Morgunblaðið - 31.08.2016, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2016
Golli, ljósmyndari
Morgunblaðsins,
kom við á bryggj-
unni í Grímsey.
54
31.08.2016
SJÁVARÚTVEGUR
31 | 08 |16
Útgefandi
Árvakur
Umsjón
Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is
Blaðamenn
Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is
Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is
Guðrún Guðlaugsdóttir
gudrunsg@gmail.com
Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
Auglýsingar
Katrín Theodórsdóttir kata@mbl.is
Forsíðumyndina tók Golli
Prentun
Landsprent ehf.
Mengun af völdum
ör-plastagna við Ísland er
uggvænleg.
14
Margar sögur eru til af
vöskum konum til sjós, og
mega ekki falla í gleymsku.
18
Hafnarstjórinn í Hafnarfirði
segir mannlíf og atvinnulíf
blómstra í Firðinum.
38
Gústav á Sjávargrillinu
kann með ljúffengt og
ferskt sjávarfang að fara.
50
Íslendingar sækja sjóinn af sama kappi, dugnaði og ósérhlífni og
gert hefur verið frá alda öðli. Það hefur ekkert breyst. Það sem hefur
hins vegar tekið miklum stakkaskiptum er umgjörð sjósóknar og
sjávarútvegsins alls, því í dag er þessi grundvallariðnaður okkar Ís-
lendinga orðinn að hátæknigrein, þar sem íslenskt hugvit knýr hjólin
og afraksturinn er búnaður sem telst á heimsmælikvarða. Það er við
hæfi því afurðin sem um ræðir – íslenski fiskurinn í öllum sínum fjöl-
breytileika – hefur fyrir löngu skapað sér nafn á heimsvísu sem mat-
væli á við það sem allra best gerist í heiminum. Þetta er meðal þess
sem gefur að líta á Sjávarútvegssýningunni 2016 sem fram fer í lok
þessa mánaðar í báðum byggingum Laugardalshallar, eins og sagt
er frá í viðtali við framkvæmdastjóra sýningarinnar hér í blaðinu.
Auk þess er tekið hús (eða réttara sagt bátur!) á sjósóknurum vítt
og breitt um landið, ungum sem öldnum, og spjallað um lífið á sjó,
jafnt nú sem á árum áður. Þá er reynt að varpa nokkru ljósi á hlut
kvenna í sögu sjómanna hér á landi en þeim kafla hefur að margra
mati ekki verið haldið nægilega á lofti; þó eru þar á meðal merkar
sögur af fræknum konum sem gáfu hraustum körlum lítt eftir.
Sjávarútvegurinn á sér fjölmargar birtingarmyndir og þær gefur
margar að líta hér í blaðinu, þó ekki verði honum öllum gerð skil á
litlum 56 blaðsíðum. Sjávarútvegurinn er eilíf uppspretta sagna.
Morgunblaðið/Golli
Hátækni – nýsköpun – afkoma