Morgunblaðið - 26.08.2016, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2016
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16 - www.facebook.com/spennandi
Haust 2016
Vertu upplýstur!
blattafram.is
VANDINN LIGGUR
OFT HJÁ OKKUR
SJÁLFUM.
SAMÞYKKIR ÞÚ
KYNFERÐISOFBELDI?
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Siffon-
túnikur
Str. S-XXL
2 litir
Kr. 8.900
Fylgist með okkur á faceboock Kringlunni 4c – Sími 568 4900
Glæsilegur fatnaður
frá
„Umskipti hafa átt sér stað milli
áranna 2014 og 2016 varðandi
geldingu grísa, séu grísir geltir er
það framkvæmt í samræmi við
ákvæði laga og reglna. Fækkun
geldinga er fagnaðarefni,“ segir í
samantekt á eftirlitsniðurstöðum
Matvælastofnunar, en úttekt
stofnunarinnar á gyltubúum í vor
leiddi í ljós að básahald gyltna og
geldingar grísa eru á undanhaldi.
Þá hefur bógsárum á gyltum
fækkað og eru nú sárin vægari en
áður. Eftirlitið fór fram í apríl og
maí sl.
Farið var í eftirlit á öll svínabú
landsins sem halda gyltur, alls 14
bú. Eftirlitið var framkvæmt af
dýralækni í viðkomandi umdæmi
sem og sérgreinadýralækni svína-
sjúkdóma. Var metið hvort ákvæði
laga nr. 55/2013 um velferð dýra
og ákvæði núgildandi reglugerðar
nr. 1276/2014 um velferð svína
væru uppfyllt.
Í samantekt Matvælastofnunar
kemur fram að bændur hafi í
auknum mæli lagt af geldingar eða
tekið upp bólusetningu gegn galt-
arlykt. „Fimm bú bólusetja grísi
við galtalykt og eru þar með hætt
að gelda grísi. Átta bú voru með
dýralækna til að gelda grísi með
staðdeyfingu og verkjastillandi
meðferð,“ segir í niðurstöðukafla
samantektarinnar.
Einn gelti grísi
sína án deyfingar
Eftirlitsmenn urðu þess varir að
á einu litlu búi var bóndinn að
gelda grísina sjálfur án deyfingar
og verkjastillandi meðferðar.
„[G]erðar voru alvarlegar at-
hugasemdir við það og var úrbóta
krafist strax og hefur geldingum
nú verið hætt.“
Halaklippingar grísa eru sam-
kvæmt upplýsingum Matvæla-
stofnunar á undanhaldi. „Halar
grísa eru ekki klipptir á sex búum.
Átta bú eru að halaklippa grísi án
deyfingar og var það flokkað sem
frávik, en á tveimur þeirra er grís-
unum gefið verkjastillandi lyf
stuttu áður en halaklipping á sér
stað. Frávikum verður fylgt eftir í
næsta eftirliti. Halaklippingar eru
á undanhaldi, en það tekur þó tíma
að geta lagt þær af á öllum búum,
því varnir gegn halabiti eru ná-
tengdar breytingum á aðbúnaði og
þar með þeim fresti sem búum er
gefinn til að ljúka úrbótum,“ segir
í niðurstöðum.
Þá hafa stakkaskipti orðið á
básahaldi gyltna, en rúmur þriðj-
ungur búa hefur allar gyltur í
lausagöngu, rúmur þriðjungur búa
er með lausagöngu að hluta og
unnið er að afnámi básahalds hjá
öllum sem enn nota bása.
Margir bændur
lagt af geldingar
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Grísir Matvælastofnun segir fækkun geldinga fagnaðarefni.
Bógsárum hefur einnig fækkað á gyltum
Séra Davíð Þór
Jónsson hefur
verið kjörinn
sóknarprestur
Laugarnes-
kirkju. Frá þessu
greinir formaður
sóknarnefndar
Laugarnessókn-
ar á Facebook-
síðu kirkjunnar.
Embættið veitist
frá 15. september næstkomandi.
Alls sóttu þrír umsækjendur um
embætti sóknarprests í Laugarnes-
prestakalli í Reykjavíkurprófasts-
dæmi vestra. Auk Davíðs, sem
starfaði sem héraðsprestur á Aust-
urlandi, sóttu þau Inga Harðar-
dóttir guðfræðingur og séra Stef-
án Már Gunnlaugsson,
sóknarprestur á Vopnafirði, um
embættið.
Davíð Þór í
Laugarnessókn
Davíð Þór Jónsson
Nú standa yfir Sandgerðisdagar
sem er bæjarhátíð, sem nær há-
punkti á morgun, laugardag. Fjöl-
breytt dagskrá hefur verið í Sand-
gerði alla vikuna, en formleg setning
með tónlistaratriðum fór fram í
Safnaðarheimilinu á miðvikudags-
kvöld.
Í gær var afhjúpað listaverk sem
heitir Auga og stendur á grjótgarð-
inum við fjöruna. Það samanstendur
af þremur stálrömmum og í gegnum
þá sést síbreytilegt hafið og brimið.
Höfundur verksins er Kolbrún Ví-
dalín myndlistarkona
Fjölbreyttir Sandgerðisdagar
Ljósmynd/Reynir Sveinsson
Sandgerði Rut Sigurðadóttir, forvarna- og frístundafulltrúi, og Sigrún
Árnadóttir bæjastjóri stilla sér upp í einum rammanum í fjörunni.