Morgunblaðið - 10.08.2016, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 0. Á G Ú S T 2 0 1 6
Stofnað 1913 185. tölublað 104. árgangur
EINSTÖK OG
EINLEIKIN LEIK-
LISTARHÁTÍÐ
ELTA SÖNG-
DRAUMINN
TIL VÍNAR
MEÐAL MESTU AF-
REKA ÍSLENDINGA
Á ÓLYMPÍULEIKUM
LJÓÐATÓNLEIKAR 12 HRAFNHILDUR Í RÍÓ ÍÞRÓTTIRSUÐUREYRI 33
Morgunblaðið/RAX
Á Lóninu Margt er að skoða við Jökuls-
árlón enda vinsæll viðkomustaður.
Hæstu tilboð sem borist hafa í
jörðina Fell við Jökulsárlón eru á
bilinu 1 til 1,5 milljarðar króna. Tvö
hæstu tilboðin bárust lögmanni sem
sér um söluna fyrir sýslumann
nokkrum mínútum fyrir fund með
landeigendum þar sem taka átti af-
stöðu til tilboðs upp á 1 milljarð.
Boðaður er annar fundur eftir hálf-
an mánuð og enn er tekið við til-
boðum.
Hæsta tilboðið er frá manni sem
á lítinn hlut í jörðinni en er bróðir
eigendanna sem kröfðust nauðung-
arsölu til slita á sameign jarð-
arinnar Fells.
Bjóðendur virðast ekki hafa ver-
ið beðnir um að sýna fram á að þeir
geti staðið við boð sín, eins og áskil-
ið er í skilmálum nauðungarsöl-
unnar. »18
Hæsta boð í jörðina
Fell við Jökulsárlón
er 1,5 milljarðar
Styrkist sífellt
» Gengi krónu hefur stöðugt
styrkst gagnvart erlendum
gjaldmiðlum á undanförnu ári.
» Gengi punds er nú um 155
kr. en var um 207 kr. fyrir ári.
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Gengi breska pundsins hélt áfram að
falla í gær og hefur nú tapað 25,16
prósentum af verðgildi sínu gagn-
vart íslensku krónunni á undanförnu
ári. Á sama tíma hefur krónan
styrkst um tæp tíu prósent gagnvart
evru og um rúm tíu prósent gagn-
vart bandaríkjadal.
Árni Stefánsson, forstjóri Húsa-
smiðjunnar, segir gengisstyrkingu
krónunnar hafa vegið verulega á
móti þeirri hækkunarþörf sem
myndast hafi í kjölfar kjarasamning-
anna á síðasta ári og í febrúar síðast-
liðnum. Þá segir hann styrkinguna
hafa spilað veigamikinn þátt í þeirri
ákvörðun fyrirtækisins fyrr á árinu,
að lækka listaverð ákveðinna vöru-
flokka.
Gestur Hjaltason, framkvæmda-
stjóri ELKO, segir síma og sjónvörp
meðal annars hafa lækkað í verði hjá
verslunum fyrirtækisins, en það
kaupir megnið af sínum vörum frá
hinu norska Elkjøp. „Við kaupum
mest í norskri krónu og hún hefur
verið sígandi niður,“ segir Gestur í
samtali við Morgunblaðið í dag.
Meira fæst fyrir krónuna
Sterkt gengi krónunnar gefur fyrirtækjum kost á hagstæðari innkaupum
Vegur á móti hækkunarþörf vegna kjarasamninga Pundið veikst um 25,16%
MSterkari króna gefur … »4
Morgunblaðið/Eggert
„Ef kosið verður í haust er líklegast
að yfirstandandi löggjafarþing, 145.
þing, verði lengt, og sú lenging þá
miðuð við áætlaðan kjördag, hve-
nær sem hann verður,“ segir Helgi
Bernódusson, skrifstofustjóri Al-
þingis.
Að öðrum kosti yrði að setja nýtt
löggjafarþing 13. september, segir
Helgi, með öllu því umstangi sem því
fylgir. Þá féllu jafnframt niður öll
þingmál sem nú liggja fyrir þinginu
og ríkisstjórninni væri skylt að
leggja fram fjárlagafrumvarp fyrir
árið 2017 skv. stjórnarskránni.
Helgi segir að búast megi við að
fram komi frumvarp fyrir lok ágúst-
mánaðar um breytingu á þingsköp-
um til bráðabirgða þannig að ekki
þurfi að hafa þingsetningu 13. sept-
ember. „En með því frumvarpi yrði
væntanlega að ákveða í raun hver
kjördagurinn verður, hann fellur
saman við lok löggjafarþingsins,“
segir Helgi. Ekki mega líða meira en
45 dagar frá útgáfu þingrofsbréfs
þar til kosningar fara fram.
Alþingi hefur verið kallað saman
til þingfunda næstkomandi mánu-
dag, 15. ágúst. » 14
Þingið verður líklega lengt
Lenging yrði miðuð við áætlaðan kjördag í haust
Í gærkvöld fór fram kertafleyting í Reykjavík og
á Akureyri til minningar um fórnarlömb kjarn-
orkuárásanna á japönsku borgirnar Hiroshima
og Nagasaki 6. og 9. ágúst árið 1945. Með kerta-
fleytingunum er lögð áhersla á kröfuna um frið
og heim án kjarnorkuvopna.
Um tvö hundruð manns mættu á kertafleyt-
inguna við Tjörnina í Reykjavík, ljóð voru lesin
og ræður fluttar og veðrið var milt og gott.
Friðsælt við kertafleytinguna í gærkvöldi
Morgunblaðið/Golli
Starfsmenn
fréttastofu 365
sendu í gær frá
sér yfirlýsingu
þar sem fram-
göngu aðalrit-
stjóra fyrirtæk-
isins í tengslum
við uppsögn yf-
irmanns ljós-
myndadeildar fyrirtækisins var
harðlega mótmælt. Upplýst var
um uppsögnina á föstudag. Í að-
draganda þess að yfirlýsingin
var send á yfirstjórn 365 og fjöl-
miðla ræddu starfsmenn mögu-
legar aðgerðir gegn fyrirtæk-
inu. » 16
Starfsmenn ræddu
mögulegar aðgerðir
Búist var við því að í gærkvöldi næð-
ist sá merki áfangi að milljónasti er-
lendi ferðamaðurinn á árinu færi frá
landinu í gegnum Keflavíkurflugvöll,
að sögn Guðna Sigurðssonar, upp-
lýsingafulltrúa Isavia.
Ferðamálastofa telur erlenda
ferðamenn sem fara frá landinu um
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Heild-
arfjöldi ferðamanna frá áramótum
og til júlíloka var 936 þúsund. Um
236 þúsund erlendir ferðamenn fóru
frá landinu í júlí samkvæmt taln-
ingum Ferðamálastofu eða 55 þús-
und fleiri en í júlí á síðasta ári. Aukn-
ingin nemur 30,6% milli ára. Fjölgun
ferðamanna fyrstu sjö mánuði ársins
er 34,1% . Um 73% ferðamanna í júlí
voru af tíu þjóðernum. Bandaríkja-
menn voru fjölmennastir eða 25,7%
af heildarfjölda en næstir komu
Þjóðverjar, 10,7%. Þar á eftir fylgdu
Bretar (7,7%), Frakkar (6,1%), Kan-
adamenn (5,2%), Svíar (3,8%), Danir
(3,8%), Kínverjar (3,6%), Svisslend-
ingar (3,1%) og Spánverjar (2,9%).
Sex þjóðernum fjölgaði mest í júlí:
Bandaríkjamönnum, Kanadamönn-
um, Þjóðverjum, Svíum, Bretum og
Frökkum.
Milljónasti ferðamað-
urinn frá landinu