Morgunblaðið - 14.09.2016, Page 24

Morgunblaðið - 14.09.2016, Page 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016 Mig langar til að minnast tengdaföð- ur míns, Svanlaugs Elíasar Lárussonar, í fáeinum orðum. Svanlaugur fæddist í Stykkishólmi 28. mars 1924, sonur hjónanna Lárusar Elíassonar og Ástu Þorbjargar Pálsdóttur og var af breiðfirskum ættum kominn í húð og hár. Svan- laugur ól allan sinn aldur í Stykk- ishólmi og vildi hvergi annars staðar búa, ekki vegna þess að hann hefði ekki gaman af að ferðast og kanna ókunnar lendur, heldur miklu fremur vegna þess að honum þótti afar vænt um fæð- ingarbæ sinn. Mér er í minni þeg- ar ég kom fyrst í heimsókn á Bók- hlöðustíginn til verðandi tengda- foreldra, fávís sveitapiltur, að ekki leið löng stund þangað til boðið var í bíltúr til að skoða bæ- inn undir ítarlegri leiðsögn. Svanlaugur lagði gjörva hönd á margt um ævina, hann fór á síld sem ungur maður, stundaði vega- vinnu, ók vöru- og fólksflutninga- bílum um skeið en lengst af starf- aði hann sem kaupmaður í Stykkishólmi með bróður sínum Bjarna og æskuvini, Benedikt Lárussyni. Þá urðu til „Lárarnir“ svokölluðu sem allir Hólmarar þekktu. Svanlaugur var afburða röskur og velvirkur maður. Það var sama hvort um var að ræða sögun á kjöti og umsýslu matvara, ham- flettingu á lunda eða línubeitingu, allt gekk þetta svo hratt og örugglega að unun var á að horfa. Kappið enda oft mikið og langur var vinnudagurinn. Ég naut þess í nokkur skipti að fara á lundaveiðar með Svan- laugi, það var mikið ævintýri. Fengum við gjarnan að fara í Langey í boði Hafsteins Guð- mundssonar útvegsbónda í Flat- ey. Oft veiddum við vel og eitt- hvert sinn hugðist ég flýta fyrir okkur og bar lundakippur og far- Svanlaugur Elías Lárusson ✝ SvanlaugurElías Lárusson fæddist 28. mars 1924. Hann lést 4. september 2016. Útför Svanlaugs fór fram 12. sept- ember 2016. angur fram á hlein þar sem von var á Hafsteini að sækja okkur. Fór ég síðan aft- ur til veiða og var alldrjúgur með mig. Ekki leið löng stund þangað til Svanlaug- ur kallaði til mín og sá ég hvar hann stóð og reyndi að kraka lundakippur og far- angur aftur til lands með lunda- háfnum. Hafði flætt svo að fugl og far- angur tók út í einni svipan og sást lítt eftir það enda bæði hvasst og stórstreymt. Það er til marks um skaplyndi Svanlaugs að hann atyrti ekki tengdasoninn en hafði fremur á orði að hann hefði átt að hafa vit fyrir honum. Það var hins vegar lúpulegur tengdasonur sem kom með Baldri til Stykk- ishólms það kvöld. Ekki minnist ég þess að hafa séð Svanlaug argan í sinni og ekki hallmælti hann nokkrum manni þótt ekki væri hann skaplaus. Hann umgekkst samferðamenn sína af ljúfmennsku en var jafn- framt forvitinn um hagi þeirra og ágætlega minnugur. Hann naut þess að ferðast með konu sinni um landið og skoða fallega nátt- úru um leið og hann þuldi bæj- arnöfn og nöfn ábúenda. Börnum sínum kenndi hann síðan það sama. Svanlaugur og Sólveig Inga Bjartmars bjuggu sér og fjórum börnum sínum notalegt heimili að Bókhlöðustíg 11 í Stykkishólmi. Þangað var gott að koma, hús- bóndinn alltaf glaður og reifur og Inga tók á móti sínu fólki með ástúð og þessu fína bakkelsi. Þar áttu síðan barnabörnin öruggt skjól og dvöldu stundum lengi hjá afa og ömmu. Því miður naut Svanlaugur þess ekki að hafa Ingu sína hjá sér til æviloka, hún lést eftir stutt veikindi þann 26. janúar árið 2000. Ég þakka Svanlaugi langa og gefandi samveru og um hann fer vel á að segja: „þá kemur mér hann í hug er ég heyri góðs manns getið.“ Öllum eftirlifandi, fjölskyldu og vinum, votta ég samúð mína. Jónas Jónsson. Minning um góðan frænda, Svanlaug Lárusson. Það var alltaf svo gaman að koma í litla húsið á hólnum, þar sem höfnin blasir við. Í heimsókn til Ástu frænku og Lárusar. Í fyrstu barnsminningunni var húsið iðandi af fólki. Þá var það minna en það er í dag. En innan- dyra rúmaðist fjöldi fólks og allt- af vel tekið á mót gestum. Ásta og Lárus voru líka svo ósköp væn við alla. Þegar ég fer að muna eru Svanlaugur og Bjarni og elstu systurnar farin að heiman. En Svanlaugur var ekki langt undan og ég hitti hann oft. Honum fylgdi svo mikil gleði og fjör. Þegar ég svo þurfti að finna mér vinnu, nýflutt aftur heim í Hólminn, með mann og lítinn son, lá beint við að ráða mig í vetr- arvinnu hjá Lárunum sem þá voru teknir við rekstri Verslunar Sig. Ágústssonar, þeim Benna, Bjarna og Svanlaugi. Þessi vetur er í minningunni einn sá skemmtilegasti sem ég hafði upp- lifað. Þetta var þegar hörpuskelin var að byrja að veiðast og bátar komu víða að til að veiða hana í Breiðafirði. Við vorum með allt uppí 17 báta í viðskiptum. Þeir sendu kostlista á hverjum degi og við tókum til kostinn. Svanlaugur stjórnaði þessari vinnu mest. Hann var afar stríðinn og átti til að stinga ofan í kassana einhverju til að stríða kokkunum. En þetta var mjög mikil vinna og kom mest á tvær okkar að taka til kostinn undir stjórn Lauga. Auðvitað var ég með Alla minn á spítala- skólanum, pabbi hans eða einhver sótti hann klukkan fimm en við vorum oftast að til klukkan að verða sjö að klára að taka til í bátana. Einu sinni var hringt í mig um fjögurleytið og ég beðin að sækja strákinn, hann hafði þá ælt yfir systir Lovísu allhressi- lega. Pabbinn ekki heima og illt í efni. Laugi ákvað þá að sækja strák, kom með hann niður í búð, og þar var hann hjá okkur þar til við vorum búin. Alli skemmti sér stórvel, ekkert lasinn meira, en fór um alla búðina, Bjarni elti hann og þeir bræður kepptust við að gefa honum allt sem hann hefði ekki átt að fá að borða, fyrst hann var með magapínu. En man ekki betur en hann hafi orðið stál- sleginn. Hann lagði mikla nammi- ást á þá frændur eftir það, sem kom ofan á þá ást sem hann hafði á Ástu frænku sinni. En þá bjuggum við í næsta húsi við þau hjónin, Lárus og Ástu, og hef ég ekki haft betri nágranna. Svanlaugur reyndist mér vel, var góður yfirmaður og fyrst og fremst svo skemmtilegur og sá alltaf eitthvað broslegt við lífið. Hann og Inga hans áttu stóra fjölskyldu og bjuggu lengst af við Bókhlöðustíginn með sinn fallega garð og fallega heimili. Þeim fækkar óðum, þessum góðu frændum mínum og frænkum, nánum afkomendum Páls og Helgu í Höskuldsey. Það er gang- ur lífsins og fátt við því að segja. En það er mikill sjónarsviptir að Svanlaugi úr bæjarlífinu, hann var ötull að taka þátt í öllu og mér finnst örstutt síðan ég hitti hann út við Skólastíg 14 þar sem hann var að fara í bíltúr á bílnum sínum og hló sínum smitandi hlátri við mér. Ég óska honum góðrar heimkomu og ég hugsa til krakk- anna hans og fjölskyldu. Dagbjört Höskuldsdóttir. Það er svo margs að minnast og svo margt sem um hugann fer á langri samferð með kærum Svanlaugi móðurbróður okkar, eða Laugja frænda eins og hann var jafnan kallaður. Alla tíð tók hann okkur og fjölskyldu okkar opnum örmum, allt frá því við sem lítil börn kom í Hólminn með foreldrum okkar. Ásgerður byrj- aði alltaf á því að skjótast yfir Þinghúshöfðann yfir á Bókhlöðu- stíg til að hitta Önnu frænku sína, sem var yngsta dóttir þeirra Laugja og Ingu og alltaf var henni tekið fagnandi. Þorgeir hljóp oftast beint niður í Hólm- kjör að hitta bræðurna Laugja og Bjarna og var alltaf vel tekið og strax settur í að hjálpa á lager eða við útkeyrslu. Hlýhugur og blíða einkenndu Laugja og fólki leið vel í návist hans, öll börn bæði stór og smá hændust að honum. Laugi var trúr sínum nánustu og vel tengd- ur þeim fjölmörgu sem hann þekkti. Hann veitti öllum athygli og spurði frétta, vildi vita sem mest og best um sitt fólk og fylgdist vel með öllum ættgarði sínum. Nú síðast kemur upp í minn- ingunni notalegu stundirnar sem við áttum á Hólnum okkar, kvöld- stundirnar með þeim bræðrum Bjarna og Laugja yfir súkku- laðibolla og pönnukökum, þar sem svo ljúft var að hlýða á sög- urnar, spjalla saman um gamla og nýja tíma og bara njóta þess að vera saman. Á þessum stund- um var andinn nærður og sögurn- ar fengu vængi. Einnig þeir mörgu bíltúrar sem við fórum með þeim bræðrum bæði um Stykkishólm eða út á nes og þá var Laugi oftast við stýrið. Þeir bræður Svanlaugur og Bjarni tengdust sterkum bræðrabönd- um og voru þeir oft nefndir í sömu andrá. Missir Laugja var því mikill þegar Bjarni féll frá en þeirra bræðrasamband ætti að vera okkur öðrum fyrirmynd. Ekki má gleyma berjaferðun- um, en Laugi fór til berja meðan heilsa leyfði og lét vita suður með berjasprettuna og vísaði okkur á bestu berjalöndin þegar við mættum á svæðið. Sendi full berjabox til systranna ef þær höfðu ekki tök á að fara til berja, svona var Laugi alltaf að hugsa um aðra. Nú í lok ágúst fór Ásgerður í Hólminn með Ebbu móður okkar, tíndum ber og hittum Laugja á sjúkrahúsinu og áttum með hon- um góða stund. Hann var hress að vanda, lét vel af sér og fannst gott að fá berjalyng í hendurnar þar sem hann komst ekki til berja í þetta skiptið. Við áttum okkar kveðjustund þar sem við horfðum yfir í Súgandisey og dásömuðum fegurðina sem við okkur blasti. Tilgangur Laugja frænda okk- ar var að bæta þennan heim enda skildi hann eftir sig birtu, kær- leika, gleði og þakklæti í hjörtum okkar sem honum kynntust. Á kveðjustundu er okkur og fjöl- skyldu okkar efst í huga þakklæti fyrir liðnar samverustundir. Við munum ætíð minnast með hlýju allra þeirra stunda sem við áttum með Laugja frænda okkar. Við sendum Söru, Gunnari, Lárusi, Önnu og þeirra fjölskyldum okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Við kveðjum kæran frænda með djúpri virðingu og þökk. Ásgerður og Þorgeir. Svanlaugur móðurbróðir minn er látinn 92 ára gamall. Svanlaug- ur, eða Laugi eins og hann var oft kallaður, er sá þriðji systkinanna sem kveður, en þau voru sjö. Ég man eftir Svanlaugi frá því að ég var smástelpa og kom oft í heimsókn frá Ólafsvík með for- eldrum mínum í Stykkishólm. Þá var alltaf farið á Silfurgötuna til ömmu og afa og svo iðulega kom- ið við á Bókhlöðustígnum hjá Svanlaugi og Ingu. Þar var mikið fjör enda börnin þeirra á svipuð- um aldri og við systkinin. Garð- urinn í kringum húsið var ein- staklega fallegur enda hugsuðu þau hjónin vel um hann en þó að- allega Inga því hún var mikil blómakona. Ingu missti hann árið 2000. Ævistarf Svanlaugs var kaup- mennska. Hann vann hjá Sigurði Ágústssyni og var alltaf gaman að hitta hann þar. Síðar stofnuðu þeir bræður Bjarni og Svanlaug- ur Hólmkjör ásamt félaga sínum Benedikt Lárussyni, en allir eru þeir nú látnir. Hólmkjör var ekki aðeins matvöruverslun en þar voru miklu fjölbreyttari vörur í boði, svo sem vefnaðarvara og Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, GUÐRÚNAR S. VALGEIRSDÓTTUR, Sundstræti 34, Ísafirði. . Sesselja M. Matthíasdóttir, Kristján Hilmarsson, Ómar H. Matthíasson, Guðný Guðmundsdóttir, Ingibjörg M. Matthíasdóttir, Jökull Jósefsson, Auður K. Matthíasdóttir, Aðalsteinn Ó. Ásgeirsson, Vilhjálmur V. Matthíasson, Ásdís B. Pálsdóttir, Guðmundur F. Matthíasson, Júlía M. Jónsdóttir, Kolbrún Matthíasdóttir, Erlendur H. Geirdal, Guðrún S. Matthíasdóttir og aðrir aðstandendur. Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, VALGERÐUR HJÖRLEIFSDÓTTIR frá Unnarholtskoti, lést miðvikudaginn 7. september. Hún verður jarðsungin í Dómkirkjunni föstudaginn 23. september klukkan 11. . Helgi Skúli Kjartansson Keneva Kunz Burkni Maack Helgason Kári Tristan Helgason Eiginmaður minn, ANDRÉS ÁSGRÍMSSON, lést föstudaginn 2. september á hjúkrunarheimilinu Mörk. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. . Halldóra Jóhannsdóttir og aðrir aðstandendur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLDÓRA SIGRÍÐUR HALLBERGSDÓTTIR, til heimilis að Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, andaðist á heimili sínu fimmtudaginn 8. september. Útför hennar fer fram frá Landakirkju laugardaginn 17. september klukkan 14. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hraunbúða. . Þuríður Jónsdóttir, Jóel Þór Andersen, Hallbjörg Jónsdóttir, Róbert Gíslason, Berglind Jónsdóttir, Steinar Pétur Jónsson, Óskar Óskarson, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartfólginn sonur minn og frændi okkar, HALLDÓR STEINN HALLDÓRSSON, starfsmaður í Ási, Blönduhlíð 6, Reykjavík, lést á deild B-5, Landspítala í Fossvogi, sunnudaginn 11. september. Jarðarförin verður mánudaginn 19. september klukkan 13, frá Hafnarfjarðarkirkju. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð bjöllukórs Tónstofu Valgerðar. 0515-14-405790, kt: 501100-3580. . Anna Björg Halldórsdóttir, Halla Sólveig Halldórsdóttir, Sigurjón Högnason, Freyja Sigurjónsdóttir, Karl Sigurjónsson, Ines Willerslev Jørgensen, Baldur Willerslev Karlsson, Katla Willerslev Karlsdóttir. Faðir okkar, STEFÁN ÓLAFSSON, bakari frá Patreksfirði, til heimilis að Hjallabraut 33, Hafnarfirði, andaðist á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn 3. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd aðstandenda, . Sesselja Stefánsdóttir, Ólafur Stefánsson, Oddný Stefánsdóttir og fjölskyldur. Lokað Skrifstofa Eignamiðlunar verður lokuð eftir hádegi fimmtudaginn 15. september vegna jarðarfarar ÞORLEIFS STEFÁNS GUÐMUNDSSONAR, löggilts fasteignasala. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur, HEIÐVEIGAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Víðivangi 3, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki lungnadeildarinnar í Fossvogi fyrir nærgætni, hlýhug og frábæra umönnun. . Fyrir hönd aðstandenda, Sævar Örn Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.