Morgunblaðið - 10.08.2016, Síða 11

Morgunblaðið - 10.08.2016, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016 Vertu upplýstur! blattafram.is VIÐ VILJUM GETA TREYST. ÞAÐ TRAUST ROFNAR AUÐVELDLEGA ÞEGAR HIÐ VERSTA GERIST. HVAÐ GERIR ÞÚ ÞEGAR TRAUSTIÐ ROFNAR? N ýbýlavegur8.-200 Kópavogur-S:527 1717 - dom usnova@ dom usnova.is -w w w .dom usnova.is Frítt verðmat Viltu vita hvað þú færð fyrir fasteignina þína ? Fasteignasala venjulega fólksins... Ábyrgðarmaður Domusnova: Haukur Halldórsson, hdl., lgf. Sólin hefur skinið glatt í höfuðborg- inni undanfarna daga og sólarlagið verið einstaklega fallegt eins og þessi mynd ber með sér. Myndin er tekin í Grafarvoginum í átt að Snæ- fellsnesinu. En engin sólarmet hafa fallið í mánuðinum, að því er Trausti Jóns- son veðurfræðingur upplýsir blaðið. Sólskinsstundirnar í Reykjavík fyrstu átta daga mánaðarins eru nú orðnar 84,1. Þær hafa fimm sinnum verið fleiri sömu daga (frá 1923), flestar 1929 – þá voru þær orðnar 113,0. „Dagarnir átta nú eru hins vegar þeir næstköldustu bræðra sinna á þessari öld, 11,1 stig, nokkru kaldara var 2013, 10,3 stig, hlýjast aftur á móti 2003, 13,7 stig. Sé litið á lengri tíma – aftur til 1872 finnum við hins vegar 72 kaldari sömu daga í Reykjavík – ágúst hef- ur verið sérlega hlýr á þessari öld,“ segir Trausti. Lítil sól er í veðurkortunum næstu daga. Spáð er austlægum áttum með súld og rigningu á köfl- um. En veðrið verður milt. sisi@mbl.is Engin sól- armet hafa fallið í ágúst Ljósmynd/Ársæll Guðmundsson Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Hjálmar Sveinsson, formaður um- hverfis- og skipulagsráðs Reykjavík- urborgar, segist telja mikilvægast hvað varðar varð- veislu grásleppu- skúranna við Grímsstaðavör, að halda þeim við og koma í veg fyr- ir að þeir hrynji eða fjúki út í veð- ur og vind, og fyrirbyggja að mönnum stafi hætta af þeim. Hjálmar segir að fyrir nokkrum árum hafi verið ráðist í átak á vegum borgarinnar, þar sem svæðið umhverfis skúrana var hreinsað og þeir styrktir. Vel megi vera að nú sé kominn tími á slíkt viðhald að nýju. „Í fyrra, þegar mikið óveður gerði, fóru starfsmenn Borgarsögu- safns og björgunarsveitir á vett- vang, lokuðu gluggum sem höfðu brotnað og styrktu skúrana, en síð- an hefur ekkert verið gert,“ sagði Hjálmar í samtali við Morgunblaðið í gær. „Það komu tillögur um hvernig ætti að viðhalda og endurgera svæð- ið frá ágætum arkitekt fyrir nokkr- um árum, en okkur sem vorum þá í umhverfis- og skipulagsráði, fannst þær of umfangsmiklar og of mikið inngrip í þessa mjög svo sérstöku byggð. Þannig að þessar tillögur, eins ágætar og þær voru, fengu ekki brautargengi,“ sagði Hjálmar. Frumstæð mannvirki Hann segir að þegar um svona frumstæð mannvirki sé að ræða, eins og grásleppuskúrana, þá sé áhuga- vert að velta fyrir sér hvernig við- hald á mannvirkjunum eigi að vera. „Þetta er í rauninni ekki annað en trégrindur, sem bárujárnsplötur voru negldar utan á. Þetta snýst um að halda skúrunum þannig, svo þeir séu í sem upprunalegastri mynd sinni, eins og í rauninni hefur verið gert, með því að styrkja bita, og skipta út bárujárnsplötum, þegar þær gefa sig. Það voru settar nýjar hurðir einhvern tíma og þessari stefnu hefur bara verið fylgt.“ Hjálmar segir að það sé ekki alveg einfalt að ákveða hvaða stefnu eigi að taka hvað varðar varðveislu svona menningarminja. „Aðalatriðið er að þessir skúrar eru þarna enn þá og þeim er haldið við,“ sagði Hjálmar. Vill að skúrun- um sé haldið við  Telur upprunalega mynd mikilvæga Morgunblaðið/Júlíus Ægisíða Grásleppuskúrarnir við Grímsstaðavör eru hálfgerð ræskni.Hjálmar Sveinsson „Sigurður Ingi Jóhannsson for- sætisráðherra hefur fallist á að ger- ast verndari herferðar Women in Parliaments Global Forum – WIP Leadership Campaign, en hug- myndina að herferðinni má rekja til HeForShe herferðar UN Women þar sem forsætisráðherra er í hópi 10 þjóðarleiðtoga sem eru í farar- broddi þess átaks,“ segir í tilkynn- ingu frá forsætisráðuneytinu í gær. Þar kemur fram að ríkisstjórnin hafi samþykkt að veita fjórar millj- ónir króna af ráðstöfunarfé sínu til herferðar WIP. Haft er eftir Sigurði Inga að ánægjulegt sé að leitað hafi verið til forsætisráðherra Íslands um að ger- ast verndari herferðar WIP, en það hafi komið til aðallega vegna forystu Íslands á sviði jafnréttismála á heimsvísu. Herferð WIP felst einkum í því að hvetja karlleiðtoga heims til þess að beita sér fyrir aukinni þátttöku kvenna í stjórnmálum og sem leið- togar í stjórnmálum. Öllum karlkyns forsetum og forsætisráðherrum hef- ur verið sent bréf þar sem vakin er athygli á málefninu. Verður verndari herferðar WIP  Ríkisstjórnin veitir 4 milljónir til herferðarinnar —með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.