Morgunblaðið - 31.08.2016, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 31.08.2016, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2016 J á, þú gerir það eiginlega, Liv- erpool er nefnilega í sjón- varpinu. Viltu hringja aðeins seinna, svona um tvöleytið.“ Þannig hófst samtal okkar Sævars Jónssonar, trillukarls í Nes- kaupstað, en svona svaraði hann eft- ir að hafa verið spurður hvort ég hringdi á óheppilegu augnabliki. Þegar við tókum upp þráðinn aft- ur var Sævar ekkert ósáttur við leik- inn þótt lyktað hafi honum með jafn- tefli. Í glímunni við þann gula á trillu sinni er hann hins vegar öllu vanari sigri og góðum afla. „Síðustu árin hef ég einungis stundað strandveiðar á sumrin, á C- svæðinu, eins og aðrir austfirskir trillukarlar. Nú er maður farinn að slá af og hef því látið strandveið- arnar duga. Þær gengu bara þokka- lega á okkar svæði, bæði hjá sjálfum mér og öðrum. Ég ætlaði nú bara að taka þetta rólega í sumar en ég var með um 20 tonn, sem er gott á svona hæggengum báti,“ segir Sævar. „Hann lagði bann á Rússana!“ Bátur hans heitir Mónes NK-26 og segir Sævar hann ganga bara 6-7 sjómílur á klukkutímann, „meðan hraðfiskibátarnir þeytast á miðin á 20-30 mílum. Þeir eru fljótari í för- um. Það hefur verið nokkuð langt að sækja fiskinn, en núna í sumar hefur hann þó fært sig aðeins nær landi. Við vorum mikið að sækja út á 10 til 15 mílur en hann var nokkru nær í sumar. Áður fyrr sóttu trillur aldrei svona langt út. Þetta hefur breyst eftir að makríllinn fór að ganga hérna, eftir það hefur fiskurinn stað- ið dýpra.“ - Er hann þá ekki vænni en áður? „Já, miklu, miklu vænni en við átt- um að venjast hér áður fyrr. Það er bara svoleiðis.“ - Landaðir þú og þínir félagar á markaði? „Já, allt. Það fer allt á markað og yfirleitt er mjög vel gengið um fisk- inn. Þetta er allt saman sett í krapa niður í kör, mjög vel gengið um hann.“ - Hafið þið fengið ásættanlegt verð fyrir aflann? „Já já, en það er slöttungs lægra en í fyrra, þökk sé Gunnari Braga ut- anríkisráðherra fyrrverandi.“ - Hvað gerði hann af sér? „Hann lagði bann á Rússana, þetta hefur allt áhrif. Og svo er krónan að styrkjast líka, það er nú bara þannig. Yfir 20 vertíðar á loðnunni - Rærð þú einn á báti? „Já, núna í seinni tíð hef ég verið einn á mínum báti. Ég er búinn að vera rúm 50 ár í slorkössunum, það er nú ekkert annað. Svo er ég búinn að eiga minn eigin bát í 45 ár eða eitthvað svoleiðis,“ segir Sævar sem er 68 ára. „Fyrstu árin var maður á stóru bátunum á veturna, þá tók maður trilluna á land yfir þann tíma en reri á henni á sumrin. Ætli ég hafi verið eitthvað yfir 20 vertíðar á loðnunni, á skipum Síldarvinnsl- unnar og annarra héðan heima í Neskaupstað. Almenn ánægja ríkir með strandveiðarnar - Þú hefur verið farsæll til sjós? „Já, maður hefur krafsast gegnum þetta allt saman án þess að hljóta mikinn skaða af, það er bara svoleið- is sko. Sjómennskan breyttist rosa- lega á þessum trillum eftir að menn fengu vissar aflaheimildir á bátana. Þá hættu menn að sækja í eins stíf- um veðrum, já það gjörbreyttist bara og meðferð á fiski batnaði líka. Þetta var í kringum 1980.“ Sævar sagði að strandveiðarnar hafi verið sérstakt fagnaðarefni og sér virtist, að upp til hópa ríkti ánægja með þær. „Menn virðast bara mjög ánægðir með þær hvar- vetna, allan hringinn kringum land- ið. - Þær hafa gefið mönnum færi á að sækja svolítið sjóinn? „Já, og afleiðingin er að það er eitthvað fleira en bara stóru skipin sem sigla inn og út úr fjörðunum. Það hefur haft góð áhrif og aukið lífið í höfnunum. Það er sko engin spurn- ing. Við erum náttúrulega vel settir hér á Norðfirði með svo stórt og öfl- ugt fyrirtæki sem Síldarvinnslan er með stór og mikil skip, en smábát- arnir eru partur af lífinu á hafn- arsvæðinu,“ sagði Sævar Jónsson að lokum. agas@mbl.is Rúm 50 ár í slorkössunum Trillukarlinn Sævar Jónsson frá Neskaup- stað á að baki hálfa öld til sjós og veit því hvað hann syngur þegar sjó- sóknin er annars vegar. Hann fagnar strandveið- unum en er síður hrifinn af því að vera ónáðaður þegar Rauði herinn frá Liverpool er að spila – sem er vitaskuld skilj- anlegt! Aflakló Sævar Jónsson fagnar góðum árangri um borð í trillu sinni. Hann segir almenna ánægju ríkja með strandveiðarnar, hringinn kringum landið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.