Morgunblaðið - 26.08.2016, Page 13

Morgunblaðið - 26.08.2016, Page 13
skólanum. Fyrir mér er myndlista- kennsla jafn nauðsynleg og að læra að lesa, reikna og skrifa. Ég sé að börn sem eiga í námsörðugleikum blómstra mörg í myndlistinni. Þess vegna er hún nauðsynleg. Ég hef líka kennt unglingum í myndlistar- vali og mér finnst gaman að sjá að nokkur þeirra hafa haldið áfram og eru komin í myndlistarnám. Mér finnst ég eiga svolítið í þeim.“ Fær óþol og samviskubit Kalli hefur undanfarin ár snúið sér aftur að teikningu og tók að sér að myndskreyta bækur fyrir aðra. Hann hefur líka sent frá sér tvær barnabækur, bókina um Smákon og bókina um Sófus og svínið. Um jólin munu koma út tvær barnabækur eft- ir hann í viðbót, framhald af Smá- koni og bók um íslensku jólasvein- ana. „Ég teikna líka skopmyndir eftir pöntunum, en núna langar mig að snúa mér að málverkinu aftur,“ segir Kalli sem málar eða teiknar á hverjum einasta degi, annars fyllist hann óþoli. „Þetta er einhverskonar samviskusemi, ég fæ samviskubit ef ég sinni þessu ekki. En fyrst og fremst er það ánægjan, mér finnst þetta óendanlega skemmtilegt. Þeg- ar ég var í Myndlista- og handíða- skólanum var mikil umræða um mál- verkið, hvort það væri dautt. Ég var litaður af þessu og mér fannst ann- ars flokks að sinna málverkinu, þannig var andinn. Og að mála raun- sætt verk þótti hallærislegt, liðin tíð. Ég stóð því sem hlýðinn strákur við trönurnar í nokkur ár og málaði ab- strakt. Ég hafði gott af því, en það er ekki ég. Það var tabú að mála fólk og þess vegna fór ég í mótþróa í lok myndlistarnáms míns og ég málaði portrett af fólki sem mitt lokaverk- efni í skólanum. Í portrettunum ligg- ur það sem ég vil gera. Það koma tískubylgjur í myndlist eins og öðru, og þetta verður stundum eins og trúarbrögð, en hver og einn verður að fylgja sínu hjarta, annars er það einskis virði. Maður getur aldrei gert öllum til hæfis. Þetta snýst um hvað maður vill gera sjálfur, annars verður það falskt.“ Mávur Fuglar heilla Kalla líka. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2016 Smiðjuvegi 66 • 200 Kópavogi • Sími 580 5800 • www.landvelar.is Xpert 40 beygjuvélin frá Bystronic er auðveld í notkun og hagkvæm í rekstri. Hún hentar vel þar sem vinnurými er takmarkað og auðvelt er að færa hana til eftir því sem aðstæður krefjast. Auðvelt er að skipta út verkfærum og pressugeta vélarinnar er allt að 40 tonnum. Vinnslustýrður drifbúnaður dregur úr orkuþörf um allt 30% og minnkar slit og skemmdir á vél og verkfærum. Þriggja fasa rafmagn Straumur: 16 amp. Auðveld í flutningum, hvort sem er með lyftara eða á hjólum. Beygjulengd: 1.030 mm Átaksþyngd: 40 tonn Lengdarfærsla: 200 mm Bystronic beygjuvél Notendavæn og þægileg í meðförum Við kynnum þessa frábæru vél á fimmtudag og föstudag kl. 13-17 í húsakynnum Landvéla. Í Kramhúsinu, dans- og listasmiðju við Skólavörðustíg í Reykjavík, verður núna um helgina boðið upp á námskeið í maga- dansi, sem Linnea Færch hefur umsjón með, en hún er margfaldur Danmerk- urmeistari í magadansi og var ein af þeim sem oft komu og kenndu í Kramhúsinu þegar magadansinn var að byrja sitt sjálf- stæða líf hér á Íslandi. Þetta kemur fram á viðburðasíðu Kramhússins sem og að Linnea kenni magadans hvern daga heima í Danmörku. Í kvöld hefst námskeiðið kl. 18 og verður þar meðal annars kynning fyrir byrjendur í magadansi. Vert er að taka fram að hægt er að kaupa stakan tíma, ekki er nauðsynlegt að vera með alla þrjá dagana. Endilega… …skellið ykkur á helgarnámskeið í magadansi Markaðsstemning Það er alltaf mikið líf og fjör á útimarkaðinum. Hljómsveitin Hundur í óskilum hefur getið sér gott orð fyrir frumlega og skemmtilega framsetningu á tónlist. Grípa þeir Svarfdælingar sem skipa sveitina, Hjörleifur Hjartarson og Ei- ríkur G. Stephensen, gjarnan til afar óvæntra hljóðfæra, jafnvel heims- míðaðra og eiga þeir einnig til að snúa upp á hina ýmsu texta og stinga á kýlum samfélagsins. Þeir verða með tónleika í Edinborgarhús- inu Ísafirði í kvöld kl. 21. Á efnisskrá eru lög eftir mörg af ástsælustu tónskáldum samtímans miðað við höfðatölu. Tónleikar Hunds í óskilum Hundarnir skemmtilegu Morgunblaðið/Ómar Hundarnir Hjörleifur og Eiríkur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.