Morgunblaðið - 05.07.2016, Qupperneq 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2016
Ævar Þór Benediktssoner vel þekktur hjálandsmönnum semÆvar vísindamaður
og nú líka sem afkastamikill barna-
bókahöfundur. Bækur hans Þín eigin
þjóðsaga og Þín eigin goðsaga hafa
slegið í gegn í jólabókaflóðunum en í
sumarbókaflóðið hefur Ævar sent
frá sér sögur um bernskubrek sín:
Risaeðlur í Reykjavík og Vélmenna-
árásina. Þær komu út 2015 og 2016
að vori í kiljuformi svo þær henta vel
sem sumarlesning fyrir krakkana.
Í þessum bókum segir frá Ævari
áður en hann varð vísindamaður,
þegar hann var venjulegur 11 ára
strákur. Ævar er dálítill einfari en
foreldrar hans eru öfgahress og
reyna að ýta honum út í að gera
ýmislegt sem hann er lítið hrifinn af,
eins og að halda upp á ellefu ára af-
mælið sitt.
Í Risaeðlum í Reykjavík kemur
Ævar því skýrt á framfæri að hann
sé lítið gefinn fyrir að eiga vini en
foreldrar hans bjóða samt nokkrum
krökkum í afmælisveislu sem leiðir
til að leikar æsast nokkuð í lífi Æv-
ars litla. Krakkarnir eru allt í einu
orðnir risaeðluforeldrar og þurfa að
takast á við ýmislegt sem tengist því
að ala upp sjö risaeðlur í litlum garði
í Reykjavík.
Í seinni bókinni eru foreldrar Æv-
ars að reyna að koma honum úr tölv-
unni í sumarfríinu, en Ævar vill helst
hanga í tölvunni allan daginn og sér
ekki tilgang með öðrum gjörðum.
Þegar hann liggur úti í sólbaði, sem
foreldrar hans píndu hann í, heyrir
hann auglýsingu í útvarpinu um sum-
arskóla þar sem krakkar geta verið í
tölvunni allan daginn. Hann fær for-
eldra sína til að skrá sig í hann og
heldur að hann sé þar með kominn í
draumalandið en það reynist allt
annað. Skólinn er ekki venjulegur og
þar kemst Ævar ásamt nokkrum
skólasystkinum sínum í hann krapp-
an þegar þau komast í kynni við vél-
menni.
Báðar þessar bækur virkja ímynd-
unaraflið vel, þær eru fjörugar, fræð-
andi og spennandi. Þær tengja vel
við líf barna og þau eiga auðvelt með
að sökkva sér ofan í þær. Gagnrýn-
andi talar af reynslu því það reyndist
hið mesta basl fyrir hann að fá að
lesa bækurnar í friði því börnin á
heimilinu, 8, 11 og 12 ára, voru alltaf
að hnupla þeim til lesturs og að
þeirra dómi eru þetta frábærar bæk-
ur.
Það þarf ekki að glæða sögurnar
lífi með myndum, því þær eru stút-
fullar af lífi og fjöri, og tekst vel til
með myndskreytinguna að því leyti,
myndirnar hressa upp á en taka ekki
yfir.
Bækurnar eru prentaðar í sér-
stöku letri sem gerir lesblindum auð-
veldara með að lesa þær og það verð-
ur að segjast að letrið og upp-
setningin á sögunum er afskaplega
aðgengileg.
Ævar fór af stað með sérstakt
lestrarátak meðal grunnskólabarna í
1. til 7. bekk í tengslum við bækurnar
og voru krakkar dregnir út úr því
átaki og nöfn þeirra notuð á sögu-
persónur. Það er til fyrirmyndar að
rithöfundur skuli ekki bara skrifa
bækur fyrir börn heldur einnig
hvetja þau til þess að lesa bækur með
þeim hætti sem Ævar hefur gert.
Í Risaeðlum í Reykjavík og Vél-
mennaárásinni tekst Ævari að búa til
skemmtilegan söguheim sem auðvelt
er að tengja við þó atburðirnir í hon-
um séu langt fyrir utan raunveru-
leikann... eða hvað?
Líf og fjör í heimi
risaeðla og vélmenna
Skáldsögur
Risaeðlur í Reykjavík bbbbn
Vélmennaárásin bbbbn
Eftir Ævar Þór Benediktsson
Myndskreyting: Rán Flygenring
Risaeðlur í Reykjavík 208 bls.
Vélmennaárásin 192 bls.
Mál og menning 2015 og 2016
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
BÆKUR
Morgunblaðið/Golli
Snjall Að mati rýnis tekst Ævari Þór Benediktssyni að búa til skemmtilegan söguheim í bókum sínum.
Bandarísku söngkonunni og laga-
höfundinum Carole King var vel
fagnað í Hyde Park í London um
helgina þegar hún flutti metsölu-
plötu sína Tapestry frá árinu 1971
í heild sinni. Frá þessu greinir
BBC. Þar er rifjað upp að King
hlaut fyrir Tapestry Grammy-
verðlaun fyrir bestu plötu ársins
fyrst kvenna. Áhorfendur, sem
voru 65 þúsund, höfðu greitt tæp-
lega 250 sterlingspund (sem sam-
svarar um 40 þúsundum íslenskra
króna) fyrir stakan miða og sungu
hástöfum með. „Þetta var ótrú-
legt,“ hafði King á orði á tónleik-
unum þar sem
hún sat við flyg-
ilinn. King, sem
er 74 ára, hélt
síðast tónleika í
London fyrir 27
árum eða árið
1989 þegar hún
lék í Albert Hall.
Dóttir King, Lo-
uise Goffin, söng
dúett með henni í laginu „Where
You Lead“ en með nýjum texta
frá 2000 þegar lagið var gert að
titillagi sjónvarpsþáttaraðarinnar
Gilmore Girls.
Fyrstu tónleikar King í London í 27 ár
Carole King
Breski leikarinn John Hurt hefur að
læknisráði dregið sig út úr upp-
færslu Kenneths Branagh á The En-
tertainer eftir John Osborne hjá
Garrick-leikhúsinu í London sem
frumsýnd á 20. ágúst nk. Hurt átti
að leika Billy Rice, föður Archie sem
Branagh leikur. Samkvæmt frétt
BBC þurfti Hurt nýverið að leggjast
inn á spítala vegna veikinda sinna,
en hann var á síðasta ári greindur
með krabbamein í brisi, og mátu
læknar það svo að hann væri enn of
veikburða til að takast á við erfitt
hlutverk á sviði þó honum færi fram
að heilsu.
„Mig tekur það sárt að þurfa að
hætta við sýninguna og það eru mér
mikil vonbrigði,“ hefur BBC eftir
Hurt, sem óskar
Rob Ashford leik-
stjóra og leik-
hópnum góðs
gengis án sín.
Enn er óljóst
hver tekur við
hlutverkinu af
Hurt. Þetta er
seinasta upp-
færsla Branagh
hjá Garrick-leikhúsinu, en hann tók
að sér að vera listrænn stjórnandi
þess í eitt ár og hafa margar upp-
færslur leikhússins verið teknar upp
og sýndar í kvikmyndahúsum víðs
vegar um heim. The Entertainer
verður tekin upp og sýnd í Bíó Para-
dís frá og með 19. nóvember nk.
John Hurt gefur frá sér hlutverkið
John Hurt
Tónlistarmaðurinn Frank Ocean ýj-
aði að því fyrir skemmstu að von
væri á nýju plötunni hans þann 13.
nóvember næstkomandi. Rapparinn
hefur legið í dvala, sem margir hafa
furðað sig á, í fjögur ár en þá kom út
hans síðasta plata, Channel Orange.
Sú plata hlaut mikið lof gagnrýn-
enda og því hefur verið beðið eftir
því í eftirvæntingu að nýtt efni komi
út frá honum. Það var á vefsíðu
hans, Boys Don’t Cry, sem því var
fleygt fram að von væri á nýja efn-
inu en ár er síðan að Ocean gaf í
skyn að plata væri í vændum. Aðdá-
endur rapparans geta því tekið gleði
sína á ný en kappinn lagði einmitt
hönd á plóg við gerð laganna „My
Willing Heart“ og „Always“ sem
finna má á nýútkominni plötu James
Blake, The Colour in Anything.
Ljósmynd/Dave Gold
Dvali Síðasta plata Frank Ocean
kom út fyrir fjórum árum síðan.
Dagsetning
komin á
plötu Ocean
Vertu upplýstur!
blattafram.is
BREGSTU VIÐ,
EF ÞÚ SÉRÐ EÐA VEIST
AF OFBELDI, EÐA FINNST
ÞÉR ÞÆGILEGRA
AÐ LÍTA UNDAN?
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN
Enn snjallara heyrnartæki
Beltone Legend
Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
™
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004