Morgunblaðið - 26.08.2016, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2016
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
plankaparket
Verðdæmi:
190 mm Eik Rustik burstuð
mattlökkuð 6.990.- m2
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Safnið á Gljúfrasteini hefur verið
lokað frá því í janúar sl. og verður
lokað út þetta ár,“ segir Guðný
Dóra Gestsdóttir, forstöðumaður
safnsins, og vísar í máli sínu til
þeirra umfangsmiklu viðgerða sem
nú standa yfir á húsinu. En fyrr á
árinu kom í ljós rakavandamál sem
nauðsynlegt var að bregðast við
sem fyrst.
Upphaflega stóð til að safnið yrði
lokað í janúar og febrúar vegna
viðhalds en eftir nánari skoðun
kom í ljós raki undir gólfi og bak-
við veggi. Var því þörf á mun meiri
viðgerðum með lengri lokun en tal-
ið var í fyrstu.
Búið er að koma safnkosti
í öruggt skjól
„Það skapaðist í raun hálfgert
neyðarástand sem við þurftum að
bregðast við,“ segir Guðný Dóra og
bætir við að iðnaðarmenn séu búnir
að taka í gegn neðri hæð hússins
og að verið sé að vinna í efri hæð-
inni. Þá verður einnig ráðist í end-
urbætur á þaki hússins, að sögn
hennar.
„Vegna þessa höfum við þurft að
flytja allan safnkost Gljúfrasteins
út og í þar til gerðar geymslur.
Þetta er mjög mikið verk,“ segir
Guðný Dóra.
Gljúfrasteinn í Mosfellsdal var
reistur árið 1945 eftir teikningu
Ágústs Pálssonar arkitekts. Þar
var í rúmlega hálfa öld heimili
hjónanna Halldórs Kiljans Laxness
nóbelsskálds og Auðar Sveins-
dóttur Laxness. Íslenska ríkið festi
kaup á íbúðarhúsinu árið 2002 og
tveimur árum síðar var það opnað
almenningi.
Steypan í anda fyrri tíma
„Á þeim tíma sem húsið var
byggt var mjög erfitt að fá gott
byggingarefni og er steypan í anda
þess tíma. Síðar var húsið klætt
með texplötum og þær geta auð-
veldlega sogað í sig raka,“ segir
Guðný Dóra og bendir á að eftir að
raki kemst í áðurnefndar plötur á
hann mjög auðvelt með að dreifa
úr sér enn frekar.
„Við þurftum því að bregðast við
þessu vandamáli enda er húsið
sjálft safngripur og allt sem í því
er,“ segir hún, en Gljúfrasteinn var
friðaður árið 2012 og skilgreindur
sem safn samkvæmt safnalögum
sem tóku gildi árið 2013. „Okkur
ber því lögum samkvæmt að passa
upp á varðveislu gripa og að allt sé
í lagi.“
Ríkiseignir, sem m.a. hafa um-
sjón með fasteignum í eigu ríkisins
og viðhaldi þeirra, halda utan um
þær viðgerðir sem nú eiga sér stað
á safninu. Samkvæmt upplýsingum
þaðan er ekki með vissu vitað hvað
viðgerðirnar munu á endanum
kosta.
Aðspurð segist Guðný Dóra
stefna að því að geta opnað safnið
almenningi á ný í janúar á næsta
ári. „En líkt og gefur að skilja mun
það líka taka sinn tíma að raða öllu
á sinn stað aftur. Við miðum þó við
þennan tímaramma,“ segir Guðný
Dóra.
Á meðan safnið er lokað vinna
starfsmenn þess að margvíslegum
verkefnum á borð við skráningu
safnkostar og rannsóknum. Hefur
þeim verið úthlutað vinnuaðstöðu á
bókasafninu í Mosfellsbæ.
Miklar viðgerðir á Gljúfrasteini
Safnið verður lokað almenningi út árið vegna framkvæmda á báðum hæðum hússins Skoðun leiddi
í ljós raka undir gólfi og bakvið veggi Skapaðist í raun hálfgert neyðarástand, segir forstöðumaður
Morgunblaðið/Þórður
Að framanverðu Búið er að reisa vinnupalla við íbúð-
arhúsið og verður m.a. ráðist í endurbætur á þaki.
Morgunblaðið/Þórður
Framkvæmdasvæði Þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að í gær var
þessi iðnaðarmaður önnum kafinn við að slípa veggi í svefnherbergi.
Morgunblaðið/Einar Falur
Árið 2002 Í herbergi Halldórs Laxness, sem einnig sést á mynd til vinstri,
var m.a. mynd af bænum Melkoti, sem var fyrirmyndin að Brekkukoti.
Morgunblaðið/Þórður
Stofan Búið er að fjarlægja innanstokksmuni úr stofunni á Gljúfrasteini og
hafa viðgerðir m.a. verið gerðar á veggjum, en í ljós kom rakavandamál.
Morgunblaðið/Einar Falur
Virðulegt Inni í stofu mátti t.a.m. eitt sinn sjá veglegan flygil úti í horni og
glerverk í endaglugganum, en það er eftir þýskan listamann.
Morgunblaðið/Arnaldur
Bakgarður Gljúfrasteinn í Mosfellsdal var reistur árið
1945 og í garðinum er sundlaug. Myndin er tekin 2002.