Morgunblaðið - 14.09.2016, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016
Vertu viðbúinn vetrinum
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
María Friðgerður Bjarnadóttir
bóndi í Grænuhlíð í Ketildölunum
við Arnarfjörð ætlar í dag að
bregða sér í smalaskóna og halda til
fjalla. Þau Víðir Hólm Guðbjartsson
eiginmaður hennar búa á stórri jörð
sem þarf að smala og munu þau á
næstu dögum ganga upp og fram
dali, með fjörum og á tugi fjalla.
„Hér í Ketildölum eru Grænahlíð
og Hvesta einu bæirnir í byggð.
Feigsdalur og Neðri-Bær í Selárdal
eru farnir í eyði. Þegar byggð
leggst af þurfa þeir bændur sem
eftir eru einir að sinna smala-
mennskunni – og sjálfsagt verður
þetta 30 daga verkefni. Við þurfum
að smala svæðið alveg utan frá
Tálkna og svo inn Ketildali og alveg
inn í botn Arnarfjarðar þar sem
heitir Geirþjófsfjörður. Svo munum
við aðstoða vinafólk okkar sem býr
á Brjánslæk á Barðaströnd, fara
þar um stórt svæði þar og smala
nokkrum þúsundum fjár til bæja.
Þetta verður mikil vinna, en að
sama skapi skemmtileg,“ segir
María.
Með fimm hunda
til halds og trausts
Þau María og Viðar búa með alls
um 800 fjár og á landsvísu eru fáir
með stærri bú en þau. „Ég er úr
Bolungarvík en er að hluta ættuð
úr Skagafirði. Æskudraumurinn
var alltaf að verða hrossabóndi fyr-
ir norðan en svo kom ég hingað árið
1998 og þá varð ekki aftur snúið.
Hér er auðvitað afbragð að vera
með sauðfé; féð heldur sig mest hér
í dölunum sem eru mjög snjóléttir
og gróðursælir. Samt þarf að
kemba svæðið mjög nákvæmlega og
fara oft til dæmis um kjarri vaxna
dali,“ segir María sem í smala-
mennskunni er sér til halds og
trausts með fimm border collie
hunda, þaulvana og örugga. „Ég
gæti ekki sinna smalamennskunni
nema með hundunum. Tíkin Gjöf er
sjálfsagt reyndasti hundurinn í
þessu; algjörlega ómissandi.“
Viðsjár eru um þessar mundir í
sauðfjárbúskap. Hjá sláturhúsunum
hafa menn ákveðið einhliða að
lækka afurðaverð til bænda fyrir
dilkakjöt. Skilaverð fyrir lambakjöt
verður lækkað um að jafnaði 10%
frá fyrra ári eða í 538 kr kílóið.
Fyrir fullorðið fé og annað verða
greiddar 115 kr að meðaltali, að því
er fram kemur hjá Landssamtökum
sauðfjárbænda. Í fjölmiðlum hefur
að undanförnu verið lýst áhyggjum
vegna þessa meðal margra bænda,
sem sjá fram á að ná ekki endum
saman. Þegar hafi þeir lagt út í
talsverðan kostnað við búskapinn
sem tekjurnar nú standi ekki undir.
Erfitt að standa undir
„Það er alveg ljóst að þessi
ákvörðun slátraranna breytir miklu
fyrir bændur. Búið hér í Grænadal
er það stórt að við getum mætt
þessu – en auðvitað er ansi hart að
þurfa að leggja mikið að sér við bú-
skapinn en hafa nánast engar
tekjur. Hjá þeim bændum sem eru
með lítil bú er þetta mjög erfitt, að
ég tali nú ekki um þá sem eru ný-
lega byrjaðir búskap og eru þá
hugsanlega með lán sem erfitt verð-
ur að standa undir og greiða af,“
segir María.
Smalamennska í þrjátíu daga
Kindur í Ketil-
dölum og María í
Grænuhlíð er kom-
in í smalaskóna
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sveitakona María Friðgerður Bjarnadóttir er að leggja af stað í göngur og
þá kemur sér vel að hafa með sér góðan og vel þjálfaðan smalahund.
Ketildalir Horft inn með strönd Arnarfjarðar að sunnan þar sem dalirnir
ganga hver af öðrum fram í langri röð og eru tilkomumiklir að sjá.
Fjörufé Ær með lömb sín í hvítum sandinum í fjörunni við Ketildali. Féð
gengur þarna úti nánast allt árið enda er frekar snjólétt á þessu svæði.
Ketildalir eru við utanverðan Arnarfjörð að sunnan. Hvestudalur er innst,
svo Hringsdalur, Bakkadalur, Austmannsdalur, þá Fífustaðadalur og yst
er Selárdalur. Þarna var eitt sinn blómleg byggð – og rústir gamallar
kaupfélagsbyggingar á sjávarkambi við Bakkadal segja sína sögu. Þá er í
fjörunni við Hringdal gömul dys, skýrlega merkt af fornleifafræðingum,
og þykir góður vitnisburður um menningu og trú fyrri alda. Það er
kannski líka þessi menning og náttúra, falleg í hrikaleik sínum, sem gerir
þetta svæði áhugavert.
„Það hafa aldrei jafn margir ferðamenn átt leið hér um og í sumar. Yf-
irleitt dettur umferð niður þegar komið er fram í ágúst en þetta helst enn
núna,“ segir María. Flestir gera sér erindi út í Selárdal þar sem er Lista-
safn Samúels Jónssona en til fjölda ára hefur verið unnið að endurgerð
þess. Þá fara margir að eyðibýlinu Uppsölum, hvar einbúinn Gísli Gísla-
son bjó áratugum saman að mestu án samneytis við annað fólk.
Kaupfélag, listasafn og fornminjar
SEX DALIR VIÐ ARNARFJÖRÐINN
Selárdalur Þýski myndhöggvarinn Gerhard Köning er að lagfæra verk í Sam-
úelssafni en ýmsar fyrirætlanir eru uppi um starfsemi þar í náinni framtíð.