Morgunblaðið - 26.08.2016, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 26.08.2016, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2016 Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 plankaparket Verðdæmi: 190 mm Eik Rustik burstuð mattlökkuð 6.990.- m2 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Safnið á Gljúfrasteini hefur verið lokað frá því í janúar sl. og verður lokað út þetta ár,“ segir Guðný Dóra Gestsdóttir, forstöðumaður safnsins, og vísar í máli sínu til þeirra umfangsmiklu viðgerða sem nú standa yfir á húsinu. En fyrr á árinu kom í ljós rakavandamál sem nauðsynlegt var að bregðast við sem fyrst. Upphaflega stóð til að safnið yrði lokað í janúar og febrúar vegna viðhalds en eftir nánari skoðun kom í ljós raki undir gólfi og bak- við veggi. Var því þörf á mun meiri viðgerðum með lengri lokun en tal- ið var í fyrstu. Búið er að koma safnkosti í öruggt skjól „Það skapaðist í raun hálfgert neyðarástand sem við þurftum að bregðast við,“ segir Guðný Dóra og bætir við að iðnaðarmenn séu búnir að taka í gegn neðri hæð hússins og að verið sé að vinna í efri hæð- inni. Þá verður einnig ráðist í end- urbætur á þaki hússins, að sögn hennar. „Vegna þessa höfum við þurft að flytja allan safnkost Gljúfrasteins út og í þar til gerðar geymslur. Þetta er mjög mikið verk,“ segir Guðný Dóra. Gljúfrasteinn í Mosfellsdal var reistur árið 1945 eftir teikningu Ágústs Pálssonar arkitekts. Þar var í rúmlega hálfa öld heimili hjónanna Halldórs Kiljans Laxness nóbelsskálds og Auðar Sveins- dóttur Laxness. Íslenska ríkið festi kaup á íbúðarhúsinu árið 2002 og tveimur árum síðar var það opnað almenningi. Steypan í anda fyrri tíma „Á þeim tíma sem húsið var byggt var mjög erfitt að fá gott byggingarefni og er steypan í anda þess tíma. Síðar var húsið klætt með texplötum og þær geta auð- veldlega sogað í sig raka,“ segir Guðný Dóra og bendir á að eftir að raki kemst í áðurnefndar plötur á hann mjög auðvelt með að dreifa úr sér enn frekar. „Við þurftum því að bregðast við þessu vandamáli enda er húsið sjálft safngripur og allt sem í því er,“ segir hún, en Gljúfrasteinn var friðaður árið 2012 og skilgreindur sem safn samkvæmt safnalögum sem tóku gildi árið 2013. „Okkur ber því lögum samkvæmt að passa upp á varðveislu gripa og að allt sé í lagi.“ Ríkiseignir, sem m.a. hafa um- sjón með fasteignum í eigu ríkisins og viðhaldi þeirra, halda utan um þær viðgerðir sem nú eiga sér stað á safninu. Samkvæmt upplýsingum þaðan er ekki með vissu vitað hvað viðgerðirnar munu á endanum kosta. Aðspurð segist Guðný Dóra stefna að því að geta opnað safnið almenningi á ný í janúar á næsta ári. „En líkt og gefur að skilja mun það líka taka sinn tíma að raða öllu á sinn stað aftur. Við miðum þó við þennan tímaramma,“ segir Guðný Dóra. Á meðan safnið er lokað vinna starfsmenn þess að margvíslegum verkefnum á borð við skráningu safnkostar og rannsóknum. Hefur þeim verið úthlutað vinnuaðstöðu á bókasafninu í Mosfellsbæ. Miklar viðgerðir á Gljúfrasteini  Safnið verður lokað almenningi út árið vegna framkvæmda á báðum hæðum hússins  Skoðun leiddi í ljós raka undir gólfi og bakvið veggi  Skapaðist í raun hálfgert neyðarástand, segir forstöðumaður Morgunblaðið/Þórður Að framanverðu Búið er að reisa vinnupalla við íbúð- arhúsið og verður m.a. ráðist í endurbætur á þaki. Morgunblaðið/Þórður Framkvæmdasvæði Þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að í gær var þessi iðnaðarmaður önnum kafinn við að slípa veggi í svefnherbergi. Morgunblaðið/Einar Falur Árið 2002 Í herbergi Halldórs Laxness, sem einnig sést á mynd til vinstri, var m.a. mynd af bænum Melkoti, sem var fyrirmyndin að Brekkukoti. Morgunblaðið/Þórður Stofan Búið er að fjarlægja innanstokksmuni úr stofunni á Gljúfrasteini og hafa viðgerðir m.a. verið gerðar á veggjum, en í ljós kom rakavandamál. Morgunblaðið/Einar Falur Virðulegt Inni í stofu mátti t.a.m. eitt sinn sjá veglegan flygil úti í horni og glerverk í endaglugganum, en það er eftir þýskan listamann. Morgunblaðið/Arnaldur Bakgarður Gljúfrasteinn í Mosfellsdal var reistur árið 1945 og í garðinum er sundlaug. Myndin er tekin 2002.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.