Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.07.2016, Blaðsíða 23
24.7. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Getty Images
Bragðbætt útilega!
Verslunarmannahelgin er á næsta leiti
og margir hyggja á útilegur. Höfuðverkur margra er
hvað eigi að hafa á matseðlinum. Pulsur, krydd-
legnar kótelettur, hrásalat og rækjusalat var vinsælt
hér á árum áður en nú gildir að láta hugmynda-
flugið ráða för þegar kemur að útilegumat
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Tilvalið er að útbúa þennan rétt
heima en það tekur aðeins 10 mín-
útur. Auðvelt er að taka með í útileg-
una tilbúinn álbakka af spennandi
kartöflum sem eru frábært meðlæti
með grillmatnum og góð tilbreyting
frá bakaðri kartöflu.
Fyrir 6
9 kartöflur, skornar í báta eða grófar
sneiðar
2 laukar, skornir frekar gróft
6 msk. smjör
ca. 100 g rifinn ostur
4 tsk. þurrkuð steinselja
2 msk. Worcestershire-sósa
Skerðu kartöflur og lauk og leggðu í
álform eða í álpappír. Skerðu smjör í
bita og dreifðu þeim yfir. Blandið
saman rifnum osti, steinselju og Wor-
cestershire-sósu. Dreifið blöndunni
yfir kartöflurnar. Lokið með álpappír.
Setjið á grillið sem á að vera stillt á
frekar lágan hita (175-200°C). Grillið
í 35-40 mínútur. Saltið og piprið eftir
smekk.
Útilegu
kartöflugratín
Frábær máltíð sem maður myndi
ekki einu sinni vera óánægður
með á fínasta veitingahúsi, en úti í
náttúrunni, uppi á fjalli, með fal-
legt útsýni, við sætan læk, í góðu
veðri er bara ekkert betra!
Fyrir 2
2 pakkar sveppasúpa, úr heilsubúð
1 lítri kalt vatn
10 g þurrkaðir sveppir
hálf lúka fjallagrös (má sleppa)
100-150 g hrísgrjónanúðlur
smá klípa salt, pipar og múskat
Áður en lagt er af stað í ferðina
skuluð þið blanda saman súpu-
duftinu, þurrkuðum sveppum,
salti, pipar og múskati í plast-
poka. Hafið hrísgrjónanúðlurnar í
sér poka.
Í áningarstað skuluð þið sjóða
súpuna samkvæmt leiðbein-
ingum á umbúðum. Hrærið mjög
vel.
Skolið fjallagrösin eða dustið af
þeim og tætið aðeins niður.
Þegar súpan er byrjuð að sjóða,
setjið þá fjallagrösin og hrís-
grjónanúðlurnar út í og láta
malla í 5 mínútur eða svo. Berið
fram strax.
Frá cafesigrun.com.
Útilegusveppasúpa
með fjallagrösum
Hver elskar ekki beikon og maís, en í
þessum rétti er þetta tvennt sameinað.
Undirbúðu réttinn daginn áður en hald-
ið er í útilegu.
Fyrir 8
rúmlega kg beikon
1 bakki basillauf
2 jalapeno, skornir smátt
8 ferskir maísstönglar
Raðaðu á bökunarpappír beikonsneið-
um þannig að þær leggist hver ofan á
aðra á köntunum, fiturönd á móti kjöt-
rönd. Raðaðu 6-7 sneiðum saman þann-
ig að þú sért kominn með „kassa“ af
beikoni. Leggðu smjörpappír yfir og
lemdu með pönnu til að fletja það að-
eins út. Taktu þá smjörpappírinn ofan
af og leggðu ofan á beikonið skorinn
jalapeno-pipar og basillauf. Taktu maís-
stöngulinn og leggðu ofan á og rúllaðu
beikoninu varlega yfir. Vefðu þessu inn í
plastfilmu og láttu liggja í ísskáp yfir
nótt. Þegar í útileguna er komið, stilltu
grillið á meðalhita. Ef þú ert með efri
hillu er hægt að grilla þetta þar. Byrj-
aðu á að grilla þar sem samskeytin á
beikoni eru. Snúðu um fjórðung á fimm
mínútna fresti. Grilltími er 25-30 mín-
útur.
Beikonvafðir
maísstönglar