Morgunblaðið - 26.08.2016, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2016
Bein útsending ámbl.is
27. ágúst, kl 20:00
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Bob Corlew, alþjóðaforseti Lions-
hreyfingarinnar, er staddur hér á
landi í þeim tilgangi að hitta Lions-
félaga alls staðar af landinu og
kynna sér frá fyrstu hendi það starf
sem fram hefur farið á Íslandi undir
merkjum hreyfingarinnar. Í ferð
sinni hefur Corlew einnig hitt for-
seta Íslands, Guðna Th. Jóhannes-
son, og Lilju Dögg Alfreðsdóttur ut-
anríkisráðherra og heimsótt
Barnaspítala Hringsins, sem hefur
um árabil notið liðsinnis íslenskra
Lionsklúbba í þjónustu sinni.
Lionshreyfingin fagnar aldaraf-
mæli á næsta ári og spennandi
tímar eru því framundan og nýjar
áskoranir, að sögn Corlew.
Guðrún Björt Yngvadóttir var ný-
verið kjörin annar varaforseti hreyf-
ingarinnar, fyrst kvenna. Á næsta
ári gegnir hún hlutverki fyrsta vara-
forseta og þar á eftir tekur hún við
embætti alþjóðaforseta.
Markmiðið að þjóna
Lionsklúbbar eru mörgum vel
kunnir, en 85 slíkir eru starfræktir
hér á landi og eru um 2.200 Íslend-
ingar félagar í Lions.
„Lionshreyfingin var stofnuð árið
1917 með það að markmiði að þjóna
öðru fólki. Samtökin hafa vaxið og
dafnað og nú eru í þeim 1,4 milljónir
meðlima í 200 löndum um allan heim
í næstum því 47 þúsund Lions-
klúbbum. Klúbbarnir hafa það hlut-
verk að þjóna sínu samfélagi og
heiminum um leið. Af því að við lít-
um á okkur sem eina stóra fjöl-
skyldu hefur hver klúbbur það hlut-
verk til viðbótar að hjálpa fólki
annars staðar í heiminum,“ segir
Corlew, en stjórn Lionshreyfing-
arinnar mótar þá grunnstefnu sem
Lionsklúbbar um allan heim taka
mið af í störfum sínum.
Nýjar áskoranir fyrir Lions
Þó er ætlast til þess að alþjóða-
forsetinn leggi sitt af mörkum í
stefnumótuninni.
„Á hverju ári þróar alþjóðaforset-
inn þema í þjónustu okkar. Á þessu
ári vinnum við að verkefninu „New
mountains to climb“. Fjöllin eru
skírskotun til hindrana og áskorana.
Sá sem kemur að fjalli hefur val um
að snúa við, fara kringum það eða
klífa það. Við lítum þannig á að
hvert fjall sé ný áskorun en um leið
nýtt tækifæri fyrir Lionshreyf-
inguna. Heimurinn breytist stöðugt
og það eru sífellt fleiri tækifæri fyr-
ir okkur til að þjóna og hjálpa nýju
fólki og með nýjum aðferðum. Við
erum stolt af því að geta sagst vera
með puttann á púlsinum í þjónustu
okkar,“ segir hann og vísar m.a. til
tækniframfara 21. aldarinnar.
„Jafnvel þótt nútímatækni geri
heiminn að betri stað eru alltaf til
staðar hliðarverkanir sem valda
vandamálum og þannig mótast
tækifæri fyrir okkur til að bregðast
við og rétta fram hjálparhönd,“ seg-
ir hann.
Verkefnin getur líka borið brátt
að, en Corlew nefnir að vegna jarð-
skjálftans á Ítalíu á miðvikudag hafi
Lionshreyfingin lagt fram um 100
þúsund bandaríkjadali og þeir verið
sendir til Ítalíu um tíu klukkustund-
um eftir skjálftann.
Rótgróinn félagsskapur
„Á næsta ári fögnum við aldar-
afmæli. Í tilefni af tímamótunum
settum við okkur sérstök markmið á
síðasta ári. Í þeim fólst að fyrir
næsta vor myndum við hafa hjálpað
hundrað milljónum manna og haft
jákvæð áhrif á líf þeirra. Jafnvel
þótt tímamarkið sé næsta vor, geri
ég ráð fyrir að í næstu viku til-
kynnum við að við höfum nú þegar
náð markmiðinu,“ segir Corlew, en
sviðin fjögur eru: Sjón og augn-
sjúkdómar, sem hafa verið áherslu-
punktur Lions frá árinu 1925, hung-
ursneyð, umhverfismál og
æskulýðsmál. Nú þegar hefur mark-
miðum í þeim tveimur síðastnefndu
verið náð.
Spurður hvað framtíðin beri í
skauti sér fyrir Lionshreyfinguna,
segir Corlew að nýverið hafi sam-
tökin hafið sókn í að aðstoða sykur-
sýkissjúklinga og einnig muni hreyf-
ingin láta að sér kveða í því að auka
lífsgæði krabbameinssjúklinga,
einkum barna.
„Við munum halda áfram vinnu
okkar og þjónustu með nýjum leið-
um. Við vonumst til að geta haldið
áfram sem lengst og þjónusta okkar
og hjálp við náungann verður alltaf
undirstaða tilvistar okkar,“ segir
Corlew og bætir því við að hann sé
snortinn af öflugu starfi Lions-
klúbba á Íslandi í áranna rás.
Lionsfjölskyldan blómstrað í 100 ár
Morgunblaðið/Ófeigur
Forsetar Guðrún Björt Yngvadóttir, 2. varaforseti Lionshreyfingarinnar, og Bob Corlew, alþjóðaforseti 2016-2017.
Alþjóðaforseti Lions hér á landi
Hreyfingin fagnar aldarafmæli 2017
Nýjar áskoranir á alþjóðavísu
Borið hefur á því að erlendir ferða-
menn gangi örna sinna við áningar-
stað á Reykjanesi í námunda við
Keflavíkurflugvöll. Staldrið hefur
notið mikilla vinsælda hjá erlend-
um ferðamönnum fyrir eða eftir
flugferðir þeirra. Engin salernis-
aðstaða er hins vegar á áningar-
staðnum, að því er fram kemur á
vef Víkurfrétta.
Rútubílstjóra sem staldraði við á
svæðinu með hóp ferðamanna, til
að þeir gætu andað að sér fersku
lofti, brá í brún þegar megn úr-
gangsfnykur fyllti vitin. Við nánari
skoðun kom í ljós að klósettpappír
og hægðir voru á víð og dreif um
svæðið.
Munu merkja svæðið
Staldrið sem um ræðir er á veg-
um Sandgerðisbæjar, en samkvæmt
upplýsingum frá bænum var það
tekið í gegn fyrr í sumar og hreins-
að hátt og lágt og nýjum ruslaföt-
um komið fyrir.
Þegar hefur verið ákveðið að
koma upp skiltum á svæðinu til
marks um að óheimilt sé að létta á
sér þar. Vandamálið hefur þó ekki
verið rætt sérstaklega í bæjarráði.
Ólafur Þór Ólafsson, bæjarfull-
trúi Samfylkingar í Sandgerðisbæ,
segir að ágangurinn hafi aukist
mikið undanfarið.
„Fjöldinn af ferðamönnum og
ágangurinn er orðinn svo mikill að
það þarf greinilega örari viðbrögð
en það að fara í hreinsun einu sinni
eða tvisvar á ári. Við höfum ekki
tekið frekari umræðu um þetta,“
segir Ólafur Þór. Rætt hafi verið
um skipulag á svæðinu sem slíku,
en þetta tiltekna vandamál hafi
borið brátt að og bæjarfulltrúar að-
eins nýlega heyrt af því.
Spurður hvort til greina komi að
koma upp salernisaðstöðu segir
Ólafur að ekki sé hægt að svara því
strax. „Ég á von á því að þetta verði
rætt á næsta bæjarráðsfundi,“ segir
hann.
Staldrið Við vegginn er algengt að fólk gangi örna sinna fyrir eða eftir flug.
Ferðamenn létta á
sér við flugvöllinn
Sandgerðisbær grípur til aðgerða