Morgunblaðið - 10.08.2016, Síða 10

Morgunblaðið - 10.08.2016, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016 Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Bruggsmiðjan Kaldi á Árskógssandi mun opna bjórheilsulind á fyrstu mánuðum næsta árs, en jarðvegs- skipti og vinna við grunn nýs húss undir starfsemina eru þegar hafin og mun það rísa í október. „Síðan munum við vinna í húsinu í um það bil þrjá mánuði og ætlum okkur að opna heilsulindina í kjölfar- ið,“ segir Agnes Anna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Kalda. Í bjórheilsulindinni verða sjö bjór- kör þar sem gestirnir baða sig og einnig veitingastaður og slök- unarherbergi. „Einstaklingar geta farið ofan í eða pör saman. Síðan ligg- ur fólk í þessu í 25 mínútur og fer síð- an í slökun í 25 mínútur. Svo verðum við líka með útipotta,“ segir Agnes, en þeir munu rúma fleiri en tvo. „Þetta er ótrúlega gott fyrir húð og hár. Við notum mjög ungan bjór sem búið er að brugga, með það í huga að það sé nóg ger í honum. Gerið er mik- ið töfralyf í þessu. Síðan er notað ger aukalega,“ segir hún. Aðspurð hvort mikill kostnaður fylgi því að fylla körin af bjór, segir hún að bjórinn í körin sé ódýrari en sá sem fari í flöskurnar. „Við borgum ekki áfengisgjöld af bjórnum sem fer í kerin. Áfengisgjöldin falla bara á þann bjór sem er drukkinn, þannig þetta verður mun ódýrari bjór,“ segir Agnes. Heimsóknum erlendra ferðamanna í verksmiðju Kalda hefur fjölgað nokkuð síðustu misseri. Að sögn Agnesar er mikill áhugi á því að heimsækja íslenskar verksmiðjur. Bjórheilsulind að ári Bjórkör Alls verða sett upp 7 tveggja manna kör og pottar úti við.  Bruggsmiðja færir út kvíarnar Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Um 295.000 ökutæki fóru um Hval- fjarðargöng í júlímánuði síðastliðn- um eða 9% fleiri en í júlí 2015. Þetta er mesta umferð í einum mánuði frá því göngin voru opnuð fyrir umferð sumarið 1998, að því er fram kemur á heimasíðu Spalar. Gamla metið var einmitt frá júlí í fyrra eða tæplega 270 þúsund ökutæki. Umferð hefur aukist í öllum mán- uðum það sem af er ári og í sumum tilvikum mjög mikið. Í heildina tekið er umferð í göngunum 15,4% meiri frá janúar til júlí en fyrstu sjö mán- uði ársins 2015. 182 þúsund fleiri ökutæki Fyrstu sjö mánuði þessa árs fóru 1.361.473 ökutæki um Hvalfjarðar- göng en 1.179.555 ökutæki sömu mánuði í fyrra. Er aukningin um 182 þúsund ökutæki. Umferðaraukningin í Hvalfjarðar- göngum er í takt við aukna umferð á hringveginum á þessu ári. Umferðin í nýliðnum júlí var sú mesta sem mælst hefur, í nokkrum mánuði, frá upphafi. Alls fóru tæplega 101 þús- und ökutæki á dag um 16 lykilsnið Vegagerðarinnar á hringvegi, segir í frétt á vef stofnunarinnar. Umferðin jókst um tæp 10% í ný- liðnum mánuði borið saman við sama mánuð á síðasta ári. Frá ára- mótum hefur umferðin aukist um tæp 13% og sýna spár að umferðin geti aukist um tæp 10% á þessu ári miðað við síðasta ár, sem yrði þá nýtt met í hlutfallslegum vexti yfir heilt ár. Umferðin á hringveginum jókst um 9,5% milli júlímánaða, sem er hlutfallslega mesta aukning í þess- um mánuðum frá því að Vegagerðin fót að taka saman umferðartölur ár- ið 2005. Umferðin jókst á öllum landssvæðum en mest jókst umferð- in um mælisnið á Austurlandi eða rúmlega 20%. Umferðin hefur aukist um 12,7% frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári. Aldrei hefur umferðin bæði aukist jafn mikið og mælst jafn mikil, miðað við árstíma. Umferðin hefur aukist alla viku- daga en mest á sunnudögum eða 15,6%. Það sem af er ári eru flest ökutæki á ferðinni á föstudögum en fæst á þriðjudögum. Met gæti fallið í árslok „Þegar tekið er mið af hegðun um- ferðar á hringvegi eftir mánuðum eru miklar líkur á að heildarumferð- in fyrir árið 2016 geti aukist um 9- 10% miðað við síðasta ár. Hlutfalls- lega mesta aukning, sem mælst hef- ur fyrir mælisniðin 16 fram til þess á milli ára, er 6,8%. Sú aukning átti sér stað á milli áranna 2006 og 2007. Staðan er því þannig nú að talsverð- ar líkur eru á því að enn eitt metið muni falla í árslok,“ segir á vef Vegagerðarinnar. Þessa auknu umferð má að hluta skýra með fjölgun erlendra ferða- manna. Nú eru skráðir hér á landi 21.500 bílaleigubílar en þeir voru 17.500 í upphafi árs 2015. Júlí metmánuður í umferðinni  Mikil aukning umferðar bæði á hringvegi og í Hvalfjarðargöngum  Júlí er stærsti mánuður í 18 ára sögu ganganna  295.000 ökutæki fóru um göngin  Aukningin á Austurlandi var rúmlega 20% Met á met ofan » Umferðin á hringveginum jókst um 9,5% milli júlímánaða. » Umferð ökutækja um Hval- fjarðargöng jókst um 9% milli sömu mánaða. » Stefnir í metumferð á þessu ári, bæði á hringvegi og í göng- unum. Morgunblaðið/Eggert Bíll við bíl Algeng sjón á vegum landsins í sumar. Langar raðir hafa myndast, aðallega í þungri helgarumferð. Í athugasemdunum Bandalags há- skólamanna við frumvarp til laga um námslán og námsstyrki er m.a. bent á að ef hætt verður að tekjutengja endur- greiðslu námslána, eins og lagt er til í frumvarpinu, hafi það í för með sér grundvallarbreytingu á eðli námslána- kerfisins. BHM hvetur til þess að unnið sé til að tryggja að greiðslubyrði náms- lána verði áfram sanngjörn líkt og í nú- verandi kerfi, en bandalagið hefur sent menntamálaráðuneytinu athugasemdir við frumvarpið. Jóhannes Stefánsson, aðstoðarmað- ur mennta- og menningarmálaráð- herra, svaraði umsögn BHM í viðtali við mbl.is í gær. Hann segir að mik- ilvægt sé að halda því til haga í sam- hengi við umsögnina að það er verið að taka upp svipað endurgreiðslufyrir- komulag og þekkist á hinum norður- löndunum. „Það skiptir líka miklu máli að greiðslubyrði 85% þeirra sem taka lán hjá sjóðnum kemur til með að hald- ast óbreytt eða lækka,“ segir Jóhannes. Í tilkynningu lýsir BHM einnig þungum áhyggjum af greiðslubyrði lántakenda í yngsta aldurshópnum, sem og þeirra sem tilheyra láglauna- stéttum háskólamenntaðra og hópum sem standa félagslega veikt að vígi. Þá er áréttuð gagnrýni sem BHM hefur áður sett fram á það fyrirkomulag að lánsfjárhæðir fari eftir félagslegri stöðu fólks. Bent er á að vegna þessa skuldi fjölskyldufólk og einstæðir for- eldrar almennt meiri námslán að loknu námi en þeir sem einir eru. Verði hætt að tengja afborganir við tekjur, líkt og boðað er í frumvarpinu, verði greiðslubyrði barnafólks þyngri en barnlausra. BHM gerir alvarlegar athugasemdir við þetta. Í svari sínu segir Jóhannes að ætl- unin með frumvarpinu sé fyrst og fremst að tryggja öllum fulla fram- færslu sem er ekki í núverandi kerfi, að gera námsstyrkina gagnsæja og sýnilega og að tryggja jafna dreifingu á styrkjum til námsmanna. „Í núverandi kerfi er mjög ójafnt gefið. Það eru litlir hópar námsmanna sem hafa þegið hundruð milljóna í rík- isstyrki á meðan stærstur hluti náms- manna hefur þurft að borga megnið af lánunum sínum til baka að fullu. Þar að auki þekkist það að lántakendur séu enn að borga af námslánunum eftir að þeir hætta að vinna, sem er auðvitað ekki æskilegt,“ segir Jóhannes. Samkvæmt frumvarpinu munu námsmenn, sem uppfylla tilteknar kröfur um námsframvindu, eiga rétt á námsstyrkjum óháð félagslegri stöðu. Útvistun óbreytt Enn fremur gerir BHM athuga- semd við þau áform, sem felast í frum- varpinu, að heimila stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) að út- vista daglegum rekstri sjóðsins. Að mati bandalagsins verður ekki séð að þörf sé á því að færa afgreiðslu náms- lána til einkafyrirtækja. Jóhannes seg- ir að ákvæðið sé svo til óbreytt frá árinu 1961. Ekki sé um neina raun- verulega breytingu að ræða í þessum efnum. Ósammála um sanngirni greiðslubyrðar námslána Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni sem finnst í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög þurru umhverfi. Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna hornhimnunnar gegn þurrki. Droparnir eru án rotvarnarefna og má nota með linsum. Þurrkur í augum? Thealozaugndropar Fæst í öllum helstu apótekum. Ég var mjög slæm af augnþurrki án þess að gera mér grein fyrir því. Þar sem ég var með nóg af tárum datt mér ekki í hug að tengja það við aunþurrk. Alltaf með lekandi tár í kulda, og smá vind. Systir mín ráðlagi mér að prufa Thealoz því hún hafði mjög góða reynslu af þeim. Eiginlega bara strax varð ég allt önnur og er hætt að vera með táraflóð og finna fyrir þessari sandtilfinningu. Erla Óskarsdóttir Strikinu 3 • Iðnbúð 2 • Garðabæ • 565 8070 • facebook.com/okkarbakari SÆLKERA SÚRDEIGSBRAUÐ bökuð eftir aldagömlum hefðum SÍÐDEGISBAKSTUR Um kl. 15 alla virka daga tökum við nýbökuð súrdeigsbrauð úr ofninum, fást einungis í Iðnbúð 2 Skoðið úrvalið á okkarbakari .is Unnur Brá Kon- ráðsdóttir, þing- maður Sjálfstæð- isflokksins, tilkynnti í gær- kvöldi að hún sæktist eftir 2. sæti á lista Sjálf- stæðisflokksins í Suðurkjördæmi í komandi próf- kjöri. Í tilkynn- ingu segist hún hafa notið þess heiðurs undanfarin sjö ár að vera fulltrúi Suðurkjördæmis á Alþingi „og sækist eftir að fá umboð frá flokkssystkinum mínum til þess að halda áfram því starfi sem ég hef sinnt og óska eftir endurnýjuðu kjöri í 2. sæti á lista flokksins fyrir komandi kosningar. Ég hef gefið alla mína krafta í starf mitt sem al- þingismaður og vonast til þess að fá tækifæri til þess að vinna áfram að þeim mikilvægu málefnum sem brenna á íbúum svæðisins“. Sækist eftir 2. sæti Unnur Brá Konráðsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.