Morgunblaðið - 10.08.2016, Side 13

Morgunblaðið - 10.08.2016, Side 13
Tónlist Arnheiður Eiríksdóttir, Ingileif Bryndís Þórsdóttir og Jóna G. Kolbrúnardóttir eru búsettar í Austurríki og Þýskalandi þar sem þær stunda nám og starfa í tónlist. Þær halda tónleika í Þjóðmenningarhúsinu á morgun. óskum og Arnheiður komst inn í grunnnám í klassískum söng. Úr óperunni á Hróaskeldu Söngörlögin gripu hins vegar inn í stuttu seinna þegar Graduale Nobili kórnum, sem hafði nýverið unnið með Björk að plötu hennar Biophilia, bauðst að taka þátt í tónleikaferðalagi um allan heim til að fylgja plötunni eftir. Arnheiður gat frestað náminu um eitt ár, og nýtti tímann einnig til að læra þýsku, sem hún segir að ekki hafi veitt af. Tónleikaferðalagið fór fram í nokkrum hlutum og sum- arið 2012 ferðuðust vinkonurnar um Evrópu og sungu á fjölmörg- um tónlistarhátíðum. „Það sum- arið vorum við herbergisfélagar og kynntumst almennilega. Þetta var auðvitað algjört ævintýri að ferðast svona mikið og syngja,“ segir Arnheiður. Aðspurðar hvað standi upp úr öllum þessum ferða- lögum er Arnheiður fljót að nefna þegar þær sungu á stóra sviðinu á Hróarskeldu, og bætir svo við: „En Marokkó var samt líka æð- islegt.“ „Já og í Frakklandi voru líka margir fallegir tónleikastaðir, við sungum til dæmis í hringleika- húsi sem er mjög eftirminnilegt,“ bætir Jóna við. Ljóst er að minn- ingarnar eru fjölmargar úr þess- um ferðalögum. Sameinaðar á ný í Vín Arnheiður hóf nám í Vín haustið 2012 en Jóna hélt áfram að syngja með Björk og stunda söngnám á Íslandi milli ferðalaga. „Ég bar svo mikla virðingu fyrir skólanum að ég vildi ekki fresta náminu frekar,“ segir Arnheiður. Síðasta ferðalaginu með Björk lauk ári seinna, haustið 2013. Stuttu seinna lauk Jóna burtfar- arprófi frá Söngskólanum í Reykjavík, þar sem hún hafði stundað nám undir leiðsögn Hörpu Harðardóttur. Jóna vissi af Arn- heiði í Vín og var spennt fyrir náminu þar. „Ég fór í ferð í jan- úar 2014 til Austurríkis og Þýska- lands þar sem ég heimsótti skóla og söng fyrir kennara og leist mjög vel á Vín. Þar var líka fyrsta inntökuprófið mitt, í maí 2014, og ég komst inn.“ Grunnnámið er fjögur ár og er Jóna að hefja sitt þriðja ár í haust. Arnheiður lauk BA-námi í vor og stefnir á meist- aranám í haust við sama skóla. „Meistaranámið einkennist af mörgum óperuuppfærslum og að safna sviðsreynslu. Markmiðið er að komast inn í stóru óperuhúsin og næla sér í fasta vinnu við það sem maður hefur lært. Að koma sér úr því að vera nemandi í að verða listamaður,“ segir Arnheið- ur. Jóna ætlar að klára grunn- námið og segir framtíðina verða að leiða í ljós hvað gerist svo. „Ég er alveg opin fyrir því að fara til Þýskalands í meistaranám til dæmis.“ Ljóðaveisla í Þjóð- menningarhúsinu Vinkonurnar eru afar ánægð- ar í Tónlistarháskólanum í Vín, en skólinn er leiðandi á sviði tónlist- armenntunar í heiminum og er í öðru sæti á eftir Juilliard- háskólanum yfir bestu listaháskóla í heiminum. Í skólanum eru yfir 3.000 nemendur frá rúmlega 70 löndum. Námið er blanda af bók- legu og verklegu og hafa Jóna og Arnheiður til dæmis tekið áfanga í hinum ýmsum tungumálum og framburði, til dæmis rússneskum, ásamt tónlistarsögu, leiklist og hljómfræði. Jóna og Arnheiður eru nú staddar á Íslandi í sumarfríi og langaði að nýta tækifærið til að halda tónleika saman á Íslandi. Tónleikarnir verða haldnir í Þjóð- menningarhúsinu á morgun, fimmtudag, og hefjast klukkan 20. Á efnisskránni eru ljóð eftir Strauss og ljóðaflokkar eftir Brahms og Schumann. „Okkur langar að sýna aðeins hvað við er- um búnar að vera að læra,“ segir Arnheiður. „Við erum báðar búnar að vera að vinna að ljóðaflokkum og ákváðum því að halda saman ljóðatónleika þar sem við syngjum sitt hvorn flokkinn,“ segir Jóna. Stelpurnar ætla einnig að syngja eitthvað saman, en efni dúettsins mun koma betur í ljós á tónleik- unum sjálfum, annað kvöld. Ingi- leif Bryndís Þórsdóttir kemur fram á tónleikunum með Arnheiði og Jónu, en hún er með meist- arapróf í píanóleik frá Tónlist- arháskólanum í Freiburg. „Hún er líka með bakgrunn í söng og það er því frábært að syngja með henni þar sem hún skilur söngv- arann svo vel,“ segir Arnheiður. Ljóðaflokkar eru í sérstöku uppáhaldi bæði hjá Jónu og Arn- heiði. Jóna mun flytja Frauenliebe und -leben eftir Schumann. „Það virðist vera þannig að allir sem syngja þennan ljóðaflokk verða ástfangnir af honum. Hann er að vísu umdeildur þar sem má lesa úr honum að eini tilgangur kvenna sé að eignast mann og börn. En svo eru tilfinningar þarna sem maður kannast svo vel við,“ segir Jóna. Arnheiður ætlar að flytja Zigeunerlieder eða Sígaunaljóð eftir Brahms. „Flokkarnir eru skemmtilegar andstæður þar sem sígaunaljóðin eru samansafn af lögum úr öllum áttum, önnur eru kraftmikil og jafnvel æst en önnur mun innilegri,“ segir hún. Tónleikarnir fara fram í Þjóð- menningarhúsinu, fimmtudaginn 11. ágúst, og hefjast klukkan 20. Allir eru velkomnir og hlakka þessar söngelsku vinkonur til að sjá sem flesta annað kvöld. Ljósmynd/Katrín Helena Jónsdóttir DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016 ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“ á Facebook Mercedes-Benz B-Class Þægindi og öryggi í fyrirrúmi Í Mercedes-Benz B-Class situr þú hærra en í flestum fólksbílum sem auðveldar aðgengi og bætir yfirsýn. Lágur mengunarstuðull tryggir lægri bifreiðagjöld og um leið frábært verð fyrir bifreið í þessum gæðaflokki og sparneytnin heldur rekstrarkostnaðinum í lágmarki. Þessi vinsæli bíll er framhjóladrifinn og er einnig fáanlegur með 4MATIC fjórhjóladrifi. Hann fæst sjálfskiptur eða beinskiptur og er í boði með bensín-, dísil- og metanvélum. B 160 með 7 þrepa sjálfskiptingu Verð frá 4.760.000 kr. Eyðir frá 4,0 l/100 km í blönduðum akstri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.