Morgunblaðið - 31.08.2016, Side 40

Morgunblaðið - 31.08.2016, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2016 Hamraborg 1 • Kópavogur • Sími 560 0000 • www.safir.is • safir@safir.is Hafsjór af þekkingu Sérhæfum okkur í sölu: Grunnur að góðum viðskiptum • Fyrirtækja • Aflaheimilda • Skipa og báta U m langt skeið hafði Smári Jósafatsson vél- virkjameistari gengið með nýja toghlerahönn- un í huganum. Eftir langt ferli lét hann loks verða af því að smíða módel og gera próf- anir, og lofa nýju toghlerarnir mjög góðu. Hlerana kallar hann „Ekkó“. Smári er enginn nýgræðingur á toghlerasviðinu en faðir hans stofnaði og rak J. Hinriksson sem framleiddi meðal annars Poly-Ice toghlerana í marga áratugi. Hampiðjan keypti rekstur J. Hin- riksson árið 1999 en fram að því hafði Smári varið nær allri sinni starfsævi hjá fyrirtækinu. Minnkað viðnám Fyrir hinn almenna lesanda sem ekki þekkir hvernig veiðar með trolli fara fram, þá hafa hlerarnir það hlutverk að halda trollinu opnu svo að fiskurinn eigi greiða leið þar inn. „Lögun Ekkó-toghleranna togar þá sjálfkrafa út og fiska þeir á minna horni en almennt, sem þýð- ir minna viðnám sem svo leiðir til olíusparnaðar. Ekkó-hlerarnir eru tvöfaldir, eða hólfaðir, og fyllast af vatni á veiðum og tæmast svo aft- ur þegar þeir koma upp,“ útskýrir Smári. Formið á Ekkó-hlerunum gerir þá sterkari sem síðan minnkar viðhaldskostnað. Þá má breyta þyngd hleranna án þess að taka þá inn á dekk. Hægt er að opna hólf á hleranum og breyta þyngd- inni, þar sem hlerinn hangir í gálganum, með því að bæta við lóðum. Tilraunir lofa góðu Módel af Ekkó-hlerum var prófað í veiðarfæra-tilraunatankinum í St. John’s á Nýfundnalandi. „Í St. John’s er að finna einn stærsta sjávarútvegsháskóla Kanada. Þar hafa verið stundaðar veiðarfæra- prófanir í yfir tvo áratugi,“ segir Smári. „Stóðu prófanir yfir í tvisv- ar sinnum tvo daga í senn með nokkurra mánaða millibili og skil- uðu mjög góðum niðurstöðum.“ Ekkó-hlerar voru í framhaldinu smíðaðir í fullri stærð og prófaðir á hafrannsóknaskipinu Bjarna Sæ- mundssyni. „Þar voru sömu tog- hlerarnir tengdir við bæði flottroll og botntroll með hefðbundnum tengingum í bakstroffur og einnig með nýjum tengiaðferðum og allt virkaði skínandi vel,“ upplýsir Smári. Á markað fljótlega Þróun Ekkó-hleranna og prófanir í fullri stærð halda áfram. Segir Smári stefnt að því að hlerarnir komi á markaðinn áður en árinu lýkur. Vonast hann til að hönnunin skapi atvinnu í landinu og að hler- arnir verði góð útflutningsvara. Nokkur einkaleyfi tengd hönn- uninni eru í umsóknarferli. „Þróunarferli nýju hleranna sýnir að þeir geta sparað olíu og þar er til mikils að vinna,“ segir Smári sem hefur notið aðstoðar HB Granda í öllu ferlinu. ai@mbl.is Toghlerar sem gætu markað tímamót Morgunblaðið/Þórður Úthugsað „Lögun Ekkó-toghleranna togar þá sjálfkrafa út og fiska þeir á minna horni en almennt, sem þýðir minna viðnám,“ útskýrir Smári Jósafatsson. Morgunblaðið/Þórður Munur Ekkó-toghlerar á Bjarna Sæmundssyni fyrir vel heppnaðan túr. Tilraunir með Ekkó- toghlerana lofa mjög góðu. Lögunin þýðir minna viðnám ofan í sjónum og skilar sér meðal annars í minni eldsneytisnotkun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.