Morgunblaðið - 14.09.2016, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.09.2016, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016 ✝ Páll LárussonRist fæddist á Akureyri 1. ágúst 1921. Hann lést á heimili sínu að Litla-Hóli í Eyja- fjarðarsveit 30. ágúst 2016. Páll var sonur Lárusar J. Rist, sund- og fim- leikakennara, f. 19. ágúst 1879, d. 9. október 1964, og Margrétar Sigurjónsdóttur, f. 9. ágúst 1888, d. 5. ágúst 1921. Systkini Páls voru: Óttar, f. 1912, d. 1932, Anna, f. 1914, d. 1999, Jóhann, f. 1916, d. 1951, Sigurjón, f. 1917, d. 1994, Reg- ína, f. 1919, d. 2008, og Ingi- björg, f. 1920, d. 1994. Fósturforeldrar Páls voru Vilhjálmur Jóhannesson, f. 26. nóv. 1884, d. 29. nóv. 1968, og Margrét Ingimarsdóttir, f. 31. des. 1885, d. 12. apr. 1962. Páll var í sambúð með Erlu Þórðardóttur, f. 1. okt. 1930, og þeirra synir eru: 1) Þórður, f. Fyrir átti Kristín Þorgeir Jó- hannesson, f. 25. mars 1961, eig- inkona hans er Ragnheiður Sig- fúsdóttir. Þeirra dætur eru Kristín, Hólmfríður og Jóhanna. Langafabörn Páls eru orðin átta talsins. Fósturforeldrar Páls bjuggu á Akureyri en þegar hann var níu ára fluttust þau inn að Litla- Hóli, Eyjafjarðarsveit. Páll lauk búfræðinámi árið 1940 frá Bændaskólanum á Hól- um og stundaði síðan bústörf til ársins 1958. Árið 1958 var hann í lögreglunni á Húsavík við sum- arafleysingar. Hann stundaði nám við Lögregluskóla ríkisins og lauk þaðan prófi árið 1959. Hann starfaði sem lögreglu- þjónn á Akureyri frá 1959 til 1991. Páll bjó á Akureyri en með- fram lögreglustarfinu þar stundaði hann búskap á Litla- Hóli með sauðfé og hross. Þau hjónin, Páll og Kristín, fluttu síðar, eða árið 2000, alfar- ið að Litla-Hóli og stundaði Páll bústörf allt til dauðadags. Páll verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju í dag, 14. sept- ember 2016, klukkan 13.30. 19. ágúst 1954, kona hans er Lára Jósefína Jónsdótt- ir, dætur þeirra eru Erla, Tinna og Fanney. 2) Jóhann, f. 20. ágúst 1963, kona hans er Brynhildur Pétursdóttir og þeirra börn eru Hafdís Erla, Elvar Örn og Vignir. Páll kvæntist Kristínu Þor- geirsdóttur, f. 4. mars 1939, frá Brúum í Aðaldal, þann 5. júní 1965 og eignuðust þau þrjú börn: 1) Margrét, f. 24. feb. 1966, gift Björgvin Tómassyni, synir þeirra eru Tómas Kári og Dagur Logi. Fyrri maður Mar- grétar er Friðrik Stefánsson og eiga þau dótturina Regínu. 2) Vilhjálmur, f. 30. nóv. 1968, kvæntur Jane Appleton. Synir þeirra eru Sigmar og Óðinn. 3) Ólöf, f. 2. okt. 1972, gift Stép- hane Aubergy. Börn þeirra eru Úlfar, Páll og Snæfríður. Margs er að minnast frá langri ævi pabba. Hann var yngstur sjö systkina en þar sem móðir hans lést skömmu eftir fæðinguna voru hann og tveir bræður hans settir í fóstur hver á sitt heimili en systurnar og einn bróðirinn voru áfram með Lárusi föður sín- um. Pabbi fór til góðra hjóna á Akureyri, Vilhjálms og Mar- grétar, sem síðar fluttu að Litla- Hóli í Eyjafjarðarsveit. Hann tók síðar við búinu en starfaði einnig sem lögreglumaður á Akureyri. Við fjölskyldan bjuggum í bænum en á hverjum degi fór pabbi frameftir að sinna búinu. Það hefur þurft mikla eljusemi og skipulagningu til þess. Við krakkarnir fórum með og nutum þess að kynnast störfunum í sveitinni bæði sumar og vetur. Á góðviðrisdögum þótti krökkum úr götunni líka mikið sport að fá að koma með í sveitina og hjálpa til. Pabbi naut aðstoðar margra við bústörfin, við minnumst Guð- jóns, Arinbjarnar og svo sérstak- lega Pálma, Grétars og Phil í seinni tíð. Þó að verkin hafi verið fjöl- mörg yfir sumarið var farið í lystitúr ef færi gafst og svo lengri ferðir á Fjára (gamla Landrover) upp á hálendi, allur farangur og olíubrúsi undir segli á toppgrind- inni og svo var brunað af stað. Stundum var tjaldað seint því leitin að hinum fullkomna nætur- stað gat tekið sinn tíma. Oft var það að mamma vildi fara úr jepp- anum og ganga þegar farið var um mikinn bratta eða hrörlegar brýr. Eitt sinn á leið í Fjörður komum við að einni slíkri brú og hún heimtaði að fara út, þá fauk í pabba og hann stoppaði með semingi og sagði „og hvorumegin viltu þá vera þegar ég hrapa nið- ur í ána með börnin?“ Pabbi var annars annálaður rólegheitamaður, glaður, hnytt- inn og vildi hafa fjör og engar serímóníur á hlutunum. Hann hafði ætíð nóg fyrir stafni og lá ekki í leti þótt honum fyndist gott að „fleygja sér“ annað slagið. Mikil áhersla var lögð á að kenna okkur trix úr hans helstu áhugamálum eins og úr skák, stangveiði og fótbolta. Á kvöldin hin síðari ár hafði hann gaman af því að sitja í stof- unni, kveikja upp í arninum og eiga góðar kvöldstundir. Hann var mikill sögumaður, eftirherma og fór ósjaldan með gamansögur og ljóð. Eitt uppáhaldserindið var eftir Davíð Stefánsson og flutti hann það með djúpri rödd eins og hann hafði heyrt Davíð sjálfan fara með það í útvarpinu: Þýtur í rá og reipum. Rýkur sær of keipum. Illt hef ég áfall hlotið. Afl mitt er senn þrotið. Vel eg þann vænstan kostinn, fyrst von mín um líf er brostin, að signa mig sjúkan og snauðan, syngja mig inn í dauðann. Síðan fylgdu líka sögur úr sveitinni, til dæmis þegar hann ásamt öðru ungu fólki úr sveit- inni vakti setuliðið um miðja nótt á Melgerðismelum með því að láta grjóthríð rigna yfir tómar ol- íutunnur. Þá varð nú uppi fótur og fit í herbúðunum. Pabbi var stálminnugur, glað- lyndur og hraustur til dauðadags. Það voru forréttindi fyrir hann að sinna því sem hann hafði gaman af fram á síðasta dag og við erum meira en þakklát fyrir stundirnar sem við áttum saman. Með söknuði og þakklæti, Margrét, Vilhjálmur og Ólöf. Kæri Palli, enn ber Litli-Hóll merki þín svo sterkt að það er eins og á hverri mínútu sé von á að þú komir dólandi heimreiðina á Toyotunni með pottlokið á höfð- inu, komir inn og segir: „Jæja, fer ekki að koma kaffi?“ Þó að girð- ingarstaurarnir haldi landslaginu á sínum stað er eins og allt sé fall- valtara þegar þú ert ekki hér og nú er furða að túnin hafi ekki runnið í ána og skolast burt. Nú er búið að smala fénu þínu úr fjallinu og kannski skynjuðu ærnar að fjárhirðirinn, sem þær hafa alltaf þekkt, var ekki til staðar með sitt kunnuglega „gibba-gibb!“ Takk fyrir allt sem þú varst og stóðst fyrir, það lifir nú í minn- ingunni. Alltaf bjartsýnn, þú tal- aðir aldrei illa um náungann og dróst alltaf fram það besta í fari allra. Takk fyrir að taka mér svona vel og taka inn í fjölskyld- una þessi síðustu níu ár. Það var heiður að kynnast þér. Takk fyrir að elska syni mína svo mikið, fyr- ir allar sögurnar, fyrir arineld á vetrarkvöldum, fyrir gamansem- ina, gáfurnar og rósemina. Fyrir að kenna mér orðið „spotti“ og þúsund not fyrir baggaband. Betri tengdapabba er ekki hægt að hugsa sér. Þín tengdadóttir, Jane Victoria Appleton. Kær frændi er kvaddur í dag, Páll Lárusson Rist, móðurbróðir minn. Á kveðjustund fer hugurinn á flug og hvarflar að því liðna sem við fengum að njóta saman. Palla fylgdi alltaf hlýja og góðvild, hvort sem minnst er gleðistunda eða sorgar. Hann hafði afar góða nærveru. Oft sagði hann sögur þar sem glettnin og kímnin geisl- uðu af honum. Slíkar stundir er yndislegt að eiga í minningunni. Aldrei var svo farið um Akur- eyri að ekki væri reynt að eiga samverustundir með frænda mínum og fjölskyldu hans hvort sem var á Bjarmastígnum eða Litla-Hóli. Þegar suður var kom- ið var alltaf fyrsta spurning móð- ur minnar hvort við hefðum hitt Palla. Ég fann alltaf væntum- þykjuna á milli þeirra systkin- anna. Ég stóð sjálfa mig að því að spyrja syni mína sömu spurning- ar þegar þeir fóru norður í land með sínar fjölskyldur, enda var þeim tekið af þeirri alúð og hlýju sem einkenndi þau Palla og Kristínu. Palli var aðeins nokkurra daga gamall þegar hann var sendur í fóstur eftir lát móður sinnar. Hann ólst upp hjá fósturforeldr- um sínum á Akureyri til 9 ára ald- urs og flutti þá með þeim að Litla-Hóli. Þar var stundaður blandaður landbúnaður og litla drengnum leið áreiðanlega vel í sveitinni, enda fór hann í bú- fræðinám á Hólum og lauk því 1940. Eftir 20 ára búskap tók hann próf í Lögregluskóla ríkisins og var í rúmlega 30 ár í lögregluliði Akureyrar. Var hann vinsæll meðal Akureyringa og kom það sér vel í hinu vandasama starfi. Þótti hann einkar laginn við að róa ólátaseggi með sinni rólegu og hlýlegu framkomu. Meðfram lögreglustarfinu stundaði hann búskap að Litla-Hóli í tómstund- um og þegar hann lét af störfum í lögreglunni flutti fjölskyldan í nýbyggt, glæsilegt hús að Litla- Hóli. Húsið stendur þar á háum hól og sér vítt til allra átta. Í sveitinni fannst mér hann alltaf vera kóngur í ríki sínu. Hélt hann starfi bóndans áfram til hinsta dags þrátt fyrir háan ald- ur. Í Bændablaðinu fyrir nokkr- um árum var hans getið sem elsta starfandi fjárbónda á Íslandi. Langri, drjúgri og giftusamri ævi er lokið hér á jörð. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Við Haukur, synir okkar og fjölskyldur þeirra vottum fjöl- skyldu Palla dýpstu samúð. Við kveðjum Pál L. Rist með einlægri þökk fyrir samfylgdina og vináttuna öll þessi ár. Guð blessi minningu hans. Kristín G. Ísfeld og fjöl- skylda. Páll L. Rist var einstakur mað- ur. Hann var hæglátur og þægi- legur maður í allri viðkynningu, sannkallaður mannasættir. Það var alltaf gaman að hitta hann og eiga tal við hann. Hann spurði frétta af fólki og lét sig varða líð- an og afkomu fólks. Hann var ekki aðeins lögreglumaður á Ak- ureyri um áratugaskeið því hann var líka bóndi í Eyjafjarðarsveit. Þessum störfum sinnti hann jafn- hliða og hafði sína aðferð við bú- skapinn. Hann tók sér tíma í að byggja upp óðalið í sveitinni og sagði gjarnan að ár til eða frá væri bara skilgreindur tími sem hver og einn gæti lítið á út frá sínum eigin forsendum. Með tíð og tíma klár- aðist verkið og myndarlegt hús reis á jörðinni. Páll var starfsfélagi föður míns um langt árabil. Þannig varð hann hluti af lífi mínu og ég fann að hann lét sér annt um okkur bræður. Við fengum allir að vera starfsfélagar hans um tíma í lög- reglunni og lærðum margt af hans yfirvegun í því að nálgast fólk. Þegar lögreglan hafði verið kölluð til og einhver læti voru, kom Palli gjarnan með sinn lífs- takt, horfði fyrst álengdar og gekk svo til manna og sagði; hvað er að frétta strákar, hvað segið þið gott, eruð þið að fá’nn? Og þeir sem áður tókust á með látum litu gjarnan upp og svöruðu; við segjum allt gott, nei við erum ekki að fá’nn, við erum á olíu- skipi. Og þá bætti Palli við, sposkur á svip; nú er hann tregur. Það merkilega var að eftir þessi sam- skipti þá var eins og ekkert hefði gengið á, allir voru vinir. Þá bætti Palli gjarnan við, það þarf að tala við þessa stráka, það eru alltof fá- ir sem tala við þá. Páll var líka hraustur maður eins og þekkt er í hans ætt og handtök hans traust og fumlaus. Dugnaður hans og elja var ætíð til staðar og hann vann vel að öll- um sínum málum og hafði sinn takt til verkanna. Síðast sá ég hann þegar hann stoltur og glaður leiddi dóttur sína, Margréti, inn kirkjugólf. Hann talaði um að fá mig í heim- sókn í sveitina. Hann endurtók þetta þegar ég síðar heyrði í hon- um símleiðis. Í dag finn ég að ekkert af því sem ég taldi mig upptekinn við að gera var svo mikilvægt að ég hefði ekki átt að finna tíma til að heimsækja Palla. En svona er taktur líðandi stundar, að ef til vill erum við að missa margar auðnustundir. Ég veit að Palli missti ekki af þeim, því hann gaf sér tíma fyrir alla hluti. Hann vissi að „öllu er afmörkuð stund og sérhver hlutur undir himnin- um hefur sinn tíma“. Í þeim anda mun ég muna hann um leið og ég þakka vináttu hans. Kristínu, eiginkonu hans, og börnum þeirra sendi ég góðar kveðjur fjölskyldu minnar, for- eldra og bræðra. Guð blessi minningu Páls L. Rist. Pálmi Matthíasson. Og nú fór sól að nálgast æginn og nú var gott að hvíla sig og vakna upp ungur einhvern daginn með eilífð glaða kringum þig. Þetta fallega ljóð Þorsteins Erlingssonar á einkar vel við við fráfall Páls Lárussonar Rist. Hann varð níutíu og fimm ára fyrir skömmu. Börn hans og af- komendur komu til að samgleðj- ast honum og áttu ánægjulegan dag. Heyskap var lokið og skammt til gangna. Þá ætlaði hópurinn hans að mæta aftur. Enginn bilbugur á gamla bónd- anum sem var sá elsti eða með þeim allra elstu á landinu. En þá kom kallið. Vissulega verður söknuður og tómleiki hjá eiginkonu og börn- um en mikil náðargjöf er að fá að kveðja með fulla hugsun og lífs- löngun, þjáningarlaust. Páll var kvæntur frænku minni, Kristínu Þorgeirsdóttur. Oft hef ég komið í Litla-Hól og notið þar gestrisni og hlýju. Palla var létt um gam- anyrði og skemmtilegar athuga- semdir, fróður og frásagnaglað- ur, enda búinn að lifa viðburðaríka ævi, lengi sem lög- reglumaður á Akureyri og síðar bóndi á Litla-Hóli þar sem hann stundaði búskap af elju og áhuga. Hann átti vænt fé og unni jörð- inni sinni af heilum hug. Hafði gaman af álftahjónunum er verptu niður við ána og fylgdist með afkomu þeirra. Nú taka þau flugið til vetrardvalar og bóndinn á Litla-Hóli hverfur líka til sum- arlandsins. Ég sendi kærri frænku minni og öllum aðstand- endum innilegar samúðarkveðj- ur. Ása Ketilsdóttir. Þegar ég hóf störf hjá Lög- reglunni á Akureyri var Palli, eins og ég kýs að kalla hann, einn af þeim heiðursmönnum sem tóku vel á móti mér í húsakynn- um gömlu lögreglustöðvarinnar að Smáragötu 1. Hann var þá lög- reglumaður númer 6, en ég fékk númerið 10. Ég hafði áður vitað aðeins af honum en það var bara af hinu góða. Þannig voru raunar öll störf hans hjá lögreglunni, vel metinn í sínu starfi og hann vel liðinn af bæjarbúum. Þetta var vorið 1964 og ég barnungur en fé- lagar mínir sem fyrir voru í starf- inu allir það mikið eldri en ég að þeir gátu verið feður mínir. Það var gott að vinna með Palla og ég fann mikið traust í honum þegar við fórum saman til erfiðra verka. Hann var mikið góðmenni og vildi öllum vel. Ég held að það hafi verið mesti og besti kostur allra lögreglumanna í þá daga og er það einnig enn. Honum líkaði ekki að þurfa að handtaka menn og alls ekki að þurfa að beita þá valdi. Hann reyndi allt til að tala þá til þannig að menn komu með Palla sjálfviljugir. Palli hafði um nokkurt skeið, áður en hann kom til starfa á Akureyri, unnið sem lögreglumaður á Húsavík. Þar voru lögreglumenn fáir og voru mikið einir á vakt. Palli hafði gaman af því að kenna okkur sér- stakt handtökutak sem hann kall- aði „Húsvíkinginn“. Þetta tak var gott fyrir þá sem voru einir en ég ætla ekki að fara nánar í útfærslu þess. Palli sagði oft þegar við komum úr erfiðum útköllum: „Tókstu ekki bara Húsvíking á honum?“ Palli var einstakur vin- ur vina sinna og vildi þeim allt vel. Eitt sinn þegar hann var á dagvakt og rétt eftir hádegið þegar lögreglumenn höfðu borð- að vel í mötuneytinu hringdi sím- inn og spurt var eftir einum lög- reglumanna á vaktinni. Palli fór þá inn í setustofuna til að sækja manninn í símann en honum hafði þá aðeins runnið í brjóst og var sofandi í einum stólnum þar. Ekki gat Palli hugsað sér að vekja vaktfélaga sinn af værum blundi svona á miðjum deginum og fór aftur í símann og sagði „hann lagði sig nú aðeins“ og ósk- aði aftir að hringt yrði í hann síð- ar. Ekki veit ég hvað innhringj- andinn hugsaði þegar lögreglumaðurinn var sofandi í vinnunni og ekki hægt að vekja hann í símann. Búskapurinn var alltaf mikið áhugamál Palla og samhliða lög- reglustarfinu rak hann búskap að Litla-Hóli í Eyjafjarðarsveit. Hann var með fjölda kinda, átti hesta og fleiri dýr. Hann byggði sér og fjölskyldunni fallegt hús þar á hólnum þar sem ægifagurt útsýni á fjallið Kerlingu var úr stofuglugganum. Eyjafjörðurinn var fjörðurinn hans og þar var hann allt til æviloka. Ég vil að lokum þakka þessum látna vini mínum og samstarfsmanni til margra ára fyrir samveruna. Eft- irlifandi eiginkonu, börnum, tengdabörnum og fjölskyldum þeirra votta ég samúð mína og megi góður Guð vaka yfir velferð þeirra í framtíðinni. Hvíl þú í friði, kæri vinur, og hafðu þökk fyrir allt og allt. Ólafur Ásgeirsson. Kveðja frá Lögreglu- félagi Eyjafjarðar Í dag er til moldar borinn frá- bær vinur og vinnufélagi í lög- reglunni til margra ára, Páll Rist. Lögreglustarfinu kynntist hann sumarið 1958 sem sumarafleys- ingamaður á Húsavík og lauk hann svo námi frá Lögregluskóla ríkisins 1959. Hafði hann þá hafið störf í lögreglunni á Akureyri og starfaði þar til ársins 1991 þegar hann lét af störfum fyrir aldurs sakir, sjötugur að aldri. Síðustu starfsár sín gegndi Páll starfi fangavarðar í Ríkisfangelsinu á Akureyri. Við starfslok var Páll gerður að heiðursfélaga í Lög- reglufélagi Akureyrar. Lögreglustarfið er fjölþætt og vandasamt starf. Starfið snýst að miklu leyti um samskipti við borgarann, oft á erfiðum stund- um þegar fólk er ekki alveg í jafn- vægi. Þá reynir mikið á lögreglu- manninn og þar kemur í ljós hæfileiki hans til mannlegra sam- skipta. Páll var einstakur á þess- um vettvangi, yfirvegaður, róleg- ur og drenglundaður. Ekkert virtist geta komið honum úr jafn- vægi og aldrei sást hann skipta skapi svo bitnaði á borgaranum. Á vettvangi æsinga hafði hann strax lag á því að róa fólk. Páll var hrekklaus og gerði aldrei ráð fyrir slíku gagnvart sér. Á stund- um tók hann málstað þeirra sem lögreglan hafði afskipti af, „ grey strákurinn, við verðum að reyna að gera gott úr þessu“ voru orð sem maður kannaðist við frá Páli. Hann kunni svo sannarlega að af- klæðast valdinu og vera mann- legur. Við félagar Páls, sem störfuð- um með honum í lögreglunni og fylgdumst með áhuga hans á starfi sem bónda, kveðjum hann með virðingu og þakklæti fyrir hinar mörgu stundir er hann gladdi okkur og gerði m.a. langar næturvaktir léttbærar. Það var ætíð tilhlökkun á fagnaðarstund- um okkar er Páll steig í pontu og með innsæi sögumannsins sagði hann óborganlegar sögur, sem aldrei sköðuðu sögupersónuna eða hlustandann. Við vinnufélagar Páls vottum Stínu, börnum þeirra og tengda- börnum sem og öðrum aðstand- endum samúð. F.h. Lögreglufélags Eyja- fjarðar, Hermann Karlsson, formaður. Páll Lárusson Rist

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.