Morgunblaðið - 10.08.2016, Síða 18

Morgunblaðið - 10.08.2016, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Pólitískar um-ræðurstjórnarand- stæðinga síðustu mánuði hafa nánast alfarið snúist um eitt mál. Ekkert annað hefur komist að en krafa stjórnarandstöðuflokkanna um að stjórnarflokkarnir nefni dagsetninguna þegar kosið verði næst til þings. Stjórnarflokkarnir hafa ekki viljað festa niður dag en hafa gefið til kynna að verði ákveðin skilyrði uppfyllt kunni að verða kosið fyrir áramót, í stað þess að kjósa í vor eins og stjórn- arskráin mælir fyrir um og öll rök hníga að. Þetta hefur ekki nægt stjórn- arandstöðunni, fjarri því. Og það hefur ekki heldur verið nóg að nefna að seinni hluti október yrði sá tími sem sennilega yrði kosið. Nei, krafan hefur verið um fasta dagsetningu, annars verði málþófi beitt og ekkert af- greitt. Öll þessi áhersla á dagsetn- ingu hefur verið óskiljanleg. Al- veg þangað til stjórnarand- staðan missti út úr sér hvað að baki þessari kröfu býr. Össur Skarphéðinsson reið á vaðið og sagði ekki hægt að ákveða fyr- irfram lengd næsta kjör- tímabils, en Píratar gera kröfu um að það verði stytt líkt og það sem nú stendur yfir. Yrði það gert myndi stjórnarand- staða þess kjör- tímabils „gera sér far um að brjóta þær [dagsetningar] niður“. Oddný Harð- ardóttir, formaður Samfylkingarinnar, tók í sama streng og sagðist ekki vilja að gefnar yrðu upp dagsetningar „sem auðvelt er að beita mál- þófi gegn“. Þessi ummæli stjórnarand- stöðuþingmannanna tveggja varpa óvæntu ljósi á þá ráðgátu að núverandi stjórnarandstaða hafi ekki haft áhuga á neinu öðru en dagsetningu kosninga frá því umræður hófust um að mögulega kæmi til greina að flýta kosningum. Það er því óhætt að taka und- ir með Sigríði Andersen, þing- manni Sjálfstæðisflokksins, að nú er orðið ljóst hvaða leiki þingmenn stjórnarandstöð- unnar ætla að leika. „Þeir og stjórnarandstaðan öll mun beita málþófi fram að kosn- ingum verði boðað til kosninga í haust,“ sagði hún í samtali við Morgunblaðið í gær, og bætti við að útilokað væri að ákveða kjördag fyrr en stjórnarskrá gerir ráð fyrir undir slíkum hótunum. Það væri furðuleg ráðstöfun ef meirihlutinn á þingi hleypti minnihlutanum í þá aðstöðu sem hann heimtar að fá, en á enga heimtingu til. Loks er komin skýring á kröfunni um dagsetningu kjördags} Stjórnarandstaðan afhjúpar sig Leiðtogar vest-rænna ríkja gerðu mistök þegar hluti tyrkjahers reyndi að hrifsa völdin í landinu. Löngu eftir að valdaránstilraun blasti við og jafnvel eftir að ljóst virtist að tyrkneskur almenningur myndi hlýða kalli Erdogans forseta og brjóta valdaránið á bak aftur forðuðust leiðtog- arnir að fordæma það. Tilraun til valdaráns í einu af ríkjum Nató hlutu allir þar á bæ að fordæma harkalega frá fyrstu stundu. Það er áhyggju- efni hvað forsetinn og fylg- ismenn hans beita mikilli hörku eftir að þeir náðu undirtök- unum á ný. En hafa verður í huga að herinn reyndi ekki að- eins að hrifsa til sín völd með því að sýna afl sitt og yfirburði. Hann gerði sprengjuárás á dvalarstað Erdogans forseta, á þinghúsið og skrifstofu for- sætisráðherrans. Fyrir lýðræðislega kjörna stjórnendur Tyrklands snerist atlagan því ekki að- eins um völd heldur um líf og dauða fyr- ir þá og lýðræðið sjálft. Hefði eðlileg fordæming borist Tyrkjum strax myndu varnaðar- orð úr sömu átt um að fara ekki offari í eftirleiknum, hafa haft aukið vægi. Erdogan undirstrikaði hvað eftir annað á fundi með Pútín forseta í Sankti Péturs- borg að Pútín hefði einna fyrst- ur leiðtoga sýnt Tyrkjum sam- stöðu eftir valdaránið. Það var athyglisvert því að sambúð Rússlands og Tyrklands hefur verið mjög slæm eftir að rúss- nesk herþota var skotin niður í lofthelgi Tyrklands. Merkel, kanslari Þýskalands, og aðrir forystumenn Evrópusam- bandsins hafi þó ekki aðeins áhyggjur af harkalegum við- brögðum Tyrkja innanlands, heldur einnig og ekki síður lam- ar menn ótti við að flótta- mannamálið, sem var við það að drekkja álfunni, muni komast í ógöngur á ný. Leiðtogar vest- rænna ríkja hafa haldið óhönduglega á málum vegna at- burðanna í Tyrklandi að undanförnu} Erdogan og Pútín vinir M ilton Friedman sagði eitt sinn að ekkert væri varanlegra en tímabundnar ráðstafanir stjórnvalda. Ummælin eiga einkar vel við um gjaldeyr- ishöftin sem komið var á fyrir alls 2.812 dögum. Höftin áttu aðeins að vera til skamms tíma - örfáa mánuði eða svo - en hafa þess í stað verið við lýði í bráðum átta ár. Og því miður sér ekki enn fyrir endann á þeim. Það er kaldhæðni örlaganna að nú - þegar loksins stendur til að létta höftum af útflæði fjármagns - þurfi að setja höft á innflæði fjár- magns. Sagan endurtekur sig enn á ný. Alþingi samþykkti nefnilega í sumar breytingar á lög- um um gjaldeyrismál sem veita Seðlabanka Ís- lands ríkar og í raun fordæmalausar valdheim- ildir til þess að hefta innflæði fjármagns til landsins. Bankinn nýtti sér þessa heimild strax, eins og hendi væri veifað, þrátt fyrir að hafa gefið áður skýrlega til kynna að þess væri ekki þörf. Rétt eins og útflæðishöftin snerta innflæðishöftin ekki almenning með beinum hætti. Fólk finnur ekki fyrir þeim á eigin skinni. Höftin hafa til dæmis verið afsökuð á þá leið að þau beinist fyrst og fremst að gráðugum hrægamma- sjóðum sem vilja hagnast á vaxtamunarviðskiptum með ís- lensku krónuna. Það þýðir þó ekki að þau séu réttlætanleg eða skerði ekki lífskjör fólks. Skaði þeirra er mikill. Við hljótum að hafa lært af biturri reynslu, ekki ein- ungis undanfarinna ára, heldur áratuga, að höft og önnur eins ríkisforsjá eru ekki til velmegunar fallin. Höft grafa til að mynda undan trausti um- heimsins á íslensku efnahagslífi. Með því að viðhalda ströngum höftum erum við að gefa til kynna að við annað hvort getum ekki eða vilj- um ekki reka opið hagkerfi með frjálsum við- skiptum samkvæmt þeim leikreglum sem tíðk- ast í öðrum þróuðum ríkjum. Við erum með öðrum orðum að lýsa því yfir að okkur sé ekki treystandi. Innflæðishöftin renna stoðum undir það sem marga grunaði, að ráðamenn þjóðarinnar treysta sér ekki til þess að láta krónuna fljóta á nýjan leik. Og lái þeim hver sem vill. Reynsla okkar af fljótandi krónu á frjálsum gjaldeyr- ismarkaði á síðasta áratugi reyndist okkur ansi dýrkept og væri óráð að endurtaka þann háskaleik. En í stað þess að horfast í augu við vandann og viðurkenna að krónan, þessi minnsta sjálf- stæða mynt í heimi, er rót hans, þá ætla stjórnvöld að halda úti peningastefnu til framtíðar sem byggist á viðvar- andi höftum, miðstýringu og öðrum takmörkunum á eðli- legum fjármagsnflutningum. Þvílík framtíðarsýn það. Ef Ísland á í komandi framtíð að búa við frjálst flæði fjármagns eins og aðrar siðaðar þjóðir verða stjórnvöld að kasta krónunni og leyfa fólki og fyrirtækjum einfaldlega að velja þá mynt sem því hentar. Myntfrelsi er lausnar- orðið. Króna í fjötrum hafta og ríkisafskipta getur ekki verið framtíðargjaldmiðill þjóðarinnar. Það er ekki í boði. kij@mbl.is Kristinn Ingi Jónsson Pistill Lausnarorðið er myntfrelsi STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hæsta tilboðið sem boristhefur í jörðina Fell viðJökulsárlón hljóðar uppá 1,5 milljarða króna. Undir það ritar maður sem á örsmá- an hlut í jörðinni en er bróðir eig- endanna sem kröfðust nauðungar- sölu. Liðlega þrjátíu einstaklingar eiga jörðina Fell í óskiptri sameign. Hagsmunir þeirra rekast á og undanfarin ár hafa mál á milli þeirra og annarra verið fyrir dómstólum. Ekki hefur verið leyst úr öllum deilumálunum. Jökulsárlón er einn af vinsæl- ustu viðkomustöðum ferðafólks og skapar aðstaðan við lónið tækifæri til tekjuöflunar. Aðallega eru þrír pólar í eig- endahópnum. Eigendur um 60% eignarhluta jarðarinnar mynda sam- eigendafélagið Fell og rekstraraðili ferðaþjónustunnar Jökulsárlóns á um 25% eignarhlut. Þriðji póllinn eru systurnar Hulda og Kristín Jón- asdætur sem eiga um 10% hlut. Þær sögðu sig úr sameigendafélaginu þegar þær eignuðust sinn hlut, fyrir um hálfu öðru ári, og hafa komið málunum á mikla hreyfingu. Þær kröfðust nauðungarsölu á jörðinni til slita á sameign, eftir að jörðin hafði verið metin óskiptanleg. Sýslumaðurinn á Suðurlandi fól lög- mönnum að óska eftir tilboðum, í stað nauðungaruppboðs, og er það mál enn í farvegi. Tilboð upp á milljarð Nokkur tilboð hafa borist frá því í vor að jörðin var auglýst. Sýslu- maður sá þó ekki ástæðu til að funda með landeigendum fyrr en tilboð undirritað af Þórhalli Hinrikssyni upp á einn milljarð barst. Tilboðið var sent til landeigenda til athug- unar. Fundurinn var haldinn í fyrra- dag. Á þann fund kom Ólafur Björnsson lögmaður, sem annast öflun tilboða, með tvö tilboð sem hann hafði veitt viðtöku einhverjum mínútum fyrr. Annað var upp á 1,1 milljarð frá Gísla Hjálmtýssyni hjá Thule Investments og hitt upp á 1,5 milljarða frá Hinriki Jónassyni. Hin- rik á örlítinn hlut í jörðinni og er bróðir gerðarbeiðenda. Tilboðin verða send til eigenda jarðarinnar og samkvæmt upplýs- ingum sýslumannsembættisins verður tekin afstaða til þeirra á fundi eftir hálfan mánuð. Ekki virðist að öllu leyti farið eftir uppboðsskilmálum sem sam- þykktir voru 25. apríl, en þar segir m.a.: „Sá sem gerir tilboð í eignina verður krafinn um að sýna fram á að hann geti staðið við boð sitt um leið og boð er lagt fram og eftir atvikum tryggingar fyrir greiðslu söluverðs um leið og boð er samþykkt.“ Vænt- anlega verður gengið eftir fyrri hluta þessa ákvæðis á þeim tíma sem gefst fram að næsta fundi. Gerðarbeiðendur í lykilstöðu Ekki er enn séð fyrir endann á málinu og margt getur komið uppá. Ljóst er að allir ættu að hafa hag af því að fá sem hæst verð fyrir jörð- ina. Á hinn bóginn hefur hluti eig- enda sameigendafélagsins engan áhuga haft á að selja. Þeir hafa lýst því yfir að þeir vilji áfram eiga sinn hlut í jörðinni sem forfeður þeirra áttu. Gerðarbeiðendur, Hulda og Kristín Jónasdætur, eru í lykilstöðu. Ef þeim hugnast ekki það tilboð sem talið er hagstæðast geta þær dregið uppboðsbeiðnina til baka og þar með stöðvast ferlið. Væntanlega má sjá væntingar þeirra um verð í tilboði bróður þeirra sem þær sjálfar skrifa undir sem vottar. Að sama skapi gætu aðrir landeigendur sem vildu selja farið fram á nýtt uppboð en það tæki þá hálft eða eitt ár til við- bótar. Tengdur aðili býður 1,5 milljarða króna Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Jökulsárlón Aðstaða til að þjóna ferðafólki við Jökulsárlón er verðmæt og hefur skapað deilur í eigendahópnum. Ekki er búið að leysa úr öllu. Við upphaf söluferilsins á jörð- inni Felli var vonast til að erlend- ir fjárfestar myndu sækjast eftir eigninni, íslensk ferðaþjónustu- fyrirtæki og fjárfestar. Ekki hefur það gengið eftir að öllu leyti en það getur breyst því áfram er hægt að skila inn tilboðum. Má velta því fyrir sér hvað dregur úr áhuganum. Núverandi rekstraraðili að siglingunum á lóninu hefur samning um leigu á aðstöðunni til næstu átta ára. Stór hluti jarðarinnar Fells er þjóðlenda og aðeins lítill hluti lónsins tilheyrir jörðinni. Hinn bakkinn er þjóðlenda og í eigu ríkisins. Þar gæti sveitarfélagið eða ríkið auglýst aðstöðu í sam- keppni við lóðina í landi Fells. Þá má geta þess að í samþykktu deiliskipulagi er aðeins gert ráð fyrir uppbyggingu aðstöðu til móttöku ferðamanna og sigl- ingum, en ekki hótelrekstri. Upp- bygging hótels var í upphaf- legum tillögum en ákveðið var að fella þær út og vísa þeim heim á bæina í nágrenninu. Deiliskipu- lagi má að vísu breyta en þetta skapar óvissu fyrir fjárfesta. Ekki gert ráð fyrir hóteli KVAÐIR Á JÖRÐINNI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.