Morgunblaðið - 31.08.2016, Side 24

Morgunblaðið - 31.08.2016, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2016 F yrirtæki hans var stofnað ár- ið 2004 og hefur vaxið og eflst allar götur síðan. Er það að meirihluta í eigu Egersund Group í Noregi. Egersund Island er leiðandi fyr- irtæki á sviði sölu, veiðarfæragerðar og viðgerða á flottrollum og nótum ásamt því að bjóða upp á allar vörur og þjónustu sem við koma uppsjáv- arveiðum. Starfsmenn þess hafa ára- tuga langa reynslu af framleiðslu veiðarfæra og búnaði til veiða. Öll flottroll eru framleidd samkvæmt óskum hvers viðskiptavinar til að tryggja hámarksárangur veiða. Á heimasíðu fyrirtækisins segir að það hafi með netaverkstæðinu á Eskifirði á að skipa einni fullkomn- ustu aðstöðu til viðgerða á síldar- og loðnunótum og veiðarfæragerðar í Evrópu. Eins og nærri má geta er aðstaða þar til viðgerða sem þessara mjög góð en öll veiðarfæri er hægt að taka frá skipshlið og beint inn á nótaverkstæði sem flýtir mikið fyrir verkefnunum. Byggðu upp þegar allt hrundi _Við erum að framleiða snurpu- nætur fyrir loðnu og síld og hvaðeina og svo framleiðum við troll fyrir allar uppsjávartegundir, síld og makríl og eins poka fyrir kolmunna, síld og makríl. Það má eiginlega segja að við séum 100% í uppsjávarveiðarfær- um,“ segir Stefán. Segja má að Egersund sé vel staðsett miðað við veiðar á síld, loðnu, kolmunna og makríl. Fyrirtækið sinnir einnig öðr- um verkefnum. Þegar allt hrundi árið 2008 réðst fyrirtækið í að byggja 2.000 fer- metra netaverkstæði á Eskifirði. „Með tilkomu þess gátum við geymt öll veiðarfæri inni. Breytingin með nýja húsið, ja, það var eins og maður væri að byrja í nýrri vinnu. Áður fyrr geymdum við öll veiðarfærin úti, og gat þá allt verið á kafi í snjó og allt frosið. Við vorum að vinna jafnvel á götunum og niðri á bryggju við þessar aðstæður. Í dag leggjast veiðiskipin upp að bryggjunni við endann á verkstæðinu og allt er tek- ið beint inn í hús. Nú fer 99% vinn- unnar fram innandyra í upphituðu rými og menn eru þar bara á stutt- ermabol,“ segir Stefán. Hótelstjóri sömuleiðis Segja má að hann sé hótelstjóri því Egersund tekur að sér að hýsa veiðarfæri sem eru í árstíðabundinni notkun og ekki í notkun árið um kring. Þörf var fyrir „netahótel“ og almennt höfðu fyrirtæki ekki haft gott húsnæði til að geyma þau miklu verðmæti sem í veiðarfærum felast. Að sögn Stefáns er „gistirými“ í hót- eli þessu á þrotum. „Það stendur til á næsta ári að lengja bryggjuna um einhverja 30 metra og erum við að velta því fyrir okkur að byggja við húsið. Veiðarfærageymslan er orðin full, við getum eiginlega ekki bætt neinum við. Fengjum við nýja við- skiptavini værum við komin í hálf- gerð vandræði.“ Egersund rekur skrifstofu í Reykjavík með einum starfsmanni, sölustjóra fyrirtækisins, Benedikt Erni Stefánssyni. „Hann stjórnar öllum innkaupum í fyrirtækinu og eins höfum við verið að selja þar allt sem þarf til laxeldis, nema sjálfan laxinn. Á þá vöru er fengin löng og góð reynsla úr laxeldi í Noregi. Við rennum hýru auga til þess laxeldis sem er verið að starta. Til dæmis stendur til að hefja eldi hér í Reyð- arfirði næsta sumar, þá er heilmikið um að vera á Vestfjörðum og hér eystra er laxeldi í Berufirði.“ Spennandi tímar á Eskifirði Stefán segir að margt spennandi sé að eiga sér stað í sjávarútvegs- geiranum á Eskifirði sem annars staðar og nóg um að vera. „Eskja er að byggja hér upp flottasta uppsjáv- arfrystihús á Íslandi og þótt víðar væri leitað,“ nefnir hann sem dæmi. „Hjá okkur er alltaf nóg að gera og fyrirtækið gengur fínt. Til gam- ans má geta að ég er hér með fjóra stráka sem eru að læra netagerð. Það virðist vera vakning í þeirri grein og er það vel. Við höfum þjón- að öllum stærstu útgerðum landsins. Og eins höfum verið að þjónusta hérna bæði norsk skip og færeysk og seldum troll til Færeyja í síðustu viku. Það er yfirleitt mikið að gera í netaviðgerðum fyrir norska flotann þegar hann er hér á loðnuveiðum á veturna. Hjá okkur fá allir þjónustu, saman hvaðan þeir koma, þá reddum við því bara,“ segir Stefán B. Ingv- arsson. agas@mbl.is „Þá reddum við því bara“ „Það er bara mjög fínt að gera, hér erum við með 16 starfsmenn og það er nóg að gera. Við þurfum ekki að kvarta neitt,“ segir Stefán B. Ingvarsson, fram- kvæmdastjóri netagerð- arinnar Egersund Ísland á Eskifirði í samtali við Morgunblaðið. Hótelgisting Gistirými í netahóteli Egersund er fullnýtt og þörf fyrir stærra hús- næði undir það. Stefnt er á frekari stækkun fyrir bragðið, segir stjórinn. Hátæknibúnaður Aðstaða til netasmíði er framúrskarandi góð á netaverkstæði Egersund á Eski- firði. Ekki veitir heldur af því eftirspurnin eykst sífellt og umsvifin í framhaldinu. Eskifjarðarnætur Síldar- og loðnunætur eru svo sannarlega engin smásmíði en framleiðsla þeirra fer fram í upphituðu húsnæði Egersund á Eskifirði. Ungur nemur, gamall temur Þeir verða um síðir fullnuma netagerðarmenn, nemarnir fjórir sem læra netagerð hjá Egersund á Eskifirði. Þeir heita Jóhann Óli Ólafsson, Andri Bergmann Þórhallsson, Þorvaldur Einarsson og Ármann Sturlaugsson. Alls eru starfsmennirnir 16 talsins hjá Egersund Ísland og næg eru verkefnin. Þróunin Stefán segir þá hjá Egersund horfa til enn frekari stækkunar húsakynna netaverkstæð- isins á Eskifirði á næsta ári.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.