Morgunblaðið - 05.07.2016, Qupperneq 27
ömmubörnum en þau eru orðin 27
talsins. Ég tók á móti einu þeirra
þegar ég var orðin 82 ára.“
Fjölskylda
Dýrfinna Helga giftist 12.6. 1954
Sigurði Ingvari Jónssyni, f. 23.1.
1927, fyrrverandi starfsmanni hjá
Trésmiðjunni Víði í Reykjavík. Hann
er sonur Jóns Sigfúsar Her-
mannssonar, bónda að Sæbóli í Aðal-
vík, og Elínóru Guðbjartsdóttur hús-
freyju þar.
Börn Dýrfinnu Helgu og Sigurðar
Ingvars eru Elínborg Sigurðardóttir,
f. 27.10. 1953, kennari að Iðu III í
Biskupstungum, gift Guðmundi Ing-
ólfssyni bifvélavirkja og eiga þau
fimm börn; Elínóra Inga Sigurðar-
dóttir, f. 20.12. 1954, jarðfræðingur,
hjúkrunarfræðingur og dag-
skrárgerðarmaður í Reykjavík, gift
Júlíusi Valssyni lækni og eiga þau
fjögur börn; Magnús Jóhannes Sig-
urðarson, f. 27.3. 1957, húsasmíða-
meistari í Kópavogi, kvæntur Marga-
rítu R. Raymondsdóttur verslunar-
manni og eiga þau þrjú börn; Þórey
Stefanía Sigurðardóttir, f. 17.7. 1961,
garðyrkjufræðingur í gróðrarstöð-
inni Mörk, búsett í Reykjavík og á
hún fimm börn; Sigríður Helga Sig-
urðardóttir, f. 14.4. 1963, garð-
yrkjumaður og eigandi gróðrarstöðv-
arinnar Merkur, ásamt eiginmanni,
Guðmundi Vernharðssyni, og eiga
þau fjögur börn; Jón Helgi Sigurðar-
son, f. 6.7. 1969, garðyrkjumaður, bú-
settur í Reykjavík og á hann þrjú
börn en unnusta hans er Inga Hafdís
Sigurjónsdóttir skrifstofumaður; og
Sigrún Jóna Sigurðardóttir, f. 6.7.
1969, nemi í Árnesi en maður hennar
er Kristófer Tómasson, sveitarstjóri
Skeiða- og Gnúpverjahrepps og eiga
þau eina dóttur.
Systkini Dýrfinnu Helgu: Sigríður
Sigurjónsdóttir, f. 16.10. 1929, hús-
freyja í Reykjavík, ekkja eftir Björn
Önundarson lækni; Ingibjörg Sigur-
jónsdóttir, f. 31.10. 1933, d. 26.9. 1999,
var búsett í Reykjavík; Jörgen J. H.
Sigurjónsson, f. 12.11. 1935, d. 24.3.
2013, var atvinnurekandi í Mos-
fellsbæ, var kvæntur Önnu Ingólfs-
dóttur sjúkraliða; Magnús Tómas
Sigurjónsson, f. 12.11. 1937, d. 7.10.
1993, kaupmaður og bólstrari í
Reykjavík, var kvæntur Sigrúnu
Ingimarsdóttur garðyrkjumanni;
Jón Oddur Sigurjónsson, f. 5.5. 1942,
bólstrari í Reykjavík, kvæntur Helgu
Snorradóttur hjúkrunarfræðingi.
Foreldrar Dýrfinnu Helgu voru
Sigurjón Jónsson, f. 6.8. 1907, d. 29.3.
1992, verkamaður í Reykjavík, og
k.h., Elínborg Tómasdóttir, f. 16.9.
1906, d. 9.5. 1995, húsfreyja og bóndi.
Ljósmóðirin Dýrfinna með nýfætt
barn að lokinni vel heppnaðri fæðingu.
Úr frændgarði Dýrfinnu Helgu K. Sigurjónsdóttur
Dýrfinna Helga
Klingenberg Sigurjónsdóttir
Jón Jónsson
hreppstj. í Galtarholti í Borgarfirði
Þórunn Kristófersdóttir
húsfr. í Galtarholti
Jón Oddur Jónsson
verkam. í Rvík.
Ingibjörg
Gilsdóttir
húsfr. í Rvík
Sigurjón Jónsson
kyndari á dráttarbátnum
Magna
Gils Sigurðsson
b. í Krossnesi á Mýrum
Guðrún Andrésdóttir
húsfr. í Krossnesi
Gils Jónsson
bakari hjá Sandholt bakaríi
Ástráður Jónsson
verslunarm. í Rvík
Kristófer Jónsson
málari hjá Reykjavíkurhöfn
Finnbogi Jónsson
starfsm. Reykjavíkurhafnar
Jörgen Jörgensson
b. á Borðeyri, af
Klingenbergætt
Dýrfinna Helgadóttir
húsfr. á Borðeyri
Þórey Kristjana
Kristjánsdóttir
vinnuk. í Hrútafirði
Elinborg Tómasdóttir
b. og húsfr. á Seljalandi
í Rvík
Kristján Eggertsson
Fjeldsted
b. á Snæfellsnesi, fór til
Winnipeg í Kanada
Jóhanna Jósúadóttir
vinnuk. í Helgafellssveit
Bjarni Tómasson
afgreiðslum. hjá bílastöð
Steindórs og Hans
Tómasson afgreiðslum. hjá
Bæjarleiðum
Dýrfinna Tómasdóttir
húsfr. í Rvík
Tómas Jörgensson
gestgjafi og símstj. á
Borðeyri, síðar í Rvík
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2016
Eggert fæddist á Grund íEyjafirði 5. júlí 1840. For-eldrar hans voru Ólafur
Gunnlaugsson Briem, bóndi, timb-
urmeistari og skáld á Grund, og k.h.,
Dómhildur Þorsteinsdóttir hús-
freyja.
Ólafur var sonur Gunnlaugs Guð-
brandssonar Briem, sýslumanns og
kammerráðs á Grund og ættföður
Briem-ættar, og k.h., Valgerðar
Árnadóttur Briem, en Dómhildur
var dóttir Þorsteins Gíslasonar,
hreppstjóra á Finnastöðum og á
Stokkhlöðum í Eyjafirði, og seinni
konu hans, Sigríðar Árnadóttur.
Meðal systkina Ólafs timbur-
meistara voru Eggert Briem, sýslu-
maður á Reynisstað, langafi Gunn-
ars Thoroddsen forsætisráðherra og
Sigurðar Líndal, professors em-
eritus, og Jóhanna Briem, amma
Hannesar Hafstein ráðherra, og
langalangamma Jóhanns Hafstein
forsætisráðherra.
Meðal systkina Eggerts voru
Valdimar Briem sálmaskáld, Sig-
ríður Ólafsdóttir Briem, amma Dav-
íðs Stefánssonar frá Fagraskógi, og
Haraldur Briem, langafi Davíðs
Oddssonar Morgunblaðsritstjóra.
Eiginkona Eggerts var Ragnhild-
ur Þorsteinsdóttir, prests á Kálfa-
fellsstað í Suðursveit Einarssonar,
og áttu þau eina fósturdóttur, Sigríði
Sigurðardóttur Nordal sem fluttist
til Kanada.
Eggert lauk stúdentsprófi frá
Lærða skólanum 1861 og embættis-
prófi í guðfræði frá Prestaskólanum
1867. Hann var barnakennari á Ísa-
firði 1861-65 og stundaði verslunar-
störf á sumrin, var aðstoðarprestur
Þórarins Erlendssonar á Hofi í
Álftafirði og prestur á Höskulds-
stöðum á Skagaströnd 1871-90.
Hann dvaldist síðan við skriftir í
Reykjavík.
Eggert samdi skáldsöguna Sæunn
og Sighvatur, og leikritið Draupni,
um Gissur Þorvaldsson, var afkasta-
mikill ritdómari, skrifaði um Sturl-
ungu og fornættir í henni, á sagnir í
Þjóðsögum Jóns Árnasonar og safn-
aði fjölda handrita sem varðveitt eru
á Landsbókasafni.
Eggert lést 9.3. 1893.
Merkir Íslendingar
Eggert
Ólafur Briem
90 ára
Jóhann Pétur Ragnarsson
Ragnheiður Ása
Helgadóttir
85 ára
Dýrfinna Helga
Sigurjónsdóttir
Guðjón Hreinn Daníelsson
Halldóra H. Óladóttir
Ingibjörg Magnúsdóttir
Páll Vígkonarson
Sigurður Tr. Sigurðsson
80 ára
Eiðný Hilma Ólafsdóttir
Guðfinna Halldórsdóttir
Jónína K. Valdimarsdóttir
Sveinn Hallgrímsson
75 ára
Árni Þóroddsson
Elísabet Gunnlaugsdóttir
Hjördís Garðarsdóttir
Ingi Björgvin Guðjónsson
Sigurjón Þórðarson
70 ára
Ásmundur Jakobsson
Gunnlaugur Karlsson
Helga Sigtryggsdóttir
Ingibjörg K. Sigurðardóttir
Ingólfur Birkir Eyjólfsson
Kazimiera Ostapiuk
Ragnar Jónsson
Sesselja Sveinbjörnsdóttir
Sigurður Einarsson
Sveinn Aðalsteinsson
60 ára
Ásdís Eggertsdóttir
Guðbjörg Guðvarðardóttir
Kristján Þór L. Runólfsson
Margrét Sigurleifsdóttir
María Rögnvaldsdóttir
Sigmar Jóhannesson
Sigríður Sigurðardóttir
Sigurður H. Hafsteinsson
Svana Lára Ingvaldsdóttir
Þorgrímur R. Kristinsson
50 ára
Anna Lilja Lárusdóttir
Dröfn Svavarsdóttir
Eva Birgitta Karlsdóttir
Helga Björg Ingimarsdóttir
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir
Sigríður B.
Guðmundsdóttir
Sverrir Gíslason
Þórunn Helgadóttir
Örn Logason
40 ára
Arnar Pétursson
Helga C. Reynisdóttir
Hulda Sif Birgisdóttir
Ilmije Fejzulahi
Ingigerður Gísladóttir
Jurijus Teterevas
Kamma Jónsdóttir
Katrín Þórðardóttir
María I. Ragnarsdóttir
Samúel Torfi Pétursson
Sigurður Örn Magnússon
Wioletta Zukowska
30 ára
Alexander Eyjólfsson
Anna María Jóhannesdóttir
Ástþór Eyjólfsson
Fannar Guðmundsson
Hilmar Þór Hilmarsson
Hreiðar Ófeigur Birgisson
Íris Katrín Barkardóttir
Krista Sigríður Hall
Pawel Piotr Bebenista
Renata M. Rucinska
Sjöfn Friðriksdóttir
Svavar Páll Guðgeirsson
Usa Thrastarson
Vítor Hugo Rosado Félix
Þorgrímur Valur Sveinsson
Til hamingju með daginn
30 ára Þorgrímur ólst
upp í Svíþjóð og á Stöðv-
arfirði, býr í Fellabæ og
starfar við hausþurrkun
hjá Haustaki í Fellabæ.
Maki: Fanny Ósk Mittel-
stein, f. 1991, versl-
unarmaður.
Sonur: Magnús Orri Þor-
grímsson, f. 2007.
Foreldrar: Sveinn Orri
Harðarson, f. 1961, bíl-
stjóri, og Kristín Bjarney
Ársælsdóttir, f. 1964, við
húshjálp..
Þorgrímur
Valur Sveinsson
30 ára Krista ólst upp í
Noregi og í Reykjavík, býr
þar, lauk prófi sem graf-
ískur hönnuður frá LHÍ og
er listrænn stjórnandi hjá
Rosa Mosa ehf.
Maki: Árni Gunnar Gunn-
arsson, f. 1983, rafvirki.
Dóttir: Mekkín Árnadóttir
Hall, f. 2015.
Foreldrar: Sigurður Lár-
us Hall, f. 1952, mat-
reiðslumeistari, og Svala
Ólafsdóttir, f. 1953, verk-
efnastjóri.
Krista Sigríður
Hall
30 ára Fannar ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
MSc-prófi í verkfræði frá
DTU og er að framleiða
íslenskt gin, Himbrima,
sem er að koma á markað
nú í vikunni.
Maki: Anna Gréta Odds-
dóttir, f. 1988, blaðamað-
ur og flugfreyja.
Foreldrar: Rakel Krist-
jánsdóttir, f. 1951, og
Guðmundur Haraldsson,
f. 1950. Þau búa í Hafnar-
firði.
Fannar
Guðmundsson
www.kvarnir.is
20 ÁRA
1996
2016
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhellu 9 | 221 Hafnarfirði
sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
Vinnupallar
margar
stærðir
og gerðir
Álstigar og tröppur
fyrir iðnaðarmenn
Íslensk framleiðsla í 32 ár