Morgunblaðið - 10.08.2016, Síða 30

Morgunblaðið - 10.08.2016, Síða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016 PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til kl. 16 mánudaginn 22. ágúst NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Heilsa & lífstíll fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 26. ágúst SÉRBLAÐ Í blaðinu verður kynnt fullt af þeim möguleikum sem í boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak og lífstílsbreytingu haustið 2016. –– Meira fyrir lesendur Jazzhátíð Reykjavíkur 2016 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Hátíðinni er í senn ætlað að vera uppskeruhátíð íslenskra djass- tónlistarmanna sem og vettvangur til að kynna það besta sem er að gerast á sviði djasstónlistar á al- þjóðlegum vettvangi,“ segir Sunna Gunnlaugs, sem ásamt Leifi Gunn- arssyni er listrænn stjórnandi Jazzhátíðar Reykjavíkur sem sett verður í 27. sinn í dag, en hátíðin stendur til sunnudags. Alls verða 30 tónleikar og við- burðir á hátíðinni í ár og koma fram hátt í 100 listamenn, en um þriðj- ungur þeirra eru erlendir gestir. „Oft hefur verið horft til Norður- landanna, en við reyndum að horfa víðar í ár. Við höfðum fjölbreytnina að leiðarljósi bæði hvað varðar upp- runa og stíl flytjenda til að þjóna þeim breiða áhorfendahópi sem mætir á Jazzhátíð,“ segir Sunna, en gestir ársins koma frá Svíþjóð, Dan- mörku, Finnlandi, Litháen, Lúx- emborg, Ísrael, Bandaríkjunum og Þýskalandi. „Þýskaland er stærsti markaðurinn fyrir íslensku djass- senuna,“ segir Sunna og bendir á að það skýri hversu áberandi þýskir listamenn eru á hátíðinni í ár. Að sögn Sunnu höfðu skipuleggj- endur það að markmiði að ná betur til ungs fólks. „Sem lið í því buðum við Önnu Sóleyju Ásmundardóttur og Söru Blandon, tveimur nýútskrif- uðum söngkonum úr Tónlistarskóla FÍH að syngja ásamt hljómsveit í Hörpu á morgun og föstudag kl. 17. Einnig bjóð- um við í fyrsta sinn afslátt fyrir 25 ára og yngri,“ segir Sunna, en tónleikagestir á öllum aldri geta ýmis keypt hátíð- arpassa á alla tónleika eða dagspassa, en ókeypis er á alla viðburði fyrir kl. 19 á dag- inn. Allar nánari upplýsingar um dagskrána og tónlistarflytjendur er á vefnum reykjavikjazz.is, en nær allir viðburðir fara fram í Hörpu. Miðasala fer fram á harpa.is og tix- .is. Ókrýndur píanókonungur Aðspurð hvaða tónlistarfólk standi upp úr á hátíðinni í ár segir Sunna erfitt að velja úr, en vissulega séu stærri nöfn en önnur sem koma fram. „Ég hef um árabil verið mikill aðdáandi sænska píanistans Bobos Stenson. Honum hefur verið lýst sem ókrýndum píanókonungi norð- ursins, en hann er mikil goðsögn og því mikið ánægjuefni að hann komi fram á hátíðinni,“ segir Sunna og bendir á að mikill fengur sé að því að fá John Hollenbeck frá Banda- ríkjunum til að vinna með Stórsveit Reykjavíkur. „Hollenbeck hefur vakið athygli fyrir að vera leitandi listamaður. Í tónsmíðum sínum og útsetningum leitar hann að nýjum stórsveitarhljóm.“ Að sögn Sunnu hittist svo skemmtilega á að víbrafónninn varð óvænt fyrirferðarmikill á hátíðinni. „Við fáum tvo víbrafónleikara á há- tíðina, þ.e. Pascal Schumacher frá Lúxemborg og Stefan Bauer frá Þýskalandi, sem eru með þeim bestu í heiminum á djasssenunni.“ Sjálf kemur Sunna fram á tón- leikum á föstudag með þýska pían- istanum Juliu Hülsmann. „Julia er á mála hjá ECM-útgáfunni og hlaut nýverið elstu og virtustu djassvið- urkenningu Þýsklands, SWR Jazz- preis,“ segir Sunna og bendir á að Bobo Stenson sé einnig á mála hjá sama fyrirtæki. „Ég hef í gegnum árin fylgst með hljóðritunum fyrir- tækisins og þannig kynntist ég tón- list Juliu. Þegar við hittumst eitt sinn á ráðstefnu í Þýskalandi tókum við tal saman og í framhaldinu héld- um við tónleika í september 2014 á norrænni listahátíð í Berlín þar sem Julia býr,“ segir Sunna og tekur fram að henni gefist sjaldan tæki- færi til að spila með öðrum píanista sem helgist af því að ekki margir tónleikastaðir hafi yfir að ráða tveimurflyglum. Fernir útgáfutónleikar Alls verða fernir útgáfutónleikar á hátíðinni í ár. „Gítarleikarinn Andrés Þór fagnar útgáfu geisla- disksins Ypsilon með tónleikum í Silfurbergi á fimmtudag kl. 19. Secret Swing Society sendir frá sér sinn fyrsta geisladisk og heldur tón- leika í Norðurljósum á sunnudag kl. 15. Hljómsveitin var stofnuð fyrir sex árum í Amsterdam, meðan liðs- menn hennar stunduðu þar tónlist- arnám. Hljómsveitin leikur og syng- ur gamaldags sveiflutónlist, frumsamda og standarda sem ætti að höfða til breiðs hóps,“ segir Sunna, en sérstakur gestasöngvari á tónleikunum er Kristjana Stef- ánsdóttir. „Á sunnudagskvöldið kl. 20 leikur tríó Agnars Más Magnússonar pí- anóleikara lög af nýútkomnum diski sem nefnist Svif. Á lokatónleikum hátíðarinnar sem hefjast kl. 21 sama kvöld leikur kvintett Þorgríms Jóns- sonar bassaleikara lög af nýútkomn- um diski sem er sá fyrsti úr smiðju Þorgríms. Mörgum fannst tímabært að hann sendi frá sér disk því Þor- grímur er búinn að vera mjög öfl- ugur á djasssenunni á umliðnum ár- um og leika með allskyns hljóm- sveitum og listamönnum.“ Uppskeruhá- tíð og gluggi út í heim  30 tónleikar og viðburðir á fimm dögum  Fernir útgáfutónleikar Stuð Hljómsveitin Annes leikur rafmagnaða djassmúsík á tónleikum sínum í Silfurbergi Hörpu á laugardag. Flottir Stefan Bauer leikur á víbrafón og Gilad Hekselman á gítar. Sunna Gunnlaugs Miðvikudagur 10. ágúst  kl. 17. Jazzganga frá Lucky Records að Hörpu undir stjórn Sigrúnar Kristbjargar Jónsdóttur.  kl. 17.30 Jazzhátíð Reykjavíkur sett í Hörpu- horni á 2. hæð.  kl. 19 Tómas R. Ein- arsson leikur nýja lat- íntónlist í Norðurljósum.  kl. 20 Snarky Puppy í Eldborg.  kl. 22 Víbrafónleikarinn Stefan Bauer leiðir „jamsession“ á Budvarsviði. Fimmtudagur 11. ágúst  kl 17 Anna Sóley Ásmundar- dóttir syngur með hljómsveit á Budvarsviði.  kl. 19 Útgáfutónleikar Andrésar Þórs í Silfurbergi.  kl. 20 Víbrafónleikarinn Pascal Schumacher leikur með Left Tok- yo Right í Norðurljósum.  kl. 21.20 Kvartett Einars Schev- ing leikur í Silfurbergi.  kl. 22.20 Jamsession á Budvar- sviði. Föstudagur 12. ágúst  kl. 17 Sara Blandon syngur með hljómsveit á Budvarsviði.  kl. 19 Píanóleikararnir Sunna Gunnlaugs og Julia Hülsmann leika í Silfurbergi.  kl. 20 Tríó gítarleikarans Gilad Hekselman leikur í Norðurljósum.  kl. 21.20 John Hollenbeck stjórnar Stórsveit Reykjavíkur í Silfurbergi.  kl. 22.20 Gítarleikarinn Sig- urður Rögnvaldsson leikur ásamt hljómsveit í Norð- urljósum.  kl. 23.05 Jamsession á Budvarsviði. Laugardagur 13. ágúst  kl. 11 Masterklass með Gilad Hekselman í Kalda- lóni.  kl. 12 Masterklass með John Hollenbeck í Kalda- lóni.  kl. 15 Fjölskyldudjass með Gretu Salóme á Budvarsviði.  kl. 16 Hljómsveitin Carioca leik- ur á Budvarsviði.  kl. 15-17 Sigurður Flosason býður til sín völdum gestum Jazzhátíðar á Jómfrúna.  kl. 19 Sigurður Flosason og Stefan Bauer leika í Silfurbergi.  kl. 20 Bobo Stenson Trio leikur í Norðurljósum.  kl. 21.20 Hljómsveitin Annes leikur í Silfurbergi.  kl. 22.20 Anna Gréta og Håkon Broström leika í Norðurljósum.  kl. 23.05 Jamsession á Budvar- sviði. Sunnudagur 14. ágúst  kl. 15 Útgáfutónleikar Secret Swing Society í Norðurljósum.  kl. 17 Carl Möller heiðraður í kirkju Óháða safnaðarins.  kl. 19 Ingi Bjarni Kvartett leik- ur í Silfurbergi.  kl. 20 Útgáfutónleikar Agnars Más Magnússonar í Norðurljósum.  kl. 21 Útgáfutónleikar Þorgríms Jónssonar í Silfurbergi. Hátt í 100 listamenn leika djass Pascal Schumacher

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.