Morgunblaðið - 14.09.2016, Blaðsíða 25
leikföng og nánast allt sem við-
skiptavinirnir þörfnuðust. Þeir
félagar ráku líka sláturhús og
höfðu jafnframt á boðstólum ým-
islegt sem bændurnir með inn-
leggin sín þurftu til búrekstrar-
ins. Verslunin var rekin í um
þrjátíu ár. Það var ávallt upplífg-
andi að hitta þá bræður í Hólm-
kjörum. Oft keyptum við Guð-
brandur bróðir kjöt af þeim á
haustin og fylltum frystikisturn-
ar.
Svanlaugur og Bjarni voru
góðir og nánir bræður sem höfðu
ævinlega dagleg samskipti og
bjuggu á sitt hvorri hæðinni á
dvalarheimili aldraðra í Stykkis-
hólmi síðustu æviár sín. Hin síð-
ari ár var gaman að fylgjast með
hve miklir körfuboltaáhugamenn
þeir voru orðnir, en þeir voru tíðir
gestir á áhorfendapöllunum þeg-
ar lið þeirra Snæfell lék sína
heimaleiki. Ef þeir hefðu verið
yngri er ég viss um að þeir hefðu
verið inni á vellinum en ekki þar
sem þeir sátu innan um áhorfend-
ur.
18. ágúst síðastliðinn komum
við hjónin í Stykkishólm og heim-
sóttum þá Svanlaug, en þá var
hann á sjúkrahúsinu. Hann var
glaður og ánægður að sjá og
borðaði með góðri lyst og bauð
upp á aðalbláber sem tínd höfðu
verið við Drápuhlíðarfjall og hon-
um færð. Þetta var í síðasta sinn
sem ég talaði við Svanlaug
frænda minn.
Við andlát Svanlaugs er komið
að mér að þakka fyrir kynnin og
samverustundirnar, en minn-
inguna um hann og allt það góða
sem hann gaf mér mun ég ávallt
geyma með mér. Hvíli hann í
friði.
Börnum hans og fjölskyldum
þeirra hennar votta ég mína inni-
legustu samúð.
Þín frænka,
Ásta Lára Leósdóttir.
Það er gott að eiga rætur.
Rætur okkar systkinanna liggja í
Stykkishólmi. Þar fæddust for-
eldrar okkar og ólust upp, þar
bjuggu föðurforeldrar okkar
fram á fullorðinsár og móðurfor-
eldrar til æviloka. Í Hólminum
bjuggu einnig
móðurbræður okkar og fjöl-
skyldur þeirra og þangað lágu
löngum leiðir okkar til að hitta
alla þessa góðu ástvini. Svanlaug-
ur frændi er nú allur 92 ára að
aldri og við systkinin, fjölskyldur
okkar og móðir kveðjum hann í
djúpri virðingu og kærleika.
Hann var glaðlyndur, brosmildur
og skemmtilegur frændi, faðm-
lagið var hlýtt og nærandi. Hann
var lífsglaður og hafði jákvæðni
til tilverunnar að leiðarljósi. Hjá
þeim bræðrum í verslun Sigurðar
Ágústssonar fengum við systkin-
in að taka til hendinni forðum
daga, fara í vinnuslopp, vigta epli
og kartöflur og fara í búðarleik.
Eftir á að hyggja vorum við auð-
vitað fyrir en við vorum samt
aldrei látin finna til þess. Við börn
Leu Rakelar og Agnars Möller
þökkum fyrir vináttu og elsku-
semi þessa einstaka móðurbróð-
ur okkar.
Einnig stöndum við í þakkar-
skuld við Ingu, eiginkonu hans,
sem lést fyrir nokkrum árum, og
börn þeirra fyrir einlæga vináttu
gegnum tíðina. Við biðjum góðan
Guð að blessa minningu Svan-
laugs frænda okkar.
Margrét Kristín,
Alma, Thomas, Ásta
og Edda Möller.
Svanlaugur Elías Lárusson
verslunarmaður verður jarðsung-
inn frá Stykkishólmskirkju
mánudaginn 12. september. Hans
verður saknað af samferðar-
mönnum í Stykkishólmi, svo
traustur sem hann var. Svanlaug-
ur var Hólmari af lífi og sál og bar
hag bæjarfélagsins stöðugt fyrir
brjósti. Hann var öflugur þátt-
takandi í bæjarlífinu og hann
naut þess að vera í bakvarð-
arsveitinni þegar kom að því að
leggja góðum málum lið.
Svanlaugur var vissulega á
réttri hillu þegar hann tók ásamt
Bjarna bróður sínum og Benedikt
Lárussyni við rekstri gömlu Sig-
urðarbúðar og byggði upp Vöru-
húsið Hólmkjör. Hafði Svanlaug-
ur átt farsælt starf hjá fyrirtæki
Sigurðar Ágústssonar og fjöl-
skyldu. Svanlaugur var verslun-
armaður af lífi og sál. Það var
hreint einstakt að fylgjast með
honum við kjötborðið í Hólmkjör-
um og sjá hvernig hann af ein-
lægni ráðlagði viðskiptamönnum
og seldi vel og var jafnvel um leið
að halda fram sjónarmiðum sín-
um um menn og málefni á þann
hátt að eftir var tekið og án þess
að ganga þar yfir strikið t.d. þeg-
ar hann var að verja bæjarstjór-
ann eða þingmanninn sinn eða
aðra pólitíska samherja.
Undir merkjum Hólmkjara
var rekið bæði nútíma vöruhús og
bændaverslun. Samhliða því ráku
Hólmkjör Sláturfélag Snæfell-
inga ásamt Kaupfélagi Stykkis-
hólms og Verslunarfélaginu
Grund í Grundarfirði. Svanlaug-
ur kunni að fara með það mikla og
trausta samband sem var byggt
upp við bæjarbúa og fólk af öllu
Snæfellsnesi í verslunarrekstrin-
um enda sanngjarn maður og lip-
ur.
Hann þekkti og skildi sam-
félagið vel og vissi hverja þurfti
að styðja og veita góð kjör þegar
erfiðleikar steðjuðu að fjölskyld-
um. Afslátturinn sem hann vildi
veita var ekki veittur við kassann
fyrir augum bæjarbúa heldur
miklu fremur kom hann fram
þegar kjötið sem átti að vera eitt
kíló reyndist tvö kíló þegar heim
var komið.
Þannig var Svanlaugur og um
það voru þeir Lárarnir í Hólm-
kjörum samstíga og nutu virðing-
ar og velvilja bæjarbúa.
Ég hitti Svanlaug fyrir stuttu
þegar hann átti leið hér um Ásk-
lifið svo sem oft áður til þess að
huga að Gunnari syni sínum og
fjölskyldunni. Hann ók á bílnum
sínum af öryggi þrátt fyrir háan
aldur og var með einkanúmerið P
22 vegna þess að bílinn var hluti
af tilverunni sem hann var fast-
heldinn á. Ég fann og heyrði að
hann var með hugann við bæjar-
málin og spurði margs þegar
hann leitaði frétta. Það fór ekki á
milli mála að hann naut þess að
fylgjast með framförum og upp-
byggingu enda vissi hann vel
hvaða þýðingu það hefur fyrir af-
komuna í samfélaginu að við-
skiptin vaxi og dafni og hann var
stöðugt hvetjandi og bjartsýnni
en flestir aðrir. En svo kom kallið
og hann á ekki lengur leið hér um
götuna til fjölskyldunnar sinnar í
Ásklifi 22.
Þannig líður tíminn í önnum
daganna og við sjáum á bak góð-
um vini. Við Hallgerður og börnin
okkar minnumst okkar góða vin-
ar Svanlaugs með virðingu og
þökk og sendum fjölskyldunni
allri samúðarkveðjur á sorgar-
stundu. Blessuð sé minning Svan-
laugs Lárussonar.
Sturla Böðvarsson.
Lengi hafa vindar leikið á tjaldstrengi
mína.
Ég hef legið við skör, og ég vakti og
hlustaði lengi
á hófatök þau sem dvínuðu fjær og
fjær
og fann hvernig þögnin læddist í mína
strengi.
Enn fara lestir, það lætur í silum og
klökkum
og leiðin til vaðsins er auðkennd með
gamalli vörðu.
Já, nú væri tíð að taka dót sitt í klif.
Tjaldhæla mína dreg ég bráðum úr
jörðu.
(GB.)
Takk fyrir okkar fáu ár af vin-
skap, þau voru mér sem mörg og
mikilvæg.
Vinur þinn,
Guðmundur Böðvar.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9. Snyrtivörur og skart frá AVON á
sölutorginu kl. 11.30-15.00. Útskurður ll (frá 5. október) og postulíns-
málun ll kl. 13. Vinsæla söngstundin með henni Helgu tónmennta-
kennara kl. 13.45
Árskógar 4 Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-16. Stóladans með
Þóreyju kl. 9.30. Hjúkrunarfræðingur með mælingar kl. 14-15. Opið
hús, m.a. vist og brids kl. 13-16. Prjónaklúbbur Ljósbrotsins með
Guðnýju kl. 13-16.
Boðinn Vatnsleikfimi kl. 9, handavinnustofa opin frá kl. 9-15, (starfs-
maður Boðans verður til aðstoðar á milli 11 og 15), harmonikkuspil og
söngur kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 Leikfimi kl. 10.30, hjúkrunafræðingur kl. 11. Spila-
dagur, glerlist og pjónaklúbbur kl. 13. Bingó verður spilað á morgun
kl. 13. Allir velkomnir.
Dalbraut 18-20 Verslunarferð í Bónus kl. 14.40.
Dalbraut 27 Handavinnustofa kl. 8.
Garðabær Opið og heitt á könnunni í Jónshúsi frá kl. 9.30-16. Með-
læti selt með síðdegiskaffinu kl. 14. Vatnsleikfimi kl. 7.40, kl.12.10 og
15. Kvennaleikfimi í Sjálandsskóla kl. 9.10, stólaleikfimi kl. 10 og
kvennaleikfimi í Ásgarði kl. 11. Bútasaumur í Jónshúsi kl. 13. Leir í
Kirkjuhvoli kl. 13. Brids í Jónshúsi kl. 13.
Gerðuberg Kl. 9-16 opin vinnustofa, kl. 9-16 útskurður með leiðbein-
anda, kl. 10.30-12 gömlu dansarnir, kl. 13 félagsvist.
Grensáskirkja Samverustundir eldri borgara í Grensáskirkju kl. 14.
Allir hjartanlega velkomnir.
Guðríðarkirkja Félagsstarf eldriborgara í Guðríðarkirkju miðviku-
daginn 14. september kl. 13.10. Helgistund í kirkjunni, spjall, síðan
kemur sr. Anna Sigríður Pálsdóttir fyrirverandi Dómkirkjuprestur og
ræðir við okkur um meðvirkni. Kaffi og meðlæti 500 kr. Hlökkum til að
sjá ykkur. Sr. Kristín og Lovísa.
Gullsmári Myndlist kl. 9, ganga kl. 10, postulínsmálun kl. 12.30,
kvennabrids kl. 13, línudans kl. 16.30, línudans byrjendur kl. 17.30.
Hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum. Allir velkomnir!
Hraunbær 105 Kaffiklúbburinn, allir velkomnir í kaffi kl. 9. Botsía kl.
10-11. Opin handavinna, leiðbeinandi kl. 9-14. Morgunleikfimi kl. 9.45.
Hádegismatur kl. 11.30. Snjalltækjakennsla, aðstoð með farsíma og
spjaldtölvur kl. 14, kostar ekkert og allir velkomnir. Kaffi kl. 14.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, zumbadans og
líkamsrækt kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45. Samverustund kl. 10.30, lest-
ur og spjall, matur kl. 11.30. Handavinnuhópur kl. 13, mömmuhópur
kl. 13, söngstund með Sighvati kl. 13.30, kaffi kl. 14.30. Ný vetrar-
dagskrá væntanleg í vikunni og verður þá sett fram, allir velkomnir.
Hæðargarður 31 Qigong kl. 6.30. Við hringborðið kl. 8.50, upplestr-
arhópur Soffíu kl. 9.30, línudans fyrir byrjendur kl. 10.15. Hláturjóga
kl. 13.30, tálgun í ferskan við með Valdóri kl. 14.30, síðdegiskaffi kl.
14.30. Allir velkomnir í Hæðargarð óháð aldri og búsetu. Nánar í síma
411-2790.
Íþróttafélagið Glóð Ringó í Kópavogsskóla kl.16, í Gullsmára kl. 13.
Línudans kl. 16.30 framhaldsstig 1 (1 x í viku), kl. 17.30 byrjendur (1 x í
viku). Uppl. í síma 698 5857 og á www.glod.is
Korpúlfar Glerlistanámskeið kl. 9 í dag, gönguhópar kl. 10, gengið
frá Borgum, Keila í Egilshöll kl. 10 í dag, bingó kl. 13 í Borgum í dag
og kóræfing Korpusystkina hefst í dag kl. 17.30. Allir velkomnir.
Neskirkja Krossgötur kl. 13.30. Heimsókn í Sjóminjasafnið og sýn-
ingin um Þorskastríðin, For Cod’s Sake, skoðuð. Við sögu koma fagur-
klæddir sjómenn frá Hull, ármenn Íslands, grjótkast og árekstrar bæði
á hafi og í landi. Kaffiveitngar í Neskirku í upphafi.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, morgunleik-
fimi kl. 9.45, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, upplestur kl. 11,
félagsvist kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14, Bónusbíllinn kl. 14.40,
heimildarmyndasýning kl.16.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Húsið er opið frá kl. 10-14 en starfsemi
verður þó möguleg fram til kl. 16. Upp úr 10 er boðið upp á kaffi, gott
að koma í spjall og kíkja í blöðin. Hádegismatur kl. 11.30-12.30, handa-
vinna er kl. 13. Molasopinn er frammi eftir hádegi og vestursalurinn
opinn kl. 14-16. Allir hjartanlega velkomnir. Skráning í leikfimi hjá
Guðnýju stendur yfir.
Seltjarnarnes Námskeiðin í gleri falla niður í dag. Leir og listasmiðja
á Skólabraut kl. 9. Botsía Gróttusal kl. 10. Kaffispjall í króknum kl.
10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12.Timburmenn í Valhúsaskóla kl.
13. Handavinna / opinn salnur á Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi kl.
18.30. Ath. þið sem skráð eruð í ferðina í Flóann á morgun, fimmtu-
dag, þá leggjum við af stað frá Skólabraut kl. 13.
Stangarhylur 4 Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði, Stangarhyl 4, kl.
10. Söngvaka kl. 14, stjórnendur Sigurður Jónsson píanóleikari og
Karl S. Karlsson. Allir velkomnir.
Vitatorg Bókband og handavinna kl. 9. Leirmótun og postulínsmálun
kl. 9, upplestur framhaldssögu kl. 12.30, frjáls spil og stóladans kl. 13.
Messa, prestar Hallgrímskirkju fyrsta miðvikudag hvers mánaðar.
Samsöngur hina miðvikudagana kl. 10.15. Ferð í Bónus: Rúta frá
Skúlagötu kl. 12.20 Myndlist kl. 13.30. Dansað með Vitatorgsbandinu
kl. 14, allir velkomnir í dansinn og í félagsstarfið. Uppl. í síma
411-9450 og 822-3028.
Félagslíf
Kristniboðsfélag karla
býður í kjötsúpu kl. 19 í Kristni-
boðssalnum. Söngsamkoma kl.
20, Helga Magnúsdóttir.
Ræðumaður Skúli Svavarsson.
Allir velkomnir.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Smáauglýsingar 569 1100
Bækur
Bækur til sölu
Fornmannasögur 1-12, 1825,
Eðlisfræði, Fisher 1852, Bréf til
Láru 1. útg., Kvæðabók, Benedikt
Gröndal, 1900, Ferðabók Hender-
sons, 1819, Ófeigur 1. - 13,
Skýrsla Menntaskólans á Akur-
eyri 1. - 77. árg., Stefnir 1-3, MA
stúdentar 1-5, Chess in Iceland
1905, Jarðskjálftar á Suðurlandi,
Þ.Th. 1899, Akureyri fjaran og
innbærinn, Íslensk bygging,
Guðjón Samúelsson, Austantórur
1-3, Ættir Þingeyinga 1- 4, Grá-
gás 1852, 1879 lp., Dalalíf 1-3,
Ættir Austfirðinga 1-9, Dala-
menn 1-3, Strandamenn, Íslensk
myndlist 1- 2, Hendur ljóssins,
Veiðimaðurinn 1.- 86. tb., ób.,
Ódáðahraun 1- 3, Skýjabók 1958,
Krosssaætt 1- 2, Víðir, Vest-
mannaeyjar 1. - 24. árg., Kuml
og haugfé, Bíldudalsminning,
Stjórnartíðindi 1885 - 2000,
(6 hillumetrar).
Upplýsingar í síma
898 9475.
Geymslur
Ferðavagnageymsla
Borgarfirði
Geymum tjaldvagna, fellihýsi, hjól-
hýsi, báta og fleira í upphituðu rými.
Gott verð. Sími 499-3070.
Sólbakki.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Hellur og lóðalögun
Getum bætt við okkur minni verkum í
hellulögnum og hleðslum fyrir
veturinn. Sími 823-7170.
Óska eftir
Staðgreiðum og lánum út á: gull,
demanta, vönduð úr og málverk!
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu
núna og fáðu tilboð þér að kost-
naðar-lausu! www.kaupumgull.is
Opið mán.– fös. 11–16.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 782 8800
Ýmislegt
Uppí 70% afmælisafsláttur
í nokkra daga. Vönduð armbandsúr á
ótrúlegu verði eða frá 5.000 kr. Pierre
Lannier Paris, frönsk hönnun og
smíði. 2ja ára alþ. ábyrgð.
ERNA Skipholti 3,
s. 552 0775,
www.erna.is
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Hjólbarðar
Vörubíladekk útsala
4 stk 275/70 R 22.5 DR 1 Matador
3 stk 1200 R 20 DR 2
4 stk 245/70 R 19.5 Fulda sumardekk
8 stk 215/75 R 17.5 MP 460
Stök dekk Matador, Sava Fulda:
1 stk 275/70 R 22.5 MP 460,
1 stk 305/70 R 19.5
4 stk 13 R 22.5 ,
4 stk 12 R 22.5,
2 stk 385/65 R 22.5
1 stk 295/80 R 22.5,
3 stk 315/70 R 22.5,
1 stk 11 R 22.5
1 stk 315/80 R 22.5,
1 stk 1000 20 MP 600
Traktordekk 1 stk til í þessum
stærðum, 16.9 – 30, 13.6 -24 , 11.2
– 28, 14.9-24, 12.4 R 24 og
1. stk. Super Swamper TSL
38x15.5x16.5
Kaldasel ehf ., Dalvegur 16 b,
Kópavogur s. 5444333
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
HúsviðhaldTil leigu
Til leigu nýlegt 285 - 1.000 fm
atvinnuhúsnæði í Reykjavík
285 fm bil með allt að 9 m lofthæð,
stórar innkeyrsludyr, góð malbikuð
lóð, og greið aðkoma.
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir í s. 661 7000
Smáauglýsingar
sími 569 1100