Morgunblaðið - 14.09.2016, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 14.09.2016, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016 Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2 Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu, bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti, kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar, hjólastillingar og margt fleira. LAGFÆRUM BÍLINN VIÐ www.solning.is Talið er að meira en 300.000 manns hafi beðið bana í átökunum í Sýrlandi frá því að þau hófust í mars 2011, að sögn sýrlensku mannréttindahreyfingarinnar SOHR í gær. Hreyfingin segir að rúmlega 86.000 óbreyttir borg- arar hafi látið lífið í átökunum, þeirra á meðal 15.099 börn og 10.018 konur. Vopnahléssamkomulag, sem stjórnvöld í Bandaríkjun- um og Rússlandi náðu á föstudag, tók gildi við sólsetur í fyrradag. Talsmaður rússneska hersins sagði í gær að stjórnarher Sýrlands hefði virt vopnahléið algerlega en uppreisnarmenn, sem njóti stuðnings Bandaríkjamanna, hafi gert 23 árásir á íbúðahverfi og stöðvar stjórnarhers- ins frá því að samkomulagið tók gildi. Rússar hafa stutt einræðisstjórnina í Sýrlandi með hernaði sem hófst á síð- asta ári. Einræðisstjórnin hefur einnig notið stuðnings vopnaðra manna frá Írak, Íran og Líbanon. John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði að of snemmt væri að segja til um hvort vopnahléið héld- ist og hvatti allar fylkingarnar í stríðinu til að leggja nið- ur vopn. Sergej Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, lýsti vopnahléinu sem „síðasta tækifærinu til að bjarga sameinuðu Sýrlandi“. Margir efuðust þó um að vopnahléið héldist lengi. Um tuttugu hreyfingar uppreisnarmanna í Sýrlandi gáfu út sameiginlega yfirlýsingu í fyrrakvöld þar sem þær sögð- ust ekki geta stutt vopnahlé meðan ekkert lát væri á þjáningum Sýrlendinga, meðal annars vegna umsáturs stjórnarhersins um borgir sem uppreisnarmenn hafa náð á sitt vald. Talið er að um þrettán milljónir manna þurfi á neyðar- aðstoð að halda í Sýrlandi vegna stríðsins, þeirra á meðal sex milljónir barna. bogi@mbl.is 50 km 200 km Hlutverk Bandaríkjanna og Rússlands í stríðinu í Sýrlandi Heimildir: ISW, Thomas Van Linge, Airwars, AFP Stjórn Sýrlands Tartus Hmeimim Bækistöðvar flughers Bækistöðvar sjóhers 25.000 hermenn Herlið sem beitt hefur verið Hámarks- liðsafliUppsafnað Afleiðing 20 0 Frá okt. 2015 Nýlegar árásir (1.-7. september) Bandaríkin sveitar- menn Frá ágúst 2014 Mannfall meðal óbreyttra borgara Fallnir 3.000 1.600 - 2.400 Stuðningur Uppreisnar-lið, Kúrdar Rússland Idlib JÓRDANÍA TYRKLAND ÍRAK LÍB. DAMASKUS Aleppo Homs Raqa Deir Ezzor Abu KamalPalmyra Kaspíahaf Miðjarðarhaf Uppreisnarm. og/eða Fateh al-Cham* Her Sýrlands og bandamenn Samtökin Ríki íslams Kúrdar *íslömsk hreyfing Yfirráðasvæði Áhrifasvæði Landsvæði KÚVEIT ÍRANÍRAK JÓRDANÍA KATAR BAREIN SAF TYRKLAND Sýrland300 sér- Dreifing flugvéla og skipa Sjóher Flugher Meira en 300.000 fallnir Talið er að heildarfjárfestingin vegna fyrirhugaðrar olíuvinnslu á Johan Castberg-svæðinu í Barents- hafi nemi 50 til 60 milljörðum norskra króna, jafnvirði 700 til 840 milljarða íslenskra, að því er fram kemur í nýju mati norska olíu- fyrirtækisins Statoil á áhrifum vinnslunnar. Gert er ráð fyrir því að undirbúningurinn og framkvæmd- irnar skapi um 23.000 ársverk, að því er fram kemur á fréttavef norska ríkisútvarpsins. Talið hefur verið að olíuvinnsla á svæðinu yrði mjög dýr en Statoil segist hafa fundið nýjar lausnir sem geti gert vinnsluna mögulega, þótt lágt olíuverð og aukinn kostnaður geti enn sett strik í reikninginn. Gert er ráð fyrir því að áætlun um olíuvinnsluna verði lögð fram á næsta ári og fyrsta áfanga uppbygg- ingarinnar ljúki á árunum 2018 til 2022. Statoil segir að olíuvinnslan myndi hafa mikla þýðingu fyrir at- vinnulífið í Norður-Noregi og víðar í landinu. Um helmingur heildar- fjárfestingarinnar myndi renna til norskra fyrirtækja sem sjái Statoil fyrir vörum eða þjónustu vegna verkefnisins. Gert er ráð fyrir því að olíuvinnsla á svæðinu geti staðið í 30 ár og skap- að 1.200 ársverk, þar af 300 í Norður-Noregi, á venjulegu rekstrarári. Ljósmynd/Statoil Olíuborpallur Statoil undirbýr nú olíuvinnslu í Barentshafi. Kostar 700-840 milljarða  Boða olíuvinnslu í Barentshafi Þýska lögreglan handtók í gær þrjá sýrlenska karlmenn sem taldir eru vera liðsmenn ísl- ömsku samtak- anna Ríkis ísl- ams og grunaðir um að hafa undirbúið hryðjuverk eða beðið eftir fyrirmælum frá sam- tökunum um að gera árásir. Um 200 sérsveitarmenn tóku þátt í að- gerðum lögreglunnar fyrir dögun í gær þegar mennirnir voru hand- teknir í sambandslöndunum Slés- vík-Holtsetalandi og Neðra- Saxlandi. Mennirnir eru 17, 18 og 26 ára og voru með fölsuð sýrlensk vega- bréf. Lögreglan sagði að þeir hefðu farið frá Sýrlandi í október sl. og komið til Þýskalands um miðjan nóvember eftir að hafa far- ið sömu leið og margir sýrlenskir flóttamenn sem hafa komið til Þýskalands og óskað eftir hæli. Talið er að þremenningarnir teng- ist hryðjuverkamönnum sem gerðu mannskæðar árásir í París í nóvember. ÞÝSKALAND Þrír liðsmenn Ríkis íslams handteknir Einn mannanna handtekinn. Seðlabanki Bretlands kynnti í gær nýjan fimm punda seðil sem er úr sterku plastefni og þolir þvott, ólíkt pappírsseðlunum sem hann á að leysa af hólmi. Bankinn segir að erfiðara sé að falsa slíka plastseðla en pappírsseðla og þeir séu því öruggari, auk þess sem þeir séu sterkari og endist lengur. Nýja seðilinn prýðir mynd af Winston Churchill, sem var forsætisráð- herra Bretlands á árum síðari heimsstyrjaldarinnar. BRETLAND Peningaseðill sem fer vel í þvotti Dómstóll í Nuuk á Grænlandi hefur samþykkt beiðni námufyrirtækisins True North Gems Greenland um gjaldþrotaskipti og þar með fór enn ein tilraunin til að hefja námuvinnslu í landinu út um þúfur. Gjaldþrotabeiðnin var lögð fram eftir að stjórnendur fyrirtækisins komust að þeirri niðurstöðu að þeir gætu ekki aflað nægs fjármagns til að hefja rúbínvinnslu í Aappaluttoq, um 100 km frá Nuuk, að því er fram kemur í The Arctic Journal. Blaðið segir að þótt fyrirtækið hafi lokið undirbúningi námuvinnslunnar hafi það ekki fengið leyfi til að hefja hana fyrr en það fengi nægt fjármagn til að tryggja að það gæti greitt fyrir hreinsun á svæðinu þegar vinnslunni lyki. Fyrirtækið hafði stefnt að því að hefja rúbínvinnslu í námunni í byrjun næsta árs. Norska fyrirtækið LNS átti 27% hlut í True North Gems Greenland og grænlenska fjárfestingarfélagið Greenland Venture keypti 7% hlut í námufyrirtækinu á síðasta ári. The Arctic Journal hefur eftir fram- kvæmdastjóra Greenland Venture, Karsten Høy, að fjárfestingarfélagið vilji halda áfram samstarfi við norska fyrirtækið og fleiri fjárfesta til að hægt verði að opna rúbínnám- una síðar. Engin náma starfrækt Þótt stjórnmálamenn á Grænlandi hafi bundið miklar vonir við nýtingu náttúruauðlinda í landinu bendir fátt til þess að draumurinn um olíuævin- týri og stórgróða af námugrefti ræt- ist á næstu árum. Engin náma hefur verið starfrækt í landinu frá því að Nalunaq-gullnámunni á Suður- Grænlandi var lokað árið 2013 vegna rekstrartaps. True North Gems er ekki fyrsta námufyrirtækið sem hefur þurft að hætta starfsemi á Grænlandi vegna fjárskorts. Málmleitarfyrirtækið NunaMinerals var lýst gjaldþrota í júní eftir að eigendum þess tókst ekki að afla nægilegs fjármagns til að borga lán sem það hafði fengið frá grænlensku landstjórninni. Breska fyrirtækið London Mining hugðist opna járnnámu á Grænlandi en varð gjaldþrota árið 2014, einkum vegna lágs verðs á járngrýti. Kín- verskt fyrirtæki, General Nice Group, keypti réttinn til að reka námuna en hefur sagt að það hyggist ekki hefja járnvinnslu á Grænlandi á næstu misserum. bogi@mbl.is Enn eitt námu- félagið gjaldþrota  Rúbínnáma ekki opnuð á Grænlandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.