Morgunblaðið - 05.07.2016, Side 17

Morgunblaðið - 05.07.2016, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2016 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Minnst 213 týndu lífi þegar maður sprengdi sig í bifreið á fjölfarinni verslunargötu í Bagdad á sunnudag. Þá særðust að minnsta kosti 200 til viðbótar, samkvæmt upplýsingum frá þarlendum yfirvöldum. Ódæðið er hið mannskæðasta í landinu um langt skeið, en Ríki íslams hefur lýst yfir ábyrgð sinni. Sprengingin varð í Karrada-hverf- inu snemma morguns og greinir fréttaveita AFP frá því að fjöldi manns hafi skömmu áður safnast þar saman til að kaupa inn matföng vegna hátíðarhalda sem marka lok Ramadan-föstunnar. Haider al-Abadi, forsætisráðherra Íraks, hefur heitið því að „refsa“ þeim sem ábyrgð bera á tilræðinu auk þess sem hann hefur gefið út til- mæli þess efnis að taka eigi öryggis- mál traustari tökum í Bagdad. Einn liður í því, samkvæmt AFP, er að skipta út gölluðum sprengjuleitar- tækjum sem finna má á mörgum eft- irlitsstöðvum í borginni. Þá munu ör- yggisverðir einnig leita mun oftar að vopnum og sprengjum í ökutækjum til að stuðla að frekara öryggi. Breska ríkisútvarpið (BBC) segir sprenginguna hafa verið afar öfluga, en ódæðismaðurinn kom miklu magni af sprengiefni fyrir í vöru- flutningabifreið sinni. Nokkur hús hrundu til grunna í kjölfar spreng- ingarinnar og eldur kom upp í öðr- um. Björgunarmenn voru enn að störfum í húsarústunum í gær. „Það mun taka okkur nokkra daga að endurheimta lík þeirra sem fór- ust. Þetta er mjög erfitt verkefni,“ hefur AFP eftir björgunarmanni. Heilu fjölskyldurnar létu lífið Búið er að hengja upp svarta borða á nærstödd hús og eru nöfn látinna skrifuð þar á. Heilu fjölskyld- urnar eru taldar af. „Á listunum sem ég sá eru nöfn fjölskyldna. Feður, synir, mæður og dætur – heilar fjöl- skyldur sem þurrkast hafa út í sprengingunni,“ sagði sami björgun- armaður við AFP. Al-Abadi forsætisráðherra hefur lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg í landinu og hófst hún í gær. Í nágrannaríkinu Sýrlandi hafa hersveitir umkringt bæinn Manbij þar sem vígasveitir Ríkis íslams hafa aðsetur. Almennir borgarar streyma út út bænum og er nú talið að um 13.000 manns hafi yfirgefið heimili sín undanfarnar vikur. Vígamenn reyna hins vegar hvað þeir geta til að hindra för þeirra úr bænum. Yfir 200 manns týndu lífi  Sprengjutilræðið er hið mannskæðasta í Bagdad um langt skeið  Björgunar- menn voru enn við leit í gær  Forsætisráðherra boðar hert öryggi í borginni Tveir öryggisverðir særðust þegar sjálfsvígssprengjumaður sprengdi sig í loft upp við ræðisskrifstofu Bandaríkjanna í borginni Jeddah í Sádi-Arabíu. Fréttaveita AFP greinir frá því, og vitnar til innan- ríkisráðuneytis Sádi-Arabíu, að mennirnir hafi hlotið minniháttar áverka í árásinni. Vitni segja að öryggisverðir hafi fyrst tekið eftir tilræðismanninum þar sem hann stóð við sjúkrahús- byggingu sem finna má til móts við ræðisskrifstofuna. Þegar þeir gengu upp að honum þá sprengdi maðurinn sig skyndilega í loft upp á bílastæði sjúkrahússins, en hann var íklæddur sprengjuvesti. „Bandarískir ríkisborgarar særðust ekki í sprengingunni. Fjöl- miðlar greina frá því að tveir sádi- arabískir lögreglumenn hafi særst,“ segir í tilkynningu sem birt- ist á heimasíðu ræðisskrifstofunnar í kjölfar tilræðisins. Bandarísk stjórnvöld hvetja nú ríkisborgara sína til að sýna varúð á ferðalögum í landinu. Talið er að tilræðismaðurinn hafi verið hliðhollur Ríki íslams og að hann hafi með sprengjunni ætlað að myrða bandaríska ríkisborgara. AFP Tilræði Lögreglumenn á verði skammt frá ræðisskrifstofu Bandaríkjanna. Sprengdi sig í loft upp við ræðisskrifstofu  Ætlaði að myrða Bandaríkjamenn Nigel Farage, leiðtogi Breska sjálfstæðis- flokksins (UKIP), sem andsnúinn er aðild Breta að ESB, mun hætta sem formaður flokksins. „Á meðan á þjóðaratkvæða- greiðslunni stóð sagðist ég vilja fá landið mitt aftur, nú vil ég fá líf mitt aftur,“ sagði Farage er hann tilkynnti um afsögn sína, en sigur útgöngusinna í at- kvæðagreiðslunni er sagður full- nægja hans pólitíska metnaði. BRETLAND Nigel Farage á útleið sem formaður UKIP Nigel Farage „Það sem ég sagði var að við erum reiðubúnir til samvinnu með öllum í barátt- unni gegn Ríki íslams,“ segir Mevlut Cavus- oglu, utanríkis- ráðherra Tyrk- lands, í samtali við AFP, en hann segir fjölmiðla hafa rangtúlkað um- mæli sín þegar þeir greindu frá því að Tyrkir myndu leyfa rússneskum herþotum að nýta Incirlik-flugvöll. Völlurinn er nú notaður af her- sveitum NATO til árása í Sýrlandi. TYRKLAND Bauð Rússum ekki sérstaklega aðgengi Mevlut Cavusoglu Heræfingar Kínverja við Paracel- eyjar í Suður Kínahafi hefjast í dag, en þær munu standa yfir til 11. júlí nk. Breska ríkisútvarpið (BBC) greinir frá því að öllum öðrum skip- um verði meinað aðgengi að haf- svæðinu áðurnefnda daga. Kínversk stjórnvöld hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir mikla hernaðaruppbyggingu á svæðinu. SUÐUR-KÍNAHAF Kínverski herinn æf- ir við Paracel-eyjar þegar þú vilt kvarts stein á borðið Blettaábyrgð Viðhaldsfrítt yfirborð Slitsterkt Bakteríuvörn Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is By Cosentino Stjórnvöld á Filippseyjum hafa hrundið af stað miklu átaki sem draga á úr dreifingu og sölu geisla- og mynddiska sem innihalda efni sem fengið var eftir ólögmætum leiðum, s.s. með niðurhali á netinu. Í gær var fjölmörgum diskum safnað saman við höfuðstöðvar lögreglunnar og bryndreki fenginn til þess að keyra yfir hrúg- una. Hvort gjörningurinn skili einhverjum ár- angri í baráttu stjórnvalda skal ósagt látið. Herferð stjórnvalda á Filippseyjum gegn ólöglegu afþreyingarefni AFP Hljóð- og mynddiskar urðu bryndreka að bráð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.