Morgunblaðið - 31.08.2016, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2016
Þ
eir sem eiga leið um hafn-
arsvæðið – sem skipar
ekki svo lítið hlutverk í
svip bæði og bæjarstæði
þegar kemur að Firðinum
fagra – fara vart á mis við það
hversu mjög umgangur almennings
og umsvif fyrirtækja hafa aukist síð-
ustu mánuði og misseri. Lúðvík tek-
ur undir þetta enda fáir í betri að-
stöðu til að meta þróun
umhverfisins við höfnina en einmitt
hann, hafnarstjórinn.
„Jú, ég held að þú hittir þarna
naglann á hausinn. Bæði mannlífið
og atvinnulífið er að eflast og aukast
á hafnarsvæðinu.“ Ég tjái okkar
manni samstundis að þar með sé
fyrirsögnin okkar að líkindum kom-
in, alltént vísir að henni, og Lúðvík
hlær við. „Það er bara þannig, og
það sýna bæði tölur og veruleikinn
dags daglega.“
Sjávarútvegs- og
lausavöruhöfnin
Blaðamaður afræður að gera Lúðvík
lífið ekki óþarflega létt og úr því
hann nefnir tölur er lag að inna
hann eftir fáeinum slíkum til að gefa
lesendum einhverja hugmynd, eitt-
hvert samhengi um þau umsvif sem
eiga sér stað við höfnina. Og Lúðvík
stenst ágjöfina, er fljótur til svars.
„Heildarvörumagn sem fór í gegn
hér hjá okkur í fyrra var um 160.000
lestir, og við erum komnir með,
núna í lok júlí, 130.000. Þannig að
það er mjög greinilega vaxandi um-
ferð og flutningur, bæði á sjávaraf-
urðum – frystum fiski fyrst og
fremst – og líka lausavöru. Þar er-
um við mest í malarefni og salt, en
einnig olía og annað slíkt.“ Lúðvík
bætir því við að gjarnan megi segja
sem svo að á meðan Reykjavík sé
gámahöfnin sé Hafnarfjarðarhöfn
sjávarútvegs- og lausavöruhöfnin.
Sú skipting hafi ríkt um alllanga
hríð.
„Þetta hefur verið okkar hlutverk
og síðan erum við með Straumsvík
og þar er auðvitað bara föst rúta,
hátt í 200.000 tonn af áli út og á móti
allt súrálið sem kemur inn. Þetta
eru því tvær stórar hafnir sem
heyra undir hjá okkur.“
Sívaxandi ferðamennska
Auk framangreindrar starfsemi
verður sífellt vart við fleiri og fleiri
skemmtiferðaskip sem leggja að í
Hafnarfjarðarhöfn. „Já, það er vax-
andi. Eins og komið hefur fram í
fréttum hefur þeim fjölgað mikið,
skipunum, og aukningin er einna
helst í minni og meðalstórum skip-
um,“ útskýrir Lúðvík. „Þau eru
mörg hver komin í rútu kringum
landið og eru því ekki aðeins að
koma hingað í viðdvöl heldur taka
allt Ísland, hringinn í kring. Til þess
að geta komist inn á flestar hafnir
eru menn ekki með allra stærstu
skipin í því,“ bætir hann við. „Við
höfum verið með nokkur skip og þar
á meðal skip sem hafa verið með
farþegaskipti sín hjá okkur og því
með töluverð viðskipti einmitt hér.
Ég heyrði það á kafteini sem kom
hér við um daginn að það væri að
draga úr siglingum inn að botni
Miðjarðarhafs og þessi skip væru
fyrir bragðið einfaldlega að leita sér
að verkefnum. Fólk vill koma hingað
enda öryggi í því fólgið því hér er
friður og ró, fyrir utan viðvarandi
stemningu fyrir náttúrunni og al-
mennum áhuga á Íslandi. Í þessu
liggur ákveðinn hvati og því er þetta
að aukast.“ Aðspurður hvort ekki sé
þarna eftir svolitlu að slægjast þá
samsinnir Lúðvík því. „Jú jú, auðvit-
að er það eftir sem áður fiskaflinn
og aflagjöldin sem gefa mestu tekj-
urnar á hafnirnar. En þetta eru
hinsvegar viðskipti sem kalla á
ýmsa afleidda þjónustu líka, bæði
kostur og ýmis ferðaþjónusta í
kringum þetta, og síðan setur það
óneitanlega skemmtilegan svip á
mannlífið og hafnirnar að hafa falleg
skip inni á fremsta bakka. Við reyn-
um að hafa þau sem næst bænum
þannig að þau njóti sín í bæjar-
myndinni.“
Nafn bæjarins er engin tilviljun
Það er kunnara en frá þurfi að segja
að Hafnarfjörður hefur ákveðna sér-
stöðu þegar kemur að hafnarsvæð-
inu því þar er að finna náttúrulega
höfn eins og best verður á kosið,
rétt við miðbæinn – beinlínis í hjarta
bæjarfélagsins.
„Það er rétt, þetta hefur verið ein
sérstaða bæjarins frá upphafi og
engin tilviljun að bærinn heiti Hafn-
arfjörður,“ segir Lúðvík og kímir
við. „Það hefur verið svo alveg frá
því Herjólfur og Flóki komu hér um
880. Við njótum þess að hafa hér
náttúrulega höfn, sem er í senn
skjólgóð og örugg, og ágætis aðdýpi
hér innarlega í höfninni. Athafnalífið
og hafnarlífið er bæjarbúum í blóð
borið, þetta er einfaldlega partur af
mannlífinu og miðbænum. Við erum
með höfn bókstaflega í miðbænum,
eins og þekkist víða í bæjum og
þorpum úti á landi, á meðan önnur
stærri byggðarlög eru kannski ekki
alveg með aðstöðuna alveg í faðm-
inum, eins og hér.“
Hafnirnar munu
færast út frá byggð
Auk blómlegrar byggðar sem risið
hefur á Norðurbakkanum hefur líka
margs konar rekstur og atvinnu-
starfsemi fundið sér stað við höfnina
og Lúðvík er spurður út í þetta að-
dráttarafl Hafnarfjarðarhafnar.
Hvernig stendur á þessu?
„Höfn í dag er ekki bara bakkar
heldur er höfn líka uppland og að-
koma. Það þarf mikið starfsvæði í
kringum höfn og það gekk ekki
lengur upp á gamla Norðurbakk-
anum þannig að afráðið var að
byggja höfnina heldur upp hér á
Suðurbakkanum. Síðan er menn
náttúrlega farnir að horfa til enn
lengri framtíðar varðandi þar hvar
næsta hafnarstæði á höfuðborg-
arsvæðinu verður staðsett. Þessi
Mannlíf og atvinnulíf
blómstrar við Hafnarfjarðarhöfn
Það fer ekki framhjá nokkrum manni að sjaldan hefur verið líflegra um að litast við Hafnarfjarðarhöfn en einmitt núna og því tilefni
til að spjalla við hafnarstjórann, heimamanninn Lúðvík Geirsson. „Engin tilviljun að bærinn heiti Hafnarfjörður.“
Morgunblaðið/Golli
Hafnafjarðarhöfn „Það er rétt, þetta hefur verið ein sérstaða bæjarins frá upphafi
og engin tilviljun að bærinn heiti Hafnarfjörður,“ segir Lúðvík um heimabæinn.
Morgunblaðið/Golli
Umsvifin „Heildarvörumagn sem fór í gegn hér hjá okkur í fyrra var um 160.000 lestir, og við erum komnir með, núna í lok
júlí, 130.000. Þannig að það er mjög greinilega vaxandi umferð og flutningur, bæði á sjávarafurðum – frystum fiski fyrst og
fremst – og líka lausavöru,“ segir Lúðvík Geirsson hafnarsjóri Hafnafjarðarhafnar um stígandann í starfseminni.
...sem þola álagið!
TRAUSTAR VÖRUR...
Raftæknivörur
Mótorvarrofar
og spólurofar
Það borgar sig að nota það besta!
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
3
1
.3
0
1
Skynjarar Töfluskápar
Hraðabreytar Öryggisliðar
Aflrofar Iðntölvur
Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is