Morgunblaðið - 10.08.2016, Side 4

Morgunblaðið - 10.08.2016, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016 STORMUR EHF | KLETTHÁLSI 15 | S: 577 1717 | WWW.STORMUR.IS Verð 1.990.000 kr. án vsk. 1.605.000 kr. Til á lager Sportman® 570 EPS Skúli Halldórsson sh@mbl.is Styrking íslensku krónunnar gagn- vart erlendum gjaldmiðlum hefur skilað sér í hagstæðara innkaupa- verði fyrir verslanir hér á landi. Þetta segja viðmælendur Morgun- blaðsins en íslenska krónan hefur á undanförnu ári styrkst um tæp tíu prósent gagnvart evru, rúm tíu pró- sent gagnvart bandaríkjadal og um rúm 25 prósent gagnvart breska sterlingspundinu. Gestur Hjaltason, framkvæmda- stjóri ELKO, segir síma og sjónvörp hafa lækkað í verði hjá verslunum fyrirtækisins, og að það megi að hluta til rekja til styrkingar á gengi krónunnar. „Við kaupum mest í norskri krónu og hún hefur verið sígandi niður,“ segir Gestur í sam- tali við Morgunblaðið, en ELKO kaupir megnið af sínum vörum frá hinu norska Elkjøp. „En á móti kemur að þeir hafa verið að hækka verðið til okkar, þar sem olíukreppan hefur lækkað gengi norsku krónunnar og þeir kaupa inn í evrum og bandaríkjadöl- um.“ „Kaupir nýja ef sú gamla bilar“ Gestur segist samt sem áður telja að verðlag í ELKO sé á sífelldri nið- urleið. Þá hafi salan aukist að sama skapi. „Hún hefur aukist talsvert mikið á þessu ári, jafnvel ofan á mjög gott ár í fyrra,“ segir hann og bendir á að endurnýjun heimilis- tækja sé nú hafin að nýju, eftir þó- nokkra ládeyðu í kjölfar hruns bankanna. „Mikill samdráttur var í því eftir hrun á sama tíma og álagið jókst gríðarlega hjá viðgerðaraðilum okk- ar. Nú er þetta aftur orðið þannig að fólk kaupir nýja vél ef sú gamla bil- ar mikið.“ Jákvæð áhrif í Húsasmiðjunni Árni Stefánsson, forstjóri Húsa- smiðjunnar, segir gengisstyrkingu krónunnar hafa vegið verulega á móti þeirri hækkunarþörf sem myndast hafi í kjölfar kjarasamn- inganna á síðasta ári og í febrúar síðastliðnum. Bendir hann á að gengisstyrking- in hafi almennt haft jákvæð áhrif á verðlag í Húsasmiðjunni. Til marks um það hafi vísitala Hagstofunnar um byggingarkostnað, sem síðast var reiknuð um miðjan júlí, lækkað á milli mánaða, og aðallega vegna 1,3% verðlækkunar á innfluttu byggingarefni. „Þá má nefna að Húsasmiðjan lækkaði fyrr á árinu listaverð ákveð- inna vöruflokka verulega, og styrk- ing krónunnar spilaði veigamikinn þátt í þeirri ákvörðun.“ Morgunblaðið/Eggert Neytendur Viðmælendur Morgunblaðsins eru sammála um góð áhrif gengisstyrkingar íslensku krónunnar. Sterkari króna gefur hagstæðari innkaup  Sjónvörp lækkað í verði, segir framkvæmdastjóri ELKO Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að nítján ára piltur, sem grunaður er um tvær nauðganir, skuli sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli al- mannahagsmuna. Dómarar í Héraðsdómi Reykja- víkur komust meðal annars að þeirri niðurstöðu að æskilegt hefði verið að geðrannsókn færi fram á piltinum á meðan hann sætir gæsluvarðhaldi. Einnig segir í úrskurðinum að vís- bendingar séu um að pilturinn gangi ekki heill til skógar og hefur hann sjálfur lýst því að hann telji sig geð- veikan. Hann sagðist hafa verið bú- inn að panta tíma á göngudeild geð- deildar 9. eða 10. ágúst þegar hann var handtekinn vegna seinna máls- ins. Í niðurstöðu dómsins segir að þar sem geðrannsókn hafi verið ákveðin og pilturinn hafi samþykkt að gang- ast undir hana þá þyki dómnum rétt að gæsluvarðhald sé styttra en lög- regla krafðist þannig að gefist þá tækifæri fyrr en ella að meta hvort skilyrðum 100. greinar laga um með- ferð sakamála sé fullnægt, að hann verði hugsanlega vistaður á sjúkra- húsi eða annarri viðeigandi stofnun. Í báðum málum saka stúlkurnar, sem eru 15 ára gamlar, piltinn um að hafa nauðgað sér. Einnig hafi hann beitt þær hótunum og líkamsmeið- ingum. Í báðum málum telur lögregl- an rökstuddan grun um nauðgun sem hún byggir meðal annars á frá- sögnum vitna og rannsóknum á vett- vangi. Héraðsdómur féllst á að brot mannsins væru þess eðlis að varð- hald væri nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. „Stutt sé á milli meintra brota, en tæp vika hafi liðið frá því tilkynnt hafi verið um hin meintu kynferðisbrot. Með vísan til framangreinds ætli lögregla að sak- borningur muni halda áfram brotum meðan málum hans sé ekki lokið. Þá sé það mat lögreglu að áframhald- andi gæsluvarðhald sé nauðsynlegt til að verja aðra fyrir árásum sak- bornings,“ segir í úrskurðinum. Gengst undir geðrannsókn  19 ára piltur mun sæta gæsluvarð- haldi  Grunaður um tvær nauðganir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is „Ég hef veitt hreindýr í 40 ár og ver- ið leiðsögumaður í hreindýraveiðum í 25 ár og þetta er alstærsti tarfur sem ég hef séð og átt þátt í að fella,“ sagði Sigurður Aðalsteinsson hrein- dýraveiðileiðsögumaður, frá Vað- brekku, í samtali við Morgunblaðið í gær. Tilefni samtalsins við Sigurð var að hann var nýkominn úr leið- söguferð með breskum veiðimanni, Graham Dawell, sem í fyrrakvöld felldi ásamt Sigurði, ofangreindan tarf, sem vó 126 kíló, samkvæmt upplýsingum Sigurðar. „Það eru engar ýkjur að þetta er stærsti tarfur sem ég hef séð og ég held að það sama hafi átt við um föð- ur minn, Aðalstein Aðalsteinsson, sem veiddi hreindýr í 70 ár. Ég held að hann hafi aldrei náð að veiða svona stóran tarf,“ sagði Sigurður. Sigurður sagði að hann og Bretinn (sem var á suðurleið, þegar samtalið átti sér stað) hefði verið að leita að hreindýrum í þrjá daga um allt norð- ursvæðið og svæði eitt, án árangurs. „Svo var það undir kvöld í gær að við rákumst á 40 tarfa hóp með þess- um líka risatörfum í. Við felldum bara þann með stærstu og flottustu hornin og fallegasta spaðann. Gra- ham var vitanlega rosalega glaður þegar við vorum búnir að fella dýrið og þá gleði er auðvelt að skilja,“ sagði Sigurður. Sigurður reiknaði með því að Gra- ham myndi láta setja hornin upp á platta og þau yrðu síðar send til hans til Bretlands. Ljósmynd/Sigurður Aðalsteinsson Risatarfur Graham Dawell við tarf- inn sem vó 126 kíló. Veiddu 126 kílóa risatarf fyrir austan Andrés Magn- ússon, fram- kvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, seg- ir það ekkert vafamál í sín- um huga að sterkara gengi krónu hafi haft góð áhrif á verðlagið. „Fyrirtækin komast bara ekki upp með annað. Samkeppnin er bara þannig, ef innkaupsverðið lækkar þá verða þau að fylgja eftir,“ segir Andrés í samtali við Morgunblaðið. „Við sjáum það og vitum að verð er að lækka. Bifreiða- umboðin eru nú hvert á fætur öðru að tilkynna lækkun og ég veit það einnig fyrir víst að í matvöruverslunum hafa vörur verið að lækka í verði.“ Samkeppni í versluninni VERÐA AÐ FYLGJA EFTIR Andrés Magnússon Fjarðabyggð stefnir að því að fjar- lægja dekkjakurl af öllum sparkvöll- um sveitarfélagsins, en bæjarráð samþykkti á síðasta fundi að fara í framkvæmdina. Verður íþrótta- og tómstundafulltrúa og fjármálastjóra falið að fara yfir fjárhagslega hlið málsins. Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar og formaður bæjar- ráðs, segir stefnt að því að hefja framkvæmdir í lok ágúst. „Við vild- um helst gera þetta sem fyrst, áður en skólinn byrjar,“ segir hann. Skipt verður um kurl á tveimur af völlunum fimm í ágúst, í Reyðarfirði og Stöðvarfirði, en hinir þrír verða einungis hreinsaðir og látnir vera kurllausir til vorsins, þegar skipt er um gervigras. „Grasið á þeim er bara orðið lélegt vegna notkunar,“ segir Jón Björn. Fjarðabyggðarhöllin er ekki með- al þeirra valla sem verða hreinsaðir þar sem kurlið á gervigrasi vallarins er annars eðlis og ekki skaðlegt. Dekkjakurl fjarlægt  Fjarðabyggð hreinsar upp kurl á öllum sparkvöllum Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Gervigras Víða er unnið að því að fjarlægja dekkjakurl af sparkvöllum. Níu gámar féllu af Arnarfelli, flutn- ingaskipi Samskipa, að morgni mánudags. Skipið var á miðri leið á milli Hjaltlands og Færeyja þegar óhappið varð. Vont veður var á svæðinu, óvenju vont að sögn Pálm- ars Óla Magnússonar, forstjóra fyr- irtækisins, í samtali við mbl.is í gær. Skipið var komið til Færeyja í gær og var verið að kanna ástand gáma um borð. Vonaðist Pálmar Óli til að hægt yrði að halda þaðan í nótt eða í dag til Íslands. Verið var að hafa samband við eigendur farmsins sem var í gámunum sem fóru útbyrðis. Að því loknu kemur betur í ljós hvað var í þeim og hversu mikið tjónið er. Níu gámar féllu út- byrðis af Arnarfelli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.