Morgunblaðið - 10.08.2016, Síða 29

Morgunblaðið - 10.08.2016, Síða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016 HVAR ER SÓSAN? Pylsa eða pulsa? Það skiptir engu máli ef þú ert ekki með réttu sósuna. Þú gleymir ekki sósunum frá E. Finnsson. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þér er alveg óhætt að láta eitthvað smávegis eftir þér. Þú slærð samstarfsfélaga gullhamra, þar gerðir þú góðverk dagsins. Við- komandi þurfti einmitt á þessu að halda. 20. apríl - 20. maí  Naut Ekki láta aðra þagga niður í þér, þegar þú vilt segja frá tilfinningum þínum. Er kominn tími á að skipta um starfsvettvang? Leggstu í naflaskoðun. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þegar harðnar á dalnum er ráð að lyfta sér upp, fá sér góðan kaffibolla eða glugga í bók. Líttu á björtu hliðarnar, það kem- ur nýr dagur á morgun. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þetta gæti orðið svolítið erfiður dagur í vinnunni en það er þó ekkert sem þú ræður ekki við. Áhugamál þitt er orðið ansi fyrirferð- armikið, gætir þú kannski gert það að atvinnu þinni? 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er ekki þinn máti að gefast upp við fyrsta mótbyr. Sköpunarkrafturinn kemst upp á yfirborðið og í kvöld upplifir þú skyndilega frelsi til að vera þú sjálf/ur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þér finnst líf þitt vera komið í þær skorður sem þér henta og nú megi engu breyta. Brostu bara við heiminum og þá mun heimurinn brosa við þér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Sumir leita til þín með mál sín í fullri al- vöru, en svo eru þeir, sem eru bara að tékka á skoðunum þínum. Farðu þér hægt í skemmt- analífinu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft ekki að hafa svona miklar áhyggjur af því hvað öðrum finnst um þig. Þú reynir að halda í horfinu heima en þú veist að það kemur að því að það gengur ekki að eilífu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú getur ekki reiknað með því að allir falli flatir fyrir áætlunum þínum. Hvernig væri að skella í vöfflur og bjóða frændfólki heim? 22. des. - 19. janúar Steingeit Reyndu að njóta samvista við vini þína og kunningja í dag. Ekkert er dýrmætara en heilsan og það hefnir sín grimmilega, ef gengið er á hana í lengri tíma. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er ekkert gefið að aðrir hafi tíma til þess að sletta úr klaufunum þótt að þú hafir það. Vertu viðbúin/n því að verja málstað þinn. 19. feb. - 20. mars Fiskar Hlutirnir fara hægt af stað en þú lifnar fljótt við þegar einhver veitir þér samkeppni. Þú hefur í mörg horn að líta, taktu það samt rólega. Hjálmar Freysteinsson sagði áfésbókarsíðu sinni fyrir viku að nú viðraði til limrugerðar: Valdís á Felli er vænsta fljóð, vafningalaus og ráðagóð, þegar Steindór á Hnjóti stakk sig á spjóti hún geivörtu ofan í gatið tróð (og sárið greri auðvitað fljótt og vel). Þremur dögum síðar, eða á laug- ardaginn, skrifaði Hjálmar Frey- steinsson á fésbókarsíðu sína: Alltaf skiptir mest að menn missi ekki trúna. Súlutindinn eitt sinn enn eg hef sigrað núna. Frábært veður og útsýni. Mynd- arvélarlaus var ég og get ekki sannað mál mitt, sem gerir lítið til. Fór hvort eð er bara fyrir sjálfan mig! Annar og meiri göngugarpur kom mér í hug á leiðinni. „Út vil ég“ mælti Móna og mátaði gönguskóna. Eftir það gekk hún í einum strekk frá Bifröst til Barselóna. Þetta kallaði fram limru hjá Jóni Ingvari Jónssyni: Það datt upp úr dauðþreyttri Erlu, dugandi þrítugri kerlu: „Með dæmalaust þrek ég daglega ek í Eskihlíð ofan frá Perlu.“ Þessi kveðskapur rifjaði upp fyr- ir mér gestaþraut sem birtist í Nýj- um kvöldvökum fyrir rúmri öld og fyrir nokkrum árum í Vísnahorni. Kona á Akureyri, Halldóra Jóns- dóttir, orti vísu þessa: Þrávalt báran þrauta rís, þjakar mínu lyndi, væri sálin eins og ís aldrei til hún fyndi. Halldóra gerði það sér til gamans að láta þrjá eða fjóra menn botna fyrripart vísunnar en hélt eigin botni leyndum. Þetta kvisaðist út um bæinn og urðu margir til að botna vísuna. Þar á meðal Matthías Jochumsson, sem lét sig ekki muna um að botna hana á fjóra vegu og urðu tveir þeirra fleygir: Áðan duttu átján mýs ofan af Súlutindi! Pukraðu mér í Paradís Pétur minn í skyndi! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Súlutindi og mörg er eftirsjáin Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ÞAÐ ER VOR Í LOFTI, GRETTIR. ÞÚ ERT KOMINN Í SUMARSKAP. ÉG VAR AÐ BORÐA SMÁFUGL. OG SJÁ, ÞÚ BROSIR. ÞESSI ÓVINAHER ER ÓSIGRANDI, HVAÐ ÞÁ UM AÐ ENDURSTAÐSETJA OKKUR? ÉG GET SÆTT MIG VIÐ ÞAÐ.VIÐ HÖRFUM ALDREI! SMELL VIÐ VERÐUM AÐ HÖRFA. „FJÁRDRÁTTUR. MAÐURINN MINN SÁ UM ÚTIVERKIN EN ÉG TÓK AÐ MÉR ALLT INNANBÚÐAR.“ „ÞETTA VAR Í RUSLAPRESSUNNI. ÞETTA ER ANNAÐHVORT HÁRTOPPURINN MINN, EÐA KÖTTURINN.“ …þega sérhver dagur færir mér meiri ást. Miklar breytingar hafa orðið áHveravöllum frá því að Vík- verji kom þar fyrir rúmum áratug. Skálinn hefur verið stækkaður um helming og boðið er upp á gistingar í gámi. Fyrir áratug voru nokkrar hræður á ferli, en nú er þar fjöldi fólks. Þegar Víkverji var á ferðinni fyrr í mánuðinum var í það minnsta margt um manninn. Fólk var gang- andi, hjólandi, á mótorhjólum, fólks- bílum og stökkbreyttum jeppum. Enga sá Víkverji hestamennina, en þeir eiga ugglaust leið um líka. x x x Þegar komið er á Hveravelli ernauðsynlegt að fara í heitu laug- ina. Í hann rennur kalt vatn öðrum megin og heitt hinum megin. Vík- verja fannst þægilegast að vera í miðjunni, enda bæði kulda- og hita- skræfa. Í lauginni voru bæði Íslend- ingar og útlendingar. Þar kom að nokkrir karlar úr hópi Íslending- anna brustu í söng og kyrjuðu meðal annars „Hrausta menn“. Að söngn- um loknum klöppuðu útlending- arnir. „Er það siður á Íslandi að bara karlarnir megi syngja?“ spurði útlend kona, sem furðaði sig á því að íslensku konurnar skyldu ekki taka undir. x x x Eins og áður sagði hefur ekki alltafverið svona fjölmennt á Hvera- völlum. Ýmsir hafa þó farið þar um og jafnvel dvalið í lengri eða skemmri tíma. Þekktust eru Fjalla- Eyvindur og Halla og er meðal ann- ars hægt að ganga að Eyvindarhelli. Á einu kynningarskiltinu segir að Eyvindur og Halla hafi verið á Hveravöllum í 20 ár. Það er senni- lega ágæt málamiðlun. Einhvers staðar sá Víkverji að ætla mætti að þau hefðu verið á Hveravöllum í allt frá fjórum árum til 40. Það er því óhætt að tala um skekkjumörk í þessum efnum. x x x Magnús sálarháski lá einnig úti áHveravöllum og væsti um hann. Hann var þar í þrjár vikur og sagði að þá fyrstu hefði hann lifað á hráum lambslungum, aðra á eigin munnvatni og þá þriðju á guðs orði. Þriðja vikan hefði verið verst. víkverji@mbl.is Víkverji Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá. (Sálm. 37:5)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.