Morgunblaðið - 14.09.2016, Síða 26

Morgunblaðið - 14.09.2016, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016 Ég verð örugg-lega lokuð inniá hótelinu með landsliðinu í dag,“ seg- ir Hallbera Guðný Gísladóttir fótbolta- kona sem á 30 ára af- mæli. „En ég treysti á að liðsfélagarnir geri eitthvað sérstakt fyrir mig. Við ætlum síðan saman á körfubolta- leikinn Ísland - Kýpur, þetta verður því kannski svolítið óhefð- bundinn afmælis- dagur.“ Fram undan eru lokaleikirnir í undan- keppni EM í fótbolta, en 16. september mun íslenska landsliðið keppa við Slóveníu og 20. september verður leikur gegn Skotlandi og fara báðir leikirnir fram hér heima. Landsliðið er nánast búið að gulltryggja sér sæti í úrslitakeppni EM en síðast þegar liðið komst á EM, árið 2009, komst það í átta liða úrslit, eins og karlalandsliðið náði einnig í sumar í Frakklandi. Hallbera spilar með Breiðabliki en þær gerðu aðeins jafntefli um helgina. „Sá leikur gerði út um titilvonir okkar en Stjarnan ætti að klára sína leiki sem eru eftir. Eftir Íslandsmótið verða Evrópuleikir með Breiðabliki og mér skilst að landsliðið leiki tvo vináttuleiki í lok október svo tímabilið verður aðeins lengra en venja er sem er ágætt meðan maður þarf ekki að æfa úti í roki og rigningu,“ segir Hallbera og hlær. Hallbera vinnur í tölvudeildinni á Landspítalanum og er í fjar- námi í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri og vonast til að klára námið í vor. „Það er því voða lítið annað sem kemst að þegar maður er í fullu námi og boltanum. Ég er ekki komin með fjölskyldu sem betur fer kannski og get eytt tímanum í þetta. Prógrammið á virkum dögum er stíft en á sunnudögum fer ég til Akraness til foreldra minna. Þau elda fyrir mig og ég hitti systkini mín og börn þeirra.“ Foreldrar Hallberu eru Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóa- hafna, og Hallbera Fríður Jóhannesdóttir, kennari og bókasafns- fræðingur. Bikarmeistari Breiðablik, sem Hallbera leikur með, er bikarmeistari í ár. Lokuð inni á hóteli Hallbera Gísladóttir er þrítug í dag B jarni fæddist á Akureyri 14.9. 1946 og ólst þar upp í Sólvangi í Glerár- þorpi til 15 ára aldurs en þá fluttu þau inn fyr- ir Glerána, á Brekkuna: „Á æskuár- unum var alltaf mikill rígur milli strákanna í Glerárþorpinu annars vegar og „Brekkusniglanna“ og á milli okkar í „Þorpinu“ og „Eyrar- púkanna“. Viðkvæmasti tíminn var í nóvember og desember þegar verið var að safna í áramótabrennurnar. Strákarnir voru að stela úr brenn- unum hver frá öðrum og þá þurftum við að vakta bálkestina svo ekki færi illa. Oft sló í orrustur milli flokkanna en samskiptin voru rólegri á öðrum árstímum. Við áttum heima við gömlu brúna yfir Glerá og þar var helsta leik- svæði okkar strákanna. Þetta var spennandi en hættulegt leiksvæði, sérstaklega þegar áin var í vexti, og einu sinni rifbeinsbrotnaði ég. En þetta voru skemmtilegir tímar.“ Bjarni lauk barnaskólaprófi við Barnaskóla Glerárþorps, stundaði síðan nám í Gagnfræðaskólanum á Akureyri og lauk þar prófi í verk- námsdeild. Því næst lærði hann vél- virkjun hjá vélsmiðjunni Atla hf., stundaði nám við Vélskóla Íslands á Akureyri og lauk þaðan prófum í ársbyrjun 1968. Hann öðlaðist meistararéttindi í vélvirkjun 1970. Bjarni var mikið hjá afa sínum og ömmu og móðurbræðrum sínum í Flatey á Skjálfanda á sumrin, fékk rúllu hjá afa sínum níu ára og byrj- Bjarni L. Thorarensen, vélstjóri og vélvirkjam. í Hrísey – 70 ára Um borð í Þorgrími Bjarni og Sigríður að frílista sig fyrir utan höfnina í Hrísey, á bátnum sem Bjarni keypti. Vélvirkjameistari sem nú er á kafi í ætihvönn Börn og tengdabörn Hrafnhildur, Elvar, Stefán, Jónanna og Arnar. Félagarnir Ólafur Kristinn Sveinsson og Sölvi Hermannsson söfnuðu dóti á tom- bólu sem þeir héldu við verslun Samkaupa í Hrísalundi og við verslun Bónuss í Naustahverfi. Þeir styrktu Rauða krossinn með ágóðanum, 12.199 krónum. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.