Morgunblaðið - 14.09.2016, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.09.2016, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 4. S E P T E M B E R 2 0 1 6 Stofnað 1913  215. tölublað  104. árgangur  ÁTTA ÍSLENSK VERK FRUM- FLUTT Í VETUR KRISTJÁN LANDSLIÐS- ÞJÁLFARI SVÍA MARÍA Í GRÆNU- HLÍÐ KOMIN Í SMALASKÓNA HANDBOLTI ÍÞRÓTTIR 30 DAGA VERKEFNI 14ÚTVARPSLEIKHÚSIÐ 30 Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Slysaslepping 120 þúsund regnbogasil- ungar sluppu einnig úr kví í Berufirði í vor.  Fiskistofa fékk tilkynningu á mánudaginn í síðustu viku um að eldisfiskur hefði veiðst í Mjólká í Arnarfirði. Eftirlitsmaður stofn- unarinnar staðfesti að um regn- bogasilung væri að ræða og fyndist hann í ám í Patreksfirði, Tálkna- firði, Arnarfirði og Dýrafirði. Regnbogasilungur er notaður í fiskeldi og er ekki náttúrulegur í ís- lenskum ám. Fiskeldismönnum ber að tilkynna slys sem verða af þessu tagi en engar slíkar hafa borist til Fiskistofu. Landssamband fiskeldisstöðva hefur haft samband við stærstu stöðvarnar og kannast stjórnendur þeirra ekki við að fiskur hafi slopp- ið. »4 Regnbogasilungur í ám á Vestfjörðum Morgunblaðið/Ómar Landspítalinn Þar er starfandi ADHD-teymi sérfræðinga. Frá því að ADHD-teymi fyrir full- orðna var sett á laggirnar á Land- spítalanum árið 2013 hafa 1.300 til- vísanir borist þangað og 350 einstaklingar á aldrinum 20 ára og eldri verið greindir með ADHD. Sigurlín Hrund Kjartansdóttir, sálfræðingur sem veitir teyminu for- stöðu, segir að nú bíði 636 eftir að komast að í greiningu og að með- albiðtími sé 23 mánuðir. Fólkið er á öllum aldri, flestir eru 20-40 ára og kynjahlutföll eru svipuð. Flestir fá lyfjameðferð sem er nið- urgreidd og að sögn Sigurlínar hafa margir ekki ráð á að sækja sér sál- fræðimeðferð, þar sem hún er ekki niðurgreidd. Þessi langi biðtími hefur m.a. orð- ið til þess að margir leita til sjálf- stætt starfandi sérfræðinga eftir greiningu. Sigurlín segir að það hafi skapað vandamál, því mismunandi sé hvaða vinnulagi sé fylgt við slíkar greiningar og sumar þeirra því ekki viðurkenndar alls staðar. Dæmi séu um að fólk hafi greitt yfir 100 þúsund krónur fyrir ADHD-greiningu sem aðrir læknar hafi síðan ekki tekið gilda. »6 636 fullorðnir bíða greiningar  Teymi LSH hefur greint 350 fullorðna með ADHD frá 2013 Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið fram hjá Gróttu í gærkvöldi náði hann mynd af skæl- brosandi ferðamönnum sem voru að taka myndir af sólarlaginu. Þeir böðuðu út öngunum í átt að sólarlaginu og tóku dansspor í fjörunni. Syngj- andi kátir tóku þeir myndir í gríð og erg. Sól- arlagið er einkar fallegt á þessum stað og ekki að undra að ferðamönnum finnist mikið til þess koma. Dansandi ferðamenn í fjörunni Morgunblaðið/Árni Sæberg Sólsetur við Gróttu á Seltjarnarnesi  Samkvæmt nýjum ritreglum frá Íslenskri málnefnd á að skrifa öll tungumálaheiti með litlum staf, einnig þau sem leidd eru af sér- nafni. Undantekningar geta þó ver- ið samsett orð eins og Svíþjóðar- finnska og Finnlandssænska. Þá segir einnig að orðasambönd með töluorðum skuli rituð í aðskildum orðum, t.d. tuttugu og tveir. Und- antekningar frá þeirri reglu verði að styðjast við hefð og má þá tölu- orðið og nafnorðið renna saman í eina heild í eignarfalli, sem dæmi fimmaurabrandari og fjórða- partsnóta. »18 Fimmaurabrandari er undantekning Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við erum byrjuð að skerða þjónustu og lýsir það sér þannig að við sendum börn heim af einni deild á dag, en sjötta daginn fara systkini heim,“ segir Elín Erna Steinarsdóttir, leik- skólastjóri á Bakkaborg í Breiðholti, en orsök þessa er erfið staða leikskól- anna í Reykjavík og áframhaldandi krafa um frekari niðurskurð af hálfu borgaryfirvalda. Á Bakkaborg starfa alls 28 manns og segir Elín Erna vanta 3 starfsmenn til viðbótar svo kalla megi leikskólann fullmannaðan. Börnin eru alls 115 talsins og fer það eftir deildum hversu mörg börn eru send heim tiltekinn dag. Þannig eru suma daga 6 börn send heim en mest fer það upp í 26 börn. Í gær var 16 börnum haldið heima. „Við getum hins vegar ekki sent börn starfs- manna heim því það myndi einungis flækja stöðuna enn frekar með til- heyrandi vandamálum fyrir alla,“ segir Elín Erna. Loka 30 mínútum fyrr Aðspurð segir hún flesta foreldra taka þessari stöðu af æðruleysi. „En sumir foreldrar eiga hins veg- ar mjög erfitt með að leysa þetta og skilja hreinlega ekki af hverju þessi staða er komin upp,“ segir Elín Erna og bætir við að sú skerðing sem nú er viðhöfð á leikskólanum dugi varla. Guðrún Jóna Thorarensen er leik- skólastjóri á Sólborg í Vesturhlíð. Hún segir ástand þar vera lítt skárra en á Bakkaborg. „Hér, eins og alls staðar annars staðar í Reykjavík, vantar starfsfólk,“ segir hún og held- ur áfram: „Þetta leiðir auðvitað til skerðingar á þjónustu og við neyð- umst til að stytta vistunartíma um 30 mínútur. Frá og með næstu mánaða- mótum lokum við hálffimm.“ Þurfa að senda börnin heim  Alls þurftu 16 börn á leikskólanum Bakkaborg að halda sig heima í gær vegna kröfu borgaryfirvalda um niðurskurð  Suma daga þurfa 26 börn að vera heima  Skýrsla meirihluta fjárlaga- nefndar Alþingis um einkavæðingu bankanna hina síðari verður rædd í fjárlaganefnd í dag. „Við ætlum að kynna minnihlut- anum skýrsluna ítarlega og þá geta nefndarmenn fjárlaganefndar lagt fram spurningar. Ég ætla að gera það að tillögu minni að skýrslan verði þingskjal og fái málsnúmer í þinginu,“ sagði Vigdís Hauksdóttir, formaður nefndarinnar. Þar með mun skýrslan fara í málaröðina sem liggur fyrir Alþingi. Vigdís sagði að þegar skýrslan yrði orðin að þing- skjali fyndist sér eðlilegt að skrifa umboðsmanni Alþingis og ríkisend- urskoðanda. »2 Vill að bankaskýrsl- an verði þingskjal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.