Morgunblaðið - 26.08.2016, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2016
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Tyrkir ákváðuá miðviku-daginn að
blanda sér í sýr-
lenska borgara-
stríðið með meira
afgerandi hætti en áður. Tíu
skriðdrekar og aðrar bryn-
varðar sveitir þustu yfir landa-
mærin og hjálpuðu sýrlensk-
um uppreisnarmönnum að
endurheimta bæinn Jarablus
úr höndum Ríkis íslams. Talið
er líklegt að Tyrkir muni bæta
nokkuð í lið sitt á næstunni og
sauma enn frekar að hryðju-
verkasamtökunum. Hér er um
ákveðna stefnubreytingu að
ræða hjá Tyrkjum, en þeir
hafa hingað til verið tregir til
þess að ljá vesturveldunum lið
í Sýrlandi.
Á yfirborðinu eru aðgerðir
Tyrkja viðbragð við fjölda
sjálfsvígsárása á síðustu miss-
erum sem Ríki íslams hefur
staðið fyrir innan landamæra
Tyrklands, nú síðast þegar
rúmlega fimmtíu manns, þar af
þrjátíu börn, féllu í grimmi-
legri árás á brúðkaup í landa-
mærabænum Gaziantep. Tyrk-
ir hafa því ærna ástæðu til
þess að tryggja það að Ríki
íslams ráði ekki yfir neinum
svæðum þar sem hæglega
megi komast yfir landamærin.
Þá hafa Tyrkir náð að torvelda
mjög birgðaflutninga hryðju-
verkasamtakanna með inn-
gripum sínum.
Það er þó ekki einungis Ríki
íslams sem Tyrkir
vilja vængstýfa
með aðgerðum sín-
um. Sýrlenskir
Kúrdar hafa
reynst helstu
bandamenn Bandaríkjanna og
vesturveldanna í baráttunni
gegn hryðjuverkasamtökun-
um. Tyrkir óttast að vegsemd
Kúrda í Sýrlandi muni aukast
fram úr hófi í þeirri baráttu, og
þannig gefa baráttu kúrdískra
aðskilnaðarsinna norðan
landamæranna byr undir báða
vængi.
Ekki er ljóst á þessari
stundu hversu lengi Tyrkir
hafa hugsað sér að standa í
þessum aðgerðum, en fyrri
reynsla bendir til þess að tyrk-
nesku hersveitirnar gætu ver-
ið margar vikur að ná mark-
miðum sínum, þrátt fyrir að
bandaríski flugherinn styðji
vel við bakið á þeim með loft-
árásum. Að einhverju leyti
gæti það oltið á viðbrögðum
Kúrda, en Tyrkir hafa sett
þeim þá afarkosti að draga all-
ar vígasveitir sínar austur fyr-
ir bakka Efrat á innan við viku.
Ákveði Kúrdar að verða ekki
við því gæti staðan í Sýrlandi
orðið enn flóknari en hún er nú
þegar. Það myndi ekki síst
setja pressu á Bandaríkin og
aðrar vestrænar þjóðir ef
Tyrkir og Kúrdar bærust á
banaspjót á sama tíma og enn á
eftir að ganga endanlega frá
Ríki íslams.
Tyrkir hafa marg-
vísleg markmið í
Sýrlandi}
Flækjan eykst enn
Fagnaðarlætibrutust út í
Kólumbíu í gær
þegar fregnir bár-
ust af því að búið
væri að semja frið
á milli ríkisstjórn-
ar landsins og uppreisnar-
manna í marxísku skæruliða-
samtökunum FARC. Segja má
að tilefni fagnaðarlátanna hafi
verið ærið, þar sem 52 ár eru
liðin frá því að FARC hóf ógn-
aröld sína í landinu.
En þó að samkomulagið sé í
höfn er alls ekki á vísan að róa
með framhaldið. Hálfrar aldar
ófriður markar að sjálfsögðu
djúp spor í samfélagið, og þau
sár verður erfitt að græða. Þá
er engan veginn öruggt að íbú-
ar Kólumbíu muni samþykkja
samkomulagið, en kosið verður
um það í almennri atkvæða-
greiðslu hinn 2. október næst-
komandi.
Það er til dæmis óvíst að al-
mennum Kólumbíumönnum
þyki nóg að gert þegar kemur
að því að refsa þeim FARC-
liðum sem höfðu sig hvað mest
í frammi, en liðsmenn samtak-
anna hafa mörg voðaverk á
samviskunni. Talið
er að allt að
280.000 manns hafi
látist í baráttu
þeirra, auk þess
sem líf fjölmargra
annarra var eyði-
lagt með mannránum, grip-
deildum, og nauðgunum, allt í
nafni marxismans.
Samkomulagið gerir ráð
fyrir því að réttað verði yfir
FARC-liðum fyrir alvarleg-
ustu glæpina, en jafnframt að
refsing þeirra verði milduð,
gangist þeir við brotum sínum.
Munu skæruliðarnir jafnvel
losna við að afplána dóma sína
í fangelsi ef þeir játa, gegn því
að þeir sinni ýmiss konar
þegnskylduvinnu.
Það situr illa í mörgum Kól-
umbíumönnum sem urðu fyrir
barðinu á samtökunum, að
hugsanlega muni kvalarar
þeirra losna við sanngjarna
refsingu. Það gæti því orðið
grunnt á því góða í Kólumbíu
um langa hríð.
Engu að síður verður að
vonast til þess að samkomulag-
ið haldi og að ofbeldið sé að
baki.
Útlit er fyrir að
marxískir skæru-
liðar FARC láti af
ofbeldi sínu}
Horfur á friði í Kólumbíu
F
yrir rúmu ári ritaði ég pistil í Morg-
unblaðið þar sem ég lýsti þeirri
sannfæringu minni að þegar allt
kæmi til alls væri einstaklings-
hyggjan bezta jafnréttisstefnan.
Hvers vegna? Jú, einfaldlega vegna þess að hún
fer ekki í manngreinaálit eftir því af hvaða kyni
fólk er. Samkvæmt henni er fólk einfaldlega ein-
staklingar óháð því sem og af hvaða þjóðernis-
uppruna það er eða hverra manna fólk er yfir
höfuð.
Fólk er einfaldlega metið á eigin verðleikum
og getu til að mynda til þess að sinna ákveðnum
störfum. Hvaða hópum það kann að tilheyra veit-
ir fólki þannig hvorki forskot á aðra né stendur
því fyrir þrifum. Því miður hefur umræðan um
jafnréttismál farið nær alfarið fram á forsend-
um vinstrimanna þar sem allt snýst um það af
hvaða kyni fólk er rétt eins og raunin var í gamla daga.
Bara með öfugum formerkjum ef svo má að orði komast.
Sumir sem gefa sig út fyrir að aðhyllast hægrisinnaðar
hugsjónir hafa stundum viljað stökkva á þann vagn.
Hliðstæðu er fyrir að fara þegar kemur að náttúruvernd.
Dæmin sanna að farsælasta leiðin til þess að varðveita
verðmæti er eignarrétturinn. Þegar ekki fer á milli mála
hver ber ábyrgð á varðveizlunni og hefur beinan hag af því
að verðmætunum sé viðhaldið. Eignarrétturinn er enn-
fremur forsenda verðmætasköpunar. Geti fólk ekki treyst
því að eignarréttur þess sé tryggður er enginn hvati til
þess að skapa verðmæti.
Dæmin sanna sömuleiðis að einstaklings-
framtakið er drifkraftur framfara og verð-
mætasköpunar. Helztu framfaraskref sög-
unnar hafa verið tekin í krafti þess. Þar sem
einstaklingarnir hafa haft svigrúm til þess að
skapa og síðan að njóta afraksturs sköpunar
sinnar. Sköpunar sem aðrir hafa síðan iðulega
notið góðs af í framhaldinu.
Fleira má nefna í þessum efnum. Vinstri-
menn hafa löngum verið miklir áhugamenn
um að hækka skatta á launafólk. En skatta-
hækkun er einfaldlega ávísun á launalækkun.
Launafólk hefur eftirleiðis minna á milli hand-
anna. Að sama skapi felur skattalækkun, líkt
og hægrimenn leggja gjarnan áherzlu á en
koma síðan lítt í verk, í sér launahækkun.
Meira verður eftir í vösum launþega eftir
skatta. Þessi umræða hefur hins vegar rétt
eins og bæði jafnréttismálin og náttúruverndarmálin
nær alfarið verið á forsendum vinstrimanna í stað þess að
fara fram á breiðari grundvelli.
Stjórnmál eiga að snúast um grundvallarhugsjónir.
Stundum getur þurft að gera málamiðlanir en ef engar
eru grunnhugsjónirnar er einfaldlega allt til sölu. Ein
helzta hugsjón hægrimanna er einstaklingshyggjan og
eignarrétturinn. Þar með talið rétturinn til þess að ráð-
stafa eigin tekjum. Hægrimenn eiga ekki að gefa afslátt í
þeim efnum heldur halda grunnhugsjónum sínum hátt á
lofti og sannfæra aðra um að þeir bjóði einfaldlega upp á
beztu stefnuna. hjortur@mbl.is
Hjörtur J.
Guðmundsson
Pistill
Bezta stefnan
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Ópíóíðalyfjanotkun hefuraukist mikið í þjóðfélaginusíðustu ár, ekki bara hjáfíklum heldur líka hjá fólki
almennt sem er t.d. með sjúkdóma.
Þetta segir Þórarinn Tyrfingsson yf-
irlæknir á Vogi. Undir flokk ópíóíða-
lyfja falla m.a. contalgin, oxycodone
og fentanýl sem eru vinsæl til vímu-
efnaneyslu. Hægt er að rekja nítján
dauðsföll á Íslandi á árinu 2015 til
neyslu á ópíóíða-lyfjum eins og fent-
anýls en lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu rannsakar nú hvort andlát
ungs manns um síðustu helgi megi
tengja neyslu lyfsins.
Læknalyf virðast vera það sem
fíklar sækja í umfram ólögleg fíkni-
efni en rannsóknir hafa sýnt að fíklar
velja lyf eins og rítalín uno fram yfir
önnur efni. Eftirsóttasta lyfið meðal
fíkla á Íslandi í dag er contalgin, ox-
ycodone er einnig mikið notað og þá
fentanýl. Öll hafa þau sömu verkun.
Götumarkaðsvirðið er hátt á þessum
lyfjum, sterkasta pakkningin af ox-
ycodone er 80 mg, í pakkningunni
eru 98 stykki og er götuverðið núna
5.000 til 8.000 kr. fyrir eitt stykki. Því
væri hægt að auðgast um hálfa millj-
ón til átta hundruð þúsund á því að
selja oxycodone í stykkjatali á göt-
unni ef ein pakkning fæst ávísuð frá
lækni. Þórarinn segir að verðbreyt-
ingar á lyfjum séu mjög hraðar, verð-
ið sé mismunandi eftir vikudögum og
tíma sólarhringsins. „Contalgin og
oxycodone ganga mikið kaupum og
sölum en ekki fentanýl. Það kemur
stundum inn og er þá kannski bundið
við einstakling sem er í sérstökum
tengslum,“ segir Þórarinn.
Í samstarf við lögregluna
Ólafur B. Einarsson, verkefnis-
stjóri lyfjamála hjá Embætti land-
læknis, segir að þar hafi verið fylgst
með neyslu á lyfseðilsskyldum lyfj-
um eins og fentanýli í nokkurn tíma.
Embættið hyggur bráðlega á fund
með lögreglunni til að ræða þau mál.
„Við erum að reyna að átta okkur á
því hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis
í lyfjaávísunum til þessara ein-
staklinga. Í mörgum tilvikum sjáum
við það ekki, þeir sem eru í þessu
ástandi fá lyfin oftast með öðrum
hætti heldur en ávísuð beint sjálfir,“
segir Ólafur. Erfitt er að koma í veg
fyrir að lyf gangi kaupum á sölum á
almennum markaði en vonir standa
til, að sögn Ólafs, að ávinningur gæti
náðst ef samstarf Embættis land-
læknis við lögregluna verður að veru-
leika.
Gera sér upp veikindi
Allir ávísaðir lyfseðlar, hvort
sem þeir eru handskrifaðir eða raf-
rænir, eiga að fara inn í lyfjagagna-
grunn embættisins en um 900 læknar
hafa aðgang að honum. Læknar
mættu þó vera virkari í notkun
gagnagrunnsins að sögn Ólafs en þar
inni geta þeir m.a. séð hvort tilteknir
einstaklingar eru að ganga á milli
lækna eða að fá óeðlilega mikið magn
af verkjalyfjum ávísað á sig. „Þessi
grunnur er að sanna sig varðandi
ýmis lyf en það eru vandræði þegar
fólk er að gera sér upp veikindi til að
fá lyf til þess að selja,“ segir Ólafur.
Þórarinn segir að á Vogi hafi
þau orðið vör við notkun
fentanýls í mörg herrans
ár. „Áður fyrr voru
þessi sterku verkjalyf
aðeins notuð innan
sjúkrahúsa, en það hef-
ur gjörbreyst á kannski
tveimur áratugum, nú
fær fólk lyfin
heim og þann-
ig komast
þau í um-
ferð.“
Ópíóíðalyf eftirsótt
til vímuefnaneyslu
Eftirsótt Lyfseðilsskyld lyf eins og fentanýl eru eftirsótt til vímuefnaneyslu.
Hættan af notkun ópíóíðalyfja er
ekki minni en af ólöglegum
fíkniefnum. Fentanýl kemur í
plástraformi en til vímuefna-
neyslu er plásturinn oftast
leystur upp og fíkillinn sprautar
efninu í sig. Mjög erfitt er að
átta sig á því hversu hár styrk-
urinn er á efninu við slíka notk-
un, en styrkurinn í plástrunum
getur verið gríðarlega hár og því
auðvelt að taka of stóran
skammt. Efnin valda önd-
unarlömun.
„Erfitt er að reikna út hvert
þolið fyrir lyfjunum er nema það
sé notað á hverjum degi. Þannig
að nýr neytandi er í mikilli hættu
á að deyja ef hann fer að nota
lyfin því hann misreiknar þolið.
Þá er fentanýl sérstaklega
hættulegt hvað það varðar að
erfitt er að vita hversu stór
skammturinn er, erfitt er að átta
sig á hvaða magn er fengið
með því að leysa upp
plásturinn,“ segir
Þórarinn.
Auðvelt að
taka of mikið
FENTANÝL
Þórarinn Tyrfingsson