Morgunblaðið - 10.08.2016, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016
Ólafur Laufdal opnaði Hótel Grímsborgir í Grímsnesi árið 2009og er nú komin gisting fyrir 200 manns í 11 húsum. „Þetta eruherbergi með hótelgangi, svítur og stærri fjögurra herbergja
íbúðir sem eru 200 fermetrar og minni íbúðir sem eru 60 fermetrar.
Svo erum við með veitingahús sem getur tekið um 170 manns. Við er-
um með mikið af fundum og stórafmælum, jólahlaðborð og villibráð
sem byrjar í október og stendur í mánuð.
Hérna er opið alla daga ársins og um jól og áramót er alltaf smekk-
fullt og í sumar hefur hvert einasta herbergi verið uppbókað. Svo
byrja norðurljósaferðirnar í október og standa fram í mars. Þetta
gengur svakalega vel og aðsóknin er alltaf að aukast og við höfum
fengið frábæra dóma.
Við erum með lifandi tónlist öll kvöld, dinnertónlist og núna hafa
yfirleitt tveir verið að spila og svo erum við með ýmsar uppákomur.
Við opnum frá kl. 7 á morgnana og hver sem er getur komið af göt-
unni og fengið sér morgunverð eða drykk um kvöldið. Við erum með
hlaðborð á kvöldin og à la carte.“
Gaman er að koma á staðinn og athygli vekja ýmsir þjóðfánar sem
blakta við hún hjá hverju húsi. „Ef ég veit hvaðan gestirnir eru þá
setjum við þjóðfána þeirra upp, gestirnir verða mjög ánægðir þegar
þeir sjá það. Ég á til flestalla fánana. Mottóið hjá mér er að þetta verð-
ur að vera betra en gestirnir eiga von á hvort sem það er gistingin,
maturinn eða þjónustan. Ef það er haft að leiðarljósi þá farnast manni
vel og maður verður að vera á tánum með þetta.“
Eiginkona Ólafs er Kristín Ketilsdóttir. „Ef hún væri ekki við hlið-
ina á mér þá væri þetta ekki hægt, svo erum við með frábært starfs-
fólk, hótelstjóra og yfirkokk.“
Hjónin Gestgjafarnir í Grímsborgum, Ólafur og Kristín.
Mottó að gera betur
en gestir eiga von á
Ólafur Laufdal er 72 ára í dag
Þ
óra Kristín Ásgeirs-
dóttir fæddist á Land-
spítalanum í Reykjavík
10. ágúst 1966 en hún
ólst upp í Keflavík frá
þriggja ára aldri með viðkomu í
Kaupmannahöfn. Þá var hún í
sveit í fjögur sumur hjá Margréti
Guðbjartsdóttur og Ásmundi Jó-
hannessyni í Miklagarði í Saurbæ í
Dalasýslu, æskuheimili skáldsins
Steins Steinars.
Þóra Kristín tók þátt í barátt-
unni fyrir sýnileika og réttindum
samkynhneigðra á ofanverðum 9.
áratugnum og var varaformaður
Samtakanna 78, 1987-1988. Þá kom
hún fram í sjónvarpsviðtali ásamt
Þorvaldi Kristinssyni þar sem rætt
var um bókmenntir samkyn-
hneigðra árið 1985 og ræddi veru-
leika lesbískra kvenna í Mannlífs-
viðtali árið 1987.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir fréttastjóri – 50 ára
Afmælisbarnið „Ég hef alltaf verið með aldurskomplexa, fundist ég of ung eða gömul, en nú er ég nokkuð sátt.“
Hefur starfað við fjöl-
miðla frá tvítugsaldri
Ferming Þóra Kristín nýfermd ásamt fjölskyldu sinni.
Erika Ósk Hrannarsdóttir og Guðlaug María Björnsdóttir seldu loom-armbönd
fyrir 5.841 kr. og færðu Rauða krossinum á Íslandi söluandvirðið.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Sameinar það besta í rafsuðu
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288