Morgunblaðið - 05.07.2016, Síða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2016
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Yfirskrift hátíðarinnar í ár er
„Tvær stjörnur“ en áherslan að
þessu sinni er á ástarsöngva og ást-
arkvæði,“ segir Gunnsteinn Ólafs-
son, stofnandi og listrænn stjórnandi
Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði
sem nú er haldin í 17. sinn dagana 6.-
10. júlí. „Ég bað alla flytjendur í ár
að sveigja efnisskrá sína að slíkri
tónlist sem var auðsótt mál,“ segir
Gunnsteinn og bendir á að hátíðin í
ár verði víðfeðm. „Hér verður leikin
þjóðlagatónlist, klassísk tónlist sem
sveigir sig í átt til
þjóðlaga, balkan-
músík, alþýðu-
tónlist, erlend
músík og frum-
samin tónlist. Við
förum mjög vítt
yfir sviðið til þess
að allir gestir fái
eitthvað við sitt
hæfi. Styrkleiki
hátíðarinnar felst
einmitt í því að
langflestir hátíðargestir mæta á alla
tónleika hátíðarinnar og fara þá á
tónleika sem þeir hefðu annars ekki
farið á. Þannig kynnist fólk alveg
nýrri tónlist sem það hefði annars
ekki komist í tæri við,“ segir Gunn-
steinn og bendir á að alls verði í ár
boðið upp á um 20 tónleika á fimm
dögum, en flytjendur eru tæplega
120 talsins. Þar af er 60 manna sin-
fóníuhljómsveit sem kemur fram á
lokatónleikum hátíðarinnar í
Íþróttahúsinu sunnudaginn 10. júlí
kl. 14 undir stjórn Gunnsteins. Á
efnisskrá tónleikanna eru Íslensk
svíta eftir Misti Þorkelsdóttur og 1.
sinfónía Gustavs Mahler. Tónleik-
arnir verða endurteknir í Langholts-
kirkju þriðjudaginn 12. júlí kl. 20.
Býr yfir ákveðnum sjarma
Að sögn Gunnsteins eru hátíðar-
gestir á öllum aldri. „Dæmigerður
hátíðargestur er bara hinn venjulegi
Íslendingur. Þetta er fólk á öllum
aldri sem kemur alls staðar að og
hefur áhuga á tónlist og því að vera
innan um skemmtilegt fólk. Þetta er
líka fólk sem hefur áhuga á því að
vera á Siglufirði, því Siglufjörður
býr yfir ákveðnum sjarma sem
margir kunna mjög vel við og líður
vel í bænum. Það er því margt sem
hefur áhrif á það að fólk kemur á há-
tíðina,“ segir Gunnsteinn.
Á sl. árum hefur veðrið haft nokk-
ur áhrif á það hversu margir gestir
leggja leið sína til Siglufjarðar og því
ekki úr vegi að spyrja Gunnstein
hvort hann viti hvernig veðurspáin
sé út vikuna. „Mér er alveg sama
hvernig veðurspáin er – hún hlýtur
að vera mjög góð. Við spáum því að
það verði afskaplega gott veður í ár
og trúum því þar til annað kemur í
ljós. Við verðum að minnsta kosti
með sól bæði í hjarta og sinni,“ segir
Gunnsteinn og bendir á veðrið muni
þó stjórna því hvort hægt verði að
hafa vissa tónlistarviðburði úti undir
berum himni.
Ókeypis stofutónleikar
Spurður um val sitt á flytjendum
segir Gunnsteinn mikinn áhuga hjá
tónlistarfólki á því að koma fram á
hátíðinni. „Auðvitað er alltaf eitt-
hvað um það að ég hafi samband við
tónlistarfólk að fyrra bragði og óski
eftir því að það komi fram, en um
90% flytjenda sóttu um að koma
fram. Því miður geta ekki allir sem
sækja um tekið þátt því við verðum
að gæta að fjölbreytileikanum,“ seg-
ir Gunnsteinn og bendir á að áhug-
inn frá erlendum flytjendum sé alltaf
þónokkur. Meðal þeirra sem fram
koma í ár eru söngvarnir Davíð
Ólafsson og Stefán Íslandi yngri,
sem syngja við undirleik Helga
Hannesar píanóleikara. „Í tilefni af
20 ára söngafmæli sínu ætla Davíð
og Stefán að bjóða bæjarbúum á
Siglufirði upp á ókeypis 20 mínútna
tónleika heima í stofu. Einnig má
panta þá í fyrirtæki eða á stofnanir,
sérstaklega á sjúkrastofnanir til að
gleðja þá sem ekki eiga heiman-
gengt á hátíðina,“ segir Gunnsteinn
og bendir á að tekið sé við tónleika-
pöntunum í síma 897-1533.
Ekki lengur hjábarn veraldar
Föstudaginn 8. júlí kl. 17 verður
efnt til hátíðardagskrár í Þjóðlaga-
setri sr. Bjarna Þorsteinssonar á
Siglufirði í tilefni þess að liðin eru 10
ár frá vígslu setursins. „Þjóðlagahá-
tíðin og Þjóðlagasetrið mörkuðu
ákveðin þáttaskil í sögu, þróun og
viðhorfi þjóðarinnar til þjóðlaga-
tónlistar. Þetta var nokkurs konar
hjábarn veraldar þangað til Þjóð-
lagahátíðin var stofnuð. Við í Þjóð-
lagasetrinu söfnuðum heilmiklu efni
og kvikmynduðum það og sýnum
þetta í Þjóðlagasetrinu. Einnig höf-
um við gefið út DVD-disk með úrvali
efnis úr Þjóðlagasetrinu. Þetta hefur
allt haft þau áhrif að tónlistarmenn
eru miklu hugaðri að takast á við
þjóðlagaarfinn, jafnt tónskáld sem
eru að útsetja og ungir tónlistar-
menn sem eru að leika sér að því að
spinna með arfinn. Það er því óhætt
að segja að það hafi orðið ákveðin
vatnaskil með tilkomu Þjóðlagahá-
tíðarinnar árið 2000 og Þjóðlagaset-
ursins árið 2006, því við auðvelduð-
um fólki að komast í tæri við
þjóðlagaarfinn og gera sér grein fyr-
ir hvernig tónlistin hljómaði,“ segir
Gunnsteinn og bendir á mikilvægi
þess að heyra tónlist í stað þess að
sjá hana einungis á nótum.
„Þetta var þannig að menn gátu
skoðað nóturnar í safni Bjarna Þor-
steinssonar, en voru litlu nær um
hvernig ætti að syngja og spila tón-
listina eða hvernig hægt væri að
vinna úr efninu. Ég held að okkur
hafi tekist að opna þarna dyr fyrir
tónlistarfólki. Samhliða þessu hafa
fordómar gagnvart íslensku þjóðlög-
unum horfið. Maður fann það þegar
maður var að byrja að sumum þótti
þetta ómerkileg tónlist og ekkert í
þetta varið. En svo kemur í ljós að
þarna eru hundruð laga sem eru frá-
bær og hægt er að leika sér að og
vinna úr,“ segir Gunnsteinn og bend-
ir á að enn sé mikill óplægður akur
eftir þegar komi að íslensku þjóðlög-
unum. „Það er alls ekki búið að skrá
alla músíkina. Sem dæmi eru hjá
Stofnun Árna Magnússonar í ís-
lenskum fræðum hundruð klukku-
tíma af upptökum með tónlist sem
hefur aldrei verið skráð. En svo
snýst þetta ekki bara um að skrá
efnið heldur ekki síður að gera það
aðgengilegt þannig að menn heyri
og þekki þessa músík, sem er það
sem vantar fyrst og fremst.“
Að vanda verður boðið upp ýmis
námskeið fyrir jafnt fullorðna og
börn á Þjóðlagahátíðinni og í Þjóð-
lagaakademíunni, en meðal kennara
eru Francisco Javier Jáuregui, Guð-
rún Jóhanna Ólafsdóttir, Ragnar
Heyerdahl, Guðrún Ingimundar-
dóttir, Arnaldur Arnarson og Björg
Þórsdóttir. Allar nánari upplýsingar
um námskeiðin má finna á vefnum
folkmusik.is, en tekið er á móti
skráningum á netfanginu
festival@folkmusik.is.
Veglegt afmælisár 2018
Þegar Þjóðlagahátíðin fagnaði 15
ára starfsafmæli sínu sumarið 2014
var frumflutt ævintýraóperan Bald-
ursbrá eftir Gunnstein sem hann
samdi ásamt Böðvari Guðmunds-
syni. Ekki er því hægt að sleppa
Gunnsteini án þess að forvitnast um
hvort hann sé þegar farinn að leggja
drög að næstu óperu til að fagna 20
ára starfsafmæli hátíðarinnar. „Það
er aldrei að vita hvernig tímamót-
unum verður fagnað. En fyrst ætlum
við að halda upp á 100 ára afmæli
Siglufjarðarkaupstaðar. Þó svo að
Siglufjörður sé nú hluti af Fjalla-
byggð þá á Siglufjörður 100 ára
kaupstaðarafmæli árið 2018 og þá
gerum við ráð fyrir að vera með
mjög veglega hátíð.“
Tvær stjörnur á Siglufirði
Þjóðlagahátíð á Siglufirði haldin í 17. sinn dagana 6.-10. júlí Boðið upp á alls 20 tónleika á fimm
dögum Þema hátíðarinnar í ár er ástarsöngvar og kvæði Þjóðlagasetrið fagnar 10 ára afmæli
Þjóðleg Þjóðlagahópur Tónlistarskóla Kópavogs kemur fram á laugardag.
Stofutónleikar Helgi Hannesar, Stefán Íslandi og Davíð Ólafsson.
Ríma Félagar úr Kvæðamannafélaginu Rímu verða í Bátahúsinu.
Nútímatónlist Elements Ensemble leikur í Siglufjarðarkirkju á laugardag.
» Þjóðlagahátíðin ogÞjóðlagasetrið
mörkuðu ákveðin þátta-
skil í sögu, þróun og við-
horfi þjóðarinnar til
þjóðlagatónlistar.
Gunnsteinn
Ólafsson
Miðvikudagur 6. júlí
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og
Francisco Javier Jáuregui flytja
baskneska og spænska söngva í
Siglufjarðarkirkju kl. 20.
Félagar úr Kvæðamannafélag-
inu Rímu flytja tvísöng og tvíræðar
vísur í Bátahúsinu kl. 21.30.
Ingibjörg Ýr, Tytti Arola og Sig-
urður Ingi flytja samtímahljóð og
sögur í Siglufjarðarkirkju kl. 23.
Fimmtudagur 7. júlí
Þulur og barnagælur samdar og
útsettar af Báru Grímsdóttur í
Siglufjarðarkirkju kl. 17.
Ný íslensk og erlend verk fyrir
flautu og píanó í Siglufjarðarkirkju
kl. 20.
Jóhanna Þórhallsdóttir og Aðal-
heiður Þorsteinsdóttir flytja ástar-
kvæði og mansöngva Megasar í
Bátahúsinu kl. 21.30.
Þjóðlagatríóið Húm flytur nor-
ræna þjóðlagatónlist í Siglufjarð-
arkirkju kl. 23.
Föstudagur 8. júlí
Kvæðamannakaffi inni og úti
við Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þor-
steinssonar kl. 17 í tilefni af 10 ára
afmæli setursins.
Stjörnubjart með Andakt í
Siglufjarðarkirkju kl. 20.
Ragnar Heyerdahl leikur norska
þjóðlaga- og klezmertónlist í Báta-
húsinu kl. 21.30.
Skuggamyndir frá Býsans flytja
söngva frá Balkanskaga á Allanum
kl. 23.
Þjóðlagadúóið Funi kveður í
rökkrinu í Siglufjarðarkirkju kl. 23.
Laugardagur 9. júlí
Íslenskir þjóðdansar á Kirkju-
loftinu milli kl. 10 og 12 í umsjón
Kolfinnu Sigurvinsdóttur þjóð-
dansakennara.
Ingibjörg Fríða og Johannes G.
Hellman verða með norrænan
spuna og þjóðlög í Bátahúsinu kl.
14.
Arnaldur Arnarson leikur gítar-
tónlist frá ýmsum heimshornum í
Siglufjarðarkirkju kl. 14.
Þjóðlagahópur Tónlistarskóla
Kópavogs leikur í Siglufjarðar-
kirkju kl. 15.30.
Hljómsveitin Nefndin flytur lög
við ljóð eftir Hákon Aðalsteinsson
á Allanum kl. 15.30.
Thin Jim flytur bandaríska og
íslenska sveitatónlist í Bátahúsinu
kl. 17.
Elements Ensemble leikur
bandaríska nútímatónlist með
þjóðlegu ívafi í Siglufjarðarkirkju
kl. 17.
Uppskeruhátíð í Bátahúsinu kl.
20.30 þar sem listamenn af hátíð-
inni koma fram. Sérstakur gestur
er Sinead Kennedy sem leikur
fiðlutónlist frá Írlandi.
Gréta Salóme og hljómsveit
flytja útsetningar Grétu á íslensk-
um þjóðlögum og nýjar lagasmíðar
á Allanum kl. 23.
Sunnudagur 10. júlí
Lokatónleikar Þjóðlagahátíðar-
innar á Siglufirði í íþróttahúsinu
kl. 14 undir stjórn Gunnsteins
Ólafssonar. Tónleikarnir verða
endurteknir í Langholtskirkju
þriðjudaginn 12. júlí kl. 20.
Um 120 flytjendur koma fram
á 20 tónleikum hátíðarinnar
FJÖLBREYTT DAGSKRÁ ÞJÓÐLAGAHÁTÍÐAR Á SIGLUFIRÐI
Sögur Ingibjörg Ýr og Tytti Arola.