Morgunblaðið - 05.07.2016, Side 16

Morgunblaðið - 05.07.2016, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2016 stutt með því að hann sé sérstaklega skipaður af öðrum og aldrei hafi ver- ið litið svo á að hann væri undirmað- ur seðlabankastjórans. Sömuleiðis er í álitsgerðinni tekin afstaða til þess hvort aðstoðarseðlabankastjóri kunni að teljast vanhæfur til að taka ákvörðun um stjórnsýslumeðferð máls, sem bankinn hefur haft til úr- lausnar, á grundvelli vanhæfisreglna stjórnsýslulaga. Málið snýr að málarekstri Seðla- bankans gegn Samherja og því hvort seðlabankastjóri hafi gert sig van- hæfan til að koma að úrlausn málsins með ítrekuðum ummælum sínum í fjölmiðlum um það. Sneru ummælin meðal annars að þeirri staðreynd að sérstakur saksóknari hafði fellt nið- ur mál sem Seðlabankinn hafði sent til embættisins og endursent það til meðferðar og ákvörðunar hjá bank- anum. Í stjórnsýslulögum er í þriðju grein fjallað um sérstakt hæfi. Segir þar að starfsmaður sé vanhæfur til meðferðar máls ef næstu yfirmenn hans hjá hlutaðeigandi stjórnvaldi eiga sjálfir sérstakra og verulegra hagsmuna að gæta við úrlausn þess. Í aðdraganda þess að kallað var eftir álitsgerðinni var umræða á bankaráðsfundi í Seðlabankanum um mögulegt vanhæfi Más Guð- mundssonar í fyrrnefndu máli. Á fundinum lýsti seðlabankastjóri því yfir að ef vafi léki á hæfi hans vegna ummælanna, myndi hann víkja sæti og aðstoðarseðlabankastjóri tæki við yfirstjórn málsins. Aðstoðarbankastjóra bætt við Fjármála- og efnahagsráðuneytið bendir á í svari sínu að þegar breyt- ing hafi verið gerð á lögum um Seðla- bankann hafi staða aðstoðarseðla- bankastjóra ekki verið í frumvarpinu sem lagt var fram. Hins vegar hafi viðskiptanefnd Alþingis gert tillögu um að ráðherra skyldi einnig skipa aðstoðarseðlabankastjóra sem einn- ig skyldi vera staðgengill seðla- bankastjóra. Af því sem fram komi í nefndaráliti viðskiptanefndar um að- stoðarseðlabankastjóra sé ljóst að hann sé undirmaður seðlabanka- stjóra. Ráðuneytið vísar einnig til þess sem fram kemur í lögum um Seðla- banka að seðlabankastjóri beri ábyrgð á rekstri bankans og fari með ákvörðunarvald í öllum málefnum hans sem ekki eru falin öðrum í lög- unum. Engin ákvæði séu í lögunum um að aðstoðarseðlabankastjóri sé hliðsettur seðlabankastjóra. Loks vísar ráðuneytið til sam- bærilegs fyrirkomulags í ákvæðum lögreglulaga, um veitingu starfa í lögreglunni. Kemur þar fram að ráð- herra skipi ríkislögreglustjóra og lögreglustjóra og jafnframt er ráð- herra heimilt að skipa aðstoðarríkis- lögreglustjóra, aðstoðarlögreglu- stjóra á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Jafnfram komi fram að ef fleiri en einn aðstoðarlögreglu- stjóri er við embætti þá skuli einn þeirra vera staðgengill lögreglu- stjóra. Viðkomandi aðstoðarlög- reglustjóri sé samt sem áður undir- maður viðkomandi lögreglustjóra. „Hvað varðar stöðu aðstoðarseðla- bankastjóra þá lítur ráðuneytið svo á að hann sé undirmaður seðlabanka- stjóra og skiptir þá ekki máli þó hann sé sérstaklega skipaður af ráð- herra í starfið,“ segir í svari fjár- mála- og efnahagsráðuneytisins. Telur Má yfirmann Arnórs Morgunblaðið/Kristinn Yfirmaður Viðskiptanefnd Alþingis bætti aðstoðarbankastjóra í frumvarpið.  Fjármálaráðuneytið lítur svo á að aðstoðarbankastjóri sé undirmaður seðla- bankastjóra  Sé Már vanhæfur, samkvæmt stjórnsýslulögum, er Arnór það líka Álit fjármála- og efna- hagsráðuneytis » Staðgenglar í stjórnkerfinu, stofnunum ráðuneyta og sjálf- stæðra stofnana ríkisins eru undirmenn forstöðumanna viðkomandi stofnana. » Engin ákvæði í lögum um að aðstoðarseðlabankastjóri sé hliðsettur seðlabankastjóra. BAKSVIÐ Jón Þórisson jonth@mbl.is Fjármála- og efnahagsráðuneytið lít- ur svo á að Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, sé undir- maður Más Guðmundssonar, seðla- bankastjóra, og skiptir þá ekki máli þótt Arnór sé sérstaklega skipaður af ráðherra í starfið. Þetta kemur fram í svari ráðuneytisins við fyrir- spurn Morgunblaðsins. Þetta er þvert á niðurstöðu lögfræðiálits sem seðlabankastjóri kallaði eftir vegna umræðu í banka- ráði Seðlabankans um vanhæfi í máli bankans gagnvart Samherja og greint var frá í Morgunblaðinu fyrir skömmu. Segir í lögfræðiálitinu að aðstoðarseðlabankastjórinn sé stað- gengill seðlabankastjóra sem þýði að lögin geri ráð fyrir að hann sé ekki undirmaður hans heldur komi í hans stað í forföllum. Hugsanlegt vanhæfi seðlabankastjóra myndi því ekki gera aðstoðarseðlabankastjóra van- hæfan, segir þar jafnframt. Staðgenglar undirmenn „Staðgenglar í stjórnkerfinu, stofnunum ráðuneyta og sjálfstæðra stofnana ríkisins eru undirmenn for- stöðumanna viðkomandi stofnana,“ segir hins vegar í svari ráðuneytis- ins. Samkvæmt forsetaúrskurði heyra málefni Seðlabanka Íslands undir fjármálaráðherra, auk þess sem starfsmannamál ríkisstofnana eru á ábyrgð fármála- og efnahagsráðu- neytisins. Í fyrrgreindu lögfræðiáliti sem Garðar Gíslason, fyrrverandi hæsta- réttardómari, vann að beiðni seðla- bankastjóra, er það að aðstoðarseðla- bankastjóri sé í raun ekki undirmaður seðlabankastjóra rök- Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á árshelmingi en voru 833 milljarðar á sama tímabili í fyrra, en það er 13% samdráttur. Aðalvísitala skulda- bréfa hækkaði um 0,32% frá upphafi til loka tímabils. Hlutdeild kauphallaraðila í skuldabréfaviðskiptum var mest hjá Kviku banka, 21,8%. Landsbankinn átti næstmestu hlutdeildina, eða 20,6%, og Íslandsbanki var með 18% veltunnar. Sé velta með hlutabréf og skulda- bréf lögð saman sést að veltan er yfir þúsund milljarðar á fyrri árshelm- ingi. jonth@mbl.is Á fyrri helmingi ársins jukust heildarviðskipti með hlutabréf í Kauphöll Íslands um 78% í saman- burði við fyrri árshelming í fyrra. Viðskipti voru með hlutabréf fyrir 290 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins, en 163 milljarða á sama tíma í fyrra. Í tölum sem Kauphöllin hefur tek- ið saman fyrir Morgunblaðið kemur í ljós að heildarmarkaðsvirði hluta- bréfa þeirra félaga sem skráð eru í Kauphöllinni í lok júní síðastliðins hefur vaxið um 15% frá sama tíma- marki í fyrra og nemur heildarvirðið nú tæplega 990 milljörðum króna. Í lok júní voru hlutabréf 20 félaga skráð í Kauphöllinni en þau voru 19 í lok júní í fyrra. Arion banki var með mestu hlut- deild kauphallaraðila í hlutabréfavið- skiptum, eða 24,7%. Næst á eftir kom Landsbankinn með 23,5% og Kvika banki með 18,1%. Mest viðskipti fyrstu sex mánuð- ina voru með bréf Icelandair Group, fyrir 83,6 milljarða króna. Viðskipti með bréf Marel námu 41,7 milljörð- um króna og 22,4 milljarða viðskipti voru með bréf Haga. Frá áramótum til loka júní lækk- aði Úrvalsvísitalan um 5,5% og stóð í 1.777 stigum um mánaðamótin. Heildarviðskipti með skuldabréf námu 755 milljörðum króna á fyrri Viðskipti með hluta- bréf jukust um 78% Morgunblaðið/Styrmir Kári Kauphöll Þúsund milljarða velta. 5. júlí 2016 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 122.36 122.94 122.65 Sterlingspund 164.66 165.46 165.06 Kanadadalur 94.51 95.07 94.79 Dönsk króna 18.327 18.435 18.381 Norsk króna 14.613 14.699 14.656 Sænsk króna 14.465 14.549 14.507 Svissn. franki 125.3 126.0 125.65 Japanskt jen 1.1886 1.1956 1.1921 SDR 171.03 172.05 171.54 Evra 136.37 137.13 136.75 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 171.3847 Hrávöruverð Gull 1348.75 ($/únsa) Ál 1645.0 ($/tonn) LME Hráolía 49.9 ($/fatið) Brent ● Mikill meirihluti hluthafa kauphall- arinnar í London samþykkti sam- runa við kauphöll- ina í Frankfurt í gær, en óttast var að niðurstöður atkvæðagreiðslu um úrsögn Breta úr ESB gætu gert þau áform að engu. Samtals greiddu 99,89% hlut- hafa kauphallarinnar í Lundúnum at- kvæði með sameiningunni. Samkvæmt samkomulagi kauphallanna verður eignarhaldsfélag sameinaðs félags með heimilisfesti í Lundúnum. Því hefur ekki verið vel tekið af eftirlitsaðilum í Þýskalandi, í ljósi væntanlegrar úrsagn- ar Breta úr ESB. Hluthafar í kauphöll- inni í Frankfurt munu geta greitt at- kvæði um samrunann fram til 12. júlí, en stefnt er að því að hann gangi í gegn fyrir mánaðamótin. Úrsögn hefur ekki áhrif á samruna kauphalla Kauphallir Líkur á samruna aukast. STUTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.