Morgunblaðið - 05.07.2016, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú þarft á allri þinni einbeitingu að
halda og mátt því ekki láta hugann reika um of.
Gleymdu ekki að þakka það sem að þér er rétt.
Einhver á heimilinu gæti leitað til þín með
vandamál sín.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú væri kjörið að gera framtíðaráætlun.
Einhver álítur þig vera að stíga í fótinn við sig,
þegar þú ert í raun að daðra við hann. Hristu
upp í hlutunum og vertu djarfur.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Stuðningshópurinn þinn er ekki endi-
lega formlega skipaður hópur fólks, en hann
sér reglulega um að létta þér lífið. Láttu ekki
deigan síga þótt langt sýnist til lands.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Notaðu daginn til þess að rannsaka,
ljóstra upp leyndarmálum eða finna lausnir á
gömlum vanda. Einkum eru það samstarfs-
menn þínir sem gera þér lífið leitt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þiggðu aðstoð samstarfsmanna þinna.
Leitaðu af þér allan grun og njóttu svo þess
sem er saklaus skemmtan en láttu annað eiga
sig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ættir að skoða langanir þínar og þrár.
Hvort heldur sem er, er alheimur þinn að
stækka með einum nýjum vini í einu. Góður
vinur getur gert kraftaverk.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er alltaf leiðinlegt þegar einhver verð-
ur reiður þegar ætlunin var skemmtun ein eða
að halda friðinn. Markmið hans er aftur á móti
bara að koma umbótum til leiðar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú vekur meiri athygli í samfélag-
inu en venjulega um þessar mundir. Núna er
hjartað best í að skilja alheimsmerkjasendingar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ekki setja þig upp á móti foreldrum
þínum eða öðrum í fjölskyldunni í dag. Sýndu
mönnum þínum traust og þú færð það end-
urgoldið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að læra að takmarka um-
svif þín, þannig að þú hafir yfirsýn yfir það, sem
þú ert að gera. Svo virðist, að því lengra sem
þú ferð að heiman, því heppnari verður þú.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Yfirboðari þinn eða foreldri virðist
gera of miklar væntingar til þín í dag. Einhver
þér eldri getur gefið þér góð ráð varðandi fjár-
málin.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Dagurinn í dag er upplagður fyrir and-
lega áreynslu af hvaða tagi sem er. Farðu í
gegnum fötin í skápunum og gefðu þau gömlu
til að búa til pláss fyrir það nýja.
Davíð Hjálmar Haraldsson ermeð hugann við Hesta-
mannamótið á Hólum á Boðnar-
miði:
„Þau hross vöktu hrifningu og lukku
sem hreinræktuð voru og stukku.
Best var Sól mín frá Stað,“
Sigurður kvað,
„ég sauð hana niður í krukku.“
Pólitískar vísur er skemmtileg-
astar þegar léttleiki er yfir þeim.
Ármann Þorgrímsson gerir sér það
að yrkisefni á Leirnum að Vigdís
Hauksdóttir hafi sagt um Guðna
Thorlacius: „Nýkjörinn forseti fer
ekki vel af stað í tilvonandi emb-
ætti“:
Er nú fargi af mér létt.
Íslands framtíð björt og slétt.
Ef Vigdís finnur veikan blett.
Við höfum þá kosið rétt.
Ólafur Stefánsson þóttist þekkja
til skyldleikans: „Hann Ármann er
ekki ólíkur Guði almáttugum að því
leyti að hann agar þann sem hann
elskar. Því er hann óþreytandi í að
siða Framsókn og segja þeim flokki
til synda og betri vegar.
Hann Ármann unir sér glaður
í andófi göfugu.
Mér finnst hann sé framsóknarmaður
með formerki öfugu.
Hjálmar Freysteinsson yrkir á
Boðnarmiði:
Við Vigdísi meta það má
að með sínum hætti,
trú mína á Guðna Th.
töluvert bætti.
Hér er Ármann í heimpekilegum
hugleiðingum: „Litið í eigin barm.
Við eldri borgarar höfum byggt
þetta upp.
Ekki getum öðrum kennt um
ýmislegt þó fari miður
uppskerum það oft með rentum
arfa þegar setjum niður.
Páll Imsland heilsar leirliði eftir
dúk og disk. – „Uppáhalds svar mitt
við spurningunni: Hvað segirðu?
Er gjarnan: „2 pöss.“
Ég varð að koma þessu í limru en
það er ekki margra orða völ til að
ríma á móti orðinu pass í fleirtölu,
þó til séu. Ekkert þeirra féll mér að
þessu sinni og notast því við slettur
í staðinn, hvort sem þær nú skiljast
eða ekki.
Hún fékk á mér kynþrungið kröss.
Við krossstigum valsa og djöss,
en kjarkinn mig brast
er hún biðlaði fast
og brást við með svari: tvö pöss.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fákar, björt framtíð
og sólskinsskap
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
ÞÚ VEIST, ÞAÐ ERU EKKI ALLIR
KETTIR LATIR, GRETTIR SAMMÁLA
ÞAÐ ERU LÍKA
TIL LYGARAR
ÞAÐ ER KOMINN
TÍMI Á GJALDIÐ
OKKAR!
BÍDDU! ÞAÐ ERU
JÓLIN,
ÞAÐ ER
TÍMI TIL
AÐ GEFA!
VIÐ GEFUM ÞÉR 30
SEKÚNDUR TIL ÞESS AÐ
GEFAST UPP!
ÞAÐ ER JÓLA-
ANDINN!
„GERÐU ÞAÐ SEM ÉG SEGI,
EKKI ÞAÐ SEM ÉG SAGÐI.“
„ÉG VEIT AÐ ÞÚ FERÐ Í STURTU Á NÆSTUM
ÞVÍ HVERJUM DEGI. ÞÚ FÓRST NÆSTUM ÞVÍ Á
MÁNUDAGINN OG NÆSTUM ÞVÍ Á ÞRIÐJUDAG…“
... notaleg!
Það eru allir hérna,“ hrópaði einnglaðbeittur gutti á félaga sinn
og saman hlupu þeir inn í þvöguna á
Skólavörðuholti í gærkvöldi, þegar
mannfjöldinn beið eftir að „strák-
arnir okkar“ birtust á rauðu rútunni.
Víkverji var þar á meðal, ásamt þús-
undum annarra glaðbeittra Íslend-
inga, og ekki síður erlendra ferða-
manna sem fengu ókeypis
skemmtun í miðborginni.
x x x
Stemningin var frábær en Víkverjivar einnig staddur á Stade de
France í París í fyrrakvöld og leið
nefnilega dálítið eins og guttunum á
Skólavörðuholti í gærkvöldi. Það
voru bara „allir“ Íslendingar þarna í
stúkunni. Þetta var eins og eitt stórt
ættarmót og það var sama á hverju
gekk á vellinum, áfram hélt stuðn-
ingurinn með fjöldasöng og hrópum,
að ógleymdu „húinu“ margfræga.
Víkverji hefur sjaldan eða aldrei
öskrað jafn hátt og lengi, enda brast
röddin og var ekki til stórræðanna í
gærkvöldi á Arnarhóli. Þeim mun
meira var klappað í staðinn.
x x x
Víkverji hefur heldur aldrei tárastjafn mikið eða sungið þjóðsöng-
inn jafn hátt og í París. Leikurinn
tapaðist kannski 5-2 en hann vannst
í stúkunni. Þessir 10 þúsund Íslend-
ingar yfirgnæfðu 70 þúsund Frakka
oftar en einu sinni og sköpuðu
magnað andrúmsloft. Verra var að
heyra frönsku stuðningsmennina
reyna að herma eftir „húinu“ og
blessunarlega var það kæft í fæð-
ingu með alvöru „húi“.
x x x
Þrátt fyrir úrslitin gegn Frökkumvar gaman að vera Íslendingur í
París um helgina. Á leikdegi var
marserað í miðborgina, merktur frá
toppi til táar, og hvar sem Víkverji
kom var hrópað „Islande“ eða „Ice-
land“, gefin fimma, þumallinn upp
og oft bætt við nokkrum „húum“ og
viðeigandi klappi.
Síðustu vikur hafa verið eitt alls-
herjar ævintýri og þegar frá líða
stundir verður árangur landsliðsins í
hópi fræknustu viðburða Íslands-
sögunnar. Víkverji hefur bara eitt að
segja í lokin: Takk, strákar!
víkverji@mbl.is
Víkverji
Mörg er ráðagerð mannshjartans
en áform Drottins standa.
(Orðskv. 19:21)
VALS TÓMATSÓSA
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA