Morgunblaðið - 26.08.2016, Side 28

Morgunblaðið - 26.08.2016, Side 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2016 ✝ Ingileif Guð-jónsdóttir fæddist á Eyr- arbakka 16. maí 1952. Hún lést á heimili sínu 18. ágúst 2016. Foreldrar henn- ar voru þau Gyðríður Sigurð- ardóttir, f. 22. sept- ember 1929, d. 28. maí 2012, og Guð- jón Pálsson, f. 9. maí 1934, d. 4. nóvember 2014. Eftirlifandi syst- ir er Margrét, f. 1956, en látin eru Regína, f. 1949, d. 2012, og drengur sem lést í fæðingu. Ingileif eða Inga, eins og hún var jafnan kölluð, giftist Ólafi Leifssyni, f. 13. nóvember 1947, frá Vindfelli, Vopnafirði. For- eldrar hans voru Leifur Guð- Óla á Hagamelnum. Síðar fluttu þau í Dvergabakkann þar sem þau bjuggu þar til þau festu kaup á íbúðinni í Efstasundi. Inga fékkst við ýmis störf í Reykjavík. Hún vann í búð á Kambsveginum, ullarverksmiðj- unni Álafossi og Sælgætisgerð- inni Nóa. Hún lærði síðar til sjúkraliða við Sjúkraliðaskóla Ís- lands og vann við það á Landa- koti og svo einnig á Hrafnistu. Lengst af vann hún sem ráðgjafi hjá Húsnæðisstofnun ríkisins og var skrifstofumaður og síðar deildarstjóri hjá Atvinnuleysis- tryggingasjóði. Inga var hafsjór af fróðleik, söngelsk og hafði yndi af tónlist. Hún var mikill náttúruunnandi og elskaði að ferðast, bæði innanlands og ut- an. Hún var mikið í skátastarfi sem barn og unglingur. Sauma- skapur, silfursmíði, vinna með steina eða annað handverk átti hug hennar meðan hún enn gat notað hendurnar í slíkt. Ingileif verður jarðsungin frá Langholtskirkju í dag, 26. ágúst 2016, klukkan 15. mundsson og Guð- rún Sigríður Víg- lundsdóttir frá Vopnafirði. Óli og Inga giftu sig 19. maí 1973. Þau eiga tvö börn, Sigurð Má, f. 20. desember 1972, og Guðrúnu Sigríði, f. 23. júlí 1972. Unnusti Guð- rúnar er Jón Ágústsson, f. 9. júní 1965, og eiga þau eina dóttur Ingileifu Valdísi, f. 16. nóvember 2014. Jón á tvo syni af fyrra hjónabandi þá Þengil Fannar, f. 8. júlí 1996, og Þorgils Mána, f. 1. júlí 2000. Inga ólst upp á Eyrar- bakka, fór ung að vinna við hin ýmsu störf sem til féllu á Bakk- anum. Hún flutti til Reykjavíkur haustið 1971 og hóf búskap með Elsku mamma mín er dáin. Hún lést nákvæmlega fimm mánuðum eftir að hún greindist með fjórða stigs krabbamein. Þetta var ströng barátta. Hún hneig oft niður, en reis alltaf upp aftur með dyggum stuðningi föður míns og góðri hjálp. En þetta tók á hana og hún var orðin mjög þreytt. Ég held að ef ekki hefði verið fyrir nöfnu hennar Ingileifu Valdísi, sem kom svo óvænt og stórt kraftaverk inn í líf hennar og okkar, þá viti ég ekki hvað hún hefði barist lengi. Mamma var stórkostleg kona, sterk, ekki allra þar sem hún hafði sterkar skoðanir, hjálpsöm og mátti ekkert aumt sjá. Hlý, oft hrekklaus sem gerði það að verk- um að oft bauð hún upp á góðlát- lega stríðni þegar hægt var að snúa út úr því sem hún sagði. Minningarnar eru margar og erfitt að velja. Útilegurnar, utanlandsferðirn- ar, partíin sem við héldum heima, fötin sem hún saumaði handa mér, rifrildin, sættirnar, kærleikurinn, faðmlagið, orðavenjurnar okkar, gælunöfnin, gjafmildin, brosið hennar. Já, brosið hennar sem var svo hlýtt, bjart og fallegt. Hún brosti þrátt fyrir allt sem gekk á. Hún var klettur í lífi margra. Hún var klettur foreldra sinna. Sambandið var stundum storma- samt en ef þau þurftu á henni að halda var hún komin til þeirra við minnsta kall, hvenær á sólarhring sem var. Hún sá um flesta praktíska hluti fyrir þau, ef þau þurftu að leita læknis eða fá ráðleggingar varðandi skattamálin. Eftir að amma dó flutti hún til afa og var hjá honum nær óslitið í tvo mánuði og hélt þannig í honum lífinu. Það gekk mjög nærri henni bæði and- lega og líkamlega að bera með afa þann sársauka sem hann gekk í gegnum eftir andlát ömmu. En hún hefði aldrei haft það öðruvísi. Ein heitasta ósk mömmu var að eignast barnabarn. Þegar mamma svo frétti að eitt væri á leiðinni held ég að hún hafi yngst um 20 ár. Hamingjan þegar dótturdóttir hennar og nafna fæddist var ólýsanleg. Sambandið sem myndaðist strax þeirra á milli var mjög sérstakt og alltaf þegar Inga Valdís kom í Efstasundið þurfti hún fyrst að heilsa ömmu áður en hún gat gert nokkuð ann- að. Inga Valdís gerði dagana hennar bærilegri og sagði mamma oft þegar við komum að nú væri dagurinn góður. Hún hafði yndi af að veiða og vera úti í náttúrunni. Oftar en ekki fékk hún fisk þegar hún „tók að- eins í stöngina“ meðan hinir fengu sér kaffi. Mamma elskaði að ferðast, kynnast bæði sínu eigin landi og annarra. Hún var fróðleiksfús, lestrarhestur meðan augun leyfðu. Hún hafði gaman af ljóðum og textum og skrifaði oft niður eitt- hvað sem greip hana. Þetta textabrot fann pabbi við tölvuna hennar: Þú mátt fá næstum allt sem ég á mína ást, mína trú, mína von, mína þrá. Ég þarf eitt, aðeins eitt fyrir mig eina einustu minningu um þig. Þetta eitt, það er allt, það er allt sem ég vil – það er allt sem ég þarf frá þér. Þetta einasta eitt ef þú átt það þá til það er allt sem ég óska mér. (Bragi Valdimar Skúlason.) Ég á mikið meira en eina minn- ingu um hana og er ég þakklát fyr- ir það. Að kveðja hana er eitt það erf- iðasta sem ég hef gert. Hún var mér óendanlega kær. Takk, mamma, fyrir allt. Þín Guðrún Sigríður (Gósý). Elskuleg vinkona mín og frænka er fallin frá. Við lofuðum hvor annarri fyrir um sex árum að skrifa lítinn pistil um þá, sem á undan færi yfir móðuna miklu. Þetta var eitthvað sem sagt var í gríni og við grétum úr hlátri þegar við töluðum um þetta. Nú græt ég mína kæru vinkonu og frænku. Okkar loforð var að sú sem færi á undan átti að segja um hina: „hún varð þó ekki leiðinlegt gamal- menni“. Nú finnst mér erfitt að setja þennan brandara okkar í búning, en get ekki skorast undan. Við urðum ekki vinkonur fyrr en báðar voru fluttar úr foreldra- húsum, báðar á svipuðum stað í líf- inu með börn og afborganir af ýmsum toga. Þá hittumst við og gátum skemmt okkur saman, hlegið sam- an, talað um erfiðleika og fleira. Alltaf góðar stundir. Fyrir rétt rúmlega 38 árum kynnti Inga frænka mig fyrir manninum mín- um. Samt alltaf tími fyrir hvor aðra. Eitt eftirminnilegasta ferðalag sem við frænka mín og ég fórum í var til Finnlands árið 2010. Helg- arferð til Helsinki, svo frábær ferð í alla staði þótt stutt væri. Við vor- um dálítið á sama báti, enn og aft- ur, ekki alltof góðar til langra gönguferða, sem kom svo sem ekki að sök, nóg var um bari til að hvíla lúin bein. Eftir þessa ferð töluðum við Inga um að endurtaka svona ferð seinna, en það er svona með áætl- anir í lífinu, lífið bara heldur áfram án þess að taka tillit til þinna áætl- ana. Nú hringi ég ekki oftar til að létta á hjartanu, mun ekki heldur fá símtal frá Ingu minni með sínar hugsanir. Ekkert símtal eða heim- sóknir á milli okkar sem enda með hlátri. Mikið skelfing á ég eftir að sakna þín, mín kæra. Þín frænka Guðbjörg (Gugga frænka). Ingileif, eða Ingu, kynntumst við þegar við Guðrún dóttir henn- ar urðum vinkonur fyrir um það bil 30 árum. Inga var einstaklega gestrisin og heimili þeirra við Efstasund 84 var alltaf opið vina- hópnum. Það var eins og fé- lagsmiðstöð í áraraðir, þar sem húsmóðirin tók á móti öllum með glaðværð og hlýju. Eflaust hefur mörgum þótt nóg um en Inga kippti sér ekkert upp við það þó húsfyllir væri í stofunni kvöld eftir kvöld. Hún var sjálf svo ung í anda og hafði gaman af því að vera í kring- um okkur unga fólkið, heyra skoð- anir okkar og taka þátt í samræð- um um heima og geima. Hún hafði skoðanir á svo mörgu og hafði svo gaman af því að segja frá og gerði það af svo mikilli innlifum og gleði. Þetta kunnum við að meta og nut- um þess að vera í kringum hana. Árin liðu og heimsóknum okkar í Efstasundið fór fækkandi en vin- áttan var alltaf til staðar. Inga fylgdist ávallt vel með okkur og samgladdist á gleðistundum og sýndi samhug á erfiðum tímum. Nú á kveðjustund er okkur er efst í huga þakklæti fyrir sam- fylgdina í gegnum árin. Eftir situr falleg minning um glaðlega, hlýja og elskulega konu. Við sendum Óla, Guðrúnu og Sigga samúðar- kveðjur og megi góður Guð vera með þeim. Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér, þú logar enn, í gegnum bárur, brim og voðasker. nú birtir senn. Og ég finn aftur andans fögru dyr og engla þá, sem barn ég þekkti fyrr. (Matthías Jochumsson) Lilja, Jórunn og Elín. Ingileif Guðjónsdóttir ✝ Gróa Ólafs-dóttir fæddist í Litla-Laugardal, Barð., 9. nóvember 1934. Hún lést á dvalarheimilinu Skjóli 2. ágúst 2016. Foreldrar Gróu voru Ólafur Jósúa Guðmundsson og Sesselja Ólafs- dóttir. Eiginmaður Gróu var Haraldur Ólafsson en hann lést árið 2005. Systkini Gróu voru Guðmundur, Hulda, Haraldur, Cesar, Kristján, Sverrir, Aðalsteinn, eftirlifandi systur Gróu eru Svanborg og Erla Þorgerður. Börn Gróu eru: 1) Hrafnhildur, sam- býlismaður hennar er Ágúst. 2) Að- alheiður Hagar, unnusti Ólafur. 3) Þórunn, maki Krist- inn. 4) Sesselja, sambýlismaður hennar er Guð- mundur. 5) Ólafur, maki Marta. 6) Odd- ur, maki Kristveig. 7) Orri. 8) Heimir, maki Ragnheiður. 9) Bylgja, maki Faraj. Útför Gróu fór fram í kyrr- þey að ósk hinnar látnu fimmtu- daginn 11. ágúst 2016. Gróa, þú varst svo yndisleg og góð, nærgætin, og svo þolinmóð. Alla ævina vildu hafa þig, ég sem aðrir fyrir sig. Þér mun ég aldrei gleyma, í hjarta mínu ætíð geyma. Þú varst kona með reisn og stolt, að kynnast þér var öllum hollt. Kristinn Eiðsson, tengdasonur. Elsku mamma. Það hlýtur að vera gott þegar maður er búinn að skila sínu dagsverki og vel það, að fá að sofna frá amstri þessa heims og vakna á æðri ströndu þar sem ástvinir bíða með opinn faðminn og bjóða þig velkomna, og mikið afskaplega erum við börnin þín heppin að hafa átt þig fyrir móður. Þú varst alltaf svo blíð og góð og mikill vinur okkar barnanna þinna. Mamma, þú varst sá trúi félagi og sú sem við sögðum allt, jafnvel á erfiðustu tímum. Mamma þú helgaðir líf þitt okkur og veittir okkur sem börnum þínum bæði þá líkamlegu og tilfinningalega um- hyggju sem við þurftum. Mamma þú virtist alltaf vita hvernig átti að hjálpa okkur að yfirstíga og dafna þrátt fyrir þau vandamál sem að steðjuðu hverju sinni. Móðurástin er óbætanleg sem gerir það að missa þig frá okkur ótrúlega sárs- aukafulla reynslu. Þó að við synir þínir og dætur berum í hjörtum okkar dauft en varanlegt hjartas- ár þar sem við áður fundum ást og öryggi, er mikilvægt að halda áfram að leita að þeirri ást og ham- ingju sem þú alltaf óskaðir eftir að við gerðum. Það er sárt til þess að hugsa að fá ekki notið nærveru þinnar lengur. Í minningu okkar frá æskuárum finnst okkur heim- ilið okkar fábrotið hvað veraldleg gæði snertir en samt svo auðugt af kærleika til okkar barnanna þinna og síðan til barnanna okkar. Fyrir okkur hefur þú, elsku mamma, alltaf verið tákn um það blíða og góða og ávallt var faðmur þinn op- inn fyrir þá sem á þurftu að halda. Hvíl í Guðs friði, elsku mamma. Kveðja frá börnum þínum, Hrafnhildur, Aðalheiður Hagar, Þórunn, Sesselja, Ólafur, Oddur, Orri, Heimir og Bylgja. Þú varst okkur amma svo undur góð og eftirlétst okkur dýran sjóð, með bænum og blessun þinni. Í barnsins hjarta var sæði sáð, er síðan blómgast af Drottins náð, sá ávöxtur geymist inni. Við allt viljum þakka amma mín, indælu og blíðu faðmlög þín, þú vafðir oss vina armi. Hjá vanga þínum var frið að fá þá féllu tárin af votri brá, við brostum hjá þínum barmi. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Amma þó að þú sért farinn, er- um við ekki ein, og aldrei munum vera. Allar þær dýrmætu minn- ingar sem við eigum og áttum með þér munu aldrei víkja burt frá okkur svo lengi sem lifir. Ást okkar á þér var mikil og hjálpar okkur fram veginn, og sú ást mun gefa okkur styrk til að takast á við þann missi að þú ert farin frá okkur. Í huga og hjarta okkar, amma, þú skalt að eilífu vera. Fyrir okkur vorum við hluti af þér, eins mikið og þú varst hluti af okkur. Kveðja frá barnabörnum, Gísli, Byron, Lára, Haraldur, Gróa, Róbert Már, Aron Björn, Kristín, Dagbjört Lind, Heiðar Oddur, Hjördís Ósk, Heiðrún, Hanna Birg- itta,Elva, Harpa, Selma, Ka- milla, Nadía, Jósef,Tanía, Dagur Snær, Hafdís Rós og Árný Dögg. Athvarf hlýtt við áttum hjá þér ástrík skildir bros og tár. Í samleik björt, sem sólskinsdagur samfylgd þín um horfin ár. Fyrir allt sem okkur varstu ástarþakkir færum þér. Gæði og tryggð er gafstu í verki góðri konu vitni ber. Aðalsmerkið: elska og fórna yfir þínum sporum skín. Hlý og björt í hugum okkar hjartkær lifir minning þín. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Kveðja til tengdamömmu frá tengdabörnum, Ágúst, Ólafur, Guðmundur, Marta, Kristveig, Ragnheið- ur og Faraj. Gróa Ólafsdóttir ✝ Þórarinn Guð-mundsson fæddist á Valda- læk á Vatnsnesi 1. maí 1932. Hann lést á heimili sínu í Grindavík 17. júlí 2016. Foreldrar hans voru Guðmundur M. Eiríksson, og Þórdís Jónsdóttir. Áttu þau sjö börn, þau: Valgerði, Sigurbjörgu, Ögn Magneu, Ara, Stein- unni, og Hólmfríði, og var Þórarinn yngstur. Þau eru öll látin. Þórarinn kynntist eftirlif- andi eiginkonu sinni, Krist- ínu Þóru Valdimarsdóttur, árið 1972, og giftust þau 24. ágúst 1974. Saman eign- uðust þau þrjár dætur, þær Þór- dísi Önnu, Val- gerði, og Ögn. Af fyrra hjóna- bandi átti Kristín þrjú börn, þau Sigurrósu, Guð- mund, og Kolbein Engilbertsbörn. Þórarinn var fæddur og uppal- inn á Valdalæk og tók við búi af foreldrum sín- um. Hann hélt því búi til 1988 þegar fjölskyldan flutti suður til Grindavíkur. Ræturnar voru samt ávallt á Valdalæk og fór Þórarinn öll sumur þangað heim. Útför Þórarins fór fram í kyrrþey frá Tjarnarkirkju á Vatnsnesi 27. júlí 2016. Minn gamli og góði vinur, Þórarinn á Valdalæk, lést eftir erfið veikindi hinn 17. júlí sl. á 85. aldursári. Þórarinn tók við búi á Valda- læk af föður sínum um 1970 og búnaðist vel, enda afburða skep- nuhirðir og hagleiksmaður á alla hluti. Var oft farið til hans með bilaða hluti, sem hann kom í lag og smíðaði það sem til þurfti. Skeifur og brennijárn smíðaði hann allra manna best. Snyrti- mennska hans og vandvirkni vöktu athygli. Sem dæmi má nefna að með- an hey var þurrkað á velli og sett í sæti, þá voru þau hjá hon- um alveg eins í laginu, vel kembd að utan og slétt með strigayfirbreiðslu sem náði ná- kvæmlega jafn langt niður á alla kanta. Fúlgur voru með sama frá- gangi. Fljótlega eftir að hann tók við búi, kom til hans ráðskona, Kristín Valdimarsdóttir, með þremur börnum sínum. Þau gift- ust nokkru síðar og eignuðust þrjár dætur, nú uppkomnar og hafa þær tekið við jörðinni. Þórarinn sat mörg ár í hreppsnefnd Þverárhrepps og fleiri nefndum hreppsins. Hann hafði þar hreinskiptar og ákveðnar skoðanir, sem að jafn- an voru teknar til umfjöllunar. Hann var einn traustasti stuðningsmaður skólabyggingar- innar á Þorfinnsstöðum og flutti góðar tillögur í því máli, sem voru mikils virði í þeim átökum sem voru um það mál. Þau hjón brugðu búi 1988 og fluttu til Grindavíkur og áttu þar heima síðan, en þau komu norður að Valdalæk á hverju vori og dvöldu þar sumarlangt. Þetta vor komu þau ekki vegna veikinda Þórarins, enda stefndi að því er verða vildi. Við Þórarinn höfum þekkst frá því að ég komst á legg og áttum mikil og góð samskipti alla tíð, bæði í búskap og öðrum störfum. Eru mér minnisstæðar marg- ar útreiðarferðir á sunnudögum að sumri til, út á nes og vestur í dali, sem við fórum saman á sjötta áratug síðustu aldar, ásamt Sigga á Ósum. Þar var oft fjöldi manns sam- an á útreiðum í sól og blíðu. Var dreypt á víni og mikið sungið. Þórarinn söng þá oft með sinni góðu rödd uppáhaldslagið sitt og kunni utan að öll þrjú erindin, þó að aðrir kynnu ekki og leiddi því sönginn á þessu gullfallega ljóði. Ljómar heimur logafagur, lífið fossar, hlær og grær. Nú er sól og sumardagur, söngvar óma fjær og nær. Vorsins englar vængjum blaka, vakir lífsins heilög þrá. Sumarglaðir svanir kvaka suður um heiðarvötnin blá. Hvílir yfir hæðum öllum himnesk dýrð og guðaró. Yfir jöklum, frammi á fjöllum, fellir blærinn þokuskóg. Nú er gott að vaka, vaka vera til og eiga þrá. Sumarglaðir svanir kvaka suður um heiðavötnin blá. Drekk ég glaður fjallafriðinn, fylli skálar sólskinsró. Teigar ljós við lækjarniðinn lítil rós í klettató. Sé ég fagra sýn til baka, sólareld og fjöllin blá. Nú er gott að vaka, vaka vera til og eiga þrá. (Friðrik Hansen.) Ég, og við hjónin bæði, þökk- um Þórarni innilega fyrir góð kynni og ánægjulega samveru á lífsleiðinni og sendum konu, börnum og öðrum aðstandend- um innilegar samúðarkveðjur. Agnar og Hlíf. Þórarinn Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.