Morgunblaðið - 26.08.2016, Page 37

Morgunblaðið - 26.08.2016, Page 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2016 Ben-Hur Eftir að hefðarmaðurinn Judah Ben Húr er ranglega sakaður um glæp af æskuvini sínum Messala og í kjölfar- ið hnepptur í þrældóm sver hann þess dýran eið að hefna sín. Á sama tíma kynnist hann Jesú og verður djúpt snortinn af boðskap hans. Myndin er bygg á skáldsögunni Ben- Hur: A Tale of the Christ eftir Lee Wallace sem út kom 1880. Nokkrar myndir hafa verið gerðar eftir bók- inni, þeirra frægust myndin frá 1959 með Charlton Heston í titilhlutverk- inu. Leikstjóri myndarinnar er Tim- ur Bekmambetov, en í helstu hlut- verkum eru Jack Huston, Morgan Freeman, Toby Kebbell og Pilou As- bæk. Rotten Tomatoes: 30% Metacritic: 37/100 Pelé: Birth of a Legend Í myndinni Pelé: Birth of a Legend er farið yfir lífshlaup knattspyrnu- mannsins Pelé með sérstaka áherslu á bakgrunn hans og æsku sem ein- kenndist af fátækt. Leikstjórar eru Jeff og Michael Zimbalist. Kevin de Paula leikur Pelé fullorðinn en Leon- ardo Lima Carvalho leikur hann ungan. Pelé sjálfum bregður fyrir í örlitlu hlutverki sem hótelgestur. Rotten Tomatoes: 19% Metacritic: 39/100 A Clockwork Orange Bíó Paradís býður í kvöld kl. 20 upp á staka sýningu á klassísku myndinni A Clockwork Orange frá 1971. Sagan gerist í Bretlandi í dy- stópískri framtíð þar sem tóm- hyggja og ofbeldishneigð einkennir ungar kynslóðir sem alast upp í sjúku samfélagi sem er allt í senn spegilmynd fortíðar, nútíðar og framtíðar. Myndin byggist á sam- nefndri skáldsögu Anthony Burg- ess. Leikstjóri er Stanley Kubrick og í aðalhlutverki er Malcolm McDowell. Rotten Tomatoes: 90% Metacritic: 78/100 Bíófrumsýningar Hefnd, fótbolta- goðsögn og klassík Ofbeldismaður Malcolm McDowell í hlutverki sínu sem Alex. Tónlistarstarf Fella- og Hóla- kirkju hefur verið einkar líf- legt í sumar en í kvöld mun franski orgel- leikarinn Aure- lion Fillion efna til hljómleika í aðalsal kirkj- unnar klukkan 20. Fillion kemur til með að leika klassísk barokkverk auk nokk- urra nútímaverka. Ætlun org- elleikarans með þeirri blöndu sinni er að sýna fram á tengslin þar á milli. Franskir tónar í Efra-Breiðholti Aurelion Fillion Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Viðfangsefni sýningarinnar er í raun tvíþætt. Annars vegar að horfa á fjölbreyttar birtingar- myndir leirs og hins vegar að sjá hvernig ólíkir einstaklingar nálgast viðfangsefnin á ólíkan hátt,“ segir Hildur Steinþórsdóttir en hún fer með sýningarstjórnun sýning- arinnar Tilraun – leir og fleira ásamt Rúnu Thors. Sýningin verður opnuð í aðalsal Hafnarborgar í kvöld klukkan 20 en þar mun tutt- ugu og einn listamaður sýna verk sín. Leirinn er nær alls staðar Sýningin er samtal sjónlista við leir þar sem vísað er í ólíka heima iðnaðar, lista, nytjalista og hönn- unar. Þátttakendur sýningarinnar koma úr ólíkum starfsstéttum sjón- lista. Þeir nota allir leir í verkum sínum en voru gefin mismunandi orð til að vinna þau út frá. Sýning- arstjórn er í höndum hönnunar- tvíeykisins TOS sem er eins og áður segir skipað arkitektinum Hildi og vöruhönnuðinum Rúnu en hug- mynd þeirra að sýningunni var val- in úr innsendum tillögum síðastliðið haust þegar kallað var eftir til- lögum að haustsýningu í safninu fyrir árið 2016 en safnið kallar ár- lega eftir tillögum að haustsýningu hvers árs. „Við Rúna höfum í gegnum tíðina unnið mest að fjölbreyttum hönn- unarverkefnum tengdum steypu. Við höfum auk þess verið að kenna saman í Listaháskólanum og í Myndlistaskólanum í Reykjavík. Aðdragandinn að sýningunni var sá að fyrrverandi nemandi Rúnu, sem er í stjórn Leirlistafélags Íslands, hafði samband við hana og skoraði á okkur tvær að hanna sýningu og senda í keppnina. Sýningin er ekki á vegum Leirlistafélagsins en félag- ið er hins vegar þrjátíu og fimm ára í ár og var umhugað um að leirinn yrði sýnilegur í ár. Okkur fannst hugmyndin skemmtileg og ákváðum að taka hana lengra. Við lögðumst því í hugmyndavinnu og niðurstaðan varð þessi sýning, Til- raun – leir og fleira,“ segir Hildur. „Við gáfum listamönnunum mis- munandi orð sem þeir unnu síðan verkin út frá. Leir er einstaklega áhugavert efni og hægt að vinna ýmislegt úr honum. Hér áður fyrr voru heilu byggingarnar unnar úr leir og í dag handleikum við leir daglega, til að mynda er postulín í kaffibollum og flestöllum baðher- bergjum. Oddurinn á flugvélum er auk þess búinn til úr keramíki þar sem efnið er einkar sterkt. Leir er einnig notaður í tannviðgerðir auk þess sem smáhlutir í tölvuiðn- aðinum eru margir hverjir úr ker- amíki. Með orðunum sem við gáfum listamönnunum settum við því leir í mismunandi samhengi sem sýnir ólíkar birtingarmyndir hans. Lista- mönnunum fannst það spennandi áskorun að fá þennan útgangspunkt til þess að vinna út frá og útkoman er mjög áhugaverð og skemmtileg,“ segir hún. Sýningarstjóraspjall á morgun „Þessi hópur er búinn að vinna að sýningunni frá því í febrúar og uppskeruhátíðin verður í kvöld. Verkin eru mjög fjölbreytt og sýn- endur nálgast leirinn frá ólíkum sjónarhornum og viðhorfum. Þau eru ekki öll úr leir en efnið kemur mjög sterkt við sögu í öllum verk- unum. Þarna má finna myndbands- verk, skúlptúra auk ýmiss annars. Sum verkin eru fullmótuð en önnur sýna rannsókn eða vinnuferli. Okk- ur fannst það einmitt mjög áhuga- vert að sjá mismunandi verk á mis- munandi stigum,“ segir Hildur. „Þátttakendurnir sem eru að sýna hérna þekktust ekki innbyrðis áður og koma úr mjög ólíkum geir- um. Við erum búin að vera að kynna þá hvern fyrir öðrum á meðan þeir eru búnir að vera að setja upp verk- in. Þetta er algjör draumahópur og það er búið að vera ótrúlega gaman að vinna með honum. Maður trúir því varla að þetta sé tuttugu og einn listamaður, það er allt búið að ganga svo vel. Okkur finnst frábært að Hafnarborg hafi valið þessa sýn- ingu til uppsetningar en hún mun standa til 23. október. Þá verður einnig málþing og vinnustofa með- an á sýningunni stendur,“ segir Hildur að lokum en þess má geta að sýningarstjórarnir verða með sýn- ingarstjóraspjall fyrir gesti Hafn- arborgar á morgun klukkan 14. Þá má þess einnig geta að sýning sænska hönnuðarins Jenny Nord- berg, 3 – 5 sekúndur – Hröð, hand- gerð framleiðsla, verður einnig opn- uð í Sverrissal Hafnarborgar á sama tíma en Nordberg mun flytja gjörning á opnuninni. Margt býr í leirnum  Sýningin Tilraun – leir og fleira verður opnuð í aðalsal Hafnarborgar í kvöld  Tuttugu og einn listamaður sýnir þar listaverk sem öll eru tengd leir Morgunblaðið/Ófeigur Leir Hildur Steinþórsdóttir og Rúna Thors eru sýningarstjórar sýningarinnar. Listaverk Verkin á sýningunni eru öll tengd leir á einn eða annan hátt. Frá morgni líkama og sál fyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama Laugarnar í Reykjavík BEN-HUR 8, 10:35 NÍU LÍF 4, 6 HELL OR HIGH WATER 5:50, 8, 10:10 SAUSAGE PARTY 10:30 LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ÍSL.TAL 4, 6 LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ENS.TAL 4 JASON BOURNE 8 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar TILBOÐ KL 4 TILBOÐ KL 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.