um
30% frá því í fyrra,“ segir Arnar
Barðdal, framkvæmdastjóri Vík-
urverks, spurður um ásókn lands-
manna í hjólhýsi þetta sumarið í
samanburði við fyrri ár.
Víkurverk hefur einnig til sölu
ný og notuð fellihýsi og tjaldvagna
ásamt öðrum tilheyrandi búnaði en
Arnar segir sölu tjaldvagna standa
í stað milli ára. Fellihýsin seljist
einnig minna núna en áður þar
sem gengi dollarans sé of hátt og
verðið hérlendis því orðið of hátt.
„Þetta hefur þróast meira út í
þessi hjólhýsi sem eru meiri þæg-
indi og henta vel í veðráttunni á
Íslandi.“
Finna fyrir uppgangi
„Maður finnur að það er smá
uppgangur í þjóðfélaginu og þetta
fylgir líka oft sölu á nýjum bílum –
ef sala þeirra eykst, þá eykst salan
hér,“ segir Arnar, en ástandið sé
farið að svipa til þess sem var við
lýði árið 2006 og árin fyrir efna-
hagshrunið. „Það er þó minna tek-
ið af lánum en var,“ bætir hann
við; fólk taki lægri lán og eigi því
meira í eigninni.
„Annað sem við finnum fyrir er
að það er allt upppantað á hótelum
úti á landi.“ Því þurfi þeir sem hafi
hug á ferðalögum um landið frekar
að verða sér úti um hjólhýsi til að
hafa þak yfir höfuðið á löngum
ferðum sínum.
Hjólhýsin eru misjafnlega dýr;
þau minnstu er á um 2,9 milljónir
að sögn Arnars en þau dýrari og
stærri fara upp í allt að 10 millj-
ónum.
Aukið eftirlit með eftirvögnum
Fyrsta stóra ferðahelgi sumars-
ins var um liðna helgi og voru
margir ökumenn með eftirvagna í
umferðinni. Lögreglan á Suður-
landi stöðvaði um 300 ökumenn
með eftirvagna í þeim tilgangi að
kanna búnað og skoða vagnana.
„Af þessum fjölda voru fjórir boð-
aðir í skoðun og nokkrir fengu til-
tal,“ segir Þorgrímur Óli Sigurðs-
son, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá
lögreglustjóranum á Suðurlandi, en
vegfarendur hefðu brugðist vel við
þessu, þakkað lögreglunni og litið
svo á að með þessu hefði verið að
tryggja öryggi þeirra í umferðinni.
Helstu athugasemdir lögregl-
unnar við eftirlitið lutu að ljósa-
búnaði eftirvagnanna og í einu til-
viki vantaði öryggiskeðju milli
eftirvagns og ökutækis. Allir eft-
irvagnar voru með gildandi skoð-
un.
„Þessa helgi var farið af stað
með aukið eftirlit sem verður í
sumar,“ segir Þorgrímur, en því
eftirliti verði skipt upp í hálend-
iseftirlit, öræfaeftirlit og sérstakt
eftirlit í uppsveitum Árnessýslu.
Þess utan sé lögreglan á Suður-
landi í sínu hefðbundna eftirliti
sem snúi fyrst og fremst að akst-
urs- og hvíldartíma ökumanna, öx-
ulþunga ökutækja, búnaði öku-
tækja og hópferðaleyfum.
Farið að svipa til áranna fyrir hrun
Sala hjólhýsa eykst um 30% á milli ára „Það er smá uppgangur í þjóðfélaginu“ Upppöntuð
hótelgisting um land allt talin hafa áhrif á söluna 300 ökumenn stöðvaðir af lögreglu um helgina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hjólhýsin vinsæl Sala hjólhýsa hefur aukist mikið að sögn framkvæmda-
stjóra Víkurverks. Minna selst af fellihýsum og tjaldvögnum.
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, undirritaði ný lög um
málefni útlendinga þann 16. júní
síðastliðinn. Þetta segir Ragnhildur
Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri í
Forsætisráðuneytinu aðspurð hvort
lögin hafi verið samþykkt af hálfu
forseta. „Það var allt gert í eðlileg-
um farvegi.“
Alþingi samþykkti þann 2. júní
nýja löggjöf um málefni útlendinga
en í henni felst heildarendurskoðun
á gildandi lögum um útlendinga
sem eru frá árinu 2002. Lögin kveða
á um ýmsar breytingar eins og að
stuðla að aukinni þjónustu við út-
lendinga, sérstaklega umsækjendur
um alþjóðlega vernd, erlenda sér-
fræðinga, námsmenn og rannsak-
endur. Gert er ráð fyrir að útgjöld
ríkissjóðs aukist um rúmar 39 millj-
ónir króna.
Nýr forseti tekur við 1. ágúst
Að sögn Ragnhildar eru engin lög
sem samþykkt voru af Alþingi fyrir
þinglok óundirrituð á borði forseta.
Alþingi kemur aftur saman þann
15. ágúst en þá verður nýkjörinn
forseti, Guðni Th. Jóhannesson, tek-
inn við. Innsetning forseta fer fram
mánudaginn 1. ágúst.
„Nýr forseti mun ekki hafa sama
hlutverk þar eins og við þingsetn-
ingu,“ tekur Ragnhildur þó fram
því ekki sé um að ræða hefðbundna
þingsetningu heldur sé þing aðeins
að koma saman aftur eftir hlé.
„Þing kemur saman í september
og þá hefur nýr forseti hlutverk,“
segir hún.
Forseti undirrit-
ar útlendingalög
Ólafur samþykkti lögin þann 16. júní
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þingið Forseti Íslands hefur hlut-
verki að gegna við þingsetningu.