Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.07.2016, Page 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.07.2016, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.7. 2016 S amfélag fólks sem smíðar flugvélar á Íslandi stendur þétt saman um sitt áhugamál og hikar ekki við að leita hjálpar hjá náunganum í næsta skýli. Fá- mennur en góðmennur hópur stundar þessa merkilegu iðju, ef marka má lýsingar Sigurðar Ás- geirssonar, þyrluflugstjóra og flug- vélasmiðs sem um þessar mundir er að smíða sér flugvél frá grunni, en hann tilheyrir hópi áhugafólks um flugvélar sem kallar sig Crossing the Atlantic. Félagsskapurinn hefur nokkrum sinnum flogið út fyrir landsteinana á heimasmíðuðum flugvélum, nú síðast til Frakklands. Blaðamaður hafði staðið í þeirri trú að heilt teymi sérfræðinga þyrfti til að setja saman flugvél með góðu móti. Aðspurður um sitt teymi segir Sigurður: „Þetta er eig- inlega bara okkar vinahópur sem fer í þetta. Það hefur alltaf verið della hjá okkur að smíða vélar og fljúga þeim.“ Félagsskapurinn náði þeim merka áfanga fyrst árið 2009 að fljúga íslenskri flugvél út fyrir land- steinana, en það var að sögn Sig- urðar í fyrsta skipti sem flugvél framleidd á Íslandi flýgur héðan af landi brott. „Við Guðjón, vinur minn, smíðuðum vélina og fórum alla leið suður til Sardiníu,“ segir Sigurður, en til hafði staðið að fljúga vélinni til Túnis en ófyr- irséðir erfiðleikar ollu því að þeir létu Sardiníu duga. Fyrstu tvíþekjurnar yfir Atlantshafinu Hópurinn Crossing the Atlantic flaug til Færeyja, Bretlands og Frakklands í hópflugi í fyrra á fimm heimasmíðuðum vélum. „Við í þessum hópi erum alltaf að gera eitthvað saman. Við eigum alls fimm heimasmíðaðar vélar og erum að smíða fjórar nýjar,“ segir Sig- Hér má sjá Sigurð vinna að sinni nýjustu smíð. Spíturnar verslar hann dag frá degi í Byko en mælir með fyrirfram ákveðnu „kitti“ fyrir byrjendur. Morgunblaðið/Þórður Margs konar undirbúning þarf til að fljúga yfir Atlantshafið, enda mun mörgum þykja slíkt hin mesta svaðilför. Heimasmíðaðar flugvélar eru að sögn Sigurðar oftast nær betri en þeir sem framleiddar eru í verksmiðju, enda nostra menn við smíðina oft svo árum skiptir. Grúskarar háloftanna Bræðralag áhuga- manna um flugvéla- smíðar er fámennt en góðmennt á Íslandi, en hópurinn Crossing the Atlantic er vinahópur fólks sem smíðar sínar eigin flugvélar í frí- stundum og flýgur þeim milli landa. Nú síðast var flogið til Frakklands og víðar á fimm vélum hópsins. Matthías Tryggvi Haraldsson mth@mbl.is FLUGVÉLASMÍÐI

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.