Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.07.2016, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.07.2016, Blaðsíða 18
HÖNNUN Eins og kunnugt er verður Druslugangan gengin í dag, laugardag, og þvíum að gera að „drusla sig í gang“ ef þú vilt taka þátt í að skila skömm- inni til gerenda. Hefurðu hugleitt að fjárfesta í bol eða „druslubrók“? Að drusla sig í gang 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.7. 2016 Grafískir hönnuðir hafa mjög stórt hlut-verk í þjóðfélagsumræðunni. Bakviðflest sem við sjáum er grafískur hönnuður, hvort sem það eru plaköt, bækur, bæklingar, auglýsingar, föt, umbúðir, vefsíður eða eitthvað annað. Það er mjög mikilvægt að skilja ábyrgðina sem grafískir hönnuðir hafa,“ segir Helga Dögg Ólafsdóttir, sem útskrifaðist nýlega úr námi sínu í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands. Hún sinnir nú ásamt Grétu Þorkelsdóttur grafískri hönnun fyrir Druslugönguna, þriðja árið í röð, en Druslu- gangan er gengin til að vekja athygli á kyn- ferðislegu ofbeldi og mótmæla því. Þá herjaði Helga á auglýsingabransann með lokaverkefni sínu, Þrátt fyrir, þar sem hún vakti máls á staðalímyndum og neikvæðri orðræðu um fatl- að fólk. „Það var mikið talað um umhverfislega ábyrgð hönnuða í náminu við LHÍ, hvernig við notum efni, sjálfbæra hönnun og fleira í þeim dúr en mun minna talað um samfélagslega ábyrgð hönnuðarins. Það er svo mikið í um- hverfi okkar grafísk hönnun og við getum sagt flókna hluti með mjög aðgengilegum hætti og í raun gjörbreytt hegðun fólks.“ Druslugangan stendur nærri Þó svo að Druslugangan sé gengin einu sinni á ári, nú í sjötta sinn, er viðburðurinn alltaf í mótun og miðar að því að breyta viðhorfum og orðræðu um kynferðisofbeldi allan ársins hring, segir Helga. „Í ár er áherslan mjög mikið á forvarnir áð- ur en ofbeldið á sér stað og afleiðingarnar eft- ir að það á sér stað, en í fyrra var meira talað um þöggunina í kringum ofbeldið,“ segir Helga um breyttar áherslur Druslugöngunnar milli ára. „Fólk gerir sér ekki alltaf grein fyrir því hversu djúptæk áhrif ofbeldið hefur á þol- andann.“ Viðburðurinn hefur stækkað gífurlega undanfarin ár og sömuleiðis öll hönnun, úrval af varningi og fleira í kringum gönguna. „Nú erum við með tvær tegundir af derhúf- um, nærbuxur í ýmsum litum, tattú, fjóra boli, plaköt, myndaþátt og auglýsingar í strætó- skýlum. Hver einasta manneskja sem gengur gönguna er í bol eða einhverju álíka og á hverjum bol eru ákveðin skilaboð. Hönnunin gerir málefni göngunnar mun aðgengilegri og auðvelda fólki að lýsa yfir stuðningi, vekja máls á þessu málefni og taka þátt.“ Aðspurð hvað hafi leitt hana í hönnun fyrir Druslugönguna segir Helga málaflokk Druslugöngunnar standa sér nærri. „Svo var engin grafísk hönnun í kringum þennan við- burð í upphafi, þannig að ég sá tækifæri og stökk á það. Ég fann bara að ég varð að vera með.“ Forréttindi hvítrar ófatlaðrar konu Lokaverkefni Helgu herjaði eins og áður sagði á auglýsingabransann og staðalímyndir um fatlaða, en það bar titilinn Þrátt fyrir. „Ég hafði ákveðið að vinna með einhverjum hætti með staðalmyndir fatlaðs fólks. Ég rak augun í blaðið BUTT magazine sem er eró- tískt blað fyrir samkynhneigða og mér fannst svo merkilegt hvernig tekst að eyða algjörlega öllum staðalmyndum um erótík fyrir samkyn- hneigða. Blaðið vinnur þess í stað með mjög fallega og einlæga erótík.“ Þannig hafi útgangspunkturinn verið blað til að eyða staðalímyndum, ekki um samkyn- hneigða heldur um fatlað fólk. „Fatlað fólk er mjög falinn hópur í öllu lífs- stílstengdu efni á Íslandi, og í raun í samfélag- inu öllu. Verkefnið þróaðist út í að einblína á auglýsingabransann og til að herja á auglýs- ingabransann ákvað ég að rannsaka hann, hafa módelmyndatöku með fötluðu fólki, hanna plaköt, bækling og ákveðið útlit í kring- um þetta allt saman og halda fyrirlestur.“ Úr varð viðburðurinn og herferðin Þrátt fyrir. „Orðræðan í kringum fatlað fólk er svo oft þannig að það hafi náð hinum eða þessum ár- angri þrátt fyrir fötlun sína.“ Helga segist ekki hafa verið ósmeyk við verkefnið í upphafi. „Mér fannst skrýtið að ég, hvít og ófötluð manneskja í forréttindastöðu, tæki að mér svona verkefni og væri að setja mig inn í svona málefni,“ segir hún en við vinnslu verkefnisins leitaði Helga aðstoðar hjá kennara í fötlunarfræði og samtökunum Tabú, sem beina sjónum sínum einkum að mis- munun gegn fötluðu fólki. Viðburðurinn vakti viðbrögð bæði meðal að- ila í auglýsingabransanum og samtökum sem tala fyrir málefnum fatlaðra, en viðbrögðin frá fötluðum fyrirsætum Þrátt fyrir-herferð- arinnar voru ekki síður sterk að sögn Helgu. „Þetta var mjög valdeflandi reynsla fyrir mód- elin sem ég fékk til liðs við mig,“ segir hún. Hún segir mikilvægt að átta sig á eigin for- réttindum. „Hvítt, ófatlað fólk er í forrétt- indastöðu og það skiptir máli hvernig fólk tal- ar um aðra hópa. Ef þín orðræða og hegðun gerir lítið úr öðrum samfélagshópum þarftu eitthvað að fara að skoða. Það er auðvelt að bera virðingu fyrir öllum.“ Helga Dögg Ólafsdóttir í eldhúsi sínu á Ránargötu. Helga segir ábyrgð grafískra hönnuða margþættari en margan kann að gruna. Morgunblaðið/Þórður Hannar til að breyta heiminum Helga Dögg Ólafsdóttir er grafískur hönnuður og aktívisti sem sér hönnun sem vopn til að gera þjóðfélags- umræðuna opnari og að- gengilegri og til að varpa ljósi á ákveðin málefni, hvort sem þau eru afleiðingar kynferðis- ofbeldis, staðalímyndir um fatlaða eða eitthvað annað. Matthías Tryggvi Haraldsson mth@mbl.is ’Hvítt, ófatlað fólk er í forrétt-indastöðu og það skiptir málihvernig fólk talar um aðra hópa.Ef þín orðræða og hegðun gerir lítið úr öðrum samfélagshópum þarftu eitthvað að fara að skoða. Helga hefur hannað eitt og annað fyrir Druslugönguna og lokaverkefni sitt Þrátt fyrir.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.