Morgunblaðið - 10.08.2016, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016
Atvinnuauglýsingar
Óska eftir starfi
Rafvirki í eldri kantinum, með öll réttindi óskar
eftir vinnu eða eftirlitsstarfi. Æskilegt að
húsnæði fylgi. Allt kemur til greina.
Uppl. í síma 693-7141
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Opið hús. Spilað vist og brids kl. 13-16. Æfing í pútti og
úti-botsía í og við púttvöllinn kl. 10.30-11.30.
Dalbraut 18-20 Verslunarferð í Bónus kl. 14.40.
Félagsheimili Gullsmára Ganga kl. 10, kvennabrids kl. 13, púttmót
kl. 13.45. Hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum, allir vel-
komnir!
Garðabær Brids og bútasaumur kl. 13, heitt á könnunni frá kl. 9.30,
meðlæti selt með síðdegiskaffinu kl. 14-15.50, skrifstofa FEBG opin frá
13.30-15.30.
Gjábakki Handavinna kl. 9, félagsvist kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl.
9.45, matur kl. 11.30. Frida Martins verður með kennslu í vatnslita-
málun kl. 13, mætið með liti, pensla og blöð. Kaffi kl. 14.30, fóta-
aðgerðir og hársnyrting.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, púttvöllurinn er opinn,
ganga kl. 10, síðdegiskaffi kl. 14.30. Ferðanefndin tekin til starfa og er
að skipuleggja ferð á Reykjanesið 31. ágúst, nánar í síma 411 2790,
allir velkomnir í Hæðargarð óháð aldri og búsetu.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, morgunleik-
fimi kl. 9.45, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, upplestur kl. 11,
félagsvist kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14, Bónusbíllinn kl. 14.40,
heimildarmyndasýning kl. 16.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Allir velkomnir á Sléttuveg óháð aldri og
búsetu. Opið er kl. 10-14. Matur er afgreiddur kl. 11.30-12.30. Nánari
upplýsingar og matarpantanir á opnunartíma í síma 568 2586.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík ZUMBA Gold byrjar 22. ágúst
8 vikna Zumba Gold námskeið kl. 10.30 á mánu- og fimmtudögum.
Leiðbeinandi sem fyrrTanya. Góð hreyfing í skemmtilegum félags-
skap. Námskeiðið byrjar mánudaginn 22. ágúst. Skráning hafin á
feb@feb.is og í síma 5882111
Félagslíf
Samkoma kl. 20 í Kristniboðs-
salnum. Ræðumaður Bjarni
Gíslason. Allir velkomnir.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
HRAUNBORGIR - sumarhúsalóðir
Nokkrar lausar sumarhúsalóðir eru til
leigu með aðgangi að heitu og köldu
vatni, ásamt rafmagni og rotþró.
Hraunborgir í Grímsnesi er eitt vin-
sælasta sumarbústaðahverfi landsins
með eigin sundlaug, golfvelli og þjón-
ustumiðstöð.
Til greina kemur að dreifa greiðslum
leiguréttargjalds.
Nánari upplýsingar í síma 585-9300
www.sjomannadagsrad.is
Iðnaðarmenn
Ýmislegt
Framboðskokteill Áslaugar Örnu
Ég sækist eftir stuðningi í komandi
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík sem fram fer þann 3.
september nk. Af því tilefni langar
mig að bjóða sjálfstæðismönnum og
stuðningmönnum í Víkina í
Sjóminjasafninu þann 11. ágúst.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
Húsviðhald
Þjónustuauglýsingar
Fáðu Tilboð hjá söluráðgjafa
í síma 569 1390
eða á augl@mbl.is
varstu. Undir þú hag þínum
ágætlega hérna, varst fljót að
koma þér í félagsstarf eldri
borgara, fórst á spilakvöld,
eignaðist góða vinkonu, hana
Huldu, og varst ánægð að vera
komin nær okkur hérna og
barnabörnunum í Reykjavík.
Elsku mamma, við yljum
okkur nú við góðar minningar
um góða konu og þökkum um
leið samfylgdina og umhyggj-
una.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer.
Þótt þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Guð blessi minningu þína.
Þín
Sædís Björk.
Elsku amma. Það er svo
óraunverulegt að vera að kveðja
þig, mér fannst við eiga eftir að
upplifa svo margt saman, svo
ótrúlega sárt en ég get huggað
mig við góðar minningar um
ömmu.
Eftirminnilegustu minning-
arnar úr æskunni hljóta að vera
allar heimsóknirnar til ykkar í
Stykkishólm.
Er ég tók rútu í hólminn vor-
uð þið afi alltaf mætt á Bensó
að taka á móti okkur með faðm-
lagi og kærleik. Er við barna-
börnin komum í heimsókn var
allt fyrir okkur gert. Ég átti
alltaf góðar stundir í hólminum
hjá ykkur og mun minnast
þeirra að eilífu.
Þrátt fyrir erfiða kveðju-
stund er ég þakklátur. Þakk-
látur fyrir að hafa átt þig sem
ömmu, þakklátur fyrir minning-
arnar og hvað ég fékk að upp-
lifa margt með þér.
Við fórum saman erlendis í
ógleymanlegar ferðir. Þú varst
viðstödd útskriftir og helstu
gleðistundir í mínu lífi. Í raun
hafðir þú mikinn áhuga á öllu
sem ég var að gera, hvort sem
það var í vinnu, skóla eða
áhugamálum.
Alveg fram á síðustu stundir
þínar spurðir þú um hvað ég
væri að gera og sýndir því
áhuga.
Umfram allt er ég þakklátur
fyrir að bera nafn þitt og hafa
fengið að eiga með þér rúm 24
ár.
Elsku besta Olla amma. Orð
fá því ekki lýst hvað ég mun
sakna knúsanna þinna og kær-
leikans sem var svo auðfundinn
í þinni nærveru.
Ég varðveiti minningu þína
allt mitt líf.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og
geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju
sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn
stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma
kæra.
Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá
í hljóðri sorg og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Ólafur Þór Jónsson.
Elsku besta Olla amma.
Það er svo erfitt að trúa því
að þú sért farin frá okkur. Við
sem áttum eftir að gera svo
margt saman.
Aldrei hefðum við trúað því
að þú yrðir tekin frá okkur
svona snemma. En minningarn-
ar sem við eigum saman eru
ómetanlegar og munu þær
ávallt ylja okkur um hjartaræt-
ur. Ástin, umhyggjan og hlýjan
sem þú sýndir okkur sprengdi
alla skala.
Við upplifðum okkur hvert og
eitt sem algert uppáhalds í
hvert skipti sem við vorum hjá
þér.
Með gleði í hjarta minnumst
við allra stundanna þar sem við
hlógum saman og þú tístir,
óteljandi heimsóknirnar með
rútunni inn í Stykkishólm þar
sem þið afi tókuð fagnandi á
móti okkur, dekruðuð við okkur
og öllu var til tjaldað. Öll fal-
lega handavinnan sem þú gerðir
fyrir okkur, allar samlokurnar
sem þú grillaðir handa okkur,
allar ferðirnar á videoleiguna
og allir Dönsku dagarnir.
Takk, elsku amma, fyrir öll
hlýju faðmlögin. Takk fyrir
gleðina og hláturinn. Takk fyrir
alla hvatninguna. Takk fyrir
endalausu trúna sem þú hafðir
á okkur.
Takk fyrir að kveikja á kert-
um fyrir okkur. Takk fyrir að
vera okkur svo miklu meira en
amma og langamma barnanna
okkar. Takk fyrir að vera þú,
þú varst einstök í alla staði.
Við erum þér ævinlega þakk-
látar og erum við einstaklega
stoltar af því að hafa fengið
þann heiður að vera barnabörn-
in þín og afa.
Þín verður sárt saknað, elsku
amma, en við huggum okkur við
það að þið afi séuð sameinuð á
ný með elsku Atla Snæ okkar
og vitum við að þið eruð á stað
þar sem öllum líður vel.
Hvíldu í friði amma mín kær,
góður Guð mun þig geyma.
Ávallt í hjarta þú verður mér nær,
aldrei ég mun þér gleyma.
(Þóra Sif Svansdóttir)
Þínar ömmustelpur,
Þóra Sif, Sara Dögg
og Hera Hlín.
Þegar amma passaði okkur
systkinin vissi ég alltaf að ég
væri í góðum og öruggum hönd-
um. Hún var alltaf svo róleg yfir
öllu sem við tókum upp á að gera.
Hún var alltaf yfirveguð og sýndi
manni réttu leiðina. Amma var
virkilega klár kona. Hún hafði
allt sitt líf áhuga á því að læra
nýja hluti. Meira að segja á sín-
um efri árum lærði hún ný tungu-
mál og fór á námskeið til þess.
Hún hefur verið hvatning fyrir
mig að vilja læra eitthvað og gef-
ast aldrei upp. Það var alltaf mik-
ill húmor í ömmu og gaman að
vera í kringum hana.
Ég man eftir því að það voru
alltaf til hljóðfæri heima hjá
ömmu og hún kynnti okkur
systkinin fyrir þeim. Amma
kenndi mér og Viktori bróður
mínum að spila saman á píanó
þegar við vorum krakkar. Eitt
skipti var ég í pössun hjá ömmu,
þá kenndi hún mér á harmon-
ikku sem gaf mér mikið og
fannst mér gaman að geta gert
eitthvað skemmtilegt með
henni. Þetta vakti áhuga minn á
að læra á píanó. Við spiluðum
stundum saman Für Elise, en þá
hafði amma ekki spilað það í
mörg mörg ár en hafði greini-
lega engu gleymt.
Amma Ester tók alltaf sér-
staklega vel eftir því hvað hvert
og eitt barnabarn hafði áhuga á.
Hún t.d. prjónaði mikið af falleg-
um dúkku fötum fyrir dúkkuna
mína þegar hún vissi að ég lék
mér sem mest með hana. Hún
prjónaði stundum á mig og dúkk-
una í stíl.
Ég held að amma hafi notið
þess mikið að fá að vera amma og
að umgangast barnabörnin sín
mikið. Hún fékk tíma til að vera
með okkur börnunum og naut
þess að vera í núinu. Það var allt-
af gæðastund að vera með ömmu.
Þegar hún ól sín börn upp þurfti
hún að vinna á mörgum vinnu-
stöðum til þess að sjá fyrir tíu
börnum.
Elsku amma mín, þú lifir alltaf
í minningum okkar
Takk fyrir allar góðu stundirn-
ar okkar saman og allt það sem
þú hefur kennt mér.
Selma Blöndal Pálsdóttir.
Ester, stóra systir mín, er lát-
in. Ég minnist með gleði allra
stunda sem við áttum saman.
Hún var elst okkar sex systk-
ina og var okkur öllum eins og
önnur móðir þegar við urðum
fyrir þeirri sorg að missa Snæ-
björn, föður okkar, sem féll frá
ungur maður. Þá var Ester
mömmu okkar mikil stoð og
stytta á kreppuárunum. Sú hjálp
var ómetanleg þegar engin var
fyrirvinnan og fátæktin við dyrn-
ar.
En ég minnist líka margra
gleðistunda, ekki síst þegar Est-
er spilaði á gamla orgelið og við
sungum.
Eða löngu seinna þegar við
systur drifum okkur í heimsókn
til Kanada að heimsækja okkar
stóra frændgarð þar. Það var
mikil skemmtiferð og Ester í ess-
inu sínu.
Börn hennar urðu tíu og eru
sex á lífi. Ég bið þeim og börnum
þeirra allrar blessunar.
Dagbjört Sóley
Snæbjörnsdóttir.
Hún hét Snæbirna, Ester
Snæbirna.
Amma skírði hana þessu fal-
lega og einstaka nafni. Hún var
elsta barnið hennar ömmu og
stóra systir mömmu. Margar og
stórar sögur mætti segja af
ömmu og hennar fólki og þá ekki
síst af Ester Snæbirnu Snæ-
björnsdóttur og hennar fólki.
En ég læt hér nægja að þakka
henni samfylgdina og blíðuna, en
fegin er ég að vera ekki af þeirra
kynslóð.
Ég votta öllum hennar börn-
um, barnabörnum og barna-
barnabörnum mína samúð.
Guðrún Snæfríður
Gísladóttir.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt, sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér,
því veit mér feta veginn þinn,
að verðir þú æ Drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson)
Í dag kveðjum við mæta og
góða konu, hana Ester,
konu með stórt hjarta sem
fannst betra að gefa en að þiggja.
Það er mér ljúft að skrifa nokkur
orð til þín. Elsku hjartans Ester
mín, þakka þér fyrir samfylgdina
í gegnum árin og allar þær
skemmtilegu samverustundir
sem við höfum átt saman hjá
Elfu, Palla, Viktor og Selmu. Öll
barnaafmælin, útskriftir, ferm-
ingarveislur, grillveislur og
svona mætti lengi telja.
Þú varst kjarnakona í öllu sem
þú tókst þér fyrir hendur og fyr-
irmynd þeirra sem til þín þekktu:
jákvæð, skemmtileg, dugleg,
framtakssöm og yndisleg mann-
eskja. Við biðjum algóðan Guð að
varðveita minninguna um þig og
blessa þig.
Við sendum innilegar samúð-
arkveðjur til Palla, Elfu, Viktors,
Selmu, Lindu Rósar, allra ætt-
ingja og vina.
Guð blessi ykkur.
Berglind, Svavar
og börn, Kvistalandi.